Morgunblaðið - 24.10.1967, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.10.1967, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. OKT. 1967 Frumvarp um æsk ufýðsmál endurflutt á Alþingi — reglur um opinberan stuðning við æskulýðs- starfsemi — stjórn æskulýðsmála — stuðningur við félags- og tómstundastarfsemi GYLFI Þ. Gíslason, mennta- málaráðherra, mælti í gær íyr- ir stjórnarfrumvarpi um æsku- lýðsmál. Frumvarp þetta var flutt á Alþingi í fyrravor, en hlaut þá ekki afgreiðslu. Sagði ráðherra í ræðu sinni, að breyttar þjóðfélagsaðstæður, er skapazt hefðu á liðnum ár- um, hefðu gert það að verkum, að nú væri ríkari þörf fyrir, að hið opinbera tæki að ein- hverju leyti virkan þátt í upp- byggingu æksulýðsstarfs í land inu. Ráðherra gat þess, að 20. des. 1963 hefði hann skipað nefnd til þess að semja frumvarp það til laga um æskulýðsmál er hér væri til umræðu. Nefndin hefði skilað áiiti sínu í marz 1966 og hefði þá verið búin að vinna mjög víðtækt starf við rann- sókn æskulýðsmála hérlendis og ennfremur aílað gagna um æskulýðsstarfsemi í nágranna- lönduim okkar. Þá hefði að frum kvæði nefndarinnar verið boðið hingað til lands sérfræðingi í æskulýðsmálum, Jaoobus W. Oms að nafni, en hann væri framkvæmdastjóri Landssam- bands æskulýðsmiðstöðva í Hol- 1 landi, formaður Sambands hol- lenzkra æskulýðsfélaga og for- maður stjórnskipaðrar nefndar, seim ætti að kanna möguleika á setningu heildarlöggjafar um aeskulýðsmál í Hollandi. Hefði í sambandi við komu hans ver- ið boðið til ráðstefnu um æsku- lýðsmál, þar sem tækifæri hefðu gefizt fyrir æskulýðssam tök og þá aðila að æskulýðs- málum, sem ekki áttu fulltrúa í æskutlýðslaganefnd, að koma skoðunum sínum á framfæri við nefndina. Greíndi ráðherra síðan frá hielztu ákvæðum frumvarpsins, er skiptist í fimni kafla. f fyrsta kaflanum er skýrt frá tilgangi laganna og hvaða að- ilar skulu njóta stuðnings hins opinbera samkvæmt þeim. Eru það eftirtaldir aðilar: 1. Félög er vínna að æskulýðs málum á frjálsum áhugamanna- gnmdvelli, enda byggist félags- starfsemin fyrst og fremst á sjálfboðastarfi og eigin fjár- framlögum félagsmanna. 2. Aðrir aðilar, er sinna eink um velferðarmálum ófélags- bundins æskufólks í skipulögðu starfi. Þá er ennfremur heimild til að styðja frjálsa íélags- og tóm stundastarfsemi í skólum. Annar kafli frumvarpsins fjallar um stjórn æskulýðs- mála, og er þar m.a. lagt til að sbofnað verði skulýðsráð ríkis- ins, skipað fimm mönnum. Ráð herra skipar formann ráðsins án tilnefningar. Þrír menn skulu tiinefndir af aðildarsam- tökum Æskulýðssambands Is- landis og öðrum hliðstæðum æskulýðssamböndum, sam- kvæmt nánari ákvæðum í reglugerð. Einn maður sikal til- nefndur af Sambandi ísl. sveit- arfélaga. í kaflanum eru síðan ákvæði um hlutverk og störf ráðsins. í þriðja kafla frumvarpsins er fjallað um stuðning við fé- lags- og tómstundastarfsemi og m.a. gert ráð fyrir að hann verði. fólginn í þátttöku í kostn aði við þjálfunleiðbeinenda og þátttöku í launagreiðsluim til sérþjálfaðra leiðbeinenda. Að lokinni framsöguræðu menntamálaráðherra tók Jónas Árnason (K) til máls. Sagðist hann fagna frumvarpinu og vilja þakka þeim er að því hefðu unnið. Fullyrða mætti að það væri þaulhugsað og vel unn ið af hálfu nefndarinnar, en hins vegar kæmi það einkenni- lega fyrir sjónir, að leyta hefði þurft á náðir útlenidings við samningu þess. Viðhiorf margra íslendinga væri, því miður, orð- ið þannig að þeir þyrðu varla að snúa sér við, án þess að spyrja fyrst útlendinga að því hvort þeir væru að gera einhverja bölvaða vitleysu. Vitan'lega ætt um við að leita stuðnings út- lendinga þegar þess væri þörf, en ella ekki. Það kæmi líka einkennilega fyrir sjónir, að maður sá er fenginn var til að- stoðar við samningu þessa frum varps hefði verið Hollendingur. Vand'amál íslands og Hollands á þessu sviði væru gjörólík. Þá vék Jónas að orsökum æskulýðsvandamála og sagði þær eðlilega vera margar. Ein af höfuðorsökunum væri sú tilhneiging ísienzkt þjóðfélags að stía sundur fólki eftir ald- ursflokkum. Siík skipting væri alin upp í ungimgunum, enda ekki ótítt svar, hjá þeim þegar þeir væru krafnir sagna um yf- irsjónir sínar. „Við verðum á svo erfiðum aldri.“ Það væri bú ið að telja þeim trú um sér- stöðu sína. Ýtt væri undir þetta hjá unglingunum af sálfræðing um og fleiri. Jónas sagði að reynsla sín sem kennari væri sú, að þrátt fyrir alla sína galla gæti verið mjög gaman að starfa með un'glinum, en ánægjustund irnar gætu samt sem áður ver- ið miklu fleiri, ekki sízt ef unglingarnir hættu að trúa því að þeir væru serstök - mannteg und. Þá vék Jónas nokkuð að skóla húsnæði og sagði þar vera ríkj- andi afar slæmt ástand. Til' marks um það mætti nefna að lúxusbíiar hefðu miklu betri aðstæður þegar þeir væru að bíða eftir kauperdum sínum í verzlunarhöllunum, en íslenzk æska sem væri að bíða eftir að taka virkan þátt í alvöru lífs- ins og búa sig undir hana. Nauðsynlegt væri að fá fram hversu háar fjárveitingar til æskulýðsmála frumvarpið gerði ráð fyrir og hvernig ætti að tryggja það fé. Að lokinni ræðu Jónasar var málinu vísað til annarrar um- ræðu með 25 samhljóða atkvæð um og til menr.tamólanefndar deildarinnar með 24 samhljóða atkvæðum. Guðrn. H. Garðarsson tekur sæti á Alþingi í GÆR tók Guðmundur ^H. Garðarsson þriðji varaþingmað- ur Sjálfstæðisflokksins í Reykja vík, sæti á Alþingi í stað Jó- hanns Hafsteins dómsmálaráð- herra er verður fjarverandi frá þingönnum um nokkurn tíma sökum embættisstarfa. Er þetta í fyrsta sinn er Guðmundur H. Garðarsson tekur sæti á Alþingi. Atvinnuréttindi skipstjórnarmanna — rædd í Efri deild í gær FRV. um atvinnuréttindi skip- stjórnarmanna var til fyrstu um ræðu í Efri deild Alþingis í gær. Eggert G. Þorsteinsson, sjávar- útvegsmálaráðherra, mælti fyrir frv., sem flutt er af sjávarút- vegsnefnd deildarinnar. Sjávarútvegsmálaráðherra sagði, að frv. þetta væri endur- flutt nú, þar sem það hefðd ekki hlotið afgreiðslu á síðasta þingi. Það væri hliðstætt breytingum, sem gerðar hefðu verið á lögum um stýrimannaskóla og atvinnu- réttindi vélstjóra. Ráðherrann gerðii síðan nánari grein fyrir efni frv. og kvað samþykkt þess nauðsynlega vegna breytinga. Dagskró Alþingis í dag DAGSKRÁ' efri deildar Aiþingis. 1. Atvininuréttindi skipstjórnar- manna á íslenzkum skipum. 2. Búnaðarbanki íslads. DAGSKRÁ neðri deildar Alþingis 1. -Sala Saltbergs í Eyrarsveit. 2. Vörumerki. 3. Tekjustofnar sveitarfélaga. sem orðið hefðu á Far- og fiski- skipaflotanum. Að lokinni ræðu ráðherrans var frv. vísað til annarrar umræðu. Fjárlagafrum- varpið í nefnd Á STUTTUM fundi í Sameinuðu Alþingi í gær fór fram at- kvæðagreiðsla um fjárlagafrum- varpið fyrir árið 1968, en um- ræða fór fram um það s.l. fimmtudagskvöld Var sam- þykkt með 3 samhljóða at- kvæðum að vísa frufnvarpinu til fjárveitinganefndar. - MÓTMÆLA Framhald á bls. 11. trúnaðarmannaráði ASB. — fé- lags afgreiðslustúlkna í brauða- og mjólkurbúðum 20. okt. 1967, mótmælir harðlega efnahagsmála frumvarpj ríkisstjórnarinnar sem nú liggur fyrir Alþingi. Frumvarpið felur í sér stór- felda skerðingu á kjörum launa fólks og kemur óhjákvæmilega harðast niður á barnmörgum fjölskyldum og láglaunafólki þar sem um stórfellda hækkun á brýnustu lífsnauðsynjum er að ræða og jafnframt bindingu vísi tölunnar". Greiðsla fyrir innheimtu opinberra gjalda — Frumvarp Skúla Guðmundssonar í GÆR mælti Skúli Guðmunds- son (F) fyrir frumvarpi er hann flytur um þóknun fyrir innheimfu opinberra gjalda. Gerir frumvarpið ráð fyrir því að atvinnurekendum verði greidd þóknun fyrir innheimtu opinberra gjalda, er nemi 3% af heildarupphæð gjaldanna. í raéðu sinni benti Skúlí Guð- munósson á að í lögum sé heim- ild £ ð fyrirskipa atvinnurek- endum að vinna við innheimtu opinberra gjalda á þann hátt að halda gjöldum eftir af kaupi fólks, sem hjá þeim vinnur, og skila £énu til innheimtumanns hins ppinbera. Heild þessi mun víða notuð í seinni tíð, en engin þóknun er greidd fyrir þá mikilsverðu aðstoð við innköll- un gjaldanna, sem þannig er látin í té. Sagði Skúli að með frum- varp: þessu væri stefnt að því áð til kæmi frá hálfu hins opin- bera sanrgjörn borgun íyrir unnir. störf, því slíkum inn- heimtustörfurn fylgdi mikil vinna og ábyrgð. Þá kæmi einnig til kvaðir til atvinnu- rekenda um margvíslega skýrslu gerð fyrir hið opinbera og væri ekki nema réttlát að til kæmi einnig greiðsla fyrir slíkt, þar sem vitað væri að kostnaður at- vinnurekenda við slíkt væri oft á tíðum töluverður. Að lokinni ræðu flutnings- manns frumvarpsins var því vísað til annarrar umræðu og fjárhagsnefndar deildarinnar með 22 samhljó'ða atkvæðum. - ÓBREYTTIR Framhald af bls. 1 stærsta skip hans og annað af tveimur er keyptir voru af Bretum árið 1965. Hét skipið áður „HMS Zealous" og tók m.a. þátt í aðgerðunum í Suez 1956. a Sovézk fíugskeyti Yfirmaður flota Israels, Shlomo Har El, flotaforingi, sagði á fundi með blaðamönn- um í gærkveldi, áð flugskeytin, sem hefðu grandað „Eilat“ hefðu verið sovézk að gerð, ratstjár- stýrð og af allra nýjustu gerð. Hefði a.m.k. tveimur þeirra verið skotið frá sovézku skipi „OSSA“, sem legið hefði í höfn- inni í Port Said. Sagði hann, að þetta væri í fyrsta sinn sem slík flugskeyti væru notuð í árás á sjó á þessum slóðum. Hann var áð því spurður, hvort hann teldi, að sovézkir flug- skeytasérfræðingar hefðu verið þarna með í ráðum og var hann tregur að fullyrða nokkuð þar um, en sagði að vitað væri, að sovézkir flugskeytasérfræðingar væru í Egyptalandi, hvort sem þeir hefðu þátt átt í þessari árás eða ekki. Har E1 vísaði á bug fregn, sem borizt háfði þess efnis, að egypzkar flug- vélar hefðu skotið á björgunar- flugvélar ísraelsmanna — og sagði, að enginn fótur væri fyrir henni. Stjórn ísraels bar þegar á laugardagskvöld fram við ör- yggisráðið mótmæli vegna árás- arinnar, sem hún sagði, að vær* freklegt brot á vopnahléssamn- ingnum milli landanna. Abba Eban, utanríkisráðherra kom til New York um helgina eftir viku dvöl heima fyrir og mun ræða mál þetta við fulltrúa hjá S.Þ. Blöð ísraels fóru mjög þung- um orðum um árásina. Blaðið MAARIV sag*ði t. d., að ljóst væri „að árásin hefði vérið vel undirbúin og væru slík viðskipti þau einu, sem Egyptar gætu hugsað sér að hafa við ísrael, væri ekki um annað að velja en svara í sömu mynt. £ 80% fhigvéla- tjónsins bætt? Moshe Dayan, landvarnar- ráðherra landsins, hefur lagt til að viðbúnaður verði aukinn austan Súezskurðar, þar sem eins sé líklegt, að Egyptar ráð- izt þar yfir. Hann sagði í ræðu á sunnudag að það tjón, sem Egyptar hefðu beðið á flugher sínum í júnístyrjöldinni, hefði verið bætt þeim að 80% og skrið drekasveitir þeirra væru orðnar næstum eins öflugar og fyrir stríðið í júní. Hann kvað sjálf- sagt, að ísraelsmenn reiknuðu með því, að Egyptar ré'ðust yfir skurðinn og reyndu að hrekja ísraelsmenn burt frá nærliggj- andi svæðum með valdi. Þá sagði David Ben Gurion, forsætisráðherra fyrrverandi, að hann efaðist um, að Egyptar hefðu skotið flugskeytunum. Menn skyldu minnast þess, að ósigurinn í júní hefði ekki ein- ungis verið ósigur Egypta, Jór- dana og Sýrlendinga, heldur hefði enn eitt ríki átt þar hlut a'ð máli. Sú hafi verið ástæðan fyrir þessari árás. Ekki skýrði hann mál sitt nánar en við- staddir þóttust vita, að hann ætti við Sovétríkin, sem hafa veitt Egyptum gífurlega aðstoð undanfarið við að bæta hern- aðartjónið frá því júní sl. Um viðbrögð Sovétstjórnarinnar er það að segja, að hún sendi þegar í gær fulltrúa sinn, Matvei Za'kharo, marskálk, til Kairo og telja vestrænir fréttamenn í Moskvu það vísbendingu um, a'ð hún hafi ekki verfð ýkja hrifin af árásinni og óttist afleiðing- arnar. Moskvublöðin sögðu frá atvikum í stuttum fréttum en minntust eki á að flugskeytin, sem grönduðu „Eilat" hefðu verið frá Rússum komin. Haft er fyrir satt í Moskvu, að So- vétstjórnin hafi , undanfarið leitast við að fá samþykki egypzku stjórnarinnar fyrir því, að sovézkir hernaðarsérfræðing- ar fái meiru að rá'ða en til þessa um notkun vopnanna, sem Egyptar fá frá Sovétríkjunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.