Morgunblaðið - 07.11.1967, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 07.11.1967, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓV. 19«7 Bækjan stæiri en í fyrrn RÆKJUVEIÐI hófst 21. októbcr og varð aflinn yfir mánuðinn •iiyxSv aiJÍJ Mpaí ‘uaoj gx uiru Rækjan er góð og mun stærri en í fyrra. Aflinn er frystur og soð- inn niður á innanlandsmarkað í 1/8, 1/4 og 1/2 dósir. Söluihorfur á fyrstu rækjunni eru óvissar, en sæmileg.a hefur gengið að selja þá niðursoðnu. Verksmiðjan hér borgar 8.50 kr. til bátanna fyrir hvert kíló. Tvær nýjungar í niiðursuðu eru að koma á markaðinn hjá Matvælaiðjunni þessa dagana, kjötbúðingur og svið. Þá er og að koma blandað grænmeti, sem ekki hefuir verið fáanleigt um tíma. — Hannes. Bílstjóranóm- skeið í DAG var sett hér í Hólmavík námskeið til undirbúnings meira- prófs bifreiðastjóra. Þátttakend- ur eru 21 að tölu, flestir úr Hólmavík og nágrenni. Aðal- kennarar á námskeiðinu eru bif- reiðaeftirlitsmennirnir Geir Bachmann og Sigurður Guð- jónsson. Þetta er í fyrsta sinn, sem slíkt námskeið er haldið í Strandasýslu. — Andrés. Söltunarstúlkur í Röst eru að slódraga síldina áður en lagt er í tunnu. MIKIL síld barst til Kefla- víkur *sl. laugardag og var unnið kappsamlega að því að vinna síldina. Við brugðum okkur til Keflavikur og litum á dýrðina. Miklar annir voru við höfn ina, því skip voru að koma og fara og allir létu hendur standa fram úr ermum. Ágæt is veður var á miðunum og „silfrið" vaðandi í hafinu. Aflahæsta skipið í höfn þann morgun var Örn RE með 190 tonn, en Örn er með eina af stærstu nótum bátaflotans. í flestum fiskvinnsluhúsum bæjarins var unnið að sölt- un og var talið að um 50— 60% af aflanum væri söJtun- arhæft. Við litum inn í Röst h.f., en þar voru 30 konur að salta af kappi. Röst hafði fengið um 600 tunnur af síld um morguninn og áætlað var að söltun yrði lokið laust eft- ir miðnætti. Kristbjörg VE var að landa 65 tonnum og við lögð- um nokkrar spurningar fyr- ir stýrimanninn, Árna Óla Ólafsson frá Vestmannaeyj- um: Arni Óli Ólafsson, stýrimað- ur á Kristbjörgu frá Vest- mannaeyjum. Landað úr Erninum, en hann var með 190 tonn á laugardaginn, „Aflamagn fer mikið eftir stærð nóta — Voruð þið ekki vestur undir Jökli? — Jú, við vorum að koma þaðan og erum að fara strax aftur. — Eru veiðihorfur góðar? — Það eru nú skiptar skoð anir á því. Eins og er þá reytizt þarna eitthvað, eil ég held að það byggist á því að allur síldarflotinn hrúgist ekki á veiðisvæðið, en auð- vitað verður það að ráðaist. Svo fer þetta mikið eftir því hvað síldarnæturnar eru stór ar, en þeir sem eru með stærstu næturnar fá al'ltaf mesta aflann, því að þær ná yifir stærra og dýpra svæði. — Er þetta góð síld í sölt- un, sem þið eruð með núná? — Það er ekki gott að segja, það á eftir að meta síldina og ekki gott að segja um hvað mikið af henni fer í söltun og hvað í frystingu. Köstin eru mjög breytileg hvað gæði síldarinnar snertir. Þrjár nýjar bæk- ur frá Helgafelli f DAG koma út hjá Helgafelli 3 nýjar bækur eftir unga ís- lenzka höfunda, sem allir hafa áður sent frá sér bækur. „Suðaustan fjórtán" heitir myndarleg bók þeirra félaga Jökuls Jakobssonar og Baltasar, um lífið í Vestmannaeyjum fyrr og nú. Jökull skrifar textann, en Baltasar teiknar myndirnar, en þeir félagar hafa unnið að bók þessari í meira en tvö ár. Vegna stærðar myndanna, er bókin höfð í sama broti og mál- verkabækur Helgafells. „Þetta er ekki bók fyrst og fremst fyrir Vestmannaeyinga“, sagði Ragnar Jónsson, þegar hann boðaðí blaðamenn á sinn fund í gær, „en ég rwyndi segja, að érfitt væri fyrir þá að neita sér um að eignast hana, en bók- in er upphafinn skáldskapur í máli og myndum, jafnskemmti- leg fyrir alla, hvar sem þeir eiga heima á landinu. Önnur bókin er ný skáldsaga eftir Ingimar Erlend Sigurðsson, sem hann kallar „Íslandsvísu“. Þetta er að rnínu viti falleg skáldsaga, og lýsir viðbrögðum unga fólksins við dofnandi þjóð- ernisvitnnd á hærri stöðurn og þverrandi ást á landi og lýð. Ég held mér sé óhætt að segja, að höfundurinn hefur löngum verið umdeildur rithöfundur. Þriðja bó'kin heitir „Ástir sam lyndra hjóna“ eftir Guðberg Bergsson, en mér finnst hann kjörinn fulltrúi yngstu lesend- anna, sem á þessu aldursskeiði leita einungis þess r.ýja og hroll vekjandi „Mér finnst“, sagði Ragnar, „að síðan Halldór Laxness kom fram í Vefaranum, hafi enginn höfundur íslenzkur fengið aðrar eins viðtökur. Bók hans í fyrra var svo gjörsamlega sópuð út, að ekki hefur um tíma tekizt að ná í eintak af henni, hvar sem leitað er, hvort sem er á Rauf- arhöfn, Hafnarfirði eða á Eyr- arbakka“. Blaðamenn spurðu Ragnar um fleiri bækur, sem væntanlegar væru á næstunni frá Helgafelli. Hann sagði að niæst kæmu bæk- ur eftir Njörð Njarðvík, Odd Björnsson og Þorstein Antons- son og væru þær væntanlegar um mánaðamótin. En fyrir jól myndu koma út ljóðahækur eftir Erlend Jónsson og Halldóru B. Björnsson. Einnig yrði endur- prentuð 1. ljóðabók Hannesar Péturssonar. Jónas Svafár væri JökuII Jakobsson Guðbergur Bergsson Ingimar Erlendur Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.