Morgunblaðið - 15.12.1967, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DES. 1967
15
Tilvalin jólagjöf!
TÓBAKSVESKIN með fjöðrinni.
Hagstælt verð.
Verzlunin Þöll
Veltustundi 3 (gegnt Hótel íslands bif-
reiðastæðinu) Sími 10775.
Lóðaklukkur
Hilluklukkur
Eldhúsklukkur
Pönnuklukkur
Pottaklukkur
Vekjaraklukkur
Úr, mikið úrval
einnig úrarmbönd
Sigurður
Jónasson
Laugavegi 10
Bergstaðastrœtismegin.
RUSSLAND
UNDIR HAMRIOG SIGÐ
eftir HERMANN PÖRZGEN.
KRISTJÁN KARLSSON og MAGNÚS SIGURÐS-
SON þýddu texta bókarinnar á ísleniku.
Þetta er stór og falleg myndabók, sem segir sögu
Sóvétrtkjanna og rússncsku þjóðarinnar í máli og
myndum, algjörlega hlutdrægnislaust. Bókin gefur
lesandanum tækifæri til að líta til baka í rólcgri
yfirsýn til hinna ógurlegu — eða fagnaðarríku — at-
burða 1917, íhuga afleiðingar þcirra og öðlast um
lcið — i bókstaflegri merkingu — furðu glögga mynd
af Sóvétríkjunum um 50 ára skeið; sögu þeirra,
stjórnmálum, hugmyndafræði, atvinnuvegum, lands-
lagi, landsháttum, visindum, menningu. Þorri mynd-
anna í bókinni er lítt kunnur cða alls ókunnur
áður.
Inngang að bókinni ritar dr. Hcrmann Pörzgen,
þýzkur rithöfundur og blaðamaður, sem er gjör-
kunnugur Rússlandi. Hann sér að vísu land og þjóð
með augum Vesturlandabúans, en hann skrifar af
menningarlegri hlutlægni og áróðurslaust.
Árlega kemur út á Vesturiöndum mikill fjöldi
ágætra bóka um Sóvétríkin, þó að við íslendingar
höfum farið einkennilega varhluta af nýtilegum bók-
um um þetta efni og látið okkur að mestu nægja
fornfáleg vígorð um fyrirbærið Sóvétríkin. Þess
vcgna má okkur alveg sérstaklega vera fengur í þcss-
ari fróðlegu, aðgengilegu og ásjálegu bók. Hvað sein
pólitískum skoðunum manna líður, fer ekki hjá því,
að þcirn þyki forvitnilegt að skyggnast inn í heim
Sóvétríkjanna eins og hann birtist í þcssari bók.
Bókin er gefin út samtímis í mörgum löndum í til-
efni þess að í nóv. þ. á. eru liðin 50 ár síðan hin af-
drifaríka Októberbylting gerðist í Rússlandi.
240 bls. í stóru broti (21x25 cm), prýdd 240 óvenjulegum og merkilegum myndum
Saga Sóvétþjóðanna í 50 ár sögð í máli og myndum . Algjörlega
hlutdrægnislaus lýsing á landi og þjóð . Glæsileg og eiguleg bók
jS BiÖjiÖ bóksalann yöar að sýna yöur BÓKAFORLAGSBÆKURNAR
BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR . AKUREYRI