Morgunblaðið - 15.12.1967, Qupperneq 14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DES. 1997
au
Við Laugarnesveg
Hefi til sölu 2ja og 3ja herbergja íbúðir á hæðum
í húsi sunnarlega við Laugarnesveg. Seljast til-
búnar undir tréverk og sameign úti og inni full-
gerð. Teikning til sýnis á skrifstofunni.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutnngur. Fasteignasala.
Suðurgötu 4. Sími: 14314.
Kvöldsími: 34231.
Skrifstofustúlka
Opinber stofnun í Reykjavík óskar eftir að ráða
skrifstofustúlku. Vélritunarkunnátta skilyrði. Um-
sóknir með upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf óskast sendar afgreiðslu Morgunblaðsins
fyrir 23. des. n.k. merktar „Opinber stofnun —
skrifstofustúlka — 5714“.
Auglýsing
um sérstakt bann um stöðu bifreiða í Keflavík. Á
tímabilinu frá og með laugardeginum 16. desember
næstkomandi til laugardagsins 30. des. næstkom-
andi verða stöður bifreiða bannaðar á Hafnargötu
að vestanverðu á svæðinu frá Vatnsnesvegi að Aðal-
götu, að undanskildu afmörkuðu bifreiðastæði við
hús númer 36 — 38 við Hafnargötu.
Keflavík 13. desember 1967.
LÖGREGLUSTJÓRINN í KEFLAVÍK.
Til leigu
5 herb. íbúð í fjölbýlishúsi við Hvassaleiti. Bílskúr
fylgir. Nánari upplýsingar gefur
Málflutnings og fasteignastofa,
Agnar Gústafsson hrl.,
Björn Pétursson: fasteignaviðskipti,
Austurstræti 14, sími 21750, 22870. Heimasími 41028.
Útgerðarmenn - Skipstjórar
Vélstjórar
Vélar og tæki úr m/s Gulltoppur K.E. 29 eru til sölu
á mjög hagkvæmu verði.
Aðalvél Kromhout í góðu ástandi, togvinda nýleg
6 tonna frá Sigurði Sveinbjörnss., gúmbjargbátar,
Rapp-kraftblakkir og m. fl.
Allt selt með góðum greiðsluskilmálum. Upp. gefur
SKIPA OG VÉLAEFTIRLITIÐ
Sími 34040 kl. 13 til 15 og á kvöldin í síma 18623.
Brauðbær auglýsir
Við viljum vekja athygli viðskiptamanna okkar á
því að panta brauð fyrir laugardaginn 16. desem-
ber og laugardaginn 23. desember (Þorláksmessu)
tímanlega, vegna mikilla anna hjá okkur þessa
daga. Sú nýbreytni verður á að við munum senda
pantanir í verzlanir þessa daga, yður að kostnaðar-
lausu.
Eru nægar olíubirgðir á Akureyri
— ef hafís teppir siglingar fyrir NorÖurlandi?
Akureyri, 9. desember.
FREGNIRNAR um hafís fyrir
Norðurlandí hafa að vonum vak
ið ugg manna hér um slóðir og
mikið umtal um, hvort nægar
birgðir helztu nauðsynjavara
væru til norðanlands ef svo
kynni að fara, að hafís teppti
siglingar. Reinist þá hugsunin
einkum að oiíu til húsakynding-
ar, en hún verður ekki flutt
hingað í teljandi magni nema
með skipum.
Fréttamaður Mbl. hafði því í
morgun samband við þá aðila
sem selja þessar nauðsynjavörur
á Akureyri og spurðist fyrir um
„HÚSSARMIR
KC'MA
HUSSARMIR
KCMA'
Glefsur úr
bdkinni
...Mig vantar lykla að
búðinni,“ sagði Palmer. „Mið
vantar byssur.“
„Hvern ætlarðu að skjóta?"
,,Rússa — fallhlífarhermenn
— innrásarlið!"
„Þú átt við aðskotalýð?"
„Já!“
„Af hverju sagðirðu það
ekki?“ Gamlinginn hvarf og
kom aftur að vörmu spori með
lykla á bandi. „Hérna,“ sagði
hann. „Einhver þeirra ætti að
duga. Og úr því að þú er byrj-
aður á annað borð, skjóttu þá
eins og tvo fyrir mig!“
★
... „Lysenko, segðu kven-
manninum, að ef hún ólátist
svona, þá drepum við vinkonu
hennar,“ sagði Rosanoff, og
Lysenko skilaði þessu til Agn-
esar. „Jæja, standið nú upp,
einn í einu, sá neðsti heldur
henni. Hver er neðstur?"
„Hver heldurðu?" heyrðist
vesaldarlega í Hrushevsky.
„Hver fær allaf langversta ...
hlutskiptið?" ...
★
... Eg verð a ðfara mer hæg
ar í framtíðinni, hugsaði hann.
Ég verð eftirleiðis að íhuga
hugmyndirnar hennar Bar-
böru betur, áður en ég lendi í
vandræðum. Eins og til dæmis
núna, á þessari stundu, —
hérna er ég, rennandi blautúr,
á nærbuxunum, að reyna að
sökkva kafbáti, innan frá! ...
GRÁGAS
birgðir þeirra af gasolíu. Svörin
voru á þessa leið:
Olíufélagið Skeljungur
(Shell), Sigmundur Magnússon:
— Birgðir þær sem til eru
ættu að endast fram í janúar og
jafnvel til janúarloka miðað við
venjulega vetrarsölu. Annars er
salan mjög breytileg og illt að
spá neinu. Hins vegar er það
skoðun mín, að hér ættu að vera
mun stærri geymar en tii eru.
Hér ætti að vera stór olíubirgða-
stöð og hingað ætti að flytja
benzín og olíur beint frá útlönd
um.
Olíusöludeild KEA (Esso),
Guðmundur Jónsson.
— Við eigum birgðir til hálfs
mánaðar eða svo og eigum von
á einhverri viðbót í næstu viku.
Það ætti alltaf að endast vel
fram yfir áramót. Við ættum ef
laust meira, ef ekki hetði brugð
izt einn skipsfarmurinn, sem
koma átti tii íslands frá Rúss-
landi, en verið er nú að athuga
um að fá sama magn eða svip-
að annars staðar frá. — Hér í
stöðinni eru annars geymar und-
ir þriggja mánaða birgðir ruiðc ð
við vetrarneyzlu, en mikið vant
ar á, að þeir séu alltaf futlir.
Olíuverzlun íslands (BP),
Gunnar Thorarensen:
— Til okkar er nýkomið skip
með olíu og benzín. Ég get ekki
sagt um, hve lengi þessar birgð
ir endast, því að salan er svo
misjöfn eftir því hvort menn
hafa birgt sig upp eða ekki, t.d.
til sveita, þar sem stórir geym-
ar eru á bæjum. Olían ætti að
nægja í bráð að minnsta kosti
og oft hafa hér verið mmni birgð
ir en nú á þessum árstíma. Geym
ar oikkar þyrftu bara að vera
stærri, því að alltaf getur kom-
ið fyrir, að siglingar teppist að
vetrarlagi. — Sv. P.
*
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA
SÍIVII 10.100
Skipstjóri
Vanan skipstjóra vantar á 100 tonna togbát.
Upplýsingar í síma 16168.
Tilboð
óskast í v/b Eyfelling V.E. 206, sem nú liggur við
Grandagarð í Reykjavíkurhöfn.
Upplýsingar hjá undirrituðum.
í skiptarétti Reykjavíkur 14. des. 1967.
UNNSTEINN BECK.
Meðeigandi
Meðeigandi óskast að litlu iðnfyrirtæki, eitt af
þessari tegund á íslandi. Þarf að geta lagt fram
nokkurt fé og helzt að geta séð um daglegan rekstur.
Tilboð sendist Mbl. merkt: „5715“.
r
I Vesturbænum
Til sölu eru eins og tveggja herbergja íbúðir á
jarðhæð á góðum stað í Vesturbænum. íhúðirnar af-
hendast nú þegar. Sameign úti og inni frágengin.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningur. Fasteignasala.
Suðurgötu 4. Sími: 14314.
Kvöldsími: 34231.
Konur athugið
Ný sending af amerískum brjóstahöldurum síðum,
stór númer, einnig yfirstærðir. Takmarkaðar birgðir.
SKEMMUGLUGGINN, Laugavegi 65.
Til síöasta manns
Karlmennska - Hetjudáðir - Mannraunir
Laun ástarinnar
Hugijúf - spennandi - ástarsaga -fc
Ný bók um HAUK FLUGKAPPA
Dularfulla leynivopnið
Spennandi drengjasaga
HÖRPUÚTGÁFAN