Morgunblaðið - 24.01.1968, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.01.1968, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1968 Tito í heimsókn hjá Indiru Gandhi Nýju-Delhí, 23. jan. AP-NTB. TÍTÓ Júgóslavíuforseti er í fimm daga opinberri heimsókn í Indlamdi og ræddi við Indiru Gandhi forsætisráðherra í dag. Að fundi þeirra loknum kváðust þau sammála um að tvennt yrði að athuga gaumgæfilega áður en friðarviðræður gætu hafizt um styrjöldina í Víetnam. Annað væri að Bandaríkin hættu loft- árásum á Norður-Víetnam og að Víet Cong hreyfingin fengi að koma við sögu í hugsanlegum samningaviðræðum. Þau voru einnig á einu máli um, að yfirlýsing Norður-Víet- nam um að stjórnin væri fús til viðræðna, ef Bandaríkin hættu loftárásum, væri skref í átt til friðar og Bandaríkin yrðu að taka jákvæða afstöðu til yfirlýs- ingarinnar. Að lokum var að sjálfsögðu bætt við, að viðræðurnar hefðu verið gagnlegar og vinsamlegar. Á leiðinni til Indlands kom Tító við í Kambódíu og ræddi við Sihanouk um ástandið í Suð- austur-Asíu. Kosygin, forsætisráðherra Sov étríkjanna, er væntanlegur til Indlands áður en Tító hverfur heimleiðis og gert er ráð fyrir, að þeir muni hittast og ræða heimsmálin. Sænskir mótmæla rithöfunda- dómum Stokklhólmi, 23. jan. NTB-Reuter. PIMMTÍU sænskir listamenn og menntamenn hafa sent Kosygin, forsætisráðherra Sovétríkjanna, mótmælaorð- sendingu, vegna dómanna yfir menntamönnunum fjórum, sem dæmdir voru þar í landi fyrir nokkru. Þeir segja, að þeir mótmæli framkvæmd réttarhaldanna, langri varðhaldsvist fjór- menninganna og svo hinium hörðu dómum sem upp vor kveðnir, þar sem þeir brjó' í bága við þá þróun, sem virð- ist vera í Sovétríkjunum, í átt til aukins frelsis einstaklings- Dröfn rak upp á Norðfirði Neskaupstað, 23. janúar. í NÓTT kom hér eitt versta veð- ur sem við þekkjum, NV storm- ur og fór vindhraði upp í 14 stig. Dröfp NK 31 sleit legufær- in og rak upp við hafnarbryggj una. Er báturinn mikið brotinn. Eigenduir hans eru Siguirður Guðnason og Þorfinnur ísatos- son. Hann er 35 lestir að stœrð. Þetta er mjög gamall furu- bátiur, byggður 1902, á Akureyri en hefuir verið lengdur síðan. — A. L. Innbrotstilraun á Akureyri TILRAUN var gerð til innbrots í nýlenduvörudeild KEA kl. 2. í nótt. Húsvörður vaknaði við mannaferð í portinu á bak við verzlunarhúsið, og' sá tvo menn bauka við að komast inn um giugga, og gerði hann þá lög- reglunni viðvart. Hún kom þegar á vettvang, en þá voru innbrotsmenn á bak og burt. Þeir höfðu ekki komizt inn í húsið, en broti'ð rúður, og vald- ið fleiri skemmdum á glugga. Þeir náðust fljótlega, og játuðu brotið í dag. — Sv. P. Kindur finnast í eftirleit HORNAFIRÐI, 23. jan. — Nýlega fóru 2 fjallagarpar úr Hornafirði í eftirleit í Kollu- múla. Það voru þeir Stefán Egils son í Þórisdal og Þorsteinn Sig- urðsson í Bjarnarnesi. Fengu þeir slæmt veður og gátu því lítið svipazt um. Jökulsá var öll á ísi og auðveldaði það ferð þeirra. í ferð þessari fundu þeir 11 kindur. Þar af voru 7 í svo- nefndum Hellisskógi, sem er beint austur af Eskifelli. Ein dilkær í Kollumúla og önnur í Jökulsárgljúfri. Allar voru kind- ur þessar í góðum holdum, nema hvað þær er voru í gljúfrinu voru orðnar nokkuð a’ðþrengdar. — Gunnar. Bergmank, Guðjón Hansson, formaður Ökukennarafélagsins og Brathen á fundinum í gær. (Ljósm.: Ól. K. M.) Sænskir ökukennarar leiibeina íslenzkum - vegna breytingar í H-umferð Ökukennarafélagið hefur haft í frammi margs konar undir- búning undir H-umferð, sem á- ætlað er að taki gildi hinn 26. maí næstkomandi, eins og kunn- ugt er. Félagið, sem telur meðal félaga sinna alla ökukennara landsins, hefur frá upphafi verið hlynnt fyrirhugaðri umferðar- breytingu. Hefur félagið m.a. sent 24ra manna hóp ökukenn- ara utan til Svíþjóðar og kynntu þeir sér breytinguna, tóku þátt í námskeiði sænskra ökukenn- ara. Sænska ökukennarafélagið veitti hópnum aila fyrirgreiðslu í Stokkhólmi. Hér á landi eru nú staddir tveir erlendir 'Ökukennarar, As- björn Brathen frá Noregi, for- maður sambands norrænna öku- kennara, en Ökukennarafélagið hefur nýlega gerzt aðili þar að, Stjórnarfrumvarp á Alþingi: 10% af iðnlánasjóðsgjaldi varið til rannsókna í þágu iðnaðarins og Gösta Bergmank, formaður sænskra ökukennara. Hafa þeir átt fund með íslenzkum öku- kennurum, rætt við framámenn íslenzkra umfer’ðarmála og hægri breytingarinnar. Blaðamönnum gafst svo í gær tækifæri til þess að spyrja þá um breytinguna í Svíþjóð á blaðamannafundi, er Ökukennarafélagið hélt. Þeir félagar hafa verið hér til ráðuneytis og upplýsinga um það, hvernig bezt sé að skipu- leggja ökukennslu í sambandi við breytinguna. Leggja þeir til m.a., að kennsla falli ekki niður, þrátt fyrir breytinguna, og Berg- mank benti á, að þeim mun æfð- ari ökumaður í vinstri umferð, þeim mun au’ðveldar ætti hann með að ná valdi á hinum nýju ökuháttum. Menn skyldu því æfa sig svo sem frekast væri unnt, lesa sér til og reyna í hví- vetna að afla sér upplýsinga um akstursháttu í hægri umferð. I þessu sambandi bentu þeir félagar á að sænskir ökuskólar hefðu veitt, hverjum sem vildi ókeypis tvær kennslustundir í hægriumferðarreglum og má þá í því sambandi geta þess, að Ökukennarafélagið ætlar að koma á fót æfingarsvæðum fyr- ir ökumenn, þar sem þeir geta æft sig nokkrum dögum fyrir H- dag. Bergmank sagði, að mesta hættan í Svíþjóð lægi í því, er menn hefðu ekki átt bifreiðar þegar á H-degi. Þetta fólk væri vant V-umferð og þegar það síðan fengi sér bíl og byrjaði að aka, yrði það sem algjörir byrj- endur. Það hefði ekki þróazt í umferðartækni H-umferðar með fjöldanum og gæti þar af leið- andi valdið miklum glund- roða og eyðilagt þann tölfræði- lega góða árangur, sem ná’ðst hefði með uppbyggjandi fræðslu starfsemi. Er þetta fólk kæmi út í umferðina væri ef til vill búið að aflýsa öllum hraðatakmörk- unum. Viku fyrir H-dag hér á ís- landi munu koma til landsins tveir sænskir ökukennarar. Munu þeir verða til leiðbein- ingar og aðstoðar Ökukennara- félaginu, en að lokinni breyting- unni er ætlunin að halda hér á landi aðalfund Sambands öku- kennara á Norðurlöndum. Gu’ðjón Hansson, formaður Ökukennarafélagsins, tjáði blaða mönnum í gær, að félagið hyggð ist nú gefa út nýja útgáfu af bókinni „Akstur og umferð“, sem ætluð er til ökukennslu í H-umferð. Jafnframt mun félag- ið gangast fyrir námskeiðum fyrir kennara, sem haldin verða í Reykjavík og á Akureyri. Mun sænskur sérfræðingur þar miðla af reynslu Svía og verða til leið- beiningar. á að stuðla að þjóðhagslegri iðnþróun 1 GÆR var lagt fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um breytingu á Iögum um Iðnlánasjóð. Felur frumvarpið m.a. í sér að verja skuli 10% af árlegu iðnlánasjóðs gjaldi frá 1. janúar 1968 til að greiða fyrir hagrannsóknum í þágu iðnaðarins og aðgerðum, sem stuðla að þjóðhagslega hag- kvæmri iðnþróun í landinu. Ger- ir frumvarpið ráð fyrir því að stjórn sjóðsins ráðstafi þessu fé í samráði við Félag ísl. iðnrek- enda og Landsamband iðnaðar- manna. í greinargerð frumvarpsins kemur m.a. fram að breytingar- tillaga þessi sé flutt að ósk Fé- lags ísl. iðnrekenda og Lands- sambands iðnaðarmanna og er greinargerð frá samtökum þess- um fylgiskjal með frumvarpinu. Kemur þar eftirfarandi fram. „Með lögum um Iðnlánasjóð frá apríl ’63 var ákveðið að afla sjóðnum tekna með sénsföku gjaldi á allan iðnrekstur í land- inu, svokölluðu Iðnlánasjóðs- gjaldi, sem nemur 0,4% af að- stöðugjaldsstofni iðnfyrirtækja. Tekjustofn þessi hefur orðið Iðnlánasjóði veruleg lyftistöng, eins og sést á því, að álagt iðn- lánasjóðsgjald á undanförnum 3 árum nemur tæplega 50 millj. kr. og er áætlað nálægt 20 millj. kr. á þessu ári. Tekjum af gjaldi þesisu hefur hingað til eingöngu verið varið til beinna lánveit- inga til iðnfyrirtækja, til bygg- ingar iðnaðarhúsnæðis. til véla- og tækjakaupa og til endurskipu lagningar iðnfyrirtækja. Að undanförnu hefur verið rætt um það innan Félags ís- lenzkra iðnrekenda og Lands- samtoands iðnaðarmanna, að nauðsynlegt væri að beina auknu fjármagni til aðgerða, sem beinlínis leiddu til bættrar sam- keppnisaðstöðu heilla iðngreina gagnvart erlendri samkeppni og stuðluðu á annan hátt að þjóð- hagslega hagkvæmri iðnþróun al mennt í landinu. Samtökin hafa því komið sér saman um að leita eftir því, að tilteknum hluta — 10% — af iðnlánasjóðsgjald- inu, sem beint framlag iðnrekst- ursins í landinu verði ráðstafað á annan hátt en til beinna lán- veitinga. Er þá m.a. haft í huga, að brýna nauðsyn ber til þess að gera ítarlegar athuganir á starfsgrundvelli einstakra iðn- greina, ekki sízt með tilliti til þeirrar þróunar í markaðsmál- um fslendinga. sem vænta má, að muni eiga sér stað í náinni framtíð, og í framhaldi af slík- um athugunum þarf að gera við eigandi ráðstafanir til þess að iðngreinarnar verði færar um að aðlagast nýjum markaðsviðhorf- um. Ennfremur þyrfti að verja nokkru fjármagni til athugana á lánsfjárþörf einstakra iðngreina, en með því móti mætii vafa- laust tryggja betri nýtingu láns- fjár sjóðsins, en stjórn sjóðsins hefur enga mögulei’ka, eins og nú er, til þess að kanna láns- fjárþörf einstakra iðngreina. Slíkar athuganir yrðu áreiðan- lega til hagsbóta fyrir iðnaðinn í heild. En til þess að 'hægt sé að reka framangreinda starfsemi þarf nokkurt fjármagn, sem ekki hef- ur verið fyrir hendi. Tillaga þessi felur í sér, að 10% af fram lagi iðnaðarins til Iðnlánasjóðs verði varið með öðrum hætti en til lánveiitinga. Lánamöguleikar sjóðsins mundu aðeins skerðast um ca. 3% miðað við útlán síð- asta árs, en um leið opnast önn- ur leið fyrir sjóðinn til þess að efila iðnaðinn og styðja að já- kvæðri iðnþróun í landinu". Skákþing Reykjavíkur: Björn Þorsteinsson og Gnnnnr Gunnarsson efstir eftir 3 umf. BIÐSKÁKUM á skákþingi Reykjavíkur úr fyrstu þremur umferðunum lokið að einni undanskilinni, en það er skák Jón Þorvaldssonar og Braga Halldórssonar úr 2. umferð, A-riðils. Úrslit biðskáka urðu þessi: A-riðill Benóný Bened'ktsson vann Andrés Fjeldsted, Jón Pálsson vann Benóný, Anidrés vann Hermann Ragnansson og Jón Þorvaldsison vann Stíg Herluf- sen. Vinningsstaðan er nú þessi: Gunnar Gunnarsson 3 — 0 Guðm. Sigurjónsson 2% — Vz Björgvin Víglundsson 1% — 1% Jón Pálsson 1 — 1 Benóný Benediktsson 1 — 1 Stígur Herlufsen 1 — 1 Bragi Halldórsson 1 — 1 Jón Þorvaldsson 1 — 1 Hermann Ragnarsson 1 — 2 Andrés Fjelsted 1 — 2 Sigurður Herlufsen 0 — 3 B-riðill Jón Kristinsson vann Frank Herlufsen, Bjöm Þorsteinsson vann Frank, Bragi Kristjánsson vann Jón Kristinsson og Gylfi Magnússon vann Hauk Kristjáns son. Jafntefli gerðu Jón Kr. og Leifur Jósteinsson, þá gerðu Leifur og Júlíus Friðjónsson jafntefli. Vinningsstaðan í B-riðli: Björn Þorsteinsson 3 Bragi Kristjánsson 2 Mt Gylfi Magnússon 2 Jóhann Þórir Jónsson 1% — % Bjarni Magniússon 1% — 1% Jón Kristinsson Leifur Jósteinsson Frank Herlufsen Júlíus Friðjónisson Haukur Kristjánsson 0 Sigurður Kristjánsson 0 0 % 1 1% — lVz IVz — 1% 1 — 2 — 2% — 2 — 2 %

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.