Morgunblaðið - 15.12.1967, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.12.1967, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DES. 1967 María Maack ávarpaSi fundarkonur nokkrum orðum er hún hafði tekið við heiðurssikjalinu. María Maack heiðurs- félagi „Hvatar" Á JÓLAFUNDI Sjálfstæðis- kvennafélagsing „Hvöt“ á mið- vikudaggkvöldið tilkynnti for- maður félagsins, Auður Auðuns alþingissnaður, að stjórnin hefði samþykkt að kjósa fröken Maríu Maack, heiðursfélaga Hvatar. Auður Auðung þakkaði Maríu ómetanleg störf í þágu félagsins frá fyrstu tíð og afhenti henni síðan heiðursfélagaskjalið. Frök en María Maack þakkaði með nokkrum vel völdum orðum þann heiður, sem sér væri með þessu sýndur. Þá flutti Lárus Siguirbjörnsson skjalavörður ræðu um Reykja- vík, k'om viða við og var gerður góður rómur að máli hans. Ragn ar Michelsen og Þórdís Jónsdótt- ir sýndu skireytingar frá Blóima- verzlun Michelsen, og auk þess höfðu þau annazt borðskreyting- ar og var á öðru borðinu ís- lenzkur matur, hangikjöt, súr- matur og kandíssykur. Að skreytingasýningunni lokinni var happdrætti og vinningar vioru jólaskreytinigarnar og ís- lenzki maturinn. Ég náði andartak tali af frök- en Maríu Maack eftir fundinn, en þá stuttu stund var þó straumur kvenna, sem v.ildi ná fundi hennar, óska henni til hamingju með þann sóma, sem henni hafði verið sýndur og óska henni gleðilegra jóla. — Uppbafið að stofnun H'vatar var að Helga Marteinsdóttir kom að máli við mig og Guðrúnu Guð laugsdóttur og spurði, hvort við vildum ekki stofna sjálfstæðis- kvennafélag. Svo töluðum við við frú Guðrúnu Jónasson og hún féllst á að taka að sér for- miennesku ef úr því yrði. Síðan var félagið formlega stofnað í Oddfellowhúsinu í desember 1936 og voru stofnfélagar 301 kona. Það varð strax mikill áhugi meðal kvenna að efla þetta félag og við höfum reynt að vinna í anda Sjálfstæðis- flokksins og vera honum og því sem hann berst fyrir, til styrkt- ar, og ég vona, að það hafi tek- izt. — Hafið þér alltaf setið í stjórninni? — Já, fyrstu átján árin sem gjaldkeri, síðan tók ég við for- mennsku af frú Guðrúnu Jónas- son, og gegndi henni í 13 ár. — Og þið hafið haldið fundi reglulega? — Já, við 'höfum fengið þing- menn okkar til að flytja ræður hjá okkur, við höfum haft fræðslufundi, síðustu vetur fönd- urnámskeið, og alltaf jólafund rétt fyrir hátíðar. Á suimrin höf- um við farið í skemtiferðir, á síðasta sumri fórum við í þriggja daga skemmtiferð í Skaftafells- sýslu, það var Ijómandi góð ferð og mikil þátttaka, við vorum einn dag um kyrrt á Kirkjubæj- arklaustri og héldum síðan aust- ur að Núpsvötnum. — Ég hef alltaf nóg hugðar- efni, þó að ég sé hætt störfum á Farsóttarhúsinu — þá hafði ég reyndar verið 55 ár við hjúkrun- arstörf. Mér þykir vænt um fé- lagið okkar og reyni að vinna því gagn meðan ég má. Fleiri og fleiri konur koma og þurfa að heilsa upp á Maríu. Hún kallar til einnar í kveðju- skyni: — Þú kemur nú með mér í Grunnavík næsta sumar. — Já, ég er alltaf þar á sumr- in síðustu árin, ég er fædd og uppalin að Stað í Grunnavík, og mér finnst dásamlegt þarna fyrir vestan. En gallinn er sá, að mig vantar bíl'veg yfir Snæ- fjallaheiði. Ég er alltaf að vona, að hann verði lagður, en ekki lízt mér á að svo verði. En ef ég vinn í happdrættinu þá læt ég sjálf gera þennan veg, fœ mér tvo jeppa og svo skal ég sannar- lega bruna. Jólatónieikar í Réttarholtsskóla KIRKJUKÓR Bústaðasóknar heldur jólatónleika í samkomusal Réttarholtsskóla sunnudaginn 17. desember klukkan 14:00. Kórinn flytur þar kirkjuleg tónverk und ir stjórn Jóns G. Þórarinssonar, sem einnig leikur á orgel. Aðalverkið, sem kórinn flyt- ur á þessum jólatónleikum, er jólakantata eftir Buxtehude: „In dulci jubilo“ um sálminn. Sjá himins opnast hlið. Undirleik annast Helga Haufcsdóttir og Unnur Sveinbjarnandóttir. fiðlur, Gunnar Björnsson, cello, og Dan- íel Jónsson, orgel. Auk þess flytur kórinn m.a. fjögur lög úr nýútkominni söngvabók: ..Tuttugu og tveir helgisöngvar“, sem dr. Róbert A Ottósson, söngmálastjóri Þjóð- kirkjunnar, bjó til útgáfu. Jón G. Þórarinsson leikur á orgel verk eftir: Lixbeck, Buxte hude og J. S. Bach. Aðgangur að jólatónleikunnm er ókeypis og öllum heimill. ALLT MEÐ IVIeiraprófs- námskeið á Egilsstöðum Egilsstöðum, 14. desember. MEIRAPRÓFSNÁMSKEIÐ fyrir bílstjóra lauk hér í gærkvöldi. í námskeiðinu tóku þátt 33 bíl- stjórar af Héraði og frá fjörðun- um í kring. Kennarar á nám- skeiðinu voru: Páll Kristjánsson Reykjavík, sem kenndi vélfræði. Jón Oddgeir Jónsson, sem kenndi hjálp í viðlögum og Sigurður Emil Ágústssson, en hann kenndi umferðarlög og umferðarreglur. ’ —. ha. Buxnubelti Mjaðmabelti Brjóstahöld London dömudeild. Dönsk skrifborð danskar kommóður sœnskar forstofukommóður, með veggspeglum Komið og skoðið húsgagnaúrval á íslandi rycx □ Sími-22900 Laugaveg 26 EIMSKIP A næstunni ferma skip vor a til íslands, sem hér segir:fi 4NTWERPEN: Skógafoss 20. des. Goðafoss 2. janúar Skógafoss 11. janúar HAMBURG: Askja 15. des. Gunnfoss 29. des. Goðafoss 5. janúar ** Skógafoss 17. j anúar Reykjafoss 26. janúar ROTTERDAM: Skógafoss 22, des. Goðafoss 3. janúar ** Skógafoss 13. janúar Reykjafoss 23. janúar LEITH: Gullfoss 15. des. Mánafoss 9. janúar HULL: Skip 19. des. Mánafoss 5. janúar Askja 16. janúar ** LONDON: Skógafoss 19. des. Mánafoss 2. janúar Askja 12. janúar ** NEW YORK: Fjallfoss 18. des. * Brúarfoss 22. des. Selfoss 5. jan. GAUTABORG: Tungufoss 29. des. ** Bakkafoss 9. janúar K AUPM ANNAHÖFN: Tungufoss 27. des. ** Gullfoss 3. jan. Bakkafoss 11. janúar KRISTIANSAND: Gullfoss 4. jan. Tungufoss 20. janúar KOTKA: Dettifoss um 10. janúar GDYNIA: Dettifoss um 12. janúar * Skipið losar á öllum að- alhöfnum Reykjavík ísafirði, Akureyri og j Reyðarfirði. ** Skipið losar á öllum að- alhöfnum, auk þess i Vestmannaeyjum, Siglu firði, Húsavík, Seyðis- firði og Norðfirði. Skip sem ekki eru merkt með stjörnu losa í Reykjavík. Jóla- og nýársferð ms. Gull foss frá Reykjavík 22. des. til Amsterdam, Hamborgar, Kaupmannahafnar og Krist iansand. Reglubundnar áætlunar- ferðir ms. Gullfoss til Fær- eyja verða teknar upp í janúar 1968. ALLT MEÐ EIMSKIP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.