Morgunblaðið - 10.04.1968, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.04.1968, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1968 3 cL.jt . STAKSniiAR Pólýfonkórinn flytur þrisv- ar í þessari viku eitt af snilld- arverkum Jdhanns Sebastians Badhs, Messu í H-moll. Flytj- endur auk kórsins, sem skip- aður er 62 körlum og konum, eru 30 manna hljómsveit og 4 einsöngvarar. nærri 100 alls. Stjórnandi er Ingólfur Guð- brandsson, sem stofnaði Pólý- fón-kórinn fyrir 11 árum og ihefur stýrt honum síðan á fjöida tónleika, bæði innan lands og utan, síðast á alþjóð- legu söngmóti í Belgíu, þar sem kórinn fékk mjög góða dóma. Einar G. Sveinbjörnsson, fiðluleilkari, leikur einleik og er jafnframt konsertmeistari ihljómsveitarinnar, en hann toef-ur verið starfandi í Sví- Pólýfónkórinn á æfingu. i Ljósm. Mbl.: Sv. Þ. Pólýfónkórinn flytur H-moll messu Bachs Bernard Brown. Anne Collins. þjóð síðastliðin þrjú ár. Fyrsti trompetleikari verður Bern- ard Brown, sem getið hefur sér frægðar fyrir leik sinn í verkum Baebs. Kemur hann gagngert til landsins til þess að taka þátt í tónleikum hér. Þá er einnig komin hingað alt-söngkonan Anne Oollins, og syngur hún þrjár ariur í H-mioll messunni. Hetfur hiún hlotið hæstu verðlaun Royal Ooilege of Music og unnið verðlaunasamkeppni á veg- um ÐBC. Aðrir einsöngvarar eru Guðtfinna D. Ólatfsdóttir, sópran, Friðbjörn G. Jónsson, tenor og Halldór Vilhjálms- son, bassi, en þau syngja einnig öll með kórnum. Pólýfónkórinn hefur aldrei Marx- otf aprílhöí- undar Heltfaiells færst jafnmikið í fang, hvorki í listrænum s'kilningi ná fjár- hagslegum. Verður kórinn að greiða alla vinnu hljóðtfæra- leikara við æfingar og tón- leika, og þrír listamenn koma erlenidis frá. Hefur kórinn leitað til nokkurra þekktra fyrirtækja um fj'árhagslegan stuðning við flutning verks- ins, og hetfur það borið nokk- urn árangur. , Verkið var fyrst flutt í Kristskirkju í Landakoti í gærkveldi, en tónleikarnir verða endurteknir tvisvar í Þjóðleikihúsinu, á skírdag og tföstudaginn langa. Sala að- göngumiða er í Þjóðleikhús- inu og bókaverzl'un Sigfúsar Eymundssonar. í GÆR komu út hjá Helgafelii tvær nýjar íslenzkar bækur, ljóðabók etftir Halldóru B. Björns dóttur „Við sanda“ og ritgerða- safn etftir S:gurð A. Magnúsison, er hann hefur getfið natfnið „Sáð í vindinn". Eru þetta marz-apríl- bækur HelgafelLs. Um Ijóð Haiildóru segir í bók- arkápu: „Ljóð Halldóru B. Bjönsdóttur, Við sanda, eru formtfögur, hún beitir gömium og nýjum háttum atf fimileik og skilningu á eðli þeirra. Stund- um býr hún sér sjálf til hætti við hæfi og yrkir nýtízkudega, en jafnvel þau ljóð hennar bera jafnan einhvern óm eða hug- blæ af fomri hetfð, dönsum, þjóð kvæðum, þjóðlögum, vísum“. Ritgerðasafn Sigurðar A. Magnússonar er 165 bls. Um bók ina segir í kápu: „Sáð í vindinn er ritgerðasafn eftir Sigurð A. Magnússon og fjallar um islenzk ar bókmenntir á síðustu árum eða í ljósi .síðustu ára. Greinar þessar eru mjög lifandi og tima bærar, auk þess sem þær segja í heiLd mikla bókmenntasögu. Margar skarplegar greinar um bókmenntir og bókmenntavanda mál almennt.“ Halldóra B. Björnsson. SigurSur A. Magnússon. TT * 9 • 9 /k 1 • í póskavikunni sýnum við nýia fram- Husgagnasyning1 a Aknreyri ^ðsiu húsgagna. hinni giæsiegu verzlun okkar að Glerárgötu 28. Þar sjáið þér það nýjasta á markaðn- um, þar finnið þér það, sem vantar í stofurnar, barnaherbergið og bónda- herbergið. Sýningin er opin miðvikudag frá kl. 9 f.h. til kl. 10 e.h. Á laugardag frá kl. 9 f.h. til kl. 6 e.h. Skíðavikugestir og Eyfirðingar! Lítið inn hjá Valbjörk og sjáið það nýjasta á markaðnum. VALBJÖRK er merki þeirra, sem velja vönduð húsgögn. VALBJÖRK sendir hvert á land sem er. VALBJORK Glerárgötu 28, Akureyri og: Laugavegi 103, Simi 16414 Reykjavik Hvert stefnir? Sagt er, að Jónas Ámason, alþm. hafi upplýst nýlega á fundi í Alþýðubandalagstfélagi Reykjavikur, að þeir þingmenn Alþbl. sem sækja fundi í þing- flokki Alþbl. og hinir, sem það gera ekki væm famir að drekka saman kaffi í Þinghúsinu og mátti marka af orðum Jónasar og fasi, að honum þóttu þetta hin merkustu tíðindi, sem þau og eru. Hannibal Valdimarsson, Björn Jónsson og auðvitað Stein- grímur Pálsson hafa ekki sótt þingflokksfundi Alþbl. síðan í byrjun desemher, þegar hinn frægi miðstjórnarfundur var haldinn. Hins viegar hefur ekkert frá þessum þremur þingmönn- um heyrzt um það hvað þeir ætlist fyrir. Vafalaust krúnka þeir saman nefjum þessir þrír svona við og við, en tæpast verða þær sameiginlegu nefstungur kallaðir þingflokksfundir. Er ekki líklegt að kjósendur I-list- ans frá því í vor fari að veta því fyrir sér hvað þeir hafi eiginlega verið að kjósa. Þeim var sagt, að það væri verið að gera upp sakir við kommúnista í Alþýðu- handalaginu og vafalaust hefur það verið ætlunin. Fyrsta tæki- færið til þess rann hins vegar út í sandinn, þegar til þess kom að kjósa formann þingflokksins og skömmmu síðar hættu upp- reisnarmennirnir að taka þátt í störfum Alþýðubandalagsins á Alþingi, án þess að þeir hefðu nokkra tilburði í frammi til þess að framkvæma uppgjör, sem Hannibal lofaði kjósendum I- listans í vor. Hvað dvelur þessar vígreifu hetjur? Ráðvilltir menn I>að er vissulega skiljanlegt, að þrír þingmenn, sem hafa yfir- gefið þingflokk sinn þurfi nokk- um tíma til þess að átta sig á hlutunum og sannarlega hafa „bræðurnir" þrír: Hannibal, Björn og Steingrímur haft drjúg- an tíma til þess að velta fyrir sér lífinu og tilverunni og pólitískri framtíð sinni. En nú eru aðeins nokkrir dagar til þingslita. Vafa- Iaust hafa kjósendur I-listans vænzt þess, að eitthvað mundi 'heyrast frá hinum miklu görp- um, áður en þessu þingi verður slitið, en enn hefur ekkert kom- ið fram, sem bendir til þess, að þeir ætli að vakna af værum svefni. Ef svo heldur fram sem horfir eru hér líklega á ferðinni einhver mestu kosningasvik sem sögur fara af. Fjölmargir kjós- endur annarra flokka blekktust til þess að kjósa I-listann á þeirri forsendu, að þeir væru að stuðla að því að draga úr áhrif- um kommúnista í íslenzku þjóð- lífi. enda gengu forsprakkar I- listans hart fram í baráttu sinni gegn kommúnistum. Eu eftir kosningar hefur skyndilega hljóðnað um þá baráttu. I-lista- menn gefa ekki lengur út harð- snúið málgagn, þótt þeir fái inni í „Verkamanninum“ á Akureyri en þá er sjaldnast um að ræða deilur við þá, sem þeir töldu sína mestu fjandmenn. Mörgum kjósendum I-listans mun nú þykja tími til kominn, að hetj- urnar miklu taki til hendi, að þeir gefi til kynna hvert þeir stefna og hvað þeir hugsi sér. En kannski eru þetta bara ráðvillt- ir menn, sem hafa ekki hug- I mynd um hvað þeir eiga að gera. j Það er sennilegasta skýringin. Meðan þettta ráðleysi og fálm einkennir allar athafnir I-lista- manna fara kommúnistar sínu fram með rósemd. Að vísu kann þeim að reynast erfitt að leggja niður Sósíalistaflokkinn, en þeir hafa treyst svo stöðu sína í Alþbl. í Reykjavík að þeir verða ekki hraktir þaðan á næstunni. Og það er vert að hafa í huga, að þetta félag var í upphafi í höndum I-listamanna, en þeir misstu það auðvitað út úr hönd- unum á sér af aumingjaskap. Hvar ier hetjan frá því í vor?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.