Morgunblaðið - 24.10.1967, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. OKT. 1967
- VIETNAM
Framhald af bls. 1
innar, en handan fljótsins er
Pentagon, sem í augum styrj-
aldarandstæðinga er tákn aðild-
ar Bandaríkjanna að stríðinu.
Höfðu fundarboðendur tilkynnt
að farið yrði í kröfugöngu að
Pentagon að fundi loknum, og
var fundarmönnum þá sagt að
halda sig á bílastæði norðan-
vert vi'ð stórhýsið.
Fundurinn fór mjög friðsam-
lega fram, nema hvað einstaka
menn komu fram með athuga-
semdir varðandi ummæli ræðu-
manna, og nokkrir mótmæltu
ræðumönnum. Meðal þeirra var
einkennisbúinn hermaður með
heiðursmerki á brjósti, sem lét
sér ekki segjast. þegar lögreglan
reyndi að þagga niður í honum
og var því handtekinn.
Meðal ræðumanna á Washing-
tonfundinum var dr. Benjamin
Spock, sem þekktur er víða um
heim fyrir skrif sín um me'ð-
ferð og uppeldi barna á fyrsta
ári. Hann sagði m.a.: „Við trú-
um því í allri einlægni að óvin-
urinn sé Lyndon Johnson, er
kosinn var sem frambjóðandi
friðarins árið 1964 og sveik
okkur þremur mánuðum síðar.“
Vitnaði dr. Sporck í að aukning
herafla Bandaríkjanna í Viet-
nam og loftárásirnar á Norður
Vietnam hófust í janúar 1965.
Hann sagði að Johnson forseti
og aðrir leiðtogar stjórnarinnar
hefðu reynt a'ð þagga niður í
gagnrýni með því að halda því
fram að gagnrýnendurnir hindr-
uðu styrjaloarreksturinn. „Við
erum algjörlega á öðru máli,“
sagði dr. Spock. „Við lítum svo
á að styrjöldin sé að öllu leyti
hörmuleg, og að við, sem mót-
mælum henni, séu líklegastir til
að bjarga landinu okkar, ef við
getum sannfært nógu marga um
að þeim beri að hugsa og grefða
atkvæði eins og við.“
Eirnig tók þarna til máls
Davíd Dellinger, formaður sam-
takanna, er stóðu að fundinnm.
Sagði hann að mótmælin gegn
styrjóldinni væru nú komin á
nýtt stig, og að raddir fundar-
manna bærust viða. Hann sagði
að Vietnamstyrjöldin væri óvin-
sælasta stríð í sögu Bandaríkj-
anna og að Johnson forseti
hyggðist halda því áfram iafn-
vel þótt bandaríska þjóðin væn
því andvíg.
Eftir útifundinn vi’ð Lincoln-
minn'svarðann héldu fundar-
menn yfir brú á Potomac-ánni
og að, Pentag.m. Komu þeir
saraan á bílastæðinu, eins og
ákveðið hefði verið, en fjölmenn-
ur her- og lögregluvörður var
við sjálfa bygginguna. Segja
fréttamenn að í fyrstu hafi mann
fjöldinn líkzt þátttakendum í
skem.mtiferð, ýmsir hafi gert að
gamni sínum við hermennina,
sem þarna stóðu á verði aðrir
setið í minni hópum á grasbal-
anum vi'ð bílastæðið, eða gengið
um og ræðst við.
ÓEIRÐIR HEEJAST
Eftir nokkurt þóf við aðrar
aðaldyrnar á Pentagon reyndu
nokkrir unglingar að ryðjast
gegnum fylkingar varðanna, en
herlögregla hrakti þá til baka.
Hófust þá víða stympingar.
Nokkrir aðkomum.anna báru
fána Norður-Vietnam og Viet
Cong, aðrir kylfur og axarsköft,
sem þeir notuðu til að reyna að
stugga vörðunum úr vegi. Var
vörðunum þá sendur Ifðsauki.
og komu sveitir herlögreglu og
ríkislögreglu, vopnaðar kylfum,
og hermenn búnir rifflum og
slíðruðum byssustingjum. Tókst
lengi vel að halda mannfjöld-
anum í skefjum, þótt hann
beitti bareflum sínum og grýtti
verðina með tómötum og tóm-
um flöskum.
Þegar hér var komið hvöttu
fundarboðendur fylgismenn sína
til frekari dáða, og sögðu að í
næstu tilraun tækist þeim að
komast inn í Pentagon. Hertu
þeir þá sóknina og komust alla
leið að dyrunum. en þar var
sóknin stöðvuð. Munu þó þrír
a’ðkomumanra hafa komizt alla
leið inn, en verið hraktir fljót-
lega út aftur.
Reyndu nú verðirnir að hrekja
Opelbíllinn eftir áreksturinn. ( Ljósm. Mbl. SV. Þ.)
Horður órekstur
við Ánunuust
HARÐUR árekstur varð vestur
við Ánanaust um klukkan fjög-
ur á sunnudag. Var þrennt flutt
í Slysaarðstofuna, en meiðsli
þeirra mun ekki hafa verið al-
varlegs eðlis.
Áreksturinn varð rétt sunnan
við gatnamót Mýrargötu. Opel-
bíll var á leið norður götuna,
en Fordbíli á suðurleið. Við
gatnamótin hugðist bílstjóri Op-
elsins aka fram úr öðrum bíl
og beygði yfir á hægri kantinn.
Allt á einu sér hann Opelbílinn
koma á móti sér og skipti það
engum togum að bílarnir skullu
saman.
í Ópelnum voru hjón og við
áreksturinn kastaðist konan á
framrúðuna, sem brotnaði við
höggið. Halut konan nokkra á-
verka á andliti og var flutt í
Slysavarðstofuna. Maður hennar
beið á slysstaðnum, meðan rann
sókn fór fram, en að henni lok-
inni fór hann einnig á Slysa-
varðstofuna til athugunar.
Meiðsli hans voru ekki talin al-
varlegs eðlis.
í Fordbílnum voru tvær stúlk
ur auk ökumanns og var önnur
þeirra flutt á Slysavarðstofuna,
en hún hafði meiðzt á fæti og
handlegg.
Bílarir skemmdust báðir
mikið við áreksturinn.
Undir 2d mynd
Kurfustedamm og að „Amerika
Haus“, menningarmiðstö'ð Banda
ríkjanna í Vestur-Berlín. Var
reyksprengju varpað inn í húsið,
sem fylltist af reyk. Kom til
nokkurra átaka við lögreglu, en
lögreglan sprautaði á mannfjöld-
ann úr vatnsslöngum, sem tengd
ar voru við kraftmiklar dælur.
Nokkrir voru handteknir, renn-
blautir og syngjandi „Ho-Ho-
Ho Chi Minh“. Eru þetta fjöl-
mennustu mótmælaaðgerðir
gegn Bandaríkjunum í sögu
V estur-Berlínar.
Sama máli gegnir um aðgerð-
ir i Stokkhólmi, sem mörg þús-
und manna tóku þátt í. Var það
„Vietnam-nefndin" sænska, sem
stóð að svonefndum Vietnam-
degi í Stokkhlómi á laugardag.
Ekki kom til neinna árekstra
þar, og fóru aðgerðirnar mjög
friðsamlega fram.
I Kaupmannahöfn stóðu æsku-
lýðssamtök ýmissa flokka að
mót.mælaaðgerðum, sem talið er
að 15 þúsund manns hafi tekið
þátt í. Kom mannfjöldinn að
þinghúsinu og bandaríska sendi-
ráðinu, en ekkert var um alvar-
lega árekstra. Einnig var efnt til
mótmælaaðg'eiða í Kalkutta á
Indlandi, í Brússel og Ottawa,
mannfjöldann frá Pentagon, en
um i.090 aðkomumapna settust
niður og lögðust og neituðu að
hrey’a sig Viða voru blóðblettir
á tröppun"m upp að inngöngu-
dyrunum, og auðséð að margir
höfðu hlotið sár í átökunum, en
hve margir er ekki vita'ð
Eftir þetta dró úr stymping-
unum og átökum, en nokkrir
fu.idarmanna voru þó um k.vrrt
við Pentagon þar til á sunnu-
dagsmorgun. Sátu þeir þar við
varðelda, er þeir kynntu á bíla-
stæðinu um nóttina, er, hurfu
á brott skömmu eftir dögun.
Á funnudagsmorgun tilkynntu
ta.lsTrenn dómsmálaráðuneytis-
ins í Washington að alls hefðu
250 aðkomumenn verið hand-
teknir i átökunum við Penta-
gon. Þá hefðu 6 hermern, 10
lögreglumenn og 13 borgarar
hlotið sár svo vitað væri, en
engin alvarleg
MÓTMÆLI t EVRÓPU
Víða í Evrópu kom til mót-
mælaaðgerða á laugardag, og
mest þatttaka var í París. Þar
stóðu konimúnistar a'ð kröfu-
göngu, sem þeir segja sjúlfir að
30 þúsund manns hafi tekið þátt
í, þeirra á meðal um 50 Banda-
ríkjamenn. Báru göngumenn
sex metra borða sem á var leitr-
að. ,Samstaða með friðaröílun-
urr. í Bandaríkjunum“. Meðal
leiðtoganna í fylkingarbr]ósti
var Waldeck Rochet, aðalritari
franska kommúnistaflokksins.
í London og fleiri borgum
Bretlands voru farnar kröfu-
göngur til' að mótmæla stvrjöld-
inni í 'Vietnam, Heldur var
gangdn fámenn í London, enda
ausandi rigning. Talið er að um
700 onanns hafi komið saman á
Trafalgar-torgi, og sumir þeirra
farið þa'ðan i kröfugöngu til
bandaríska sendiráðsins Ein-
hverjar stympingar urðu við
sendnráðið milli lögreglu og
göngumanna, og voru nokkrir
hinna síðarneíndu handteknir.
Ei.nn þeirra var á mánudag
dæmdur til þriggia mánaða
fangelsisvistar fyrir mótþróa
sýndan lögreglunni.
í Ðublin á trlandi tóku um
1.000 manns þátt í kröfugöngu
til bandaríska send.ráðsins.
Mannfjöldinn afhenti sendiráðs-
mönnum bréf þar sem þess var
krafizt að Bandankjamenn
hættu loftárásum á Norður-Viet
nam og kölluðu heim herlið sitt
frá Suður-Vietnam.
1 Berlín tóku um 10 þúsund
manns þátt í kröfugöngu um
- DE GAULLE
Framhald af bls. 1
og var þetta gert af ótta við,
að fyrrverandi meðlimir OAS
hreyfingarinnar 1 Alsír mundu
freista þess að gera forsetan-
um eitthvað til miska. Er talið
að margir þeirra hafi búið um
sig í fjöllunum Spánarmegin við
Andorra.
Andorra ríki tekur yfir 425
ferkilómetra. Höfuðborgin And
orra-la-viella liggur í 2.400
metra hæð frá sjávarmáli. De
Gaulle minntist ekki einu orði
á utanrikismái í ræðunni, sem
hann hélt þar, heidur ræddi að-
eins um ýmsar ráðstafanir sem
gera þyrfti til þess að líf íbú-
anna færðist í nýtízkulegra
horf. Hann hyiiti samherja sinn,
spánska prinsinn, seim gat ekki
verið viðstaddur og sagðist
alltaf hafa gott sambánd við
hann. í lok ræðunnar lét for-
setinn hrópa: „Lengi lifi And-
orra“ og var síðan forsöngvari
er franski þjóðsöngurinn var
sunginn.
en þar voru þátttakendur 200—
500.
★
Meðan á öllum þessum mót-
mælaaðgerðum gekk, efndu
samtök, sem kenna sig við
„ábyrga föðurlandsást" (Res-
ponsible patriotism) til útisam-"
komu í New York, og sóttu hana
um 10 þúsund manns. Njóta sam
tök þessi m. a. stuðnings Ric-
hards Nixons, fyrrum varafor-
seta, Barry Goldwaters, fram-
bjóðanda repúblíkana við sfð-
ustu forsetakosningar, og 32
þessar aðgerðir sínar „Operation
gratitude". Fyrirhugaðir eru
fjöldafundir á vegum samtak-
anna í flestum stórborgum
Bandaríkjanna.
- NAMSKEIÐ
Framhald af bls. 23.
þannig, að þátttakendur koma al'l
ir saman í New York og verða
þar fyrst 2 daga til að fræðast
um einstök atriði námskeiðsins
og skoða borgina, en síðan verð
ur mönnum skipt milli fimm
borga Cleveland, Chicago, Minn-
eapolis, St. Paul, Philadelphia og
San Francisco. Þar munu þeir
sækja háskólanámskeið, sem
standa í sex vikur. Að því búnu
mun hver þátttakandi verða um
10 vikna skeið starfsmaður
amerískrar stofnunar, sem hefur
æskulýðs- eða barnaverndar-
störf á dagskrá sinni, og munu
menn þá kynnast öllum hliðum
þessara starfa vestan hafs. Um
100 amerískar stofnanir eru aðil
ar að þessum þætti námsdvalar-
innar.
Að endingu halda þátttakend-
urnir svo til Washington, þar
sem þeim gefst kostur á að heim
sækja sendiráð landa sinna. ræða
við starfsmenn utanríkisráðuneyt
is Bandaríkjanna og aðra opin-
bera starfsmenn og skoða borg
ina, áður en heim er haldið.
Þeir. sem hafa hug á að sækja
um styrki þessa, eru beðnir að
hafa samabnd við Fulbright skrif
stofuna, Kirkjutorgi 6, opin frá
1—6 e.h. alla daga nema laug-
ardaga, og biðja um sérstök um
sóknareyðublöð. Umsóknirnar
skulu hafa borizt stofnuninni
eigi síðar en 10. nóvember 1967.
(Fréttartilkynning).
Nægar birgðir kjarnorkuvopna
til að útrýma mannkyni öllu
New York, 23. okt. — -NTB)
SÉRSTÖK kjarnorkunefnd
Sameðrauðu þjóðanna, skipuð
12 sérfræðingum Hrá ýmsum
löndum, skilaði í dag áliti. Seg-
ir þar meðal annars, að nú þeg-
ar séu fyrir hendi það miklar
birgðir af kjarnorkusprengjum,
að nægja mundu til að útrýma
ma.nnkyni öllu. Segja sérfræð-
ingarnir- að ríkin geti ekki
tryggt tilverru sína í framtíðinni
með því að afla sér enn fleiri
sprengna, hvorki með innnflutn
ingi né smíði, heldur yrði það
þvert á móti til þess að auka
enn spennuna í heiminum og
draga úr jafnvægi.
Sérfræðingunum 12 var falið
að kanna á vegum Sameinuðu
þjóðanna hver áhrif vaxandi
birgðir kjarnorkuvopna hefðu
á aliþjóða öryggi, og voru nið-
urstöður nefndarinnar lagðar
fyrir SÞ í dag í 102 blaðsíðna
skýrslu.
Sérfræðingarnir segjast ekki
hafa reynt að kanna hvers
virði varnarkerfi gegn eld-
flaugaárásum kann að vera, en
bæði Sovétríkin og Bandaríkin
hafa undirbúið þessikonar varn
arkerfi. „Við látum okkur
nægja að lýsa því yfir, að ekki
er til neitt varnarkerfi í dag,
seim getur komið í veg fyrir að
kjarnorkusprengjur hittd fyrir-
framákveðið skotmark,“ segir í
skýrslunni.
Sérfræðingarnir segja, að
kjarnorkuvopn séu það dýr í
smíðum, að aðeins sex ríki til
viðtoótar kjarnorkuveldunum
fimm, hafi möguleika á að
leggja út á þá braut án gjör-
byltingar efnahagslífsins. Þessi
ríki eru Vestur-Þýzkaland, Ind-
land, Kanada, Ítalíu, Pólland
og Svíþjóð. Telja sérfræðingarn
' ir, að það koisti um 170 milljón-
ir dollara að smíða fyrstu kjarn
orkusprengjuna. Ef eitthvert
ríki ætlaði sér að koma upp
einhverjum virkum kjarnorku-
vörnum, s,efn sérfræðingarnir
díkja við smaökkaða útgáfu af
kjarnorkuvörnum Frakka, kost
uðu þær 560 milljónir dollara-
Sérfræðingarnir rekja nokk-
uð eyðileggingarorku kjarnork-
unnar. Segja þeir að ef 20 mega
tonna kjarnorkusprengja yrði
sprengd í loft yfir New York-
borg, færust sex milljónir af 8
milljónum íbúa borgarinnar, og
ein milljón íbúa nálægra út-
borga. Ef sama sprengja væri
sprengd á jörðu niðri, myndað-
ist 75—90 metra djúpur gígur,
um 800 metra í þvermál. Jafn-
vel tuttugu sinnum smærri
sprengja, þ.e. eitt megatonn,
ylli gífurlegum glundroða í New
York. Eitt megatonn samsvarar
einni milljón lesta af TNT
sprengiefni.
f síðari heimsstyrjöldinni var
varpað tveimur kjarnorku-
sprengjum á Japan, annarri á
borgina Hiroshima, hinni á
Nagasaki. Sprengjur þessar
svöruðu hivor um sig til 20 þús.
tonna af TNT, og fórust rúm-
lega 100 þúsund manns í borg-
unum tveimur. Ut frá þessari
staðreynd reyna sérfræðingarn
ir að reikna út hve margir fær-
ust, ef varpað væri eins. mega-
tonns sprengju á borg m,eð rúm
lega milljón íbúa, sem þekur
260 ferkílómetra. Hafa þeir
áveðna borg í huga, sem þeir
ekki vilja nafngreina. Komast
þeir að þeirri niðurstöðu að 270
þúsund manns færust í sjálfri
sprengingunni og meðfylgjandi
torunum, 90 þúsund færust
vegna of mikillar geislunar og
önnur 90 þús. hlytu meiri
eða minni sár vegna geislunar-
innar.
„Þriðjugur milljónar farast,“
segir í skýrslunni. „Það er ál'íka
fjöldi borgara og fóröst í öllum
kxftárásunum á Þýzkaland og
Japan í síðari heimsstyrjöld-
inni“
Sérfræðingarnir minna á- að
ekki sé lengur reiknað með
eins megatonns sprengjum.
Þær eru of smáar til að teljast
með. Til eru 50 megatonna
sprengjur og jafnvel stærri, og
virðast engin takmörk fyrir
því hve stórar sprengjurnar
geta orðið, að því er sprengju-
orkuna varðar — það eru að-
eins þyngd og ummál sprengj-
unnar, sem takmörkin setja.