Morgunblaðið - 15.12.1967, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DES. 1967
23
rikisins, þegar hún liúf starf-
semi sína.
Sigurjón var fæddur 12. júlí
1901 á Blönduósi en fluttist ung-
ur með foreldrum sínum til
Siglufjarðar. þar sem faðir hans
Sigurjón Benediktsson rak járn
smíðaverkstæði með mesta mynd
arbrag um 35 ára skeið. Hann
var sonur Benedikts Pétursson-
ar, trésmiðs frá Marðardjúpi í
VatnsdaJ. Kona Sigurjóns Bene-
d'iktssonar var Kristjana Bessa-
dóttir frá Sölvalbakka. Þessi
heiðurshjón áttu gullbrúðkaups-
afmæli 1941. Minntust þá Sigl-
firðingar þeirra enda vor.u þau
með aifbrigðum vinsæl.
Fyrstu kynni okkar Sigurjóns
Sigurjónssonar voru sumarið
1930 fyrir norðan. Sigurjón var
þá ungur maður, hægur í fasi
og myndiarlegur að vallarsýn.
Mér fannst alltaf hlýja og góð-
vild fylgja honum í gegnum öll
okkar kynni. Sigurjón var dug-
andi starfsmaður m'eðan heilsa
og þrek entist enda vel verki
farinn og fór bonum allt vel úr
hendi, er hann tók að sér að
framkvæma.
Árið 1934 kvæntist hann eftir-
lifandi konu sinni Gróu Hall-
dórsdóttur, hárgreiðslukonu, ætt
aðri frá Seyðisfirði, dóttur hjón
anna Jónínu Hermannsdóttur og
Halldórs Benediktssonar. Gróa
og Sigurjón áttu gott og fallegt
heimili og mér er óhætt að
segja að það hafi ekki síður ver-
ið hennar verk. Var henni mjög
annt um að fegra það og prýða
á allí n hátt. Þau eignuðust eina
dóttur, Huldu, er giftist Skær-
ingi Haukssyni, lögregluþjóni.
Einar huglj-úfustu stundir Sigur-
jóns hin seinni ár voru þó er
Hulda dóttir þeira kom í heim-
sókn með barnaibömin. Af því
hafði hann alla tíð mikið yndi
og ánægju af að gera þeim til
geðs.
Um leið og við kveðjum hinn
látna Vin hinstu kveðju og þökk
um liðnar stundir vil ég og fjöl-
skylda mín votta eftirlifandi
konu hans og dóttur, tengdasyni
og börnum þeirra okkar einlæg
ustu samúð í sorg þeirra. Við
biðjum algóða-n guð að styrkja
þau og blessa um ókomin ár.
Þorsteinn Halldórsson.
íslendingosam-
koma í
N-Þýzkalandi
LAUGARDAGINN 25. nóv. efndi
Bandalag íslendinga í N-Þýzka-
landi til hátíðarsamkomu að
Hóteft lessingerhof í Braun-
schweig í tilefni 1. desember.
Mættir voru 40—50 Xandar ásam.t
gestum frá borgunum Liibeck,
Kiel, Hamborg, Hannover, Gött-
ingen og Braunsohweig. Fonmað
ur bandalagsins Franz Ziemsen
konsúll í Liibeck setti samkom-
una og bauð sérstaklega vel-
komna beiðuTsgestina herra og
frú Blunk konsúlhjón frá Hann
over.
Veizluistjóri var kosinn Kriis.t-
inn Ragnarsson frá Braunsch-
weig. Stýrði hann hófinu og
kynnti jafnframt dagskrá.
Gylfi Gunnarsson fró Ham-
borg hélt fullvaldisræðu. Þá léku
þeir Magnús Kristinsson á fiðlu
og Ólafur Pálsson á píanó tvö
verk eftir Grieg og Chopin. Síð-
an la« Freysteinn SiguTðsson frá
Kiel frumort Ijóð. Að lokium var
stiginn dans á milli þess sem
menn tóku kröftuglega lagið að
gömlum og góðurn ísilenzkum
sið. Fagnaðinium var slitið kl.
1.30.
172 hafa farizt
Koyna Nagar, Indlandi,
13. desember. NTB.
TALA þeirra sem fórust í jarð-
skjálftanum á Indlandi á mánu-
daginn komst í dag upp í 172.
Lík 87 sem fórust fundust í
þorpinu Koyna Nagar og 85 í
þorpum í grenndinni. Hrunið
hafa 6.000 þús í 122 þorpum sem
hafa verið rannsökuð og um 600
manns hafa slasazt, flestir þó
aðeins lítilsháttar.
María Ólafsdóttir
— Kveðja
fædd 20. ágúst 1883
dáin 8. desember 1967
Hún unni engu til hálfs,
vann ekkert til hálfs.
íslenzkar sveitastúlkur fátæk-
ar og að því er ætla mætti fá-
kunnandi, fæddar og uppaldar á
Norðausturlandi á síðustu tugum
nítjándu aldar áttu vissulega
ekki margra kosta völ og ætla
mætti a'ð framtíðardraumar
þeirra væru bornir til að rætast
ekki.
Þó voru þess dæmi að eðli,
uppeldi, óbilandi kjarkur og
viljaþrek hrundu á brott öllum
vandræðum, stæltust við erfið-
leikana og börðust til sigurs.
Konan sem hér verður kvödd
er verðugt dæmi og fulltrúi
þeirra er harðast sóttu þennan
róður, og hirtu ei þó kalt blési,
en náðu að lokum í höfn þótt
hjá áföllum yrði ekki stýrt.
María var fædd í Húsavík aust
ur og kannast fjöldi Austfirð-
inga og annarra fróðra tslend-
inga við ættféður hennar og ná-
in skyldmenni. Vegna þeirra
ágætu þjóðlegu manna hlýt ég
að lengja þessar línur með því
að færa til nokkuð af því, sem
minn ágæti vinur Benedikt
Gíslason frá Hofteigi lét mér í
té samstundis og ég leitaði til
hans fullvissu um næstu for-
feður Maríu. Hann segir svo:
„Móðir frú Maríu var Björg
Stefánsdóttir bónda í Stakka-
hlíð í Loðmundarfirði Gunnars-
sonar bónda á Hallgilsstöðum á
Langanesi Gunnarssonar er kall-
aður var Skíða-Gunnar Þorsteins
son prests á Skinnastað og Eyja-
dalsá Jónssonar. Var Gunnar á
Hallgilsstöðum bró'ðir síra Sig-
urðar á Hallormsstað, en kona
hans var Elísabet Sigurðardóttir
bónda í Skógum í Axarfirði Þor-
grímssonar. Stefán Gunnarsson í
Stakkahlíð átti Þorbjörgu Þórð-
ardóttur frá Kjama Pálssonar,
er mikil ætt er komin frá. Voru
börn þeirra Stefáns og Þorbjarg-
ar mörg og flest dætur, Stakka-
hlíðarsystur, er urðu hinar mik-
ilhæfustu konur, en bróðir þeirra
var Sigurður á Hánefsstöðum í
Seyðisfirði, tengdafaðir Vil-
hjálms bónda þar Árnasonar.
Ingibjörg Stefánsdóttir bjó í
Stakkahlið og átti að sfðari
manni Baldvin Jóhannesson og
voru þeirra synir Sigurður póst-
meistari og Stefán bóndi í
Stakkahlíð.
Faðir frú Maríu var Ólafur
bóndi á Dallandi í Húsavík eystri
Kjartansson frá Húsavík Ólafs-
sonar bónda í Húsavík ríka Hall-
grímssonar bónda á Þrándar-
stöðum í Borgarfirði Þorgríms-
sonar bónda á Skjöldólfsstöðum,
Jónssonar bónda s. st. ættfræð-
ings Gunnlaugssonar prests í
Möðrudal Sölvasonar. Kona Þor-
gríms Jónssonar var Björg Þor-
láksdóttir prests í Glæsibæ Sig-
fússonar. Kona Hallgríms Þor-
grimssonar var Þórunn Ólafsdótt
ir lögréttumanns á Kóreksstöð-
um Péturssonar, Péturssonar,
Bjarnasonar sýslumanns á Bursta
arfelli Oddssonar. Kona Ólafs
Hallgrímssonar hin síðari og
móðir Kjartans Ólafssonar var
Guðrún Magnúsdóttir bónda í
Gilsárteigi og Finnsstöðum, er
margt manna er frá komið.“
Þótt ýmsum kunni að þykja
svo löng ættfærsla óþörf, þykir
mér hún hér vi'ð hæfi, svo og
sú skoðun Benedikts, að merk-
um íslendingi verður ekki rétti-
lega lýst eða hans minnst, án
þess að geta ættar og uppruna,
og þetta hæfir hér vegna þess
að María ' Ólafsdóttir hlaut í
vöggugjöf margt það sem bezt
verður talið í verðmætum ís-
lenzkra erfða og eðliskosta, svo
sem: trygglyndi og hreinskilni,
eindæma þolgæði og harðfylgi,
ef svo bar undir. Kom þar vafa-
laust fram arfur kynslóðanna,
því að óvenjulegt ætla ég að
sé, að jafnmikið þol og þraut-
seigja fylgi slíku tilfinninganæmi
sem María átti yfir að búa. Ung
að árum missti María föður sinn
og hvarf þá skjótlega að þyí ráði
að leita lærdóms og þroska til
Kaupmannahafnar ásamt systr-
um sínum. Móðir þeirra varð og
í þeirri för.
I Kaupmannahöfn brutu þess-
ar íslenzku sveitakonur sér braut
til sóma og sjálfsbjargar og varð
heimili þeirra um skeið griða-
og skemmtistaður margra Is-
lendinga, sem þá dvöldust í
Höfn. Heimili þar sem starf og
skemmtan, hjálpfýsi og ein-
drægni einkenndi og helgaði
hverja stund. Heyrði ég þess síð-
ar tilfærð mörg dæmi frá vanda-
lausum velunnendum þessa heim
ilis. Me'ðal námsmanna í Kaup-
mannahöfn, sem drógust að
þessu heimili var Ríkarður Jóns-
son. En svo fór að kynni hans og
glaðlyndu, hvatlegu heimasæt-
unnar í Hléseyjargötu entust til
hennar hinztu stundar Entust
með þeim ágætum, sem fullyrða
má að erfitt mun til að jafna.
Ríkarður lifir nú konu sína,
að sjálfsögðu miklu sviptur. —
Maður sem kann að meta gildi
þess og gæfu að hafa átt slíka
konu að lifsförunaut. Æviferill
þeirra Ríkarðar og Maríu eftir
heimkomu til íslands mun flest-
um lesendum þessara lína kunn-
ur í aðalatriðum. En síðan hafa
þau jafnframt miklum áföllum,
einkum sonarmissi, notið á marg-
an hátt verðskuldaðrar viður-
kenningar og vinsælda, svo að í
dag ætla ég að fáir eigi betri
áningarstað í huga landa sinrf@
en Ríkarður Jónsson, enda munu
fáir hafa varið jafnmörgum
vinnustundum þjóð sinni til
gagns og gleði.
Hitt vita kannski færri, hvern
hlut eiginkonan María Ólafs-
dóttir á í afköstum og verðmæt-
um verkum manns síns. Hann
veit það að vísu sjálfur, og
mundi eflaust kjósa, að henni
væru þakkir færðar. En hann
mun líka vitíi a'ð María hafði
leint og ljóst óafvitandi að kjör-
orði „þér vinn ég það er ég
vinn“. Hún var að vísu ekki
mjög ung gefin, en ég ætla að
engin kona sem sögur fara af
hafi verið meir manni sínum
gefin en þessi.
Aðdáun og skilyrðislaus fórn-
fýsi er kannski ekki meðal
þeirra verðmæta sem hæst eru
metin í dag, en þó held ég að
margir séu fúsir að þakka þann
hlut sem eiginkona Ríkarðs Jóns-
sonar á í verkum hans, og varð-
veizlu þjóðlegra verðmæta.
Ekki verður Maríu Ólafsdóttur
að nokkru lýst án þess að
minnzt sé fárra einkennandi
eiginleika í fari hennar. Ég hefi
enga konu eða mann þekkt, sem
virtist hafa svo næma tilfinningu
(instinkt) fyrir ýmsu því sem
skipti mestu máli hverju sinni.
Að sjálfsögðu hafði hún ekki
skólalærdóm eða rökfræðilega
þekkingu til að styðjast við um
mat sitt á mönnum og málefnum,
en sjaldan mun því hafa skeikað
að tillögur hennar eða mat um
hvað eina reyndust verða drjúg-
ar til réttdæmis þegar öll kurl
komu til grafar. Kom þetta mjög
oft fram og var metið þegar ma'ð
ur hennar eða aðrir nákunnug-
ir leituðu álits hennar um
óskildustu efni. María var svo
sem að framan er greint af
hraustmennum komin. Faðir
hennar reri t. d. einn í hjáverk-
um á árabát til fiskjar frá Húsa-
vík. Svo og fór hann einn síns
liðs á árabát til Seyðisfjarðar
í verzlunarerindum. Sjálf gekk
hún til „spurninga" að Desja-
mýri í Borgarfirði, þ. e. á annan
tug km. svo dögum skipti, fram
og til baka. Slík líkamsorka hefði
þó naumast duga'ð henni til þess,
sem hún afkastaði síðar á æfinni,
ef ekki hefði fylgt ómælt skap
og einhugur, svo að með fádæm-
um gat orðið. Var þetta því eftir-
tektarverðara sem hún gekk
lengst af ekki heil til skógar á
fullorðinsárum, sennilega vegna
margháttaðrar ofreynslu. Mörg
dæmi mætti nefna um einhug
og óbilandi kraft Maríu ef henni
þótti við liggja. Var þá ekki á
færi hvers sem var að standa
í vegi fyrir henni. Væru þá hand
tök og viðbrögð snör og óhvik-
ul, gat þá og fylgt ávarp sem
lítt varð misskilið. Seinlæti og
leti þoldi hún ekki. Því hefi ég
heyrt viðbrugðið, að fljót hafi
hún verið í förum innan af Bú-
landsdal út að Búlandsnesi me'ð
dóttur sína nokkurra ára í fangi
sér. Taldi að barnið þyrfti lækn-
is með sökum bráðra veikinda.
Karlmaður sem með henni var
mun hafa átt fullt í fangi með
að fylgja og lítt mun hann hafa
þurft eða fengið að hvíla við
burðinn. Sá gustur, sem staðið
hefur af Maríu Ólafsdóttur þessu
sinni, varð enn greindur í fari
hennar til hinztu stundar. Þar
var ekki frekja 1 för heldur
heilbrigður manndómur og stál-
vilji sem neytti afls til nauð-
synlegra verka.
- Ekki er ég þess fullviss að
María Ólafsdóttir hefði haft bið-
lund Auðar Vésteinsdóttur til að
þinga við Eyjólf grá um sölu á
eiginmanni sínum en ótæpilega
hygg ég að hún hefði rekið sjóð-
inn á nasir honum, og hefði varla
látið við það sitja. Þannig verð-
ur þessari konu, sem hirti naum-
ast um annað en vinna og fórna
sér fyrir mann sinn og heimili,
jafnað til þeirra íslenzkra
kvenna, sem bezt hafa þótt gerð-
ar.
J’rúleiki hennar var fullkom-
inn við það sem hún taldi satt
og rétt. Eiginmaður og heimili
var henni allt. Slíkar konur
munu að margra dómi verð-
skulda hin beztu eftirmæli og
ósk um að beztu eiginleikar
þeirra erfist sem mest. Ég gat
þess í upphafi, að draumar
stúlkunnar í Húsavík hefðu ver-
ið ólíklegir til að rætast. Svo má
þó virðast að á þann veg hafi
farið að mörgu leyti. Varla leið
sá dagur hin síðustu nær 20 ár
sem ég þekkti Maríu, að hún
tæki ekki þátt í gleði og gamni
þeirra er við borð hennar sátu
væri full áhuga á lífi og starfi
allra þeirra er nærri voru og
fylgdist með atburðum og áhuga
málum, sem vörðuðu, ekki ein-
göngu sjálfa hana og heimili
hennar, heldur allt og alla. Kom
þar meðal annars fram háttvísi
hennar.
Þetta var meðal annars gæfa
stúlkunnar frá Húsavík.
Sporin hennar við þjónustu og
starf sem nákomnir, börn og
barnaböm minnast voru fleiri
og léttari en flestra ef ekki allra
íslenzkra kvenna og er þá mikið
sagt.
„Dyggð og tryggð þitt dæmi
kenni.
Dána, þú varst íslenzk kona.“
P. Þ.
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFG R EIÐSLA • SKRIFSTOFA
SÍIVII 10*100
Vinningar í 12. flokki 8.Í.B.8
Framhald af bls. 12
Þessi númer hlutu 1500 kr. vinning hverts
82491 34914 37214 40033 42612 45703
32493 34924 37229 40045 42624 45723
32498 34957 37234 40061 42758 45727
32584 35030 37263 40095 42831 45733
32585 35107 37300 40111 42836 45813
32626 35121 37331 40217 42869 45904
32669 35129 37344 40219 42877 45943
32743 35171 37364 40234 42885 45959
32748 35175 37380 40358 42894 45970
32771 35237 37396 40373 42953 46116
32778 35249 37416 40429 43014 46138
32855 35263 .37430 40479 43015 46197
32912 35369 37442 40485 43048 46234
32963 35370 37500 40563 43083 46322
32964 35384 37533 40610 43213 46361
33042 35398 37586 40620 43309 46366
33058 35415 37594 40625 43347 46191
33131 35445 37608 40628- 43409 46499
33136 35494 37646 40698 43426 46518
33165 35588 37696 40718 43437 46562
33187 35592 37914 4Ó738 43444 46593
33216 35617 37929 40755 43502 46619
33224 35647 37940 40828 43519 46620
33297 35650 38031 40871 43548 46694
33386 35792 38139 40877 43676 46695
33417 35844 38146 40915 43697 46697
33439 35930 38165 40934 43892 46711
33442 35935 38168 40948 43954 46750
33485 35980 38181 40950 43997 46900
33508 35991 38242 40970 44027 4702.3
33526 35994 38255 40996 44128 47048
33528 36111 38262 41085 44167 47083
33536 36112 38264 41216 44174 47173
33539 36135 38353 41238 44175 47222
33540 36139 38376 41252 44212 47315
33543 36157 38448 41441 44245 47326
33599 36172- 38496 41497 44338 47329
33617 36206 38554 41540 44387 47360
33663 36217 38604 41553 44453 47377
33681 36299 38751 41558 44643 47431
33683 36306 38784 41569 44654 47465
33686 36332 38810 41587 44675 47501
33691 36338 38849 41606 44836 47553
33753 36346 38876 41643 44858 47585
33774 36368 39005 41654 44859 47591
33778 36373 39090 41659 44891 47610
33807 36378 39108 41669 44896 47619
33867 36399 39120 41724 44902 47669
33876 36409 39145 41733 44931 47686
33902 36494 39187 41740 44998 47733
33952 36527 39189 41838 45052 47841
33991 36615 39207 41860 45067 47858
34024 36616 39211 41982 45102 47898
34092 36640 39284 41996 45124 47901
34123 36643 39367 41999 45130 47960
34128 36685 39374 42003 45146 48000
34150 36723 39473 42018 45176 48022
34166 36752 39551 42021 45182 48025
34206 36756 39561 42084 45220 48070
34244 36762 39594 42110 45226 48087
34259 36868 39616 42160 45308 48154
34280 36877 39644 42216 45493 48188
34368 36943 39662 42230 45517 48195
34380 37076 39692 42314 45537 48199
34407 37092 39758 42335 45563 48286
34544 37098 39809 42473 45607 48330
34572 37147 39887 42486 45611 48378
34830 34857 37197 39910 42605 45619
48455 51174 54308 57246 60256 63006
48526 51189 54327 57249 60352 63051
48536 51272 54358 57285 60405 63079
48597 51284 54365 57319 60420 63097
48598 51340- 54371 57326 60438 63099
48609 51355 54373 57413 60504 63144
48642 51439 54423 57463 60509 63146
48660 51621 54516 57469 60515 63156
48713 51739 54576 57516 60553 63219
48719 51740 54636 57532 60710 63220
48724 51804 54641 57575 60749 63241
48735 51840 54658 57578 60755 63251
487*64 51842 54800 57606 60767 63277
48769 51912 54815 57634 60820 63332
48906 51927 54900 57711 60835 63419
48914 51946 54932 57730 60862 63422
48960 52062 54936 57751 60907 63425
48975 52106 54942 57810 60964 63430
48985 52122 54993 57811 61009 63538
48994 52182 55160 57830 61039 63541
48996 52193 55164 57848 61049 63546
49019 52271 55198 57864 61077 63569
49045 52281 55251 58020 61112 63628
49099 52386 55395 58044 61148 63715
49115 52425 55417 58049 61321 63765
49124 52479 55472 58051 61355 63779
49144 52490 55510 58056 61436 63862
49187 52495 55585 58082 61483 63869
49188 52511 55590 58087 61513 63902
49197 52538 55594 58100 61607 63922
49230 52593 55644 58112 61630 63940
49234 52705 55673 58142 61705 63955
49247 52727 55714 58167 61712 63975
49295 52770 55729 58223 61717 63990
49330 52837 86790 58434 61720 64061
49374 52969 55828 58459 61737 64067
49387 53061 55985 58502 61847 64131
49433 53151 56082 58658 61865 64179
49507 53169 56104 58683 61885 64187
49529 53229 56119 58722 61932 64208
49629 53258 56129 58735 61955 64302
49700 53320 56212 58754 62028 64380
49704 53353 56227 58802 62095 64432
49906 53379 56389 58876 62097 64434
49922 53446 56470 58882 62122 64440
49931 53470 56497 58907 62129 64447
50008 53473 56522 59059 62151 61450
50032 53475 56524 59095 62174 64468
•50057 53555 56551 59154 62240 64491
50076 53565 56570 59186 62246 64502
50158 53647 56610 59219 62277 64508
50218 53685 56622 59378 62349 64527
50271 53716 56653 59484 62375 64600
50291 53758 56664 59518 62394 64613
.50320 53780 56678 59586 62412 64617
50345 53814 56692 59652 62445 64619
50358 53870 56693 59658 62488« 61658
50360 53876 56716 59665 62491 64696
50365 53889 56723 59690 62503 61704
50498 53943 56760 59715 62592 64705
50593 539-74 56769 59801 62634 64714
50690 53975 56887 59855 62641 64755
50728 54127 56942 59928 62643 64827
50765 54161 57002 60013 62846 64904
50787 54216 57057 60058 62865
50807 54234 57111 60071 62871
50850 54245 57214 60099 62930