Morgunblaðið - 21.11.1967, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.11.1967, Blaðsíða 32
Þekktustu ^buð.n vðrumerkln, mesta f jölbreytnln ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1967 1968 KÍDAÍRINN Milljónatjón í óveðri um helgina - Bátar slitnuðu upp ocj sukku, bryggjur skemmdust, kjallarar fylltust af vatni og hús fuku MIKIÐ óveður gekk yfir Vestur- og Norðurland á laugar- dagskvöld og aðfaranótt sunnudagsins og nemur tjón af þess völdum milljónum króna. Á Isafirði slitnuðu upp bát- ar, bryggjur skemmdust, kjallarar fylltust af vatni og rúð- ur brotnuðu. Á Árskógsströnd hrundu um fiskhjallar og heil hús fuku út í veður og vind. í Hrísey sukku þrjár trill- ur, fiskhjallar og vinnupallar hrundu, og nýi bryggjuhaus- inn seig um eina 30 sentimetra. Og á Ólafsfirði fuku þak- plötur af húsum. Slys á mönnum munu þó ekki hafa orðið í þessu ofviðri. Morgunblaðið hafði samband við nokkra fréttaritara sína á þessum slóðum og fara frásagn- ir þeirra hér á eftir: Milljónatjón á ísafirði ísafirði, 20. nóv. Á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ gerði aftakaveður hér á Isiafirði með miklum sjógangi og varð tjón verulega mikið. Margir bátar ákeimmdust og einn rak á land. Víða fylltust kjallarax af sjó og eitthvað var um að járn- plötu fykju af þökum. Er talið að tjónið nemi milljónum króna. Mtol. ræddi við Sturla Hall- dórsson og sagðist honum þannig frá: „Um átta-leytið á laugardags- kvöld gerði afspyrnu vestan rok og tel ég að á milli kl. 9 og 11 um kvöldið hafi veðurhæðin verið 12—14 vindstig. Er þetta eitthvert versta veður sem hér Hannibal Vaidimarsson hefur gert í fjölda ára. Þá voru í bátahöfninni yfir fjörut'íiu bátar og við gömlu bæjarbryggjuna voru olíuskipið Dagstjarnan og varðskipið Al- bert. Um háflóðið sem var rúm- lega 8, gerði geysilega hreyf- ingu í höfninni og þá byrjuðu mestu erfiðleikarnir við að verja bátana, því að þeir slógust harkalega saman. Við tókum það ráð að láta stærstu bátana halda út úr höfn inni, eftir því sem mannskap- urinn kom til að fjarlægja þá og fóru sjö bátar út á fjörðinn, út fyrir Eyrina og héldu þar sjó. Á níunda tímanum siltnuðu vb. Svanur og Víkingur II frá bryggju og einnig minni bátur, vb. Mummi rak upp að Edin- borgarbryggjunni, en þar voru menn til taks sem stukku um borð í hann og gátu bjargað honum frá. Víking II rak þarna frá og mér skilst að Svanur hafi eitt- hvað reynt að hamla á móti og koma í veg fyrir að bátinn ræki á land, en það tókst ekki og rak hann upp í garðinn hj'á vöru skemmu kaupfélagsins. Eftir það var reynt að verja bátana sem eftir voru, en þó nokkrir þeirra voru ekki gang- færir því að þeir voru í véla- viðgerð og komust þvi ekki frá. Var reynt að verja þá etftir beztu getu og aliir hjálpuðust að við það. Ekki fór að róast í höfninni fyrr en um kl. 1 um nóttina, þegar farið var að falla dálítið út. Á öðrum tímanum um nótt- ina kallaði ég upp bátana sem voru fyrir utan og taldi, að þeim Framhald á bls. 31. Draug á strandstaðnum. ingaskipið Store Knut. Við hlið eftirlitsskipsins eru Arnfirðingur RE og norska síldarflutn- Ljósm.: Steingr. Kristinsson) Islenzkir útgeröarmenn krefja norska ríkið um björgunarlaun EIGENDUR þriggja íslenzkra I krefjast björgunarlauna og skipa og tveggja norskra hafa, skaðabóta að upphæð 400.000 samkvæmt frétt frá NTB, höfð- norskar krónur. Skip þessi að- að mál gegn norska rikinu og ! stoðuðu við að ná norska eftir- ' litsskipinu DRAUG af strand- stað í mynni Siglufjarðar í júnimánuði 1964. Málið verður tekið fyrir í borgardómi Björg- vinjar í þessari viku. Norska eftirlitsskipið Draug strandaði á svokallaðri Hellu í mynni Siglufjarðar kl. 23:15 að kvöldi þess 20. júní 1964. Veð- ur var hið bezta og sjór ládauð- ur, þegar Draug tók niðri á Hell- unni, en skipið sigldi grynnra fyrir klappirnar en jafnvel trillu bátar gera. Stálu 40.000 kr. verð- mætum VÖRUM fyrir um það bil 40 þúsund krónum var stolið úr I útsölu Gunnars Ásgeirssonar ( hf. að Laugavegi 33, aðfara- nótt mánudagsins. Þjófarnir1 gátu brotið upp hurð, og höfðu á brott með sér nýja | saumavél, segulbandstæki, þrjú útvarpstæki, riffil og raf- magnssteikarpönnu. Við strandið kom gat á botn skipsins og olíugeymi og flaut talsverð olía frá skipinu. Þegar í stað var kallað á aðstoð og komu síldarskipið Arnfirðingur RE og olíubáturinn Skeljungur fyrst á vettvang, en seinna komu einnig Æskan SI og Ólaf- ur Friðbertsson ÍS. Þessi skip reyndu svo að ná Draug á flot á flóðinu um nóttina, en án árangurs. Nokkuð af áhöfn Draug var flutt til Siglufjarðar og höfðust skipverjar við á norska sjómannaheimilinu. Tvö norsk síldarflutninga- skip: Sigmund og Store Knut komu einnig á vettvang og eftir ítrekaðar tilraunir tókst öllum skipunum að ná Draug á flot kl. 20 é sunnudagskvöld. Draug var síðan dregið inn til Siglu- fjarðar og var Arnfirðingur RE bundinn við síðu þess, þar eð báðar skrúfurnar voru brotnar og stýrið laskað. Norskur dráttarbátur sótti svo Draug til Siglufjarðar og dró skipið til Noregs og fóru sjó- liðarnir allir með. Eigendur björgunarskipanna Framhald á bls. 31. Ekki hjá því komizt að krónan fylgi pundinu — Aðalatrið að varðveita sem bezt raungildi launanna segir Hannibal Valdimarsson forseti ASÍ Mbl. sneri sér í gær til Ivjartans Thors, formanns Vinnuveitendasambands ís- lands og Hannibals Valdi- marssonar, forseta Alþýðu- sambands fslands og spurðist fyrir um afstöðu þeirra til hinna nýju viðhorfa, sem skapazt hafa vegna gengis- fellingarinnar í Bretlandi. Kjartan Thors kvaðst ekk- ert geta um þetta sagt að svo stöddu, þar sem Vinnuveit- endasambandið hefði boðað til ráðstefnu n. k. miðviku- dag. Ummæli Hannibals Valdimarssonar fara hins veg ar hér á eftir: „Sj'álfsagt verður ekki hjá því komizt að láta íslenzku krón- uma fylgja pundinu. Það er aug- ljóst, að sú ráðstöfun mun færa verulegum hluta útflutningsat- vinnuvega okkar talsvert bætt- an hag, þó að það komi misjafnt á hinar ýmsu greinar útflutn- ingsins. Hins er ekki að dyljast, að gengislækkun sk'apar áVallt fjölda vandamála, sem verkalýðs samtökin hljóta að hafa nánar gætur á, hvernig ieyst verði. Ber þar sérstaklega að nefna verðlag'smálin. Reynslan af gengisfellingum hefur jafnan sannað það, að launastéttunum hefur gengið erf iðlega að varðveita raungildi launa sinna, þegar gengislækk- anir og aðrar slíkar kollsteypur í efnahagsmálum hafa átt sér stað. Framkvæmdin skiptir oft- ast mestu máli. Nú sem fyrr er það aðalatriðið, hvernig það megi takast að varðveita sem bezt raungildi launanna". Ymis heildsölufirmu hætta vöruafgreiöslu ÝMIS heildsölufyrirtæki hættu í gær afgreiðslu á vörum til við- skiptavina sinna, af ótta við geng isfellingu. Morgunblaðið spurðist fyrir um þetta og fékk þau svör að sérstaklega væri um að ræða vörur sem fengnar væru með er- lendum lánum, svo sem hveiti, sykur komvörur, te, kakó, kaffi og aðrar matvörur sem leyft hef- ur verið að kaupa með 90 daga gjaldfresti. Álagning á þessar vörur er mjög lítil og því hafa kaup- menn freistast til að kaupa þær með gjaldfresti. Ger,a þeir ráð fyr ir að ef gengisfelling verður fái Framhald á bls. 31. Múrarar ielldu lillöffu uan verkioU — í allsherjaratkvæðagreiðslu MÚRARAFÉLAG Reykjavíkux efndi til ai Isher jaratkv æ ða- greiðslu um það, hvort boða skyidi vinnustöðvun frá 1. des. nk. eins og ráðstefna ASÍ mælti með við m'eðiimafélög sín. í at- kvæðagreiðslunni tóku þátt 76 félagsmenn og var feilt með 41 atkv. gegn 36 að efna til verk- fails.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.