Morgunblaðið - 24.10.1967, Page 4
■*
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. OKT. 1967
IMAGNÚSAR
skipholti21 sjmar 21190
eftir lokuri simi 40381' ‘ ~
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748
Sigurður Jónsson
BÍLALEIGAM
- VAKUR -
Sundatugaveg 12 - Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
RAUÐARARSTÍG 31 SÍMI 22022
Húseigendafélag Reykjavíkur
Skrifstofa á Bergstaðastr lla.
Sími 15659. Opið kl. 5—7 alla
virka daga nema laugardaga.
HILMAR FOSS
lögg. skjalaþ og dómt.
Hafnarstræti 11. - Sími 14824.
Jóhann Ragnarsson, hdl.
málflutningsskrifstofa
Vonarstræti 4. Sími 19085
Knútur Bruun hdl.
Lögmannsskrifstofa
Grettisgötu 8 II. h.
Sími 24940.
★ „Að meta til verðs“
Góðvinur Velvakanda
fyrir norðan, sem kallar sig
nafni „Pela“, skrifar undir of-
angreindri fyrirsögn:
„Góði Velvakandi!
Stór-reykvíkst vikublað
hneykslaðist um daginn á því,
að þyrla hefði farið í eftirleit
á afréttir Sunnlendinga og ekki
haft nema fáar kindur upp úr
krafsinu. Spyr hánn, hváð kjöt-
kílóið muni kosta í þeim sauð-
peningi, sem fannst, ef greiða
yrði það kostnaðarverði.
Ég vil benda hinum hug-
kvæma ritstjóra á annað dæmi,
sem e. t.v. er ekki nákvæm-
lega upp sett: Áhugamaður um
fugladráp fer úr Stór-Reykja-
vík inn í óbyggðir, skýtur 2
rjúpur og villist. Sex flugvélar
og 60 manna björgunarsveitir
finna skyttuna eftir tveggja
sólarhringa leit með 2 rjúpur.
Hvað kostar rjúpan?
Peli.“
★ Hugleiðingar hús-
móður um kven-
réttindaþáttinn í
sjónvarpinu
Frú Bjarnveig Bjama-
dóttir skrifar:
„Nýlega var þáttur í sjón-
varpinu þar sem rædd voru hin
svokölluðu kvenréttindamál.
Spjallaði Haraldur J. Hamar
vfð þau Magnús Óskarsson
hæstaréttarlögmann og frú
Láru Sigurbjömsdóttur for-
mann Kvenréttindafélags Is-
lands.
Ýmislegt bar á fóma i þess-
um umræðum, e mér fannst
vera farið í kringum veigamik-
ið atriði í þeim þætti umræðn-
anna, þegar rætt var um kon-
una og þátttöku hennar í opin-
beru lífi, sem er harla lítil hér
á landi. Ýmsar ástæður voru
nefndar, m. a. að heimilið og
uppeldi bama gerðu konum
óhægt um vik að gerast þátt-
takendur á þeim vettvangi, og
þessvegna væri hlutur kvenna
lítill sem enginn, t. d. á stjórn-
málasviðinu.
En mitt sjónarmið, og margra
annarra kvenna, í sambandi
við umrætt mál er þetta:
Tímarnir hafa breytzt mjög
síðustu áratugi. Nú er fólk mik-
ið yngra en áður var þegar það
giftir sig og ákveður að eignast
bú og börn. Unga fólkið kveður
því foreldra sína og htimili,
þegar foreldrarnir eru á bezta
aldri. Og nú er t. d. oft talað
um „ungar ömmur“, og ekki
óeðlilegt, því að oft eru ömm-
urnar tæplega fertugar að
aldri, þegar börnin hafa kvatt
heimilið. Og þá gefst ýmsum
konum góður tími til þess að
sinna áhugamálum sínum utan
heimilis, því að nú er sá tími
að mestu liðinn, a’ð konan noti
tómstundirnar eingöngu til
„broderinga” meðan eiginmað-
urinn er við vinnu sína. Marg-
ar þeirra vinna ómetanleg
störf við ýmiskonar líknarmál.
En svo virðist að meginþorri
karla hérlendis komist ekki
frá því sjónarmiði, að vett-
vangur konunnar eigi eingöngu
að vera heimilisstjórn, barna-
uppeldi, og líknarstörf þegar
aldurinn færist yfir hana. En
áreiðanlega væri það t. d. hollt
alþingi og þjóðinni til góðs,
ef nokkrar konur ættu þar sæti
og létu skoðanir sínar í ljós,
og ynnu að ýmsum þjó’ðmálum
sem þar er fjallað um og snerta
alla þegna. Og áberandi er það,
hve konan er sniðgengin í sam-
bandi við ýmiskonar nefndar-
störf, og dettur mér í hug þjóð-
hátíðarnefndin 1974, en í þá
nefnd var engin kona kosin.
Áreiðanlega hefði það ekki
skaðað nefndina að kona ætti
þar sæti, og hlutdeild að þeirri
þjóðargleði sem þetta merkis-
afmæli vonandi verður.
Það er mjög athyglisvert, að
með aukinni menntun kvenna
hér á landi, verður hlutur
þeirra sífellt minni í opinberu
lífi, og hafa þær t. d. aldrei
verið jafn fáliðaðar á alþingi
og nú. Aðeins einn stjórnmála-
flokkur virti konuna það mikils
að setja hana í öruggt sæti á
lista sinn í síðustu kosningum
til alþingis. Yfirleitt er konan,
höfð „upp á punt“ á framboðs-
listum flokkanna. Hér stöndum
við langt að baki Norðurlönd-
um. Þar eru hæfileikakonur
kvaddar til þátttöku í glímunni
við þjóðmálin.
Vel menntuð hæfileikakona,
sem loki'ð hefur barnauppeldi
og af hagsýni stjórnað ríki í
ríkinu — heimili sínu —, hefur
öðlazt mikla reynslu við hin
ýmsu störf og margvísleg um-
svif sem eiga sér stað innan
vaggja heimilisins. Hún hefur
einnig öðlazt mikla reynslu í
meðferð fjármuna, og lært að
skipuleggja framkvæmdir og
stórf, svo að öllu megi verða
sem bezt borgið í „litla ríkinu".
Þetta er -lærdómsríkur skóli,
og jafnframt gott veganesti við
hin ýmsu störf á Öðrum vett-
vangi. Það er úr hópi slíkra
kvenna, sem velja á þátt-
takendur í margskonar störf í
opinberu lífi. Þau eru ekki
einkamál karla.“
★ Með tannpínu
„Ein með skemmda tönn“
skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Fvrir nokkrum dögum var
birt í dálkum þínum bréf frá
tannlækni. Hann vildi kannske
vera svo vingjarnlegur að upp-
lýsa, hvernig á því stendur, áð
illmögulegt er að komast að
hjá tannlæknum tib að fá
dregna úr sér tönn. Ég fékk
heiftarlega tannpínu einn dag
fyrír nokru og hringdi í marga
lækna, en alls staðar fékk ég
saira svar: Þér getið komið eft-
ir viku.
Kær kveðja,
Ein með skemmda tönn“.
Velvakandi veit ekki betur
en fólk með kvalafulla tann-
pínu („akút tilfelli”) sé tekið
til meðferðar þegar í stað hjá
tannlæknum borgarinnar,
hvernig sem á stendur hjá
þeim, — en flestir munu þeir
hafa mikið að gera.
★ Ferðasaga
Svanhild Guðmundsson
skrifar:
„í fyrra var skrifa’ð um
skemmtiferðaskipið Baltika, og
síðan hefur oft verið skrifað
um skemmtiferðir með erlend-
um skipum, en nú langar mig
að breyta til og skrifa um ferð
með íslenzku skipi, m.s. Gull-
fossi.
Lagt' var af stað frá Reykja-
vík laugardaginn 15. júlí í blíð-
skapar veðri. Ég fékk ágætan
tveggjamanna klefa á D-þil-
fari, 1. farrými, og var her-
bergisfélagi minn ung og glæsi
leg stúlka, Sigríður, dóttir
Halldórs Kiljans Laxness. Betri
ferðafélaga hefði ég ekki getáð
kosið mér, stillt og prúð stúlka,
og alltaf fús til að hjálpa mér,
ef með þurfti. Þá vil ég ekki
gleyma að geta þess, að öll
þjónusta og starfslið var með
ágætum, allt þjónustulið var
lipurt og kurteist. Til gamans
má geta þess, að bakarinn, sem
var 20 ára piltur, bakaði svo
góðar kökur, að farþegarnir
báðu hann um kökuuppskriftir
í ferðalok. Brytinn kom oft inn
til okkar til þess að athuga
hvernig okkur liði. Já, allir
farþegarnir voru sem ein fjöl-
skylda.
Kvöldið áður en við komum
til Leith, bauð skipstjórinn
öllum farþegunum í cocktil í
reyksal skipsins fyrir kvöld-
mat. Gekk skipstjórinn um,
skálaði og talaði við alla. Það-
an var svo farið beint í kvöld-
matinn, sem var veizlumatur
eins og alltaf, en það sem vakti
mesta athygli þetta kvöld, var
ísinn. Þegar þjónarnir báru
hann inn, voru öll ljósin slökkt,
og var eins og þeir kæmu með
logandi hraun. Eftir kvöldmat
var alltaf veitt kaffi í reyk-
salnum.
Með skipinU var hljómsveit
og spilaði hún fyrir dansi þetta
kvöld. Dönsuðu jafnt ungir
sem gamlir og var mikið fjör.
Einnig var farþegi um borð,
sem spilaði á píanó og var oft
tekið undir og sungið.
Til Leith komum við árla
morguns 18. júlí í sólskini og
blíðskapar veðri. íslenzk frú,
sem býr í Edinborg tók á móti
mér, og fórum við fyrst að
verzla. Já, það var margt fall-
elgt að sjá og langaði mig til
þess að kaupa ýmislegt, en
betra var að eyða ekki of
miklu af gjaldeyrinum, sem
átti að endast allt fer’ðalagið.
Var okkur Sigríði svo boðið
heim til frúarinnar og manns
hennar. En þessi ágætis hjón
voru Hermann Pálsson lektor
og frú Guðrún. Það var tekið
mjög vel á móti okkur, og
litla dóttir þeirra skemmti Sig-
ríði, og fór með henni í fall-
egan iystigarð, sem var rétt
hjá þeim, en garðar í Edin-
borg eru mjög fallegir.
Leið tíminn allt of fljótt og
skipið átti að fara kl. 15 svo
betra var að koma tímanlega
úm borð, þvi a’ð leiðinlegt hefði
verið að verða strandaglópur.
Til Kaupmannahafnar feng-
ur við sama góða veðrið og frá
Reykjavík til Leith, svo sjó-
veikin gerði ekki vart við sig.
Ég íór einnig heim með Gull-
fossi þann 20. september og
var ferðin í alla staði mjög
skemmtileg
Ég vil að lokum senda ferða-
félaga mínurn, Sigríði Hall-
dórsdóttur, mínar beztu kveðj-
ur og þakka henni fyrir góða
samveru og skemmtilegt ferða-
lag. Einnig ■ vil ég þakka her-
bergisþernunni, Ester Valdi-
marsdóttur fyrir alla snúning-
ana og góða framkomu. Svo
vil ég þakka Eimskipafélagi
íslands fyrir góða þjónustu og
síðast en ekki sízt skipstjóran-
um á Gullfossi, Kristjáni Að-
alsteinssyni, sem öll stjórn
hvilír á.
Barnaúlpur
Nýkomnar loðfóðraðar og rósóttar barnaúlpur með
loðkanti 1 —13 ára, einnig telpna- og drengjabuxur
verð frá kr. 100,-— Ódýrar drengjahúfur, net-
sokkabuxur, telpna- og drengjanáttföt, barnaregn-
kápur 3ja—12 ára og m.fl. — Ath. niðursett verð
á telpnakjólum og ýmsum fl. vörum.
Barnafataverzlunin LÓAN, Laugavegi 20B,
(gengið inn frá Klapparstíg á móti Hamborg).
Barna og unglingakjólar
Stærðir 1—16. Nýtt glæsilegt úrval.
Hagstætt verð.
Verzlunin IRMA, Laugavegi 40.
Einn ánægður farþegi,
Svanhild Guðmundsson“.