Morgunblaðið - 24.12.1967, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. DES. 1967
SIM' 1-44-44
mnifíw
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
*
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eSa 81748
Sigurður Jónsson
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
Aprentuðu límböndin
Aliir litir.
Allar breiddir.
Statív, stór og lítil.
Kar! M. Karlsson & Co.
'A' Litlu brandajól
Þá er upp runninn aðfanga-
dagur, sem ýmsir af yngri kyn-
slóðinni hafa beðið með óþreyj u
undanfarið. Þeir geta verið
lengi að líða dagarnir fyrir
jólin segja þeir Velvakanda
litlir vinir hans í hverfinu þar
sem Velvakandi býr. En nú er
dagurinn runninn upp og þá
ætti það að vera gerandi að
bíða til kvöldsins.
Að þessu sinni ber aðfanga-
dag upp á sunnudag og það
veldur því að tími jólaundir-
búnings og innkaupa verður
heldur þrengri síðustu stund-
irnar. Nú er ekki hægt að
hlaupa út í búð og kaupa það
sem gleymdist á Þorláksmessu.
Nú eru brandajól eins og
margir munu vita, en svo eru
jólin kölluð þegar samfelld
helgi verður meira en tveir og
hálfur dagur. Þegar til háttar
eins og nú, að helgir dagar
verða þrír, eru kölluð litlu
brandajól, en þegar þriðji í jól-
um er á sunnudegi, þannig að
helgidagarnir verða þrír og hálf
ur samfellt. er kallað stóru
brandajól.
Velvakandi óskar öllum les-
endum sínum gleðilegra jóla.
■jc Gengið að óþörfu á
rétt einstaklingsins
Námsmaður, nýkominn heim
í jólaleyfi, skrifar:
Nú geisar gin- og klaufaveiki
í Bretlandi. Skepnum er slátr-
að í þúsundatali til að hefta
útibreiðslu sjúkdómsins. Inn-
flutningur landbúnaðarafurða
frá Bretlandi er að sjálfsögðu
bannaður. Þrátt fyrir hinar
geigvænlegu afleiðingar, sem
sýkin myndi hafa á íslandi,
verðuir þó að halda aðgerðunum
vegna hennar innan skynsam-
legra marka. Svo er ekki allt-
af gert, heldur stundum gengið
að óþörfu á rétt einstaklingsins.
Um daginn kom ég með flug
vél frá Kaupmannahöfn. Marg-
ir farþega keyptu sér ýmiss
toonar matvæli á Kastrupflug-
velli, til að gera jólamatinn
margbreytilegri. Þar á meðal
má nefna osta í gjafapökkum
og dans'kt smjör. Á öllu mátti
greinilega sjá, að það var
keypt í Danmörku. Vélin lenti
í Glasgow, og meðan staldrað
var við urðu allir að venju að
fara inn í flugstöðina. Að sjálf-
sögðu var allur varningur skil-
inn eftir í vélinni.
Urðu af jólaglaðningi
Þegar heim kom, var gerð
vandieg farangursskoðun hjá
öllum, og allar matvörur. nema
niðursuða, gerðar upptækar, án
tillits til hvaðan þær komu.
Einn samferðamaður minn varð
meira að segja að láta af hendi
hnetur, sem hann hafði keypt
í Ósló. Þannig biðu margir fjár-
hagslegt tjón og urðu af jóla-
glaðningi, sem þeir höfðu ætl-
að sér og fjölskyldu sinni.
Ástæðan var sögð vera sú, að
vélin hafði komið við í Bret-
landi. Þetta er móðursýki.
Hvers vegna ættu gin- og klaufa
víru/sarnir brezku frekar að
hiaupa í smjör og ost, sem er
geymdur í lokuðum umbúðum
um borð í vélinni, en t.d. far-
þegana sjálfa? Væri ekki nær
að gera skófatnað ferðafólks-
ins upptækan?
Eitt sinn fyrr á öldum var
sendur her til að ,.hreinsa“
svæði, þar sem bólað hafði á
villutrú. Fyrirmælin til her-
mannanna voru: „Högg þá alla,
guð þekkir sina“. Vorir ágætu
tollarar hegða sér eins og þeir
hafi fengið hliðstæð fyrirmælL
Námsmaður.
+ Hitaveita Reykja-
víkur
Pistluim Velvakanda í dag
lýkur með stuttu bréfi um Hita.
veitu Reykjavíkur. J.O. skrif-
ar:
Mikið er búið að rita og ræða
um heitavatnsleysið í Reykja-
vík — og ekki að ástæðulausu.
Aftur á móti hefur enginn
minnzt á veigamestu ástæðuna
fyrir þessum heitavatnsskortL
sem sé sjálft fyrirkomulag
vatnslagnarinnar. Þegar verið
var að leggja heitavatnsrörin í
götur bæjarins á sínum tíma,
talaði ég oft um það við menn,
hversu skakkt það væri að hafa
ekki tvöfalt kerfi eins og frá
annarri miðstöð, þ.e. hringrásar
kerfi. En þá var svarið aðeins
eitt: ,.Það verður alltaf nóg
vatn“.
Ég er sannfærður um, að
allir geymarnir á Öskjuhlíð
væru alltaf fullir af hei
vatni og enginn þyrfti að kvíða
kulda, ef mest af því vatni,
sem fer um miðstöðvar húsanna
og kemur þaðan út um 40 stiga
heitt, rynni aftur stanzlaust til
geymanna. Þar blandaðist það
svo því vatnL sem fyrir væri
og kæmi aftur út um 70—80
stiga heitt. Ef þetta yrði gert,
þryti 'heita vatnið aldrei til upp-
hitunar og yrðu allir þá eðli-
lega ánægðir.
J. O.
Hallgrímskirkja
Sr. Jakob Jónsison hringdi til
blaðsins í gær og óskar þess
getið í sambandi við þau um-
mælg sem höfð voru eftir sr.
Gunnari GLslasyni á alþingL að
Hal'lgrímskirkja myndi ekki
taka nema 700 manne í sætL,
að í kirkjunni er gert ráð fyr-
ir .srtólum fyrir 1200 manns.
Auk þess yrði hægt að bæta
við stól'um eða stæðum þannig
að um 2000 kirkjugestir gætu
hlýtt þar á messu í einu. Er
þá ekki reiknað með for-
kirkju eða söngpalli né öðrum
húsakynnum kirkjunnar.
BllÐIIM
Á annan jóladag
zoo kl. 3—6 síðdegis zoo
að kvöldi
SÁLIN
AXLABANDIÐ kl. 11 — 01 uppi.
Nýr svipur á salnum.
Munið nafnskírteinin um kvöldið.
Miðasala hefst kl. 8.
Karl Jónass. . Karl M. Karlss.
Melg. 29. - Kóp. . Sími 41772.
LOFTUR H F.
Ingólfsstræti 6.
Pantið tíma í sima 14772.
AU-ÐVITAÐ
ALLTAF
Uér óóLum lcmdómönnum
cjle&iiecýrci jólci ocj joöLLum ui&-
dintuuinum uorum cínœaiule
óniplciuinum uorum uncecjjulecju
óumuucnu un
írd 196 7
UolL
Simi-22900 Laugaveg 26