Morgunblaðið - 09.04.1968, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1968
.MI22-24
1:3 02 80-322 62
LITAVER
Pilkington6s tiles
postulinsveggflísar
Stærðir 11 x 11, 7V2 15 og 15 x 15
cm.
Mikið úrval — Gott verð.
Áttrœður í dag:
Guðmundur Jónsson
Þórguutsstöðum
BUÐBURÐÁRFOLK
ÓSKAST
í eftirtalin hverfi
AÐALSTRÆTI,
Talið við afgreiðsluna / sima 10100
GUÐMUNDUR á Þorgautsstöð-
um er alkunnur maður, innan
héraðs sem utan, enda mann-
blendinn, greindur, glaður í vina
hóp og trygglyndur með afbrigð
um.
Hann er sonur þeirra sæmdar-
hjónanna Jóns Guðmundssonar,
Guðmundssonar hreppstj. að
Uppsölum og Margrétar Jóhann
esdóttur frá Efra—Nesi og eru
að þeim hinar merkustu ættir.
Þau bjuggu lengst af í Efra—
Nesi við ástsæld og virðingu
sinna sveitunga, en hin síðari
árin í skjóli sonar síns og tengda
dóttur á Þorgautsstöðum og
settu þar nokkur blæ á heimilið
meðan þau lifðu.
Guðmundur giftist Þuríði Ól-
afsdóttur Ólafssonar frá Melkoti
og um það leyti keypti hann
Þorgautsstaði, byggði við bæjar
húsin og stóð þeirra búskapur
með blóma og rausn, svo að á
orði var haft, meðan hennar naut
við.
Nærri er nú hálfur annar
áratugur síðan hún féll frá, en
að henni var hinn mesti mann-
skaði. Eins og hún átti kyn til,
var hún greind kona og skap-
föst, höfðingi í lund, ljóðelsk og
hugsjónarík.
Voru þau hjón afar samhent
og juku sífellt við ræktað land
jarðarinnar og tileinkuðu sér
strax hætti vélaaldar er hún
gekk í garð. Á tímabili rak Guð-
mundur og refabú en hafði einn-
ig oft með höndum fjárkaup og
hrossa til afsláttar fyrir ýmsa að
ila og hafði tiltrú og vinsældir
allra er við hann áttu skifti.
Hann hafði yndi af ferðalögum
og laxveiðum og er flestum kunn
ugri í hinum efri borgfirzku lax-
ám þó að hann hafi nú hvílt
stöngina um sinn.
Eigi varð þeim hjónum barna
auðið, en heimilið var jafnan
stórt, einkum á sumrum og miðl
uðu þau af sínum mannkostum
öllum þeim er þar dvöldust, og
margt barnið „af mölinni“ hlaut
þar aðhlynningu og veganesti
uppeldis, sem þeirra hjóna eig-
ið væri. Mun hugur þeirra
margra svo og samstarfsmanna
og veiðifélaga hvarfla til Guð-
mundar í dag og samgleðst hon-
um vinafjöld á þessum merkis-
degi. — L
hóieí }AO/\
Framreiðslunemar
Viljum ráða framreiðslunema 1. maí.
Uppl. á hótelinu kl. 2—4 í dag (ekki í síma).
Frá hinum heimsþekktu tóbaksekrum
Kentucky í Ameríku kemur þessi
úrvals tóbaksblanda
1» waltek
aleigh
Sir Walter Raleigh...
ilmar ímt... pakkast rétt...
bragðast bezt. Geymist 44%
lengur ferkst í handhægu
loftþéttu pokunum.
SIRWALTER
RALEIGH
BONANZA
Oft höfum við verið
með skemmtileg
leikföng
en fá, jafnast á við
BONANZA
karlana
Þeir eru með
hreyfanleg liðamót
og fylgir þeim
mikið af
aukahlutum.
Einnig höfum við
HESTA
BONANZA
karlanna.
þeim fylgja
öll reiðtygi.
Komið og sjáið BONANZA
- SAFNIÐ BONANZA -
Litla Blómabúðin
Bankastræti 14. — Sími 14957.