Morgunblaðið - 10.02.1968, Qupperneq 15
MORGUN’BLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1968
15
lengst af haft umboð fyrir bæði
þessi fyrirtæki. Hellesen fram-
lei'óir einhverjar beztu rafhlöð-
ur og Picker mjög vönduð
röntgentæki.
Hjá Bræðurnir Ormsson starfa
nú í dag um 70 manns, þar
af 52 rafvirkjar, tæknimenn og
vélvirkjar. Og 18 manns eru
við skrifstofu-, afgreiðslu- og
önnur störf.
Aðalverksvið fyrirtækisins hef
ur frá upphafi verið þjónusta
við útgerðina, viðhald og raf-
lagning í skip og báta. Einnig
húsalagnir en sú starfsemi hef-
ur jafnan verið í minnihluta.
Rafstö'ð'in flutt í Múlakot um 1930. Farið yfir Þverá undir Fljótshlíðinni. Þarna er verið að koma upp úr dýpsta álnum
með rafstöðina. Eiríkur Ormsson er fremsti maðurinn, sem ýtir á vagninn.
kvæmdastjói Karl Eiríksson.
Fulltrúi þeirra er Guðmundur
Gíslason, sem sér um verzlun,
jnnflutning og lager, en skrif-
stofustjóri er GuðmUndur Ó. Ól-
afsson. Verkfræðingur fyrirtæk-
isins er Kári Einarsson og sér
hann séistaklega um AEG um-
boðið. Kolbeinn Pétursson,
tæknifræðingur sér aftur á móti
um BOSCH-umboðið og Helle-
sen rafhlöðurnar. Þá lcoma verk
stjórarnir, sem eru þeir Björn
Kolbeinsson, Böðvar Valtýsson
og Víglundur Guðmundsson. —
Sérstök deild innan fyrirtækis-
ins er svo sú sem nefnist
,,BOER“ (skammstöfun af Br.
Ormsson og E. Rasmussen), hún
annast um framkvæmdirnar í
Straumsvík, þar sem þeir Dan-
inn Bent Boesen, verkfræðingur,"
og Sigurður Magnússon, yfir-
verkstjóri hjá Br. Ormsson, ráða
ríkjum. — í þetta verkefni höf-
um við sett okkar aðal verk-
stjóra, og tekið hann á meðan
úr öðrum verkefnum, segir
Karl. — Svo miki'ð finnst okk-
ur til um þetta stóra verkefni.
Raflagnirnar fyrir álverksmiðj-
una í Straumsvík er langsam-
lega umfangsmesta verkefnið,
sem við höfum farið út í og
meðan það stendur yfir, mun
það auka verulega veltu þessa
fyrirtækis, segir hann enn-
fremur. Með því að glíma við
slíkt verkefni fáum við dýr-
mæta reynslu, sem ætti ef vel
heppnast að veita nytsama
reynslu hvað snertir skipulagn-
ingu, rekstur, hagræðingu og
HIÐ gamla þekkta fyrirtæki
Bræðurnir Ormsson h.f. hér í
borg varð 45 ára 1. desember
síðastliðinn, en skömmu áður
átti stofnandi þess og forstjóri,
Eiríkur Ormsson, áttræðisaf-
mæli. Fyrir nokkrum dögum
fluttum við svo þá frétt að fyr-
irtækið hefði tekizt á hendur
stærsta verkefni í raflögnum og
frágangi slíkra tækja sem ís-
lenzkt fyrirtæki hefur leyst af
hendi. Morgunblaðið hefur því
margskonar tilefni til að heim-
sækja þetta fyrirtæki nú og
frétta af starfsemi þess.
Við hittum Karl Eiríksson,
framkvæmdastjóra, í hinni nýju
byggingu, sem fyrirtækið hefur
reist við Lágmúla 9 og er flutt
þangað með alla sína starfsemi.
En Karl er sonur stofnandans
Eiríks Ormssonar. Við báðum
hann að segja okkur frá starf-
seminni, áður en við gengum
um fyrirtækið, honum fórust
orð á þessa leið:
Brœðurnir Ormsson h.f.:
um. Frá því 1930 og fram til
loka síðustu styrjaldar voru
því smíðaðar um 130 vind- og
vatnsaflsstöðvar og settar upp
vfðsvegar um landið. Þar voru
í miklum meirihluta hinar svo-
kölluðu dvergrafstöðvar, sem
voru margar • þannig útbúnar
frá fyrirtækinu, að bændur
gátu keypt þær með öllu til-
heyrandi í einum kassa og kom
ið þeim sjálfir fyrir á handhæg-
an hátt á staðnum, án þess að
þurfa að fá fagmann til aðstoð-
ar. Þessar vélar voru frá 75 til
450 Watt. Við smíðuðum einnig
rafalinn í dvergstöðvarnar. Enn
er eitthvað af þeim vélum við
li'ði, aðallega notaðar til að
hlaða rafhlöður.
Við rifjum hér upp til gam-
ans vísu, sem sr. Böðvar Bjarna
son frá Reykhólum, þá prófast-
ur að Rafnseyri við Arnarfjörð,
kvað um vin-dverginn sinn:
Dvergasmíði er dvergurinn
dags er hverfur röðullinn
ber hann ljós í bæinn minn
bætir þannig húmorinn.
Við smíðuðum einnig stærri
Karl Eiriksson, forstjóri
fyrirtækisins.
— Enda þótt fyrirtækið
Bræðurnir Ormsson h.f. sé frá
byrjun byggt upp sem þjónustu
fyrirtæki, hefur það lengst af
rekið jöfnum höndum umboðs-
sölu og iðnað. Það hefur umboð
fyrir nokkur góð fyrirtæki, svo
sem AEG Telefunken og Robert
Bosch í Þýzkalandi, Hellesen í
Danmörku og Picker í Amer-
íku. AEG hefur sem kunnugt
er öll þau rafmagnstæki, sem
notuð eru. Það framleiðir allt
frá rafölum af stærstu gerð m.
a. í kjarnorkuver, og niður í
hversdagslegustu rafmagnstæki
til heimilisnota, svo sem strau-
Hið nýja hús fyrirtækisins B ræðurnir Ormsson við Lágmúla.
Fólks- og vörulyftur hafa ver-
ið drjúgur þáttur í okkar við-
skiptum. Við seljum Hávemei-
er & Sander lyftur og munu
nú vera um 70 lyftur í notkun
víðsvegar á landinu.
— Hvert var upphaf þessa
fyrirtækis?
— Það var upphaflega stofn-
a'ð 1. desember 1922 sem við-
gerðarverkstæði fyrir rafvélar
og mæla. Stofnandi var Eirík-
ur Ormsson, og var fyrirtækið
til húsa á Óðinsgötu 25. Það
var þá fyrsta raftækjaverkstæð
ið á landinu, sem annaðist vind-
ingar á mótorum. Það hafði
aldrei verið gert hér fyrr. Fað-
ir minn hafði lært hjá Halldóri
Guðmundssyni, rafmagnsfræð-
ingi, og fór til Danmerkur að
læra rafvéla- og mælavi'ðgerð-
ir. Jón bróðir hans kom inn í
fyrirtækið 1923 og bar fyrirtæk
ið eftir það heitið Bræðurnir
Ormsson. Jón var meðeigandi
til 1932, er hann stofnaði eigið
fyrirtæki.
Lengi var það snar þáttur í
starfsemi þessa fyrirtækis,
enda gamalt áhugamál pabba, að
koma upp rafstöðvum í sveitun-
vélasamstæður, allt upp í 30
hestafla túrbínur. Þá smíðuð-
um við alltaf mikið af skipa-
lömpum og ljóskösturum, sem
báru heitið „Orms“.
Þá hefur sala og viðhald
röntgentækja og þjónusta við
þau alltaf verið stór þáttur í
rekstri fyrirtækisins.
— Bræðurnir Ormsson h.f.
var lengst af til húsa á Vest-
urgötunni, var það ekki?
— Jú, það var árið 1936 að
faðir miinn keypti eignina Vest-
urgötu 3 og var vorum við til
áramóta 1966—1967, er við flutt
um hingað. Þá var orðið það
þröngt nfðurfrá, að vélaverk-
stæði var til húsa annars stað-
ar. En nú er allt undir sama
þaki aftur. Húsið við Lágmúla
9 er stór skrifstofubygging.
Bræðurnir Ormsson hafa þar
380 ferm. skrifstofuhæð og á
götuhæð og í viðbyggingu eru
svo verzlun, vörugeymslur og
verkstæðin.
Áður en við höldum í skoð-
unarferð, er rétt að skýra frá
því hverjir sitja við stjórnvöl-
inn. Forstjóri er sem fyrr er
sagt Eiríkur Ormsson og fram-
járn, útvörp o.s.frv. Þeir selja
báðar gastúrbínurnar til
Straumsvíkur, hvor 17.500
KW. Bosch framleiðir aftur á
móti rafmagns- og dieseltæki,
sem hér eru mest notuð í bíla
og báta o.fl. o.fl. Við höfum
Eiríkur Ormsson. Bak við
hann er teikning hans af
vatnshjóli til raforkufram-
leiðslu, og ljósmynd af raf-
stöðinni gömlu í Múlakoti.
fleira þess háttar. Álverksmiðju
menn eru svo margreyndir varð
andi alla skipulagningu, a'ð á
mörgum sviðum er fengur í að
taka þá sér til fyrirmyndar.
Við göngum um fyrirtækið í
fylgd Karls og Kára verkfræð-
ins. í skrifstofunni tifar nýtt
Teletextæki. Þar er verið að
senda fyrirspurn um það til
AEG hvort hægt sé að fá sér-
Framhald á bls. 16
45 ára gamalt tekst fyrirtækið
nú á við sitt stærsta verkefni