Morgunblaðið - 09.04.1968, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 09.04.1968, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1968 Deilt um kosningalögin — Lagaákvœðm um flokkaframboð verði gerð skýrari — Breytingar- tillaga dómsmálaráðherra Miklar umræður urðu á Al- þingi um stjórnarfrumvarpið um breytingar á lögum um kosning- ar til Alþingis, en frumvarpið er enn í neðri-deild. Samstaðan var innan þingsins um frumvarp ið eins og það var upphaflega lagt fram, en deilur risu hins vegar upp vegna breytingartil- lögu er Jóhann Hafstein dóms- málaráðherra flutti við það. Er frumvarpið kom til 2. um- ræðu í deildinni mælti Matthías Bjarnason fyrir nefndaráliti meiri hluta allsherjarnefndar, en auk hans Gísli Guðm.son er mælti fyr ir minnihluta áliti, Jóhann Haf stein dómsmálaráðherra ogHann ibal Valdimarsson, sem flutti rúm lega þriggja klukkustunda ræðu. Við atkvæðagreiðslu voru til- lögur ráðherra samþykktar með 23:7 að viðhöfðu nafnakalli. Einn þingmaður sat hjá. f framsöguræðu sinni fyrir meiri—hluta nefndarálitinu rifj aði Matthías Bjarnason það upp, að frumvarp þetta væri í nánum tengslum við frumvarp til stjórnskipunarlaga er fjall- aði um breytingu á kosninga- aldri. Nefndin hefði verið sam- mála um frumvarpið eins og það lá fyrir, en auk þess hefði hún fjallað um og tekið afstöðu til tveggja breytingartillagna sem fram hefðu komið. Önnur tillagan var frá fjór- um Alþingismönnum, þeim Hall- dóri E. Sigurðssyni, Ásgeiri Pét- urssyni, Benedikt Gröndal og Jónasi Árnasyni. Fjallaði hún um kjörstaði og lagði nefndin til að nokkrar breytingar yrðu gerðar á tillögu þingmannanna og lögin gerð víðtækari á þann hátt, að hreppsnefnd væri heim ilt að fengnu samþykki yfir- kjörstjórnar að hafa kjörstað utan hreppsfélagsins. Þá ræddi Matthías um breyt- ingartillögu dómsmálaráðherra, og sagði, að engum þyrfti að koma á óvænt þótt slík tillaga væri lögð fram eftir þau miklu deilumál er urðu við síðustu Al- þingiskosningar. Þegar umræð- ur um kjörbréf hefðu orðið á Alþingi í haust hefði dómsmála- ráðherra lýst því yfir, að ríkis- stjórnin mundi beita sér fyrir því að fyllri ákvæði yrðu lög- fest á þessu þingi. Að lokum vék Matthías að því, að það væri álit meiri hluta allsherjarnefndar að ástæða væri til að fram færi heildar- endurskoðun á kosningalögun- um. Komið hefði í ljós, að ýms- ar lagfæringar þyrfti að gera, t.d. á utankjörfundarkosningum. Væru það því tilmæli meiri- hlutans til ríkisstjórnarinnar að hún léti endurskoða þessi lög fyrir næsta Alþingi. Jóhann Hafstein dómsmálaráð herra rifjaði upp nokkur atriði, sem hann sagði að skýrðu hvers vegna hann hefði flutt tillögur sínar. Sagði ráðherra m.a.:Eins og kunnugt er, varð ágreining- ur um hvernig merkja skyldi framboðslista hér í Reykjavík á s.l. sumri. Var sá ágreiningur annars vegar milli manna innan Alþýðubandalagsins og hins veg ar milli yfirkjörstjórnar og lands kjörstjórnar. Niðurstaðan varð í stórum dráttum sú, að yfirkjör- stjórn merki lista, sem kenndur er við Hannibal Valdimarsson, I-Iista, og var hann talinn utan flokka, en landskjörnstjórn úr- skurði listann sem löglegan Al- þýðubandalagslista, og þau at- kvæði sem honum yrðu greidd teldust til lista þess flokks. Niðurstaðan varð sú, að list- inn var merktur á kjörseðlum I-listi og fékk efsti maður list- ans, Hannibal Valdimarsson, kjör bréf frá yfirkjörstjórninni sem slíkur, en við úthlutun uppbótar- sætanna var hins vegar atkvæði I-listans og G-listans talin sam- an og úthlutað. eftir því. Án NESCAFÉ er stórkostlegt kvölds og morgna, - og hvenær dags sem er. J>að er hressandi að byija daginn með því að fá sér bolla af ilmandi Nes- café, og þegar hlé verður í önnum dagsins er Nescafé auðvelt, þægilegt og fljótlegt í notkun, og bragðið er dásamlegt. Nescafé er einungis framleitt úr völdum kaffibaunum - ioo /o hremt kaih. Hvenær sem er, og hvar sem er, þá er Nescafé hið fullkomna kaffi. IMescafé þess að taka afstöðu til þessa máls, er ég þeirrar skoðunar að atvik eins og þetta sé mjög til þess fallið að villa fyrir kjós- endum við kosningar. Og eink- um og sér í lagi, þegar haft var í huga afstaða umboðsmanna G- listans, sem borinn var fram af Alþýðubandalaginu. En í greinargerð þeirra telja þeir I-lista Hannibals Valdimars sonar sér allsendis óviðkomandi. Rakti ráðherrann greinargerð Al- þýðubandalagsins, en þar kom m-a. eftirfarandi fram: „Aðeins 30 af meðmælandahópnum (með lista Hannibals) eru meðlimir í Alþýðubandalaginu. Þetta er því utanflokkaframboð að lang mestu leyti, sem eru að koma fram sprengiframboði gegn Al- þýðubandalaginu. Rétt skýringa á lagaákvæðum er sú, að þau eru heimildarákvæði fyrir stjórn málaflokk að bera fram fleiri en einn framboðslista í sama kjördæmi, ef flokknum þykirþað henta. Þessi ákvæði hreyfa ekki við sjálfræði flokkanna um fram boð sín. Og síðar í sömu sam- þykkt: „Jafnframt tekur stjórn- in (Alþýðubandal.) fram að aðr- ir framboðslistar í kjördæminu eru Alþýðubandalaginu í Reykja vík óviðkomandi og lýsir yfir, að samkvæmt lögum Alþýðu— bandalagsins getur enginn annar aðili en að framan segir borið fram framboðslista í Reykjavík í nafni Alþýðubandalagsins.“ Dómsmálaráðherra kvaðst ekki ætla sér að leggja dóm á þessa deilu, en það lægi nærri að á- lykta að þessi ágreiningur og yfirlýsingar hefði orðið til þess að villa mjög um fyrir mönnum í kosningunum. Þá rifjaði ráð- herra einnig upp ummæli sín í haust, er umræður um kjörbréf fóru fram, en þá sagði hann m.a.: „Það er efalaust vafamál frá lögfræðilegu sjónarmiði, eins og ráð má af því hversu mjög kjörstjórnin hefur greint á, þó hvernig eigi að skera úr þessari deilu, og enda þótt almenningi sé fengið hið endanlega úrskurð arvald um gildi kjörbréfa er það eðli málsins samkvæmt ekki stofn un, hvort sem mönnum líkar bet- ur eða verr, sem talin væri frá lögfræðilegu sjónarmiði til dóms úrskurðar fallin. En Alþingi get ur stemmt stigu fyrir að vafi leiki áfram á um það, hvernig skilja beri eða framkvæma skuli á- kvæði kosningalaga. Þess vegna eru stjórnarflokkarnir ráðnir í því að beita sér fyrir breytingu á þeim lögum, í því skyni að girða fyrir að nokkuð sambæri- legt og gerst hefur geti endur- tekið sig. Þá rifjaði ráðherra upp að Húseigendafélag Reykjavíkur Skrifstofa á Bergstaðastr. lla. Sími 15659. Opið kl. 5—7 alla virka daga nema laugardaga formaður þingflokks Alþýðu- flokksins hefði gefið efnislega samhljóða yfirlýsingu og einnig að form. þingflokks Framsóknar flokksins hefði lýst því yfir sem skoðun sinni, að breyta þyrfti umræddum ákvæðum. Síðan sagði ráðherra m.a.: í framhaldi af þessu lagði ég svo fram breytingartillögu er þing kom saman aftur eftir áramótin, til þess að koma í veg fyrir slíkt, en það skal viðurkennt að sú breytingartillaga gekk í sjálfu sér lengra heldur en það, að girða fyrir, þessa deilu sem þarna hafði komið upp. Þar var gert ráð fyrir því, að skrif- leg viðurkenning hlutaðeigandi flokkstjórnar þyrfti fyrir því að listi skuli vera í kjöri fyrir flokkinn. Og ennfremur var ann að ákvæði, er fjallaði um að stjórnmálaflokkur geti ekki boð ið fram fleiri en einn lista I sama kjördæmi. Það kom fljótt í ljós, að nokkur ágreiningur var um þessar breytingartillögur, og varð það til þess að breytingar voru á þeim gerðar. í nýju til- lögunum er að efni til látið haldast óbreytt, eins og verið hefur í kosningalögunum, að flokkur geti boðið fram fleiri en einn lista. Hins vegar er hin breytingin formbreyting, sem hef ur þó sem slík verulega þýð- ingu. Það er horfið frá því sem segir í fyrri tillögunni að þurfi að fylgja við framboðslista skrif leg viðurkenning hlutaðeigandi flokkstjórna fyrir því að listinn skuli vera í kjöri. Hins vegar er horfið að því ráði, að ef komi fram tveir listar fyrir sama flokk og meðmælendur bjóði fram fleiri en einn lista, þá skuli þeir teljast til flokksins, ef ekki koma fram mótmæli frá þeim að- ila sem samkvæmt reglum flokks er ætlað að ákveða framboðs- lista, eða staðfesta hann endan- lega. f lok ræðu sinnar vék svo Jóhann Hafstein að því sem komið hafði fram í framsögu- ræðu Matthíasar Bjarnasonar um endurskoðun kosningalaganna. Sagði ráðherra m.a.: Það voru einkum viss minni háttar atriði sem framsögumaður meiri hluta álitsins vék að. Það munu vera fleiri atriði af slíku tagi, en þegar hins vegar er tal- að um heildarendurskoðun vandast málið auðvitað miklu meira til þess að unt sé að láta hana liggja fyrir næsta þing, því sum ákvæði kosningarlag- anna, eru þannig að þeim verð- ur ekki breytt nema með breyttri stjórnarskrá. Ég tel mjög eðli- legt að hugað sé að heildarend- urskoðun kosningalaganna, en geri mér jafnframt grein fyrir því að veigamestu breytingarn- ar hlytu að vera í tengslum við breytingu á sjálfri stjóm- arskránni, en segja má að einn- ig sé orðið tímabært að hugsað verði fyrir nauðsynlegum breyt- ingum á henni. PIERPONT ÖR MODEL 1900 MARGAR NÝJAR GERÐIR AF DÖMU- OG HERRAÚRUM. GARÐAR ÚLAFSSON LÆKJARTORGISÍMI10081

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.