Morgunblaðið - 09.02.1968, Side 20
20
MORGUNBLAÐTÐ, FÖSTUDAGUR 9. FEBRUAR
Herlæknir stumrar yfir föllnum bandarískum landgönguliðum í Hue.
brights, leggur nú fast að John-
son forseta að fá Dean Rusk ut-
anríkisráðherra til að kalla
nefndina saman til að gera
grein fyrir gangi Víetnam-styrj-
aldarinnar. Albert Gore öldunga
deildarma’ður, hefur sagt að
nefndin vilji fá Rusk til að
svara spurningum um, hver
stefna Bandaríkjanna sé í mál-
efnum Suðaustur-Asíu, hvort
hún sé hyggileg og hvort unnt
sé að ná því marki, sem stefnt
sé að. Fulbright mun hafa gram-
izt, að Rusk gerði bandarísku
þjóðinni grein fyrir stefnu stjórn
ar sinnar í sjónvarpi á sunnu-
daginn, en hann hefur ekki
maett á fundum í nefndinni síð-
an í febrúar í fyrra.
KENNEDY RÆÐSX A
BLEKKINGAR
Robert Kennedy öldungadeild-
armaður sagði í Chicago í dag,
að timi væri kominn til þess að
Bandaríkjamenn segðu skilið við
blekkingar er þeir væru haldnir
um Víetnam og þá hugmynd að
styrjöldin þjóna'ði þjóðarhags-
munum. Hann gagnrýndi þau
ummæli Johnsons forseta að
sókn Víet Cong hefði misheppn-
azt í hernaðarlegu tilliti og kvað
sókn skæruliða hafa sýnt að eng-
in borg væri óhult fyrir árásum
þeirra. þrátt fyrir það að þeir
væru aðeins 250.000 talsins en
hermenn Bandaríkjamanna og
bandamanna þeirra væru 750.000
að tölu og þrátt fyrir yfirráð
Bandaríkjamanna i lofti og á
sjó.
Kennedy sagði, að ef áfram
yrði haldið á sömu braut blasti
við áframhaldandi barátta á
meginlandi Asiu er gæti stáðið
í áratugi og valdið þjóðarógæfu.
Hann sagði að hernaðarlegur
sigur væri óhugsandi og stjóm-
málaleg málamiðlunarlausn væri
eina undankomuleiðin til friðar.
Stigmögnun striðsins rýrði álit
Bandaríkjamanna í heiminum og
henni yrði að hætta.
Aðalfulltrúi Bandaríkjanna
hjá SÞ, Arthur Goldberg, sagði
í dag, að Bandaríkjamenn
reyndu ekki að knýja fram hem
aðarlega lausn í Víetnam og
vildu enn sem fyrr koma á friði
með samningaviðræðum. Hann
kvaðst ekki telja að Öryggisráð-
ið gæti veitt aðstoð í þessu
skyni og sakaði Rússa og Norð-
ur-Kóreumenn um að hafa tor-
veldað tilraunir Bandaríkja-
manna til að leggja Víetnam-
málið fyrir Óryggisrá’ðið.
Danir banna iiug
kjarnorkuilugvéla
— Vietnam
Framhald á bls. 1
vörpum gegn hermönnum Suð-
ur-Víetnama og Bandaríkja-
manna, sem vörðust úr neðan-
jarðarbyrgjum. Ormstan stóð í
18 klukkustundir, og sjö skrið-
drekum Norður-Víetnama var
grandað í skothríð úr þungri
fslenzkt kjarnfóður
úr nýmöluðu komi
Verð mjög hagstætt
Hænsnamjöl
Varpfóður, kögglað
Blandað kora
Maískurl
Hveitikorn
Bygg
Ungafóður
fyrir varp- og
holdakjúklinga
Kúafóður, mjöl og
kögglað
Maísmjöl, nýmalað
Byggmjöl
Hveitiklíð
Grasamjöl
Sauðfjárblanda, köggluð
Svínafóður, kögglað
Hestafóður, mjöl og
kögglað
Hafrar
MJÓLKURFÉLAG
REYKJAVfKUR
Kornmylla . Fóðurblöndun
fallbyssu og flugvélum, sem
kvaddar voru á vettvang.
í Saigon geisuðu enn harðir
bardagar í kvöld, en talið er að
um 1.000 Víeta Cong-skæruliðar
séu enn í borginni. A’ðallega var
barizt á tveimur stöðum í kín-
verska hverfinu Cholon. Eldar
kviknuðu vegna skothríðarinnar
og íbúamir urðu að flýja. Um
— Johnson
Framhald af bls. 1
Aukafjárveitingin til Suður-
Kóreu er sérstakt mál sem ekki
er gert ráð fyrir í frumvarpinu.
Forsetinn sagði í tiTkynningu
sinni til þingsins að Suður-Kórea
sé tilneydd til að treysta varnir
sínar vegna þeirrar ógnunar er
landinu stafi úr norðri, og að
Bandaríkin verði að veita aðstoð
í þessu skyni. Þessi 100 milljón
dollara aukafjárveiting gerir
Suður-Kóreumönnum kleift að
útvega sér fleiri flugvélar og
loftvarnavopn, ratsjártæki, skot-
færi og varðskip, segir forsetinn.
Syan Bandaríkin hófu aðstoð
sina við erlend ríki hefur aldrei
verið gert ráð fyrir eins lítilli
aðstoð og á þsssu ári. f fyrra fór
Johnson fram á að aðstoðin
næmi 3.226 milljónum dollara,
en þingið lækkaði þá upphæð í
2.295 milljónir dollara.
Embættismenn í Waáhington
segja, að á næsta fjárhagsári
verði aðaláherzlan á það lögð að
aðstoða erlend ríki á sviðum
landibúnaðar, menntamála, heil-
brigiðsmála og getnaðarvarna.
t ■»
Kvenfélogo-
snmfaand Kópa-
vogs stofnað
FYRIR nokkru var stofnað Kven
félagasamband Kópavogs. Aðild
að því eiga öll kvenfélög, sem
starfandi eru í bænum, en þau
eru Sjálfstæðiskvennafélagið
Edda, Freyja, félag Framsóknar
kvenna og Kvenfélag Kópavogs.
Meðlimatala sambandsfélaganna
er um 300.
Tilgangur sambandsins er að
efla húsmæðrafræðslu og koma
á samvinnu meðal félaganna á
sambandssvæðinu.
Sambandsstjórnin skipa þessar
konur: Þorgerður Slgurgeirsdótt-
ir, form., Kristín fsleifsdóttir, rit
ari og Sigríður Gísladóttir, gjald.
keri. í varastjórn eru þessar kon-
ur: Ágústa Björnsdóttir, Hólm-
fríður Gestsdótir og Stefanía
Stefánsdóttir.
500 skæruliðar hafa búizt ramm-
lega til varnar á veðreiðabraut-
inni í Cholon, og sóttu suður-
víetnamskar árásarsveitir og sér
þjálfaðir lögreglumenn þangað í
kvöld. Lögreglan lokaði svæð-
inu, sem er 3 km frá miðborg-
inni, og heyrðist skothríðin
þanga'ð.
AFP hefur eftir góðum heim-
ildum að Víet Cong-menn hafi
tekið 2 S-Kóreumenn, diplómat
og blaðamann, af lífi ásamt fjór
um Suður-Víetnömum skammt
frá veðreiðabrautinni í Cholon.
Þeir voru í hópi 18 manna, sem
Víet Cong-menn tóku til fanga í
grennd við Cholon í gærmorg-
un. AFP hermir, að óbreyttir
borgarar hafi ekki verið fluttir
á brott frá þeim stöðum þar sem
barizt er í Cholon og bandarísk-
ir hermenn taka ekki þátt í að-
gerðunum.
í Hue herma áreiðanlegar
heimildir, áð hermenn kommún-
ista, sem sóttu inn í borgina,
hafi haft meðferðis nákvæma
lista yfir fjandmenn er skyldi
lífláta eða handtaka ásamt ljós-
myndum af þeim. Heimildimar
herma, að árásarmennirnir, sem
voru nokkur þúsund talsins,
hafi ætlað að taka borgina her-
skildi og hvetja almenning til að
gera uppreisn. Þetta er greini-
lega ennþá markmið kommún-
ista, átta dögum eftir að bar-
dagamir hófust, herma heimild-
irnar.
THANT RÆÐIR VID
N-VÍETNAMA
I kvöld hélt U Thant, fraxn-
kvæmdastjóri SÞ, fund með aðal
ræðismanni Norður-Víetnam í
Nýju Delhi, Nguyen Hoa, um
Víetnam-málið. Talsmaður U
Thants neitaði að segja nánar
frá fundinum, en staðfesti að
hann hefði farið fram.
í viðtali við fréttaritara AFP
í Hanoi gaf utanríkisráðherra
Norður-Víetnam, Nguyen Duy
Trinh, í skyn í dag að Hanoi-
stjórnin hefði enn áhuga á frið-
arviðræðum við bandarísku
stjómina þrátt fyrir sókn skæru-
liða í Súður-Víetnam. Utanríkis-
ráðherrann ítrekaði þá yfirlýs-
ingu sína, að Norður-Víetnam-
stjórn mundi hefja samningavið-
ræður við Bandaríkjastjórn jafn-
skjótt og Bandaríkjamenn
hættu skilyrðislaust loftárásum
á Norður-Víetnam og öðrum
hernaðaraðgerðum gegn land-
inu.
I Washington er haft eftir
góðum heimildum, að hömlur er
settar hafi veri’ð á loftárásimar
á Hanoi og Haiphong áður en
sókn skæruliða hófst og meðan
reynt var að kanna möguleika á
friðarviðræðum, hafi verið af-
numdar. Loftárásir eru hafnar
að nýju á skotmörk í grennd
við bæðí Hanoi og Haiphong.
Hin áhrifamikla utanríkismála
nefnd öldungadeildarinnar, sem
er undir forsæti William Ful-
Kaupmannahöfn, 8. febrúar
— NTB —
DANSKA þingið samþykkti í
kvöld ályktun rsem Per Hækk-
erup, leiðtogi þingflokks sósíal-
demókrata, hefur borið fram
vegna flugslyssins á Norður-
Grænlandi er bandarisk flugvél
hrapaði með fjórar vetnis-
sprengjur innanborðs. f ályktun
inni segir, að þingið vænti þess
að stjórain sjái til þess að stefnu
hennar í kjarnorkumálum sé
framfylgt í öllum hlutum rik-
isins og tryggi það, að ekki sé
troðið á fullveldi þess. Þá sé
þess vænzt að stjórnin fái ör-
ugga tryggingu fyrir þvi að
kjarnorkuvopnabirgðum sé ekki
komið fyrir á Grænlandi og að
lofthelgi Grænlands verði virt
sem kjamorkuvopnalaust svæði.
Oder-Neisse-landamæri Pól-
lands og Austur-Þýzkalands
voru einnig tekin til umræðu.
Hækkerup spurði hvort neitað
hefði verið að fallast á það að
krafa radikala um viðurkenn-
ingu á Oder-Neisse-landamærun
um yrði liður í stefnu stjórnar-
innar. Hilmar Baunsgaard for-
sætisráðherra svaraði því til, að
stjórnin vildi að þessi landamæri
yrðu grundvöllur viðræðna um
öryggismál Evrópu. í þessu sam
bandi yrð einnig að fjalla um
viðurkenningu á Austur-Þýzka-
landi.
Þessi mál voru rædd í um-
ræðum um fjárlagafrumvarp
stjórnarinnar .Forsætisráðherr-
ann og Poul Möller, fjármálaráð
- FISKIÞING
Framhald af bls. 5
til Hafrannsóknarstofnunar fs-
lands að fiskileitarskip verði lát-
ið fylgjast með loðnu- og fiski-
göngum til leiðbeiningar fyrir
fiskiskipin á yfirstandandi ver-
tíð.
Þá leggur Fiskiþing á það
mjög ríka áherzlu að gerð verði
ýtarleg síldarleit á hafsvæðinu
milli vesturlandsins og austur-
strandar Grænlands, jafnframt
því sem súðvesturlands síldar-
svæðið verði kannað betur en
verið hefur.
Innlendar skipasmíðar
Laga- og félagsmálanefnd
Framsm.: Þorst. Jóhannesson.
Fiskiþing þakkar og metur þá
viðleytni ríkisstjórnarinnar sem
fram hefur komið sjávarútvegin-
um til eflingar með athugun á
stöðlun fiskiskipaflotans ásamt
því að efla innlenda skipasmíði
herra sögðu að stjórnin hygðist
draga úr útgjöldum um sem svar
aði 600 milljónir danskra króna.
Tito heim úr
mánaðarferð
Kaíró, Belgrad, 8. febr.
Ntb-AP.
♦ T í T Ó , forseti Júgóslaviu,
kom heim í dag eftir mán-
aðarferðalag um ýmis lönd Asíu
og Afriku. Lauk ferðalaginu
með fjögurra daga heimsókn til
Egyptalands. — Meðal annarra
landa, sem Tító heimsótti má
nefna, Pakistan, Kambodsja,
Indland og Eþíópiu.
Á fundi, með blaðamönnum i
Kaíró sagði Tító, að þrátt fyrir
kröfur Israelsmanna um beinar
viðræður við Egypta, hefðu þeir
ekkert látið uppi um það, hvers
árangurs þeir væntu af slíkum
vi’ðræðum, þeir hefðu alls ekki
gert fulla grein fyrir því, hvað
þeir vildu. Tító lagði til að Ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna
tæki ástandið fyrir botni Mið-
jarðarhafsins aftur til meðferð-
ar en bætti því við að hugsan-
lega mundi Bandaríkjastjórn
beita sér gegn því að málið yrði
leyst á þeim vettvangi.
Haft er eftir gó’ðum heimild-
um í Kaíró, að Tító hafi þrátt
fyrir ofangreind ummæli skorað
á Nasser, forseta Egjrptalands,
að fara að öllu með gát og forð-
ast átök og hafi Nasser heitið
því. —
og minnir í því sambandi á
Fiskifélagið og tæknideild þess.
Nauðsynlegt er að hafa það í
huga að atvinnugrein þessi þarf
að standast samkeppni við er-
lendar skipasmíðar ef að gagni
á að koma.
Síldarflutningar
Sj ávarútvegsnefnd.
Framsm.: Árni Stefánsson.
Fiskiþing bendir á þá góðu
reynslu sem náðst hefur á síldar-
flutningum til bræðslu og þá
einkum á síðastliðnu sumri með
flutningaskipunum „Síldinni“ og
„Hafeminum“. í því sambandi
telur Fiskiþing nauðsynlegt að
unnið verði að því a’ð flytja síld-
ina ísvarða í ríkara mæli en ver-
ið hefur til söltunar og frysting-
ar, en til þess að svo geti orðið
þarf að hefja ísframleiðslu í
stórum stíl á Raufarhöfn og
Seyðisfirði, stórt frystihús sem
ekki er starfrækt en mætti end-
urbæta til ísframleiðslu yfir síld-
veiðitímann. (Frá Fiskiþingi).