Morgunblaðið - 21.11.1967, Page 1

Morgunblaðið - 21.11.1967, Page 1
32 SÍÐIiR 54. árg. 265. tbl. ÞRIÐJXJDAGUR 21. NÓVEMBER 1967 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Nokkur æmi Bre Tveggja daga umrœður í brezka þinginu um gengisfellingu pundsins — Danska krónan lœkkuð um 7,9 °/o, en flest mestu viðskiptalönd Breta með óbreytt gengi Brezka þingið ræðir á morgun þær ákvarðanir stjórn- arinnar að lækka gengi sterlingspundsins um 14.3%, og er þá búizt við að stjórnarnndstaðan beri fram vantraust á stjórnina. Stjórnin tilkynnti gengislækkunina á laugardagskvöld, og þá jafnframt að forvextir Englandsbanka hefðu verið hækkaðir í 8%, en svo báir hafa þeir ekki verið síðan 1918. Er það gert til að draga úr fjárfestingu. -jt Wilson forsætisráðherra flutti útvarps- og sjónvarps- ávarp á sunnudag, og sagði m.a. að með þessum aðgerðum vildi stjórnin leysa þjóðina úr efnahags-spennitreyju undan- farinna 15 ára, og skapa nýjan grundvöll fyrir efnahags- þróun í Bretlandi. Callaghan fjármálaráðherra skýrði brezka þinginu frá efnahagsaðgerðunum í dag. Voru gerð hróp að ráðherranum, og kröfðust þingmenn andstöðunnar þess að stjórnin segði af sér. -jf Erlendis hafa aðgerðir brezku stjórnarinnar yfirleitt mætt miklum velvilja, og hafa flestar helztu viðskiptaþjóð- ir Breta lýst því yfir að þær styðji aðgerðirnar og muni ekki lækka gengi eigin gjaldeyris. for deilum innan brezku stjórnar- innar, því það fylgdi yfirlýsing- unni um lækkunina að stjórnin hafi öll verið á einu máli um nauðsyn þessara aðgerða. Auk gengislækkunar úr 2,80 dollurum í 2,40 dollara, var ákveðið að hækka forvexti Englandsbanka úr 614% í 8%, og eru það hæstu vextir, sem teknir hafa verið frá því í lok fyrri heimsstyrj- aldarinnar árið 1918. Þá ákvað stjórnin að draga mjög úr út- gjöldum ríkisins, m. a. með lækk uðum fjárveitingum til varnar- mála og þjóðnýttra fyrirtækja, og nemur áætluð útgjaldalækk- un um 400 milljónum punda. Hinsvegar er svo reiknað með því að lækkað útflutningsverð á brezkum vörum leiði til veru- Framhald á bls. 10. Sovézk ÁKVÖRÐUN brezku stjórnarinn ar, sem birt var á laugardags- kvöld, kom mjög á óvænt, því stjórnin hafði marg ítrekað yfir- lýsingu sína um að gengislækkun væri ekki í undirbúningi. Ekki höfðu þó allir tekið þessar yfir- lýsingar alvarlega, og var mik- ið um að vera í gjaldeyriskaup- höllinni í London fram undir helgi. Mikið var þar selt af sterl- ingspundum, og er talið að Eng- landsbanki hafi varið um 100 milljónum í erlendum gjaldeyri, aðallega dollurum, til að halda gengi pundsins sem næst skrán- ingu. Gengislækkunin olli engum Verðum að endurskoða efnahags vandamál okkar í heild -limmæli Bjarvia Benediktssona r, forsætisráðh. Morgunhlaðið sneri sér í gær til Bjarna Benediktsson- ar, forsætisráðherra og leit- aði álits hans á áhrifum geng- isfellingarinnar í Bretlandi á íslenzkt efnahagslíf. Forsæt- isráðherra komst að orði á þessa leið: að. ErfiðJeikar útflutnin'gsfram- leiðslunnar mundu aukast enn, ef við lá'tum gengið haldast óbreytt eftir lækkun pundsins. En ef gengisbreyting verður á annað borð metin óhjákvæmi- leg, er engan veginn einsýnt hversu mikil hún skuli vera. Trúnaðarmenn ríkisstjórnarinn- ar hafa undanfarið pnnið dag og nótt að nauðsynlegum athug- unum, og hefur stjórnin tjáð formönnum stjórnarandstöðu- fiokkanna, að þeim muni gefið yfirlit um hin nýju viðhorf jafn- skjótt og þau sfeýrast, vonandi síðari hluta þriðjudags. Enn- fremur hef ég látið uppi óskir við Alþýðusamlban'd fslands og Vinnuveitendás'amband íslands um samráð við þessa aðila um nauðsynlegar aðgerðir", sagði forsætisráðherra að lokum. þota fórst Moskvu, 20. nóv. — (AP-NTB) SOVÉZKA fréttastofan Tass * skýrði frá því í dag, að sovézk skrúfuþota af gerðinni IL-18, hefði hrapað með 100 farþegum skammt frá Sverdlovsk í Úral- fjöllum. Fréttastofan gat ekki um hversu margir farþeganna hefðu farizt, eða særzt í flugslys inu, sem varð fyrir nokkrum dögum. í Moskvu gengu hins vegar þær sögusagnir, að 70-r- 100 manns hefðu týnt lífinu. Tass skýrði einnig frá því, að skipuð hefði verið nefnd til að rannsaka flugslysið. í stuttri fréttatilkynningu sagði frétta- stofan, að flugvélin hefði rekizt á fjallshlíð skömmu eftir flugtak í slæmu veðri. Talsmaður flug- félagsins Aeroflot, sem átti skrúfuþotuna, kvað sér ekki kunnugt um nánari tildrög slyss- > ins. Tilefni til athugunar á gengi ásl. kr. almennt Rœtt við Jóhannes Nordal, Seðlabanka- stjóra um gengisfellinguna í Bretlandi Bjarni Benediktsson „Við verðum nú að endur- sk’oða efnahagsvandamál okkar í heild. Gengisfelling sterlings- pundsins skapar mörgum þjóð- um vandamál, en okkur alveg sérstiaklega vegna þeirra miklu erfiðleika, sem verðfali, afla- brestur og sölutregða hafa skap- „ÍSLENDINGAR eru tvímæla laust ein þeirra þjóða, sem gengisbreyting pundsins hefur einna beinust áhrif á“, sagði dr. Jóhannes Nordai Seðla- bankastjóri, er Morgumblaðið ræddi við hann í gær um á- hrif gengisbreytingarinnar í Bretlandi, og hann bætti því við, að breytingin á gengi pundsins hlyti að verða til- efni tU athugunar á gengi íslemzku krónunnar almennt. Slík athugun fer nú fram og vinna að henni auk Seðla- bankans Efnahagsstofnunin, Hagstofan, Viðskiptamálaráðu neytið og Fjármálaráðumeytið, og fylgist ríkisstjórnin náið með þessu starfi. Viðtalið við dr. Jófhannes Nordal fer hér á eftir: Fréttamaður Morgunblaðs- ins spurði fyrst hvað banka- stjórinn vildi almennt segja um gengisbreytingu Breta. „Þessi breyting á gengi sterlingspundsins er einhver örlagaríkasti atburður í efna- hagsmálium Vesturlanda nú um langt skeið. Eins og kunn- ugt er, er gjaldeyriskerfi heimsins byggt upp á þeirri meginreglu að reynt sé að halda stöðugu gengi og leysa grei ð slu j af na ð a r erf iðleik a með öðrum ráðum en gengis- breytinigu. Sérstaklega gildir þetta um helztu gjaldeyris- tegundir sem notaðir eru í alþjóðaviðskiptum í ríkum mæli. Breyting á verðmæti þeima hefur viðtæk áhrif, bæði á gjaldeyri anmarra þjóða, og eins á samninga milli þjóða og einstaklinga. Með tilliti til þessarar meg- instefnu, 'hefur markmið brezku stjórnarinnar verið að reyna að leysa efnahagserfið- leika Breta á undanförnum árum með almennum efna- hagsráðstöfunum, og hefur hún notið til þess stuðnings margra annarra landa, sem talið hafa æskilegast að kom- izt yrði hjá gengisbreytingu á sterlingspundinu. Eins og nú er komið í ljós, hefur þetta ekki tekizt og eru til þess margar ástæður, bæði að því Framhald á bls. 3. >

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.