Morgunblaðið - 15.12.1967, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DES. 1967
31
GRIKKLAND
Fram'hald af bls. 1
skyldu sinni í einkaflugvél sinni.
Hann hélt til gríska sendiráðs-
ins, svaf í nokkrar klukkustund-
ir og ræddi síðan við fjölskyldu
sína og dygga stuðningsmenn.
Öflugur vörður var við sendi-
ráðið og fyrir utan stóðu hundr-
uð blaðamanna og mikill mann-
fjöldi, þeirra á meðal Grikkir
búsettir í Róm.
Konstantín Kolias, forsætisráð-
herra, sem kom til Rómar ásamt
konunginum, tók þátt í viðræð-
unum í sendiráðinu. Skömmu
eftir komu konungs til Rómar
lenti flugvél yfixmanns
gríska flughersins, I. Frag-
istas, flugmarskálks, á flug-
velli skammt frá Róm og voru
fimm stuðningsmenn hans með
honum í flugvélinni, og auk þess
mikill farangur. Samkvæmt
heimildum í gríska sendiráðinu
símuðu konungshjónin til Kaup-
mannahafnar skömmu eftir kom-
una og stóð samtalið í 20 mínút-
ur. —
í Róm veit enginn hvort um-
gangast á konung sem þjóðhöfð-
ingja, venjulegan borgara eða
pólitískan flóttamann. Konungur
vildi ekkert láta uppi um fyrir-
ætlanir sínar, en fólk í mann-
fjöldanum fyrir utan sendiráðið
lét skoðanir sínar óspart í ljós.
Grikki í hópnum sagði blaða-
monnum að hann mundi brenna
vegabréf sitt ef konUngur sneri
aftur til Aþenu. Ljósmyndarar
mynduðu í gríð og erg þegar
dóttir konungs, Alexia prinsessa,
•birtist á svölum sendiráðsins.
Samkvæmt heimildum í sendi-
ráðinu bað konungurinn Poum-
ouras sendiherra um að fá að
hvílast í bústað hans ásamt fjöl-
skyldu sinni. Læknir kom til
sendiráðsins klukkán 9,30 og fór
éinni klukkustund síðar. Starfs-
menn senöiráðsins gátu hvorki
stáðfest né hrakið að Friðrika
ekkjudrottning dveldist í sendi-
ráðinu. Á meðan þessu fór fram
var flugvél konungs höfð tilbúin
til brottfarar á herflugvellinum
Ciampino skammt frá Róm.
Barátta konungs
Fréttaritari AFP hefur eftir
sjónarvotti, að Konstantín kon-
ungur hafi komið til borgarinn-
ar Kavalla i Austur-Makedóniu
kl. 10.45 að staðartíma í gær.
Mikill mannfjöldi fagnaði kon-
unginum innilega og elti hann
til hótels í borginni. Konungur-
inn gekk út á svalirnar og hróp-
aði: — Stöndum saman og þá
skulum við sigra. Hann hélt síð-
an til útvarpsstöðvarinnar í
fylgd með tveimur skriðdrekum
og flutti ræðu sína þar sem hann
kvaðst mundu koma á lýðræði
í landinu.
Sjónarvottar segja, að íbúar
Kavalla hafi allir trúað því að
konungurinn hefði vald á ástand-
inu og hlegið var að tilkynning-
um Aþenuútvarpsins. Borgar-
starfsmenn dreifðu 250.000 flug-
miðum þar sem sagði að herfor-
ingjar í ríkisstjórninni hefðu ver
ið settir af og konungurinn hefði
tekið öll völd í sínar hendur. í
ausandi rigningu flaug konungur
frá Kavalla í þyrlu um hádegis-
bil til Alexandropolis og kvöddu
Anna María drottning og Frið-
rika ekkjudrottning hann grát-
andi.
Ekki er ljóst hvað gerzt hefur
í Alexandropolis, en um eftir-
miðdaginn sneri Konstantín aft-
ur til Kavalla og fór þaðan
skömmu síðar. til Saloniki. I>ang-
að komst hann ekki því að á-
standið hafði breytzt gersamlega
og hersveitir hollar stjórninni
höfðu Saloniki og nágrenni á
sínu valdi. En íbúar Kavalla
stóðu enn í þeirri trú að konung-
urinn hefði sigrað. Konungholl-
ar hersveitir fóru jafnvel frá
bænum og ætluðu að „hertaka"
Saloniki. Það var ekki fyrr en í
morgun sem Kavallabúar fréttu
að konungur hefði haldið til „ó-
þekkts ákvörðunarstaðar".
Fyrir dögun í morgun heyrði
stjórnturninn á flugvellinum í
Bari á Suður-Ítalíu kall frá flug-
vél konungsins. Boð voru þegar
send til Ciampino-flugvallar við
Róm og lögreglulið var sent
þangað. Kl. 4.15 að staðartíma
lenti hvítmáluð flugvél konungs-
ins, blaðamönnum, sem biðu eft-
ir leiguflugvél frá Grikklandi,
til mikillar furðu. Hinn 27 ára
gamli konungur var með tárin
í augunum. Aðspurður hvort
hann vildi gef-a yfirlýsingu sagði
hann aðeins: — Ekki að svo
stöddu. Á flugvellinum var sagt,
að allt benti til þess að flugvélin
hefði komið frá flugvelli við
Larissa.
Ennþá konungdæmi
Eitt alvarlegasta vandamálið
af mörgum, sem herforingja-
stjórnin stendur andspænis, er
að afla sér viðurkenningar er-
lendra ríkja. Hinn nýi forsætis-
ráðherra, Georg Papadopoulos,
ofursti, kvaddi í dag á sinn fund
sendiherra Bandaríkjanna, Bret-
lands, Frakklands og Vestur-
Þýzkalands, en sendiherrarnir
sögðu að þeir gætu ekki tekið
afstöðu til nýju stjórnarinnar og
sögðu að þeir yrðu að bíða fyrir-
mæla frá ríkisstjórnum sínum.
í kvöld var sá orðrómur á
kreiki í Aþenu að herforingja-
stjórnin hefði í hyggju að bjóða
frænda Konstantíns konungs,
Pétri prins, konungstignina. Pét-
ur prins hefur gert tilkall til
konungsdóms í Grikklandi og
grunnt er á því góða með hon-
um og konungi og móður kon-
ungsins, Friðriku drottningu.
Á blaðamannafundi sínum í
Aþenu í dag sagði Papadopoulos
ofursti, að Grikkland væri enn-
þá konungdæmi. Hann forðaðist
að ráðast á konunginn og sagði
að slæmir ráðgjafar hefðu leitt
hann á villigötur. Aðspurður
hvers vegna konungur hefði
reynt að gera gagnbyltingu
sagði hann að ekki væri unnt
að gefa rökrétta skýringu á jafn-
óskiljanlegri framkomu, en hann
forðaðist að svara þeirri spurn-
ingu hvað stjórnin mundi að-
hafast ef konungurinn sneri aft-
ur til Aþenu.
Papadopoulos sagði að herfor-
ingjastjórnin hefði komizt á
snoðir um áform konungsins um
kl. 10 í gærmorgun þegar her-
foringjaráðinu barst bréf frá hon
um þar sem hann sagði að hann
hefði tekið við yfirstjórn herafl-
ans og landsins. Konungurinn
kvaðst áskilja sér rétt til þess
að gera þær ráðstafanir sem
hann teldi nauðsynlegar.
Stjórnin kom þegar í stað sam
an til fundar, sagði Papadopoul-
os, og hafði samband við allar
herstöðvar víðs vegar um landið.
Stjórnin reyndi einnig að hafa
samband við Kolias forsætisráð-
herra. Síðan hófst leit að kon-
unginum, en hann fannst hvergi,
en seinna barst frétt um að
hann hefði flutt ræðu í útvarps-
stöðinni í Larissa, sem er sjald-
an notuð. Seinna var haft sam-
band við herdeildir í Kavalla í
Norður-Grikklandi og fréttir
þaðan bentu til þess að konung-
urinn væri þar. Papadopoulos
sagði, að yfirmenn 3. stórfylkis-
ins og vélaherfylkis í Norður-
Grikklandi hefðu verið settir af
og það væri allt og sumt.
Skömmu eftir miðnætti lýstu
yfirmenn herdeildanna í Larissa
og Kavalla yfir stuðningi við
Stjórnina í Aþenu, hélt Papadop-
oulos áfram, og um sama leyti
barst sú frétt að tvær flugvélar
með konunginum og fjölskyldu
hans innanborðs hefðu flogið frá
flugvelli við Kavalla. Þar sem
konungur hefði flúið frá skyldu-
störfum hefði herforingjastjórn-
in í Aþenu tekið nýja ríkisstjórn
í eið og skipað riki'sstjóra. Með
guðs hjálp og eigin skapstyrk
gátum við sigrast á erfiðleikun-
um án þess að blóði væri útihellt,
sagði hann.
Rólegt í Grikklandi
f Aþenu benti allt til þess í
kvöld, að herforingjastjórnin
væri traust í sessi og að hún
hefði unnið algeran sigur í við-
ureigninni við Konstantín kon-
ung og stuðningsmenn hans. —
Ástandið virðist vera rólegt í
Aþenu og víðast hvar annars
staðar í landinu, en fréttir eru
hins vegar af skornum skammti.
Stjórnin virðist þó hafa fullkom-
in tök á ástandinu.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum er allt með kyrrum
kjörum í Saloniki, helzta virki
konungssinna, og ekki hefur
fengizt staðfesting á útvarpsfrétt
um frá Belgrad þess efnis að
götubardagar hafi átt sér stað í
bæjum nyrzt í landinu. Óstað-
festar fréttir í kvöld benda hins
vegar til þess, að gagnbylting
konungs hafi ekki verið bæld
niður án blóðsúthellinga og
herma fréttir að yfirmaður hinn-
ar konunghollu herdeildar í Ka-
valla, Keravias hershöfðingi,
hafi verið myrtur þegar liðsfor-
ingjar ætluðu að handtaka hann.
Samkvæmt öðrum óstaðfest-
um fréttum hefur herforingja-
stjórnin látið handtaka um það
bil 20 háttsetta foringja úr flug-
hernum, aðallega í Norður-
Grikklandi. f Aþenu er sagt að
uppreisnarmönnum úr heraflan-
um verði veitt sakaruppgjöf til
þess að komast hjá frekari blóðs-
úthellingum, og boðar þetta trú-
lega stórfellda hreinsun í herafl-
anum, sem sennilega hefst eftir
nokkra daga samkvæmt áreiðan-
legum heimildum,-
Meðal hinna handteknu her-
foringja er Georg Perides hers-
höfðingi, yfirmaður 3. stórfylkis-
ins, sem studdi konunginn í bylt-
ingartilrauninni. Undir hann
heyrði eina skriðdrekaherfylki
Grikklands og hefðu liðsforingj-
ar ekki brugðizt hinum konung-
hollu hershöfðingjum og stutt
herforingjastjórnina, hefðu kon-
ungurinn og stuðningsmenn hans
sennilega verið nægilega öflugir
til þess að sækja til Aþenu.
Samkvæmt opinberum heim-
ildum hefur ekki slegið í bar-
daga á Krít eða í Norður-Grikk-
landi, en stjórnarandstæðingar
herma að andspyrnuhópar séu
virkir á báðum stöðum. Þannig
er sagt að flugstöðin Tanagra,
úm 70 km fyrir norðan Aþenu,
sé á valdi konunghollra her-
manna, en þá skortir foringja,
því að yfirmaður flughersins, I.
Frangistas hershöfðingi og fimm
aðrir herforingjar flúðu til
Rómar.
í Aþenu voru myndir af Kon-
stantin konungi og Önnu Maríu
drottningu fjarlægðar úr öllum
opinberum byggingum í dag og
fáni konungs var dreginn niður
við konungshöllina og dyrum
konungshallarinnar í Aþenu og
Tatoi-hallarinnar skammt frá
höfuðborginni var lokað. Lífvörð
ur konungs sást ekki á gang-
stéttinni fyrir framan konungs-
höllina. Skriðdrekar og hermenn
voru á verði við þinghúsið, en
lífið gekk sinn vanagang í höf-
uðborginni.
Bretar styðja konunginn
Harold Wilson, forsætisráð-
herra Breta, sagði í Neðri mál-
stofunni í dag að Bretar hefðu
ekki lengur stjórnmálasamband
við herforingjastjórnina í Grikk-
landi þar sem konungurinn væri
flúinn úr landi. Hann lauk miklu
lofsorði á Konstantín konung og
sagði að hann hefði verið í mjög
erfiðri aðstöðu. Hann hefði verið
neyddur til að sætta sig við
margt, sem væri honum ógeð-
fellt.
í Washington var sagt opinber-
lega að bandaríska stjórnin
mundi neita grísku herforingja-
stjórninni um viðurkenningu, en
ráðfærzt yrði við stjórnir NATO
landa áður en ákvörðun yrði tek-
in. Talsmaður utanríkisráðuneyt-
isins sagði að ástandið í Grikk-
landi væri rólegt, en það væri
óljóst og yrði að athuga það
gaumgæfilega.
í Briissel ræddi Dean Rusk
utanríkisráðherra við Panayiotis
Pipinelis, utanríkisráðherra
Grikkja, um ástandið, en þeir
sitja báðir ráðherrafund NATO.
Talsmenn bandarísku sendi-
nefndarinnar vörðust allra
frétta um afstöðu Bandaríkj-
anna til gagnbyltingar konungs,
og sömu sögu var að segja um
Pipinelis. Hins vegar tjáði Pipin-
elis tyrkneska utanríkisráðherr-
anum að stjórnin í Aþenu hefði
staðfest skipun hans í utanrikis-
ráðherraembættið.
Utanríkisráðherra Vestur-
Þjóðverja, Willy Brandt, for-
dæmdi atburði þá sem gerzt hafa
í Grikklandi í hvassyrtri ræðu á
ráðherrafundinum í Brússel og
sömu sögu var að segja um
danska utanríkisráðherrann,
Hans Tabor.
Manlio Brosio, framkvæmda-
stjóri NATO, sagði á blaða-
mannafundi er ráðherrafundin-
um lauk i dag að ástandið í
Grikklandi væri aðalumræðu-
efni ráðherranna, en lagði á það
áherzlu að atburðirnir væru inn-
anríkismál en ekki mál NATO
svo framarlega sem þeir snertu
ekki bandalagið beint. Stjórn-
málamenn telja, að ef gríska
stjórnin steiidur ekki við samn-
inginn við Tyrki um brottflutn-
ing grísku hersveitanna frá Kýp-
ur, muni ný deila rísa upp með
Grikkjum og Tyrkjum og þá
kynni svo að fara að NATO yrði
að láta málið til sín taka.
Willy Brandt sagði blaðamönn
um að hann gerði sér grein fyr-
ir því að ástandið í Grikklandi
væri ekki mál NATO.
Á Kýpur hefur byltingartil-
raun Konstantíns konungs verið
ákaft fagnað, enda hefur herfor-
ingjastjórnin alltaf verið óvin-
sæl á eynni, ekki sízt eftir sam-
komulagið við Tyrki.
Samkvæmt áreiðanlegum heim
ildum áttu sér stað fjörugar um-
ræður á ráðherrafundi NATO í
dag um viðurkenningu á nýju
stjórninni í Grikklandi, enda hef
ur ástandið breytzt þar sem kon-
ungurinn hefur sagt skilið við
hana, en talið er nauðsynlegt að
sjá hverju fram vindur. — Til
dæmis er ekki útilokað að Kon-
stantín konungur leggi formlega
niður völd.
Bandaríska stjórnin hefur
■ margoft látið í ljós fjandskap
sinn við herforingjastjórnina og
beint og óbeint hvatt konunginn
til að gera allt sem í hans valdi
stendur til þess að endurreisa
lýðræði í landinu.
NATO-fundur
Framhald af bls. 32
stöðvunum þar. Á hinn bóg-
inn skiptast aðildarríkin á
um að sjá um vorfund ráð-
herranna.
Um 45 ráðherrar hafa rétt
á að sitja á þessum fundi, þ.
e. utanríkis-. varnar-, og fjár
málaráðherrar allra fimmtán
bandalagsríkjanna, enda þótt
yfirleitt mæti miklu færri.
Þó munu flestir eða allir ut-
anríkisráðherrar sitja fundi
þessa.
Mikill viðbúnaður er eðli-
lega hér heima fyrir fund
þennan, og er gert ráð fyr-
ir, að til fundar komi 300-
400 manns, þar sem með ráð-
herrum kemur væntanlega
nokkurt föruneyti, ýmsar al-
þjóða starfsnefndir, auk fjöl-
menns hóps fréttamanna.
Þegar er búið að fá Há-
skóla íslands til fundarhald-
anna, en að sjálfsögðu þarf
meira húsnæði fyrir svo fjöl-
mennan fund.
f Ankara sagði Suleyman Dem
irel forsætisráðherra að enn væri
of snemmt að taka afstöðu til at-
burðanna í Grikklandi.
Vinstrisinnar í Vestur-Evrópu-
löndum fordæmdu í dag grísku
herforingjastjórnina harðlega. —
Málgagn sovézka kommúnista-
flokksins, Pravda, tók hins vegar
mjög varfærnislega afstöðu til
atburðanna og birti aðeins frétt-
ir frá vestrænum fréttastofum
án umsagnar. Stjórnarmálgagnið
Izvestia sagði hins vegar að á-
standið mundi valda nýjum erfið
leikum innan NATO.
Rithöfundarnir
Framhald af bls. 17
lendis og víðar, enda hafði ég
góða aðstöðu til þess, frjálsan
tíma, mikinn aðgang að bóka-
kosti, blöðum og sjónvarpi.
Flest af því, sem gerðist á
þessum vettvangi, varð mér
til nokkurs gagns og óbland-
innar gleði. Einn atburður olli
mér þó sárum vonbrigðum. Það
var fréttin um fangelsun rúss-
nesku rithöfundanna Daniels
Sinjavskis í febrúax 1966.
Ég hef alltaf haft mikla sam-
úð með þeirri þjóðfélagsbreyt-
ingu. sem orðið hefur í Ráð-
stjórnarríkjunum síðustu hálfa
öld og verið þeirra skoðunar,
að þjóðir þeirra og ráðamenn
hafi í stórum dráttum gengið
til góðs götuna fram eftir veg
þann tíma.
En þetta gerræði stjórnar-
valda austur þar fannst mér
vera reiðarslag vinum Rúss-
lands. Ég reyndi að fylgjast
með öllu, sem réttlætt gat um-
rædda ráðstöfun af hálfu
þeirra, sem báru ábyrgð á
henni, svo og túlkun og út-
skýringar blaðanna í Dan-
mörku og sjónvarpsstöðva á
Norðurlöndum, sem mér virt-
ust lúta mjög frjálsri stjórn.
En 'hvert sem ég sneri mér,
fór ég í geibarhús að leita ull-
ar. Hvergi gat ég séð, að rúss-
nesku rithöfundarnir hefðu
gerzt brotlegir við sanngjörn
lög eða rétt. Síðan hef ég beð-
ið þess í ofvæni, að þelr yrðu
náðaðir, en án þess að von
mín rættist. Og mér hefur allt-
af skilizt. að hér væri um að
ræða misskilning eða þá eitt
af þeim slysum, sem ekki væru
mikilhæfum forráðamönnum
þessara merku þjóða samboðin.
Marjun Gray
brezkur
ríkisborgari
EINS og menn muna kom upp
sú spurning við upphaf „Bjargs
málsins11, hvort Marjun Gray
teldist færeyskur ríkisborgari
og samkvæmt þeim lögum, er
í gildi voru við giftingu foreldra
Marjun, hlaut eiginkonan sama
ríkisborgararétt og maðurinn. —
Ber móðir Marjun og brezkt
vegabréf. Nú hefur fengizt úr
málinu skorið og varð niður-
staðan sú, að Marjun Gray teld-
ist brezkur þegn og var henni
afhent brezkt vegabréf sl. þriðju
dag.
Saltað dag og nótt
- afli línubáta óvenju góður
Akranesi, 1. desember
SÍÐUSTU nótt komu enn þrjú
skip til Akraness með sild úr
Faxaflóa, Höfrungur H AK var
með 200 lestir, Höfrungur III AK
með 200 lestir og Ólafur Sig-
urðsson AK með 50.
Síldin var söltuð og fryst og
nýtist hún sæmilega vel. Siðasta
sólarhring voru 2440 tunnur salt
aðar og frystar á Akranesi. Salt
að er á þremur söltunarstöðum:
Haraldur Böðvarsson & Co, Sig-
urður Hallbjarnarson hf. og
Þórður Óskarsson hf.
Afli línubáta hefur verið góð-
ur að undanfömu og er fiskur-
inn unninn í frystihúsunum.
Mörg ár eru síðan afli línubáta
hefur verið jafn góður og fall-
egur að hausti til og nú í ár,
og spáir það góðu um línuveið-
ar á komandi vetrarvertíð.
— HJÞ.