Morgunblaðið - 10.04.1968, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. APRTL 199»
flsCírgílltlMU-tíÍlr
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri: Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjóm og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið.
Áskriftargjald kr. 120.00 á mánuði innanlands.
NÝ VINNUBRÖGÐ í
OPINBERUM REKSTRI
IT'yrir nokkrum árum stóðu
* Bretar frammi fyrir því
vandamáli, að gífurlegur
rekstrarhalli var á brezku
járnbrautunum, sem eru í
ríkiseign. Við þeim vanda var
brugðizt á þann hátt, að nýr
forstjóri var ráðinn að járn-
brautarfyrirtækinu, og var
það einn af forstjórum eins
þekktasta atvinnufyrirtækis
í einkaeign í Bretlandi. Mað-
ur þessi, sem síðar var aðlað-
ur fyrir störf sín hjá brezku
járnbrautunum gerði svo rót-
tækar breytingar á starfsemi
járnbrautanna, að síðan
hefur það verið kennt við
nafn hans í Bretlandi, þegar
róttækar ráðstafanir eru gerð
ar til bóta í rekstri ríkisfyrir-
tækja þar í landi.
í Bandaríkjunum hefur það
lengi tíðkazt, að kaup-
sýslumenn, sem náð hafa góð-
um árangri í starfsgrein sinni
hafa ráðizt til opinberra
starfa í stuttan tíma og
þannig eru vandasömustu ráð
herraembætti í Bandaríkja-
stjórn yfirleitt falin þekktum
kaupsýslumönnum, eins og
t.d. embætti landvarnarráð-
herra og embætti fjármála-
ráðherra. Reynsla Breta og
Bandaríkjamanna og vafa-
laust fleiri þjóða sýnir því
glögglega, að það er mikils-
vert fyrir hið opinbera að fá
í þjónustu sína, þótt aðeins sé
um skamma hríð, menn sem
hafa sýnt og sannað hæfileika
sína og getu í einkarekstri.
Þeir koma til starfa með
annan hugsunarhátt en þeir,
sem alla tíð hafa starfað í op-
inberri þágu.
Þessi fordæmi frá Bretum
og Bandaríkjamönnum leiða
hugann að því, hvort ekki
væri ástæða til þess fyrir opin
bera aðila hér á landi, bæði
ríki og sveitarfélög, sem hafa
yfirleitt umfangsmikinn at-
vinnurekstur með höndum að
fá í sína þjónustu, þótt ekki
væri nema um skamma hríð,
einkaatvinnurekendur, menn
sem hafa byggt upp eða starf-
rækt myndarleg atvinnu-
fyrirtæki á eigin ábyrgð eða
ábyrgð hluthafanna, og stað-
ist þá raun með sóma. Eng-
inn vafi er á því, að slíkir
menn mundu koma með allt
annan hugsunarhátt til starfa
í þágu opinberra fyrirtækja
og líta á rekstrarvandamál
þeirra frá allt öðrum sjónar-
hóli en hinir, sem aldrei hafa
staðið í atvinnurekstri upp á
eigin spýtur og eigin ábyrgð.
Það er alveg ljóst, að sá að-
stöðumunur, sem ríkir hér-
lendis milli einkafyrirtækja
og opinberra fyrirtækja er
næsta fráleitur. Opinber fyr-
irtæki greiða yfirleitt ekki
opinber gjöld af rekstri sín-
um. Verði halli á rekstri
þeirra er sá halli greiddur úr
ríkissjóði, eða sjóðum sveitar-
félaga, eða þá að þjónustu-
gjöld eru hækkuð, án þess að
þörfin fyrir þá hækkun sé
athuguð af verulegri gagn-
rýni eða hvort tveggja. Þessi
aðstöðumunur opinberra fyr-
irtækja og einkafyrirtækja er
auðvitað fráleitur, og enginn
vafi er á því, að reyndir at-
vinnurekendur úr einka-
rekstrinum gætu blásið
nýju og fersku andrúms-
lofti inn í rekstur opinberra
fyrirtækja og tekið þau þeim
tökum sem þarf, líkt og
hinn brezki forstjóri gerði
með brezku járnbrautirnar á
sínum tíma.
Það er jafnvel ekki endi-
lega nauðsynlegt, að einka-
rekstursmennirnir ráðist til
fastra starfa í þágu ríkis eða
sveitafélaga. Ef hægt er að fá
þá til þess að athuga mjög
gaumgæfilega rekstur ein-
stakra opinberra fyrirtækja
þá sérstaklega á þeim svið-
um, sem þeir hafa sérstaka
þekkingu á og gera tillögur
til úrbóta væri það vafalaust
skref í rétta átt. Með þeim
hætti væri tryggt, að einka-
reksturssjónarmið ríktu í
rekstri opinberra fyrirtækja,
þ.e.a.s. sjónarmið, sem byggja
á því, að reksturinn verði að
standa undir sér, að hann
verði að greiða opinber gjöld
og að hann geti ekki hækkað
vörur sínar eða þjónustu hve-
nær sem honum sýnist.
ERLEND
LÁNTAKA
Oíkisstjórnin hefur nú lagt
**■ fram á Alþingi frum-
varp um heimild til lántöku
vegna framkvæmdaáætlunar
fyrir árið 1968 og mun vekja
mesta athygli það ákvæði
frumvarpsins að ríkisstjórn-
inni verði heimilt að taka er-
lend lán, allt að 275 millj.
króna. Að auki er svo gert
ráð fyrir, að seld verði spari-
skírteini fyrir allt að 75
millj. króna, og að tekin verði
innlend eða erlend lán, allt
að 90 millj. króna vegna
smíði tveggja strandferða-
skipa, svo og er óskað heim-
ilda til ýmissar smærri lán-
l\!fj
UTAN ÚR HEIMI
Telja Masaryk hafa verið myrtan
Ný vitni að 20 ára morðmáli
Prag, 7. apríl (NTB).
TVÖ tékknesk dagblöð,
„Smena" í Bratislava og
„Mlada Fronta" í Prag, birtu
á sunnudag- viðtal við fyrrver
andi starfsmann tékkneska
utanríkisráðuneytisins, sem
var að störfum í Cernin-
höllinni aðfaranótt 10. marz
1948, þegar Jan Masaryk þá-
verandi utanríkisráðherra
beið bana. Til þessa hefur því
verið haldið fram í Tékósló-
vakíu að Masaryk hafi framið
sjálfsmorð með því að varpa
sér út um glugga á annarri
hæð Cernin-hallarinnar, en
nú er hafin rannsókn á því
hvort ráðherrann hafi í raun-
inni verið myrtur.
Pavel Straka segir í viðtal-
inu við tékknesku blöðin áð
Masaryk hafi komið til Cern-
in-hallarinanr um klukkan
níu að kvöldi hinn 9. marz
1948, og farið til íbúðar sinn-
ar í höllinni, þar sem hann
settist að vinnu. Voru þá að-
eins fjórir menn aðrir í höll-
inni að Straka meðtöldum.
„Um 11 leytið heyrði ég há-
vaða í forsalnum, bifreiðar
námu sta'ðar fyrir framan höll
ina, og síminn varð óvirkur“,
segir Straka. „Stundarfjórð-
ungi síðar varð allt hljótt. Um
tvöleytið heyrði ég enn í bif-
reiðum úti fyrir. Að þessu
sinni var síminn virkur“.
Straka ségist nú hafa farið til
að ræða við húsvörðinn, sem
sagði honum að ganga út í
hallargar'ðinn. Hljóp Straka
Jan Masaryk.
þá út og fann lík Masaryks
um þremur metrum frá hallar
veggnum. Allir gluggar í
svefnhergi ráðherrans uppi á
annarri hæð voru lokaðir.
Stuttu seinna hringdi Straka
til vinstúlku sinnar, Olga
Scheinpflugova, og bað hana
að hlusta á útvarpið, en alls
ekki trúa því ef sagt væri að
Masaryk hefði framið sjálfs-
morð.
Við yfirheyrslu á sunnudag
sagði Olga, að frásögn Straka
væri rétt. Bætti hún því við,
að tveimur dögum eftir lá't
Másaryks hefði Straka heim-
sótt sig og endurtekið frásögn
ina. Eftir það hefðu þau ekki
hitzt, en hún hinsvegar frétt
að Straka hefði verið fangels
aður. Straka var vikið úr em
bætti í utanríkisráðuneytinu
árið 1949, og síðar var hann
dæmdur til 12 ára þrælkunar-
vinnu fyrir landráð. Hann var
leystur úr haldi árið 1960, og
starfar nú við ölgerðarhús.
Blaðið „Mlada Fronta“ seg-
ir að lögreglan muni nú yfir-
heyra Straka og kanna sann-
leiksgildi frásagnar hans.
Á laugardag skýrði Karel
Kacl, prófessor við háskólann
í Prag, frá því, að læknirinn,
sem skoðaði lík Masaryks fyr
ir greftrun, hefði verið sann-
færður um að ráðherrann
hefði ekki framið sjálfsmorð.
Læknir þessi, Hajek prófess-
or, var náinn vinur og sam-
starfsmaður Kacls, en lézt fyr
ir tíu árum. Hann benti Kacl
á ýms atríði varðandi lík
Masaryks, sem hann taldi
sanna að ráðherrann hefði
ekki framið sjálfsmorð. „Eg
hef aldrei minnzt á þetta
fyrr“, sagði Kacl. „Ég hef jafn
vel ekki sagt fjölskyldu minni
frá þessu. Ég vildi halda
verndarhendi yfir Hajek og
fjölskyldu hans. Nú hefur
stjórnmálaástandið batnað í
Tékkóslóvakíu, svo nú má ég
tala“.
Kvenfélagið á Egils-
stöðum tuttugu ára
EGILSSTÖÐUM, 5. apríl: —
Kvenfélagið Bláklukkan í Egils-
staðahreppi minntist 20 ára af-
mælis síns með samfcvæmi í Vala
skjálf sl. sunnudag. Félagskonur
sáu um skemmtiatriði og ræður
voru fluttar. Sigríður Fanney
Jónsdóttir, fyrsti formaður fé-
töku innanlands og erlendis.
Af þeim 275 millj. króna, sem
ráðgert er að taka að láni er-
lendis, er ætlunin að endur-
lána Framkvæmdasjóði allt
að 113 millj. króna vegna fjár
festingarlánasjóða og fyrir-
tækja.
Ástæðan til þess, að ríkis-
stjórnin hyggzt taka svo stórt
erlent lán, er sú, að vegna
efnahagsástandsins í landinu
er sýnt, að framboð lánsfjár
innanlands á þessu ári mun
ekki mæta lánsfjárþörf vegna
framkvæmdaáætlunar yfir-
standandi árs. Eins og menn
muna tóku íslendingar stórt
erlent lán á árinu 1963, sem
þá var boðið út á hinum opna
fjármagnsmarkaði í Lundún-
um.
Enginn vafi er á því, að
þessi lántaka mun verða til
lagsins rakti sögu þess. Sagði
hún m.a., að þótt aldur félagsins
væri efcfci hór og það teldist
enn á æskuskeiði, hefði það tölu-
vert látið til sín taka á þessum
árum, hvatt til margra framfara-
mála í hinu unga sveitarfélagi
og beinlínis stutt þau með fjár-
framlögum.
þess að örva mjög efnahags-
og atvinnulíf í landinu. Verð-
fallið á hinum erlenda mark-
aði okkar og aflabrestur hef-
ur gert það að verkum, að
veruleg peningaþröng hefur
verið í landinu um skeið og
ýmis atvinnufyrirtæki átt í
verulegum erfiðleikum af
þeim sökum.
Vafalaust munu atvinnu-
rekendur fagna því, að ríkis-
stjórnin hyggst ekki nota allt
hið erlenda lán í opinberar
framkvæmdir, þótt það fjár-
magn, sem í þær fer komi að
sjálfsögðu atvinnurekstrinum
til góða með einum eða öðr-
um hætti, heldur er ætlunin
að veita verulegum hluta
þess til atvinnufyrirtækj-
anna, ýmist í formi fjárfest-
ingarlána eða með öðrum
hætti.
Fram fcom í söguyfirlitinu, að
aðaláhugamál félagsins hefði
verið, að upp skyldi rísa kirkja
á staðnum. Til framdrátar því
málefni hefur félagið lagt í sjóð,
sem nú nemur um 200 þús. kr
f tilefni af afmælinu bárust
félaginu góðar gjafir, blóm og
skeyti.
Fyrsti formaður félagsins var
eins og áður segir frú Sigríður
Fanney Jónsdóttir, og gegndi
hún því starfi í 12 ár. Aðrir
formenn hafa verið Friðfeorg
Nielsen og Laufey Valdimars-
dóttir Snævarr, en núverandi
stjórn sfcipa Margrét Gísladóttir,
formaður, Elín Stepíhensen og
Magna Gunnarsdóttir.
87 námskeið
í norrænum
lýðháskólum
NORRÆNU FÉLÖGIN hafa boð-
ið íslendingum 87 námsstyrki á
norræna lýðháskóla næsta vetur.
Tuttugu og fimm þessara náms-
styrkja eru til Danmerkur (D.kr.
1.000.00 hver), tuttugu og fimm
til Svíþjóðar (S.kr. 25.00 á viku)
þrjátíu og fimm til Noregs (N.kr.
900.00 hver) og tveir til Finn-
lands (500 mörk hvor).
Umsækjendur skulu vera á
aldrinum 18—22 ára og sýna
vottorð um siðprýði og góða
hegðun frá tveim aðilum, t. d.
kennara, presti eða vinnuveit-
enda. Tekið verður á mótí um-
sóknum til 1. maí í skrifstofu
Norræna félagsins, Hafnarstræti
15 (opin kl. 4—7 e. h. virka
daga).