Morgunblaðið - 06.01.1968, Page 4

Morgunblaðið - 06.01.1968, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1968 Hverfisgötu 103. Simi eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald Sími 14970 Eftir lokun 14970 e5a 81748 Sigurður Jónsson BÍLALEIGAN - VAKUR - Sundlaugavegi 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. RAUÐARARSTÍG 31 SÍMl 22022 Til leigu íbúð, 4 herb. og eldhús í Vest- urborginni. Reglusemi og góð umgengnj úskilin. — Tilboð ásamt nánari uppl. sendist afgr. Mbl. fyrir mánudagskv. merkt: „íbúð 5402“. Til leigu Lítil 3ja herb. risíbúð í Vest- urbænum. Reglusemi og góð umgengni áskrilin. Tilboð ásamt nánari uppl. sendist afgr. Mbl. fyrir mánudagskv. merkt: ,,Vestu:rbær 5401“. AU-ÐVITAÐ ALLTAF Völvur og tölvur Úlfur Itagnarsson, læknir, skrifar: ,'í gær var nýársdagur, og þá voru nokkrir ágætir menn kvaddir að hljóðnemanum (í hljóðvarpinu) til að ræða, hvað verða mundi ár 2000. Ekki féllu mér þessar um- ræður. Þær voru óraunhæfari en efni stóðu til. Óraunhæfni er það að taka ekki með í reikn- inginn þær staðreyndir ,sem miklu ráða um útkomuna. Enginn minntist á það, að gagni, sem blasir við starfandi lækni hvern dag, að taugaveikl un færist í aukana. Þar getur engin tölva leyst úr dæminu. Þar gefst sennilega betur að nota góða, gamla völvu, rödd ina í eigin brjósti. Hver veit> nema hinar góðu, gömlu völv- ur eigi enn eftir að reynast mannkyninu hollari en tölvur þær, sem trúað er á. Tölvurnar segja ekki orð, nema þær séu >,mataðar“ á forsendum fyrst. Og ranglega mötuð tölva gef- ur röng svör. Vitið þið það? Tæknifræðingar rnunu aldrei leysa ráðgátur mannsfhjartans. Þær ráðgátur eru mikill hluti þeirra vandamála, sem nútíma- læknisfræðin á við að stríða. Nær væri, að prestanir tileink- uðu sér hæfileikana, sem til þarf að hlaupa þar undir bagga. Starfsundirbúningi þeirra þarf þó að gerbreyta. jf Einn gleymdist að nefna Ekki efa ég, að tölva geti reiknað út líkur á því, hversu margir verða geggjaðir á jörð- inni ár 2000, ef ekki kemur neitt óvænt til sögunnar. En hún reiknar ekki út ráðin við þeirri geggjun, sem þá verður, né heldur þeirri geggjun, sem stríð nefnist og gæti steypt öll- um tölvuvísdómii, áður en 2000 ár eru liðin frá fæðingu manns, sem ekki var minnzt á í skegg- ræðunum. Það var heldur ekki von að umræður spynnust, þó að einum yrði á að nefna, að fremingarnestið væri honum nokkurs virði. Mér þótti vænt um, að það kom fram. jt Þangað sækja menn styrkinn í þau 20 ár, sem ég hef starf- að sem læknir, hef ég séð svo marga í sálarneyð, að ég veit að þangað sækja menn styrk- inn, sem trúin er, þegar mest á reynir. Þá biðja jafnvel harð- svíruðustu efnishyggjumenn guð að hjálpa sér, þó að þeir afneitd trú sinni bæði á undan og eftir. Hvers vegna gera þeir það? Ég skynja í heimi trúarinnar þá vídd, sem oft vill g'eym- ast að taka með í reiknmginn. Ég á við raunverulega vídd. eins og víddir tímans og rúms- is. E.t.v. eru víddirnar fleiri en ég skynja, — efalítið. Við sjá- um svo skammt. Þegar ég les ljóð Matthíasar Jochumssonar, kinka ég kolli með sjálfum mér og hug&a: „Jú, jú, hann sér það, sem ég sé — be.tur!“ Séra Fiðrik Friðriksson, vinur minn, lifði í þessari vídd auk tíma og rúms. Þess vegna var lif hans stærra en flestra hinna. Fleira mætti telja, konur og karla, ef rúm væri. En það skiptir mestu máli, að menn læri að skynja vídd kærleik- ans, læri að iifa í henni og hin- um samtímis. Þannig vaxa menn í allar áttir. jf Stýrt eftir skorum í borðstokknum Það skortir sem sagt vídd í þessar umræður, rétt eins og menn á hafskipi hefðu setzt nið ur og rætt framtíðarhorfur skipsins, eingöngu miðaðar við það, sem innanlborðs fannst í skipinu. Fiskiskipin okbar sigldu ekki langt með því lagi. Á síðmenn- ingarskipinu er mikið kapp- hlaup um stundargæði. HlU'Standi fékk þá hugmynd, að mestu máli skipti ,,að fylgj- ast vel með“ í þeirri keppni. Það kann líka að skipta miklu máli, en því aðeins, að vel sé bætt að för skipsins um hafið jafnframt. , Hvernig væri, að við íslend- ingar, afkomendur mikilla sæ- fara, hættum að miða við skörð í borðstokknum að hætti Mol- búa og stýrðum eftir stjörnum og sól? — Gleðilegt nýtt ár! Úlfur Ragnarsson, læknir". Þannig eiga glett- irnir að nást úr jóla- fötunum Frú ein fékk bréf í þessum dálkum fyrir nokkum dögum, þar sem hún spurði, hvernig hún ætti að ná blettum eftir gos drykkinn „Valash" úr jólafötum barna sinna. Tvö svör haía bor- izt. annað frá Sigríði Haralds- dóttur við Leiðbeiningastöð húsmæðra (hún talar að vísu um „svonefnda Valash-appel- sínu“, en vonandi eiga leiðbein ingar við gosdrykkinn), og hitt frá fyrirtækinu „Kemi- kalia“. Fara svörin hér á eftir: „Kæri Velvakandi! í dálkum yðar spyr húsmóðir. hvernig eigi að ná burt blett- um af svonefndri Valash-appel- sínu, sem komið hafa í Jóla- föt barnanna. í blettabæklingi, sem Statens Huóholdningsrád í Danmörku befur gefið út, má finna eftir- farandi vitneskju um það mál, Blettum á baðmullarefnum, (sem ekfci láta lit), má ná burt með því að búa til totu á efnið, þar sem 'bletturinn er, dýfa hon um í sjóðandi vatn og halda efninu á hreyfingu, þar til bletturinn er horfinn. Á gervi- efni má einungis nota volgt vatn, en á ullarefni miá hella sjóðandá vatni í hárri bunu yfir blettina, en strengið þá fyrst efnið yfir skál. Þar sem slikir blettir eru oft áll-erfiðir viðureignar, er einnig mælt með því að reyna einihvern lita- og blettaleysi (hér á landi er fáanlegt Dygon, sem víða er eelt í lyfjabúðum). Lesið vandlega leiðarvisinn, sem fylgir, hann er á íslenzku. En ekki þola öll efni slíka með ferð, hætt er við, að liturinn á efniniu hverfi einnig. Reynið því aðferðina á smápjötlu eða faldi. Ef til vill má einnig ~eyna aðrar aðferðir við blettina- en húsæður geta snúið sér til Leið beiningastöðvar húsmæðra, sem rekin er af Kvenfélagasam bandi íslands, og fá frekari vitneskju um slík vandamál. Skrifstofan er opin alla virka daga kl. 3—5, nema laugar- daga. F.h. Leiðbeiningarstöðvar húsmæðra, með beztu kveðju, Sigríður Haraldsdóttir". >,Þeim leseondum Velvakanda, sem eiga í erfiðleikum með Valash-bletti í fötum barna sinna, viljum við benda á nýja þvottaefnið BIO-TEX. Það er framleitt með lífrænum efnum enzýmum, sem eru sólgin í slífca bletti og eyða þeim á skammri stundu. Leggið fötin í bleyti i volgt vatn með BIO-TEX á móti tveimur lítrum af vatnL Látið þau liggjia í bleyti í einn til tvo tíma, skolið — og þau eru hrein. Virðingarfyllst, Kemikalla". JltaTgtittÞIafrtfr Garðahreppur Börn eða unglingar óskast til að bera blaðið út í Garðahreppi (Ásgarði og fl.) Uppl. í síma 51247. Kópavogur Blaðburðarfólk óskast til að bera út blaðið á Digranesveg. Talið við afgreiðsluna í Kópavogi. Sími 40748. BLAÐBURÐARFOLK OSKAST í eftirtalin hverfi Laugavegur neðri — Laufásvegur II — Seltjarnar- nes, Miðbraut — Grenimelur — Laugarásvegur — Freyjugata — Árbæjarblettur. Talið við afgreiðs/una í síma 10100 fgtoiTípttM&Mfr Heimilishjálp í Skotlandi Kona á aldrinum 25—35 ára óskast til heimilisstarfa í Glasgow í Skotlandi. Þarf að geta séð um heimili og 3 höm. Uppl. verða veittar hjá Mr. Gould að Hótel Sögu mánudags- og þriðjudagskvöld eftir kl. 18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.