Morgunblaðið - 15.12.1967, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DES. 1967
Hverfisgötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigTigjald
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748
Sigurður Jónsson
BÍLALEIGAIM
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
IrfA/L/vj/gfi'
RAUDARARSTlG 31 SfMI 22022
Fjármála-
leiðbeiningar
Ef þér eruð í vafa hvemig
verja skuli sparifé yða r þá
leitið til okkar. Við miinum
athuga hvort fasteign, ríkis-
tryggð eða fasteignatryggð
skuldabréf henta yðoir.
Fyrirgreiðsluskrifstofan
Fasteigna- og verðbréfasalan
Austurstræti 14, sími 16223
Þorleifur Guðmundsson heima
12469
AU-ÐVITAÐ
ALLTAF
ÍC Keðjulausir í
háikunni
1 gær var biirt hér í dálkun-
um bréf frá vegfaranda þar sem
hann varpaði fram þeirri
spurningu hvers vegna stræt-
isvagnarnir notuðu ekki keðj-
ur í hálku. Velvakandi sann-
reyndi réttmæti þessarar fyr-
irspurnar í gærmorgun, er
hann bjó sig ásamt fleira fólki
undir það að klífa upp í stræt-
isvagn á stöðli, sem er í
brekku. Þegar fólkið kom að
dyrum vagnsins, kallaðr vagn-
stjórinn: ,.Flýtið þið ykkur
eins og þið getið, ég get ekki
stanzað". Við flýttum okkur
að sjálfsögðu eins og tök voru
á, en farþegar voru það marg-
ir þarna, að bílstjóranum tókst
ekki að halda vagninum á
nægri ferð til að geta tekið
hann áfram upp brekkuna þeg
ar allir voru komnir inn. Var
þá ekki annað ráð fyrir en að
fara niður brekkuna aftur og
taka nýtt tilhlaup til þess að
komast upp brekkuna. Meðan
á þessu stóð, á meðan vagn-
stjórinn var að komast þetta
með góðri aðstoð farþega, sem
fyl'gdust með umferð fyrir aft
an vagninn, lét hann nokkur
orð falla um það, að nauðsyn
bæri til að strætisvagnarnir
væru á keðjum ef þeir ættu
að komast klakklaust leiðar
sinnar. Áherzluorðunum. sem
vagnstjórinn bætti við, er
sleppt hér.
Umsagnir um
barnabækur
Jóna ísaksdóttir skrifar:
Kæri Velvakandi.
Það var reglulega ánægju-
legt, að Morgunblaðið skuli
vera farið að birta umsagnir
um barnabækur. Þetta hefur
vantað í blöðin hér, og fer vel
á því, að Morgunblaðið nefur
riðið á vaðið. Það er einnig
ánægjulegt, að til þess skyldi
veljast rnaðnr, sem ber hag
barna og unglinga fyrir brjósti
Það er mála sannast, að barna
bókahöfundur ber mikla
ábyrgð. Svo er að vísu um
alla þá, sem láta eitthvað frá
sér fara á prenti. en þeir, sem
rita fyrir börn, eru þó í sér-
stöðu. Hugir barna og ungl-
inga eru næmir og óhemju-
lega móttækilegir. Enginn má
skrifa bók til þess eins að
skrifa bók. Hann verður að
minnast lesendanna. Og eng-
an veginn á það við, þegar
æskan á í hlut, að leggja megi
stund á listina einungis listar-
innar vegna. Sannleikurinn er
sá, að listin er alls ekki alltaf
,,hlutlaus“, hún hefur áfcaflega
oft áhrif neikvætt eða jákvætt
í ,.mórölsku“ tilliti. Ef við
meinum eitthvað með öllu tali
okkar um þörf og vandamál
æskunnar, er bóka- og blaðaút
Staða deildarfulltrúa
Samkvæmt ákvörðun félagsmálaráðs auglýsist staða
deildarfulltrúa við þá deild Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, sem annast rekstur barna-
heimila í eigu borgarinnar. Laun samkvæmt kjara-
samningum starfsmanna Reykjavíkurborgar. Upp-
lýsingar varðandi stöðuna veitir félagsmálastjóri
Reykjavíkurborgar. Umsóknir, ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf sendist í Félagsmála-
stofnun Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9 fyrir
29. des. n.k.
Reykjavík, 12. des. 1967
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Jólagjafir
Fyrir herrann:
Gjafavörukassarnir frá
ELISABETH ARDEN eru
♦ * *
komnir, ótal gerðir og stærðir.
Fyrir dömuna:
Allar fáanlegar tegundir
í ilmvötnum og
Eau de Cologne.
* * *
Komið þar sem úrvalið er mest.
íá
Vesturgötu 2 — Sími 13155.
gáfa meðal þeirra gildu þátta,
sem okkur leyfist ekki að kasta
höndunum til, eða láta ann-
arleg sjónarmið ráða.
Barnabókagagnrýni er hjálp
okkar, sem kaupum bækur
handa börnuim. Við viljum
helzt gefa bækur, sem eru í
senn vel skrifaðar, á góðu
máli og efla það. sem gott er,
þó að boðskapur bókarinnar
þurfi alls ekki að vera í pré-
dikunarformi, nema síður sé,
enda eru góðar bækur oft hin
sterkasta prédikun, þó að pré-
dikanir séu þar engar.
Ég þakka Morgunblaðinu fyr
ir góða ráðabreytni, og ég hvet
menn til að líta í þátt barna-
bókagagnrýnandans, þegar
þeir eru að hugleiða bóka-
kaup handa börnum og ungl-
ingum.
Með vinsemd og jólakveðju.
Jóna Isaksdóttir á Vestur-
götunni.
P.S. í gær (10. 12.) féllu nið
ur nöfn á tveim bókum. sem
ritað var um. Hvað heita þess-
ar bækur?
■jár Leiðrétting var birt
Velvakandi þakkar bréfið og
tekur undir það sjónarmið
bréfritarans, að mikils er um
vert að umsagnir birtist um
barnabækur. Foreldrar hafa
ekki tóm til að kynna sér all-
ar þær bækur sem til greina
kemur að gefa bömum og upp
lýsingar á bókakápum og í aug
lýsingum eru ekki einhlítar.
f tilefni af eftirskrift Jónu
vill Velvakandi geta þess. að
leiðrétting birtist daginn eftir
að nöfnin á bókunum tveimur
féllu niður.
ir Hvar voru fjórð-
ungsmörkin á há-
lendinu?
Bréfritari, sem nefnir sig
forvitinn ; veitakarl, skrifar á
þessa leið:
Kæri Velvakandi.
Mig hefur lengi langað til
að vita hvar hin fornu mörk
milli landsfjórðunganna og
hvar þau komu saman uppi á
hálendinu. Þar eru örnefni
sem gætu bent til þess: Fjórð-
ungsalda, Fjórðungsvatn og
Fjórðungskvísl. Þau eru norð-
ur á Sprengisandi. Nú veit ég
ekki hvar helzt er að fá upp-
lýsingar um þetta.
Mér kemur þetta í hug þeg
ar ég var að lesa Ferðaíélags-
ritið eftir Hallgrím Jónsson
um Sprengisand.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
Forvitinn sveitakarl.
Velvakandi þakkar bréfið,
en er ekki svo fróður að geta
leyst úr þessari spurningu. En
meðal lesenda þessara dálka
er margt fróðra manna og er
Velvakanda sérstök ánægja að
veita svari við fyrirspurn „for
vitins sveitakarls" rúm.
ic „Aðgát skal höfð...“
Kona í Vestmannaeyjum, sem
kallar sig frú X, ritar til Vel-
vakanda umkvörtun um fram-
komu kvenlögreglu, sem vildi
ná tali af unglingsstúlku. Segir
konan. að kvenlögreglan hafi
komið inn á fjölmennan vinnu-
stað þar sem stúlka þessi var
að vinna og haft hana með
sér þaðan út. Starfssystur þess-
arar stúlku voru að sjálfsögðu
ekki í neinum vafa uui pað,
að nú hefði eitthvað m<_.' en
lítið alvarlegt komið fyrir þessa
starfssystur þeirra. Þessi kvaðn
ing reyndist hins vegar á mis-
skilningi byggð, stúlkí-.i hafði
ekki verið viðriðin þau mál,
sem hún var yfirheyro um.
Konan heldur áfram og segir
að það sé auðveldara að kc.ua
orðróminum á kreik en kveða
hann niður. Stúlkan hafði get-
að sannað sakleysi sitt á lög-
reglustöðinni, en hún sé ekki
þar með búin að kveða niður
allar þær grunsemdir, sem hafi
vaknað í hugum starfssystra
hennar, þegar kvenlögreglan
leiddi hana út af þessum fjöl-
menna vinnustað. Leggur bréf-
ritari til að lokum, að kven-
lögreglan taki upp einhverja
ögn minna áberandi aðferð
þegar hún vilji setja sig í saim-
band við fólk.
Flutningajijónustan tilkynnir
Húsráðendur, skrifstofur og aðrar stofnanir.
Ef þér þurfið að flytja búslóðina eða skrifstofu-
búnað og fleira, þá athugið hvort við getum ekki séð
um flutninginn fyrir yður. Bæði smærri og stærri
verk. Tökum einnig flutning á píanóum, peninga-
skápum og fl.
Vanir menn. — Reynið viðskiptin.
FLUTNINGAÞJÓNUSTAN,
símar 81822 og 24889.
Ný radíóvinnustofa
Opnum á morgun radíóvinnustofu að Ármúla 7,
inngangur að neðanverðu undir nafninu
RADÍÓÞJÓNUSTA BJARNA, sími 38433.
Leggjum sérstaka áherzlu á allt sem viðkemur bíla-
viðtækjum. Höfum á boðstólum bergmálsmagnara,
eða ekkó. Loftnetsstangir, truflanadeyfa og fleira.
Allt á gamla verðinu. Önnumst ísetningar.
RADÍÓÞJÓNUSTA B.TARNA,
Áraiúla 7, sími 83433. Bjarni Karlsson.