Morgunblaðið - 22.02.1968, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.02.1968, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1968 - ERLENT YFIRLIT Framhald af bls. 15 Park lagði Cyrus Vance áherzlu á, að ekki yrði dregið úr stuðn- ingi við Suður—Kóreu þrátt fyr ir ástandið í Vietnam, og meðal þeirra hergagna, sem send verða til Suður—Kóreu, verða vopn, sem eru sérstaklega ætluð til baráttu gegn skæruliðum. Talið er, að í einkasamtölum hafi Cyr- us Vance játað, að Bandaríkja- stjórn hafi í fyrstu ekki talið Ms. Esja fer austur um land til Vopna- fjarðar 27. þ. m. Vörumóttaka á föstudag og árdegis á laug- ardag til Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarðar, Fáskrúðsfjarð ar, Reyðarfjarðar, Eskifjarðar, Norðfjarðar, Seyðisfjarðar, Borgarfjarðar og Vopnafjarð- ar. Ms. Herðubreið fer vestur um land í hringferð 26. þ. m. Vörumóttaka á föstu dag og árdegis á laugardag til Patreksfjarðar, Tálknafjarðar, Bíldudals, Þingeyrar, Flateyr. ar, Suðureyrar, Bolungavíkur, ísafjarðar, Norðurfjarðar, Djúpavíkur, Hólmavikur, Kvammstanga. Blönduóss, Skagastrandar, Sauðárkróks, Siglufjarðar, Ólafsfjarðar, Ak ureyrar, Kópaskers og Bakka fjarðar. tíiTtrnfísí Girling - Lucos Mikið úrval HÖGGDEYFA í evrókska bíla nýkomið Fiat Hillman Singer Humber Skoda o. fl. 273.0» Austin Volkswagen Vauxhall Volvo Ford Opel Renault o. H. 278.00 Taunus Saab Volvo Fiat Vauxhall o. n. 294.00 Mercedes Skoda o. n. 315.00 Land-Rover Bedford o. n. 492.00 Blossi si. Skipholti 35 - Sími 81350 Látið ekki dragast að athuga bremsumar, séu þær ekki i lagi. — Fullkomin bremsu- þjónusta. StillSng Skeifan 11 - Sími 31340 ástæðu til að ætla að breyt- inga væri að vænta á ástand- inu í Kóreu, en nú væri banda- ríska stjórnin við því búin að reynt yrði með stuðningi Kín- verja að dreifa athygli Banda- ríkjanna víðar í Asíu, til dæmis í Burma eða á landamærum Ind- lands. Mótmœli trá menntamönnum ÞRÍR menntamenn í Moskvu hafa í skjali, sem þeir hafa dreift, varað við „hægfara en markvissri“ endurreisn stalín- isma í Sovétríkjunum og skorað á sovézka menntamenn að mót- mæla þessari þróun. f skjalinu er einkum ráðizt á „ómannúð- legar hefndarráðstafanir" gegn menntamönnum, sem hafa látið í ljós skoðanir sínar og voru nýlega dæmdir til langrar fang- elsisvistar. Þeir sem undirrituðu skjalið eru Petr Yakir, sagnfræðingur, sem er sennilega sonur frægs hershöfðingja, Iona Yakir, sem var tekinn af lífi í hreinsunum Stalíns 1937, Yuli Kim, sem kall- ar sig kennara, og Ilya Gabai, kennari og ritstjóri. Talið er, að skjalinu hafi verið dreift bæði í Rússlandi og á Vesturlöndum, og er það sent fólki sem vinnur „skapandi störf“. f skjalinu eru rithöfundaréttar höldin, sem nýlega fóru fram í Moskvu harðlega gagnrýnd, og því haldið fram að þau hafi verið sett á svið. Réttarhöldin eru talin eitt af mörgum dæmum um þróun, er stefni í átt til endurreisnar stalínisma, en önn- ur helztu dæmin sem nefnd eru í skjalinu, eru þessi: • Farið er viðurikenningarorð- um um Stalín. • Öll uimmæli um framlag Leon Trotskys til byltingarinnar eru neikvæð. • Rithöfundar eiga í erfiðleik- um með að fá útgefnar bækur, þar sem Stalín er gagnrýndur. • Mörg ágæt bókmenntaverk fást ekki gefin út á sama tíma og birt eru verk þar sem Stalín er hafinn til skýjanna. • Tartarar á Krímskatga, sem Stalín treysti ekki, voru flæmd- ir burtu frá heimkynnum sínum og hefur ekki verið leyft að snúa aftur þótt þeir hafi fengið upp- reisn æru. • Sovézk lögregla fylgist með öllu því, sem sovézkir borgarar aðhafast. Skjalið ber með sér, að mennta mennirnir, sem það undirrituðu, telja ástandið ískyggilegt og hafa þungar áhyggjur. Þeirtala sennilega fyrir munn margra ann arra menntamanna í Sovétríkjun um. Ef til vill er ástandið ekki eins uggvænlegt og þeir telja, og hvað sem því líður þá ber yfirlýsing þeirra vott um, að and rímsloftið í Sovétríkjunum er frjálsara en það var áður fyrr. En vakið hefur ugg hve áhrif leynilögreglunnar hafa aukizt mikið upp á síðkastið. BÍLAR 66, Volvo Amazon. 68, Volkswagen 1500 vél. 67, Volkswagen. 66, Skoda 1000, ekinn 9 þús. km. 67, Reno 4 X station. 66, Taunus 17 M 2ja dyra. 66, Taunus 12 M station. 62, Opel Record, 2ja dyra. 66, Benz dísil, fólksbifreið. 58, Opel Caravan. guðmundap Bercþórucötu 3. Simar 19032, 20070. SAMKOMUR Samkomuhúsið Zíon, Óðinsgöu 6A. Almenn sam- koma í kvöld kl. 20,30. Allir velkomnir. Heimatrúboðið. Fyrir nokkru tók Brynja Benediktsdóttir við hlutverki Maríu i Þrettándakvöldinu, í veikindaforföllum Margrétar Guð- mundsdóttur. Þessi vinsæli gamanleikur Shakespeares hefur nú verið sýndur 12 sinnum í Þjóðleikhúsinu við ágæta aðsókn og verður næsta sýning nk. föstudag. Aðalhlutverk leiksins eru sem kunnugt er leikin af Kristbjörgu Kjeld, Bessa Bjama- syni, Rúrik Haraldssyni, Flosa Ólafssyni, Ævari Kvaran o. fl. Myndin er af Brynju Benediktsdóttur og Flosa Ölafssyni í hlutverkum sínum. - SJOSLYSIN Framhald af bls. 13 byri til íslands í gærkvöldi. Þeir ætla sér að græða á þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að kalla heim þaðan brezka tog- ara, eftir sjóslysin. Og meðan þýzk, belgísk og rússnesk skip hröðuðu sér á miðin lögðu óá- nægðir brezkir skipstjórar af stað heimleiðis með hálffullar lestar. Að baki þeim var næg- ur fiskur, yndislegt veður og háðsyrði annarra togaramanna. „Þessir útlendingar skellihlæja að veslings gömlu Bretun- um“, sagði Dennis Roberts, sem var skipstjóri á togara í þorska- stríðinu. Hr. Roberts sem nú stjórnar hinum stóra Ross flota í Grimsby sagði: „Sjórinn þarna er kyrr eins og stöðuvatn núna. Útlendir sjó menn eru að vinnu í stutterma skyrtum og hlægja að okkur fyrir að fara heim. Og allt vegna þess að ríkisstjórnin varð hrædd þegar þrjár konur byrjuðu að hrópa á öryggi. Ef þeir hefðu gert minnstu tilraun til að komast að því hefðu þeir frétt að veðrið við ísland er stillt og bjart. Við misstum þrjá togara en það var ekki vegna lélegrar sjómennsku eða óör- uggra skipa. Þeir lentu í sams- konar veðri og olli dauða 400 manna í flóðunum á austur- ströndinni um 1950. Þetta bann er hreinasta guðs gjöf fyrir er- lenda togara og það má vel vera að þeir komi til Humber til að selja aflann. Talsmaður veiðiflotans sagði: „Það er dálítið erfitt fyrir drengina okkar, sem hafa bar- izt í gegnum óveðrið að fá nú ekki að vera við ísland þegar veðrið er gott og aflinn nægur". Herbert Anderson, borgarstjóri í Hull, var í dag að reyna að leysa gátuna um símskeyti frá íslandi. í skeytinu var hann beðinn að staðfesta hvort borg arstjómin í Hull hefði ákveð- ið að bjóða áhöfn varðskips- ins Óðins í heimsókn. Óðinn barðist við óveður og stórsjóa fyrr í þessari viku, til að bjarga áhöfninni af Hull togara við norðurströnd ís- lands. En í dag sagði Ander- son: „Við erum að reyna að komast fyrir þetta, við vitum ekki um neitt heimboð. Þegar ég var spurður um þetta í gær svaraði ég því til að ég gæti ekki gefið neitt leyfi í þessu sambandi. Það yrði að koma samþykkt frá Borgarstjórninni. (Daily Mail) - UTAN ÚR HEIMI Framhald af bls. 14 Stalingrad var skipaður 265 þúsund hermönnum. Af þeim féllu 80 þúsund. 46 þúsund særðir hermenn voru fluttir flugleiðis til Þýzkalands frá Stalingrad áður en flugvöllum borgarinnar var lokað. Rúss- ar tóku rúmlega 100 þúsund stríðsfanga í Stalingrad, og þeirra biðu nýjar og meiri hörmungar þegar þeir voru reknir í endalausum fylking- um, öslandi snjóinn norður á bóginn eftir fall borgarinnar. Af þessum rúmlega 100 þús- und föngum, lisfðu aðeins sex þúsund það að komast heim eftir lok styrjaldarinnar. Óriög hinna eru ókunn. (Observer). 75 ára afmæli 75. ára er í dag Þorbjörg Guð- mundsdóttir (ekkja Rögnvaldar Líndals bónda í Hnausakoti). Þorbjörg hefur starfað undan farin 20 ár á Hótel Tryggva- skála, Selfossi, svo og á öðrum hótelum áður, og alstaðar hefur hún kynnt sig, sem dugandi þrótt mikil kona, samvizkusöm og húsbóndaholl. Margir munu hugsa til hennar á þessum merkisdegi, og senda henni hlýjar óskir í huga, þó þeir eigi ekki, sumir hverjir kost á að heilsa upp á hana. Þorbjörg dvelst í dag að heim- ili dóttur sinnar og tengdasonar Krókahrauni 8 Hafnarfirði. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM RITNINGIN segir: „Vinnið að sáluhjálp yðar með ugg og ótta". En þér segið, að Guð sé svarið við öllum vanda- spurningum. Ég álít, að Guð vilji, að við hjálpum okkur sjálf. Hóras orðaði svo gamla leikhúsreglu: Látið engan guð koma fram í leiknum, nema flækjan sé orðin svo mikil, að guðimir einir geti leyst hana. Einmitt þetta á sér stað í mannlegri sögu. Flækjan er slík, vandinn svo stór, að Guð einn getur leyst. Slíkt var ástandið orðið, að Guð þurfti að skerast í leik til að bjarga mannkyninu frá sjálfstortímingu. Vitanlega blandar Guð sér ekki í það í lífi okkar, sem við getum sjálf ráðið bót á. En til er sá vandi, sem er okkur ofviða — of flókinn. Þar er það, sem Guð skerst í leikinn. Temple, erkibiskup, líkti veröldinni við búðar- glugga, þar sem einhver prakkari hefði skipt um alla verðmiðana, sett hæsta verðið á það lélegasta og öfugt. Menn hafa rangt mat á hlutunum í þessum heimi. En Guð er þess megnugur að færa allt í lag. Hann kennir okkur að sjá hið rétta gildi. Þar, sem syndin ríkir, kemur hann með frið og fyrirgefningu. Hjálpaðu þér sjálfur, ef þú getur. En þar sem þú ert hjálparvana, eins og þegar um er að ræða sáluhjálp þína, skaltu ekki vera of stærilátur til að ákalla Guð. R.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.