Morgunblaðið - 15.12.1967, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DES. 1967
MARY ROBERTS RINEHART:
SKYSSAN MIKLA
er kvaddi, sneri hann sér að
Töny.
vetrarkvöldin, þegar hún var að
heiman og Tony í klúfebnum,
svo að hann var einn eftir í hús-
inu. Hann hlyti að hafa verið
talsvert einmana.
Og Ihún virtist hafa áhyggjur
af þessu. Hún var orðin gjör-
breytt frá þvi áður en hún veikt-
ist. Ekki veit ég, hvaða grun-
semdir hún 'hafði, þar sem hún
sat ein i stólnum sínum. En
líkamlega var hún hressari.
Tvær hjúkrunarkonurnar voru
farnar og Amy ein eftir. En hún
hafði alveg glatað sinnni fyrri
einbeittni. Ég sá stundum frú
Partridge standa lengi yfir
henni, með matseðla dagsins í
hendinni, áður en Maud virtist
yfirleitt taka eftir nærveru henn
ar. En við Tony var hún alltaf
kát. Hann var vanur að a'ka stóln
um hennar út í garðinn, þegar
veður leyfði og sitja þar svo hjá
henni.
— í>ú ert nú alveg eins og
ung stúlka með þetta nýja vaxt-
arlag þitt, var hann vanur að
segja við hana, brosandi.
—• Ung stúlka, þó, þó, svaraði
hún háðslega. — Bara af því, að
eftir þrjátíu ár finn ég fyrir
rifjunum í sjálfri mér. Æ, hættu
þessu!
En við okkur Amy gerði hún
sér ekki það ómak að vera með
nein leikaralæti. Hún gat setið
tímunum saman og ihorft yfir
deyjandi garðinn, með hendur í
skauti og fjarrænan svip. Og
skrafið í Amy fór gjör.samlega
framihjá henni.
— Hvað voruð þér að segja,
ungfrú Richards?
— Ég var bara að tala við
sjálfa mig, svaraði Amy venju-
lega. Nú er kominn tíma til að
fá eggjapúnsið. Ég ætla að ná í
það.
Það var við eitt svona tæki-
færi, að Maud kenndi mér að
opna járnskápinn sinn. Við höfð
um verið að tala um morðið á
Don. Hún gat ekki skilið, hvers
vegna leikihúsið okkar hafði ver-
ið notað til þess, enda þótt hún
44
skildi kannski morðið sjálft.
— Ef honum hefði farizt illa
við einhverja konu, sagði hún.
— En þessi stelpa, sem hann
strauk með........ Hann giftist
henni, var ekki svo? Og þessi
klæðaburður hans er líka dálítið
grunsamlegur. Eða klæðleysi. Ef
hann ætlaði sér að 'hitta ein-
h'vern, þá........
— Hann hafði engin önnur
föt, sagði ég. Og svo lýsti ég
fyrir henni dvöl Dons þarna í
húsinu, með þessum tveimur
konum, Audrey og Lydiu, sem
voru stöðugt að njósna um hann,
önnur af tortryggm, en hin af
ótímabærri ást. Jafnvel síminn í
opinni forstofunni niðri og'það,
að Lydia hafði sent fötin hans
burt.
Hún hlustaði með atíhygli, rétt
eins og hún væri að reyna að
koma þessu heim og saman við
eitthvað, sem hún vissi sjálf.
Einu sinni spurði hún mig, hvort
Tony mundi halda áfram að hitta
Audrey. Henni virtist létta, þeg-
ar ég sagði, að sivo myndi ekki
vera. Vitanlega vissi hún nú orð
ið alla söguna um skammibyss-
una, enda var sú saga á hvers
manns vörum.
- Ég er fegin því, sagði hún.
— Stelpan er vitlaus á öllum
tau'gum. En í þessu bili kom
Amy inn, og Maud drakk eggja-
púnsið sitt og sló út í aðra
sálma.
Þannig var þá málum háttað
hjá okkur í byrjun október síð-
astliðins. Don var búinn að vera
dauður í hálfan mánuð. Evans
var enn týndur. Bill 'Sterling var
á faralds fæti en, eins og hann
sjálfur sagði, var hann líkastur
halastjörnu, með ieynilögreglu-
manninn í togi. Og eftir þvi sem
laufið féll, varð leikhúsið æ 'bet-
ur sýnilegt frá húsinu. Nú slapp
maður ekki við það, að minnsta
kosti ekki frá vesturálmunni.
Stöku sinnum sá ég Hopper
eitthvað að snuðra, og Bessie var
enn hjá okkur, og iæsti að sér
hehberginu, talaði stundum um
Palm Beach og Nassau, en gerði
sig samt ekkert líklega til að
fara.
— Sú bölvuð dræsa! sagði
Amy. — Reyndu bara að halda
'henni sem lengst frá mér, ann-
ars kynni ég að slá nefið á
henni svo flatt, að hún yrði að
þefa með eyrunum.
En svo einn daginn kom nokk
uð fyrir Bessie og við vissum,
að þrautir okíkar voru enn ek!ki
á enda kljáðar.
Hún ihafði verið að kaupa föt
eins og vitlaus manneskja og
þennan dag fór hún til borgar-
innar til að máta. Hún fór í sín-
um bíl, en klukkan sjö um kvöld
ið var hún ekki komin aftur. Gus
kom utan úr bílskúr, til þess að
segja mér frá þessu.
— Henni er sjálfri illa við að
vera á ferð eftir að dimmt er
orðið, sagði 'hann. — Ætli ég
ætti ekki að fara og gá að
henni? Hún efeur svo óvarlega,
að hún gæti hafa lent í slysi.
Han leit ekki almennilega
framan í mig. Við vissum bæði,
að Bessie hafði drukkið talsvert
í seinni tíð, og ég flýtti mér að
hugsa mig um. Tony vur í borg-
inni og ég vildi ekki gera Maud
órótt.
— Ég skal fara með þér, Gus.
Bíddu meðan ég fæ mér eitt-
hvað utan yfir mig.
Hann kom svo með bílinn og
fimm mínútum seinna vorum
við á leið til borgarinnar. Veg-
urinn var næstum auðuir, þar eð
komið var fram yfir tímann hjá
því fólki, sem tók hann fram
yfir járnbrautina. Og samt vor-
um við næstum búin að missa
af henni. En Gus sá vel. Allt
í einu stanzaði hann, og hélt
kyrru fyriir. í svo sem fimmtíu
feta fjarlægð frá veginum, sáum
við bíl, sem lá upp að tré.
Við stukkum út og að honum.
Þar var ófagurt um að litast.
Bessie lá fram yfir stýrið, með-
vitundarlaus, en bí!linn sjálfur
var ekki annað en rúst. Við Gus
bárum hana inn í okkar bíl. Ég
bar hana eins varlega og ég gat.
Hún var komin tii nokkurrar
meðvitundar nokkru áður en við
komum heim í Klaustrið. Hún
opnaði augun og leit á mig.
— Það skaut mig einhver,
sagði hún og lokaði augunum aft
ur.
Ég náði í vasaljósið hans Gus
og athugaði hana. Ekki gat ég
séð neitt blóð á henni. Hún hafði
rekið ennið illilega í vindrúð-
una og hún stundi og sagði, að
hún ætti bágt með andardr&tt.
Samt vildi hún ekki láta fara
með sig í sjúkrahúsið. Við fóruim
með hana heim í Klaustrið og
kölluðum menn út til að bera
hana inn. Þá fyrst sá ég, að hún
kireppti höndina utan um litlu
s'kammbyssu'na sína.
20. kafli.
Það var Amy, sem sagði mér
af heilsufari hennar þetta kvöid
Herratizkan i dag
fyrir herra á öllum aldri, er
frá árinu 1890. Síður að-
skorinn jakki, háar klaufir,
fallegt snið. Þér getið valið
um 3 gerðir: Einhnepptur
jakki, 3 tölur, tvíhnepptur,
4 tölur eða tvíhriepptur 8
tölur. Háar klaufir í baki,
ein éða tvær, opnar eða
með lokuðum fellingum.
Vasalokur beinar eða hall-
andi. Alullarefni eða tery-
lene og ullarefni, margar
stærðir, munstur og litir.
Lágt verð. Einnig úrval af
klassiskum herrafatnaði á
hagstæðu verði.
Fatamiðstöðin er miðstöð
herratízkunnar og lága
verðsins.
Fatamiðstöðin
Bankastræti 9.
Andrés
Laugavegi 3.
• • • •
VERD KR.
295,-
VðMUFEU
Jp/, ~wji m 1 ■ m /WÓjfté jfízí- :H ...uom Snilldarlega skriful skáldsagna, Jhon L „NJÓSNARINN, Si IIIIU í ÞOKI njósnabók eftir meistai e Carré, höfund metsölubó EM KOM INN ÚR KULD, l\\l ra slíkra karinnar \NUMr
Bðkaútgáfsn VÖRBUFELL - Bókaútgáfan VORBUFEll - Búkaútgáfan VÖRDUFELL - Búkaútgáfan VÖRBIIFELL