Morgunblaðið - 07.11.1967, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.11.1967, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓV. 1967 Piranst draumabillinn. EIN mesta sýning bílaiðnaðar- ins í heiminuim hefur staðið yfir í Earls Court í London undanfarna daga. Fraimleið- endur hrvaðanæva úr heimin- um hafa flutt sýnishorn af framleiðs'lu sinni hingað til Bretlands og stillt henni upp fyrir áihugasama áhorfendur í hinum feiknstóru sýningarsöl- um Earls Court. En til hvers er öll þessi fyrirhöfn? Borgar sig að leggja í þann gífurlega kostnað, sem slíkri sýningu hlýtur að fylgja? Sú er a.m.k. skioðun þe-irra, sem að þessari sýningu standa. Þegar þetta er skrifað, er sýningunni að ljúka. Fram að þessu hafa yfir 600 þúsund manns séð sýninguna, eða fleiri en nokkru sinni fyrr. Á sýningunni hafa sölumenn sýn ingaraðila reynt að sýna gest- um fram á gæði framleiðslunn- ar og pantanir hafa streymt inn í rikara mæli en nokkru sinni fyrr. En það voru fleiri en menn í viðskiptahugleiðingum, sem lögðu leið sína á þessa glæsi- legu sýningu. Á hverjum degi gat þar að líta samansafn brezkra þegna, allt frá verka- mönnum í vinnufötum til virðu legra kaupsýslumanna með harðkúluhatta, sem komu til þess eins að líta á dýrðina. Og þarna var eitthvað fyrir alla og nóg af því. Um það bil sjötíu bílaframleiðendur tóku þátt í sýningunni og flest- ir þeirra sýndu fleiri en eina gerð bifreiða, eða allt upp í sex gerðir. Má því gizka á að alls hafi komið fram um 200 bifreiðar á sýningunni. Auk þess var sérstök sýning á hjól'hýsum og öðrum ferða- búnaði svo og sýning á bif- reiðahlututm o.m.fl. Áhuga- menn hefðu því getað eytt tveimur döguim á sýningunni án þess að láta sér leiðast. En það voru fleiri en at- vinnumenn, sem sýndu fram- leiðslu sína á sýningunni í Earls1 Court. Sá sýningargrip- ur, sem vakti áreiðanlega mesta athygli, var Pirana — draumabíllinn. Mikill leyndardómur hefur hvílt yfir framleiðslu þessa farartækis — sem framleitt er í aðeins einu eintaki. Svo mik- ill leyndardómur, að altmenn- ingur fékk ekkert um málið að vita fyrr en viku áður en sýningin hófst. Saga gripsins er í stuttu máli á þessa leið: Hugmyndin fæddist á bíla- sýningu í Genf í marz s.l. í rökræðum bílasérfræðinga stórblaðanna. Blaðamenn Daily Telegraph í London héldu á- fram að ræða þetta sin á milli, er þeir komu til baka til Lond mælaborð í flugvélum. Til þess að fullkomna sam- líkinguna koma orðin „Fasten seat belts“ (spennið beltin) á eina skífuna, þegar lyklinum er snúið. Mælaborðið er klætt með leðri, eins og raunar all- ur bíllinn að innan. Litið er enn vitað um akst- urshæfni Pirana. Engar tölur eru til um hve langan tíma það tekur að ná 100 km. hraða úr kyrrstöðu o.s.frv., vegna þess að það hefur einfaldlega ekki verið reynt enn. Eigend- urnir hafa ekki þorað að reyna bifreiðina vegna hættu á skemmdum. Að vísu er bif- reiðin tryggð fyrir 20 þúsund pund (um 2.4 millj. ísl. kr.), en ætlunin er að sýna hana í Torino í nóvember, svo betira er að fara varlega. KT. Séð yfir hluta af sýningaTsaln um í Earls Corrt. Afturhluti Pirana er að mestu leyti úr gleri. NeSst eru ljósin, síðan kemur gluggi með rimlum fyrir og efst hinn eiginlegi afturgluggi. on og að lokum var ákveðið að byggja Draumabílinn. Þetta skyldi verða farartæki, sem fullnægði hæstu kröfum um orku, þægindi og öryggi, en væri engu að síður-ökuhæft. Ákveðið -var að bifreiðin skyldi byggð að meginhluta úr biíreiðahlutum, sem fengj- ust á almennum markaði. Eftir alillangar rannsóknir var ákveðið að undirVagninn skyldi ver^ úr Jaguar 2-plus- 2 E-type. Italinn Nuccio Ber- tone var fenginn til þess að teikna og byggja yfirbygging- una og ýmsir brezkir fram- lieiðendur útveguðu hina ýmsu hluti, sem þarf til að gera hinn fullkomna lúxusbíl. Útkoman er óskabarn blaðamanna Daily Telegraph: Pirana. Pirana er tveggja sæta „fast back“ með undirvagni úr Jag- uar. Hjólbarðarnir eru óvenju breiðir, framleiddir hjá Dun- lop fyrir kappakstur. Gler í rúðum er framleitt sérstaklega fyrir bifreiðina. í því er sér- stakt millilag til styrktar, úr vinyl. í fram- og afturrúðu eru leiðslur í millilaginu til uppihitunar í kuldum. Aftur- glugginn er á hjörum, svo hægt sé að kcma farangri inn að aftan. Miðstöðin er gerð eftir nýrri hugmynd. Loiftræstingarkerf- ið kælir og þurrkar all't loft. Útvarpstæki bifreiðarinnar er tengt við segulbandstæki. Öku maður getur því talað inn á segulband eða tekið upp úr útvarpinu eftir vild. Mælaborðið er þéttlsetið af mælaskófum, tökkum og slökkv urum og minnir einna helzt á Mælaborð Pirana er mjög fullkomið svo ökumaBur geti fylgzt v«el með öllu, sem smeirtir gnmg bifreiðajrinnar. Hér sést hluti af mælaborðinu. Nýr Kiwanisklúbbur 22.689 kinditm slátrað í Höfn og á Fagurhólsmýii LAUG-ARDAGINN 2S. október var haldin fullgildingarhátíð hins nýstofnaða Kiwanisklúbbs í Vestmannaeyjuim. Heitir klúfbb urinn HELGAFELL. Hátíðin hófst með veglegu borðhaldi. Mætitir voru 18 Kiwanisfélagar úr Rerykjavík ásamt konum þeirra, en hófið sátu um 80 manns. Fullgildingarskjalið af- henti Einar A. Jónsson, umdæm- isstjóri Kiwanis á Norðurlönd- um. Auk hans fluttu ávörp: ^æjarstjórinn í Vestmannaeyj- um, Magnús H. Magmússon, for- maður AKOGES, Heiðmundur Sigurmundsson og forseti Rotary klúbbs Vesitmanna, séra Þor- steinn Lúter Jónsson. Kveðjur frá Kiwanisklúbbn- um í Reykjavík fluttu þeir Ás- geir Hjörleifsson, varaforseti Kiwanisklúlbbsins Heklu og Páll H. Pálssion, fyrrverandi forseti Kötlu. í Kiwaniskliúbbnum Helgafelli í Vestmannaeyjum eru nú starf- andi 26 menn, en hann er þriðji Kiwanisklúbþurinn, sem stofnað ur er hér á landi. í heimiinum eru nú starfandi um 6.000 klúbb ar með á fjórða hundrað þúsund félögum. Stjórn Kiwanisklúbbsins Helgafell skipa þessir menn: Garðar Sveinsson, framkvæmda- stjóri, forsetí, Guðm'undu'r Guð- mundsson, yfirlögreglúþjónn, varaforseti, Tryggvi Jónasson, erlendur ritari, Gunnlaugur Axelsson, innlendur ritari, Bárð ur Auðunsson, gjaldkeri og Aðalsteinn Sigurjónsson, féhirð- ir. Höfn, Hornafirði, 3. nóv. SAUÐFJ ÁRSLÁTRUN er að m'estu lakið hér í Höfn, en að eins eftir að slátra nokkrum kindu'm úr innfjölluim Stafa- ness. Alls var slátrað 2i2.,689 kindium og er það 2,259 fleira, en í fyrra. Slátrunin skiptíst þannig: í Höfn 19.000 og á Fag urhólsmýri 3689. Meðalþungd dilka var 14,59 kg, eða lang- ] hæsta meðalvigt eftir sveitum. Samanlögð heildarmeðalvigt í Höfn og á Fagurhólsmýri var 13,77 kg, og er það 240 gr. minna en í fyrra. Þorsteinn Gsirsson, bóndi Reyð-ará, hafði mesta meðal- vigt eða 18,23 kg. Þorsteinn sláitraði 344 dilkurn og af þeim fóru 341 í fyrsta floikk. Hann átti einnig þyngsta dilkinn, 30 kg. Nautgripaslátrun stendur nú yfir og verður miklum fjölda gripa slátrað. — Gunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.