Morgunblaðið - 15.12.1967, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DES. 1967
Kveðjuorð
í DAG fer fram frá Vallaness-
Kirkju útför tveggja hinna ungu
pilta er létust vegna slysfaranna
6. des., þeirra Jónatans Clausen
og Þorgeirs Bergssonar. Sl.
þrjíSjudag var útför þriðja pilts-
i_ns, er lézt í sama slysi, Víð-is
Ágústssonar, gerð frá Kirkju-
b^ejarkirkju.
Það eru þung spor að standa
yfir moldum æskumanna. Marg-
ar vonir bresta og fámenn byggð
arfög drúpa við skarðið sem
verður í hópi hinna ungu, en við
hina ungu er framtíð hvers
byggðarlags bundin.
Margir hefðu vafalaust viljað
vera viðstaddir útför þessara
ungmenna, sem ekki eiga þess
kost, til þess á þann veg að
votta samúð. Fátækleg orð mega
sín lítils.
Megi blessun guðs hvíla á beð
piltanna þriggja sem hin milda
jörð Fljótsdalshéraðs tekur nú í
faðm sinn. Megi æðri máttur
styrkja og blessa aila aðstand-
endur.
Jónas Pétursson.
Jónatan Clausen
Móðir okkar
Þórunn Halldórsdóttir
Jónatan Clausen
— Minningarorð —
Þorgeir Bergsson
— Minningarorð
F. 10. 6. 1953. — D. 6. 12. 1967.
í DAG verður til moldar borinn
í Vallanesi í Suður-Múlasýslu,
Jónatan Clausen, Laufási 12,
Egilsstaðakauptúni.
Jónatan var fæddur í Egils-
staðakauptúni 10. júní 1953. Um
þær sömu slóðir lá síðan hans
stutta lífsgata og er.daði einnig
svo að segja við upphaf sitt svo
allt of fljótt.
Nótt sorgarinnar grúfir nú yf-
ir aðstandendum hans og vin-
um, en jafnvel nóttin á sinn
ljósgjafa, stjörnuna. Slíkur ljós-
gjafi er minningin um Jónatan.
Hún mun verða það ljós, sem
lýsir svo í hugum okkar, að
deginum verður aftur auðið að
ná þar bólfestu, þegar frá líður.
í>að er ekki ætlun mín að
rekja í þessum fáu línum hina
stuttu ævisögu Jónatans, heldur
að láta í Ijós þakklæti mitt fyrir
að hafa fengið að vera einn af
t Sigurður Þórðarson skipasmiffur, Vesturgötu 21 andaðist 12. þ.m. að Elliheim- ilinu Grund. Vandamenn. t Helga J. Þórarinsdóttir frá Kollavík andaðist á heimili sínu, Ár- bliki, Raufarhöfn, 14. desem- ber. Börn, tengdasynir og barnabarn.
t Sigríður Þorsteinsdóttir frá Hrafnkelsstöðum Hraunhreppi, lézt að sjúkrahúsinu Sólheim- um 12. des. Aðstandendur. t Útför móður minnar Maríu Magnúsdóttur er lézt 10. des. fer fram frá Stafholtskirkju laugardaginn 16. des. kl. 2. Sigurður Marisson.
t Hjartkær eiginkona mín, móð ir, tengdamóðir og amma, Máfríðu Tómasdóttir Waage lézt 13. þ. m. Skarphéðinn Waage, Steinar og Clara Waage, Baidur og Kristín María Waage, Tómas og Guffrún Waage, Magnús otf Kittý Waage og barnaböra. t Útför Þorvaldar Klemenssonar frá Járagerffarstöðum sem andaðist í Landakotsspít- ala 9. desember síðastliðinn, verður gerð frá Grindavíkur- kirkju laugardaginn 16. des- ember næstkomandi, og hefst athöfnin kl. 13.30. Ferð verður frá Umferðar- miðstöðinni kl. 12.30. Þeir, sem vildu minnast hans, eru vinsamlega beðnir að láta líknarstofnanir njóta þess. Stefanía M. Tómasdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn.
Lopez
lézt af slysförum í Bandaríkj-
unum 12. þ.m.
Fyrir hönd eiginmanns
bama og syskina hinnar látnu
GuðríSur Jónsdóttir,
Halldór Jónsson.
t
Hjartkær eiginkona mín og
móðir okkar
Hafdís Haraldsdóttir
Hólmgarffi 25,
lézt að Landakotsspítala mið-
miðvikudaginn 13. þessa mán-
áðar.
Magnús Tómasson
og börnin.
njótendum þeirrar léttu glað-
værðar og þess hlýja yls, er
hann miðlaði öllum af, sem hon-
um kynntust.
Kynni okkar hófust er hann
barn að aldri, dvaldi sumar-
langt á æskuheimili mdnu. Síð-
ar lágu leiðir okkai oft saman
ýmist um lengri eða skemmri
tíma í senn.
Ég fékk því að kynnast
bernskudraumum hans all náið
og ég veit að hugmyndir hans
um framtíðina voru stórar.
En nú er svo komið að aðr-
ar hendur þarf til að gera þær
að veruleika.
Jonni minn, þótt önnur ung-
menni gangi nú um okkar æsku-
slóðir og byggi sínar drauma-
hallir þar sem við fyrrum reist-
um okkar, eru þær ekki hrund-
ar. Þær eru ennþá til í huga
mínum, þó ég geti þær engum
sýnt og engum gefið.
Um leið og ég votta móður
Jónatans, fósturföður, systkinum
og öðrum aðstandendum hans
mína innilegustu samúð, bið ég
þau að vera þess minnug, að
skylda okkar sem urðium þeirrar
gæfu aðnjótandi að kynnast hon
um, er ekki einungis að varð-
veita minninguna um góðan
dreng, heldur einnig að miðla
öðrum af því sem hann kenndi
okkur, hreinskilni og hjarta-
hlýju, sem er hinn innsti sann-
leikur og æðsta vizka. Árangur-
inn af lífsstarfi hans getum við
hvorki vegið né mælt, þvd hann
er ekki forgengilegur hlutour sem
við getum farið höndum um,
heldur átt ag notið hvar og
hvenær sem er, þvi hann er í
okkur sjálfum.
Þess vegna verður Jónatan
Clausen ekki á meðal okkar,
heldur með okkur þegar morgn-
ar.
Ingiberg Magnússon.
t
Stefanía Friðriksdóttir
fyrrverandi ljósmóffir
frá Ytra-Lóni, Langanesi
lézt í sjúkrahúsinu á Selfossi
hinn 12. þ. m. Jarðarförin
fer fram frá Fossvogskirkju
laugardaginn 16. desember kl.
10.30 f. h.
Vandamenn.
F. 6. 8. 1949. — D. 10. 12. 1967.
ÞEGAR haustar að, setur að okk
ur hér á noTðUThjara veraldar
jafnan nokkurn kvíða. Kuldinn
og myrið læðist að okkur, og
hætturnar geta leynzt í hverju
fótmáli. Við reynum að stytta
okkur dagana eftir föngum og
látum okkur dreyma um hækk-
andi sól og sumar á ný, tíma
nýrra verkefna og nýrra átaka.
Gg þegar þið félagarnir kom-
uð saman í síðustu viku eins og
svo oft áður að stytta ykkur
langt vetrarkvöldið, óraði engan
fyrir því að þið færuð þar sum-
ir á vit hins eilífa sumairs, sem
okkur öllum er fyrirheitið. Svo
skjót var sú ráðstöfun forsjón-
arinnar og óræð á okkar jarð-
neska mælikvarða.
Þorgeir Bergsson var fæddur
í Egilsstaðakauptúni 6. ágúst
1949, og var elztur fjögurra
barna hjónanna Svanhildar Sig-
urðardóttua- og Bergs Ólasonar.
Að loknu unglingaskólanámi
í Egilsstaðakauptúm, stundaði
hann nám við Eiðaskóla og lauik
prófi 4. bekkjar við Vogaskóia
í Reykjavík á sl. vori.
Við Þorgeir eða Doddi, ems
og hann var jafnan nefndur, vor
um leikibræður í æsku, skóla-
félagar um hríð og vinnufélagar
síðar. Þegar þeim kynnum er nú
lokið um sinn, tekur minningin
við. Sú minning - verður jafn
björt og bjart var yfir mann-
inum sjálfum. Glaðværðin var
flörunautur hans til hinztou stuind
ar, og nærvera hans var þægi-
leg í leik og starfi. Mér var alls
ómögulegt að reiðast Dodda,
nema þá stutta stund í einu. Með
fædd kímnigáfa hans, sem svo
oft lýsti upp hversdagsleikann,
kiom í veg fyrir það. Á öll okk-
ar saroskipti bar því aldirei
skugga, og ég geymi mynd hans
bjarta og fagra í hoga mér.
Doddi minn. Með þessum fá-
tæklegu orðum vil ég reyna að
tjá þér þökk fyrir samfylgd
þína og votta foreldrum þínum
og systkinum djúpa samúð. Ég
veit ,að minningin um þig mun
ylja þeim á þessum löngu vetor-
arnóttum.
G.S.
Sigurjón Sigurjóns-
son birgðavörður
F. 12. júlí 1901
D. 7. des. 1967
SIGURJÓN Sigurjónsson, birgða
vörður andaðist að heimili sinu
Ljósheimum 11, þann sjöunda
þessa mánaðar eftir mikla van-
heilsu undanfarin ár. í dag er
við kveðjum hann nú um stound
minnumst við allra þeirra ára,
er við áttum samleið með hon-
um. Fyrst norður á Siglufirði og
t
Móðir okkar og fóstra
Sigríður Björnsdóttir
lézt að sjúkradeild Hrafnistu
14. þ.m.
Markús Sigurjónsson,
Björg Sigurjónsdóttir,
Jóhanna Sigurjónsdóttir,
Rögnvaldur Sigurjónsson,
Hlíf Sigurjónsdóttir,
Hörður Sigurjónsson.
svo siðar hér í Reykjavík. Sig-
urjón varð snemma starfsmaður
Sildarverksmiðju ríkisins á Siglu
firði. Var hann þar birgðavörð-
ur unz hann fluttist hingað ár-
ið 1952 og tók við birgðavarða-
stöðu hjá Áburðarverksmiðju
t
Útför konunnar minnar
Elínar Jónsdóttur
Lokastíg 9,
fer fram frá Eyrarbakka-
kirkju laugardaginn 16. des.
kl. 1.30. Ferð frá Umferðar-
miðstöðinni um kl. 11.30. Þeir,
sem vilja minnast hennar,
vinsamlegast láti líknarstofn-
anir njóta þess.
Ársæll Jóhannsson.
t
Þökkum hjartanlega alla sam-
úð og hjálp við andlát og jarð
arför
Skúla Hallssonar,
Ásdís Ágústsdóttir,
Sigurffur Skúlason
og sonarböm.
Innilegar þakkir til barna
minna og tengdabarna, skyld-
fólks og vina, fyrir gjafir,
heimsóknir og heillaóskir á
áttræ'ðisafmæli mínu, 6. des-
ember síðastliðinn.
Lifið heil.
Magnús Jóhannsson
Uppsölum.