Morgunblaðið - 10.04.1968, Page 21

Morgunblaðið - 10.04.1968, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1968 21 Bldminn í atvinnulífi Siglfiröinga Það hefði þótt saga tilnæsta bæjar hér áður, að fært væri til Siglufjarðar að vetrinum til á landi og í lofti — en ekki á sjó. Breyttir tímar. Hafísinn heimsótti Siglfirð- inga á þriðjudag fyrir viku, lok aði firðinum og leitaði inn. Þá hafði lagís þakið innri hluta fjarðarins í nokkurn tíma og bjargaði hann nú bryggjum Siglfirðinga, sem margar hefðu vart þolað átökin við flotann hvita úr norðrinu. Tvær ferðir féllu niður hjá flóabátnum Drang og enn er hafísinn að lóna á utanverðum Siglufirði, þó nú sé hann svipur hjá fyrri sjón. Siglfirðingar segja, að hafís- inn 1965 hafi verið miklu verri, jakarnir stærri og þá var eng- inn Iagís tii að stöðva sókn haf- íssins inn fjörðinn. Við heimsótt um Siglufjörð á mánudag í blíð- skaparveðri. töluvert dýrari. Framleiðslu kostnaðurinn er svo hár hér á landi og eftir að söltunin flutt- ist svona mikið austur fyrir hefur komið í ljós, að flutning- ur á tunnum héðan og á Austur land er álíka mikill og kostn- aðurinn við að flytja tunnurnar inn frá Noregi. Okkur fslendingum er oft legið á hálsi fyrir það að vinna ekki sjálfir nóg sildina, sem við veiðum, og er mikill sannleikur þar í. Á Siglufirði eru tvær verk- smiðjur, sem vinna síld. Reykta Egils-síldin er vinsælt ofanálegg en verksmiðjan var ekki í gangi þegar við áttum leið um Siglu- fjörð. Hin verksmiðjan er Síld- arniðursuðuverksmiðja ríkisins — Sigló-síld og þar var allt í fullum gangi. — Við byrjuðum héma 25. marz og áttum þá um 5300 tunn- ur af hráefni, sagði Björgvin b Björn Friffbjörnsson, verkstjóri, fyrir utan frystihúsiff Segja má, að verkafólk hafi haf átgæta vinnu hér í vetur, sagði Stefán Friðbjarnarson bæjarstjóri, en verkefni fyrir iðnaðarmenn hafa verið af skom ari skammti. Blóminn í okkar at vinnulífi nú eru Tunnuverk smiðjan, frystihúsið og Sigló- síld. Tunnuverksmiðjan á Siglu- firði hóf starfsemi um áramótin Þar vinna nú 40 menn, sem smíða 2600-2700 tunnur á viku. Að þessu sinni verða um 42.000 tunnur smíðaðar í Timnuverk- smiðju ríkisins á Siglufirði, en efnið í 10.000 þar af er ókomið og tefst sjálfsagt eitthvað af völdum hafíssins. Við hittum að máli Knút Jóns son, fulltrúa hjá Síldarútvegs nefnd. Á Akureyri verða nú smíðaðar f Tunnuverksmiðju ríkisins um 24.000 tunnur, sagði Knútur þannig að í ár smíðum við alls um 66.000 tunnur. >— Þessi skipting milli tunnu- verksmiðjanna er gerð til að koma í veg fyrir atvinnuleysi á báðum stöðunum. Þetta er síð ur en svo nokkur hagræðing, því hvor verksmiðjan sem er getur auðveldlega framleitt ein þetta tunnumagn. — í fyrra var saltað í um 320.000 tunnur á Norður- og Austurlandi. Hvað með að smíða allar þessar tunnur sjálfir? — Eg mundi ekki segja, að það væri hagkvæmt fyrir okk- ur. Þörfin er svo breytileg frá ári til árs og svo erum við ekki samkeppnisfærir við erlenda tunnuframleiðendur. — Vantar mikið þar á? — Já, íslenzku tunnurnar eru Björgvin Jónsson, verkstjóri hjá Sigló-sild. Úr tunnuverksmiffjunni. Þegar við komum í Hraðfrysti- hús S.R. var verið að vinna að fiski úr togaranum Hafliða. Þarna unnu 92 manns af fullum krafti og eftir nokkurn eltinga- leik tókst okkur að ná tali af verkstjóranum, Birni Friðbjörns syni. — Hvernig hefur gengið í vet ur, Björn? — Það hefur verið með meira móti að gera héma í vetur. Fyrsta apríl sl. höfðum við fram leitt 8902 kassa, en á samatíma í fyrra var framleiðslan 5356 kassar — og þó tafði verkfallið okkur núna. Þegar lítið er hér vinna karlmennirnir í síldar- verksmiðjunni, við að undirbúa fyrir sumarið, þannig að þetta helzt allt í hendur. — Hvaða bátar leggja héma upp? — Togarinn Hafliði leggur hér upp, en hann hefur farið í eina söluferð. f vetur hafur hann lagt hér upp 350 tonn úr þremur veiðiferðum. Skuttogarinn Sigl- firðingur byrjaði hérna um mán aðamótin janúar - febrúar og hef ur lagt okkur til um 220 tonn. Þessi afli er að mestu leyti þorskur. Tveir smærri bátar rém hjá okkur út janúar, en þá fór ann ar á vertíð fyrir sunnan, en hinn — Hringur 50-60 tonn legg ur upp hér. Innan skamms bæt- ist svo annar bátur við, Fanney, sem verður gerð út á togveiðar. — Hefur ísinn ekki gert Hring erfitt fyrir um veiðar? — Jú, marzmánuður var erfið ur, en í febrúar hafði honum gengið sæmilega — Þá landaði hann hér 89 tonnum En í marz byrjaði það með ótíð, síðan kom verkfallið, þá ótíð, og loks ísinn. Þetta er ekki falleg upptalning. Síðasti róður Hrings fyrir ísinn var 26. marz, en í síðustu róðr- unum komst hann eiginlega ekki neitt. Fimmta apríl fór hann svo út aftur og lagði þá um helm- inginn af netunum, en missti þau undir ís. Það er erfitt fyrir netabátana að fá þennan ó- fögnuð yfir sig. — En nú segja þeir, að nóg- ur fiskur sé í sjónum? — Já, það er ég líka alveg sannfærður um. En það er ekki nóg, þegar ísinn hindrar bát- ana í að ná honum. Við skulum vona að ísinn hypji sig sem fyrst burt aftur, því fyrr því betra. (Ljósm.: Júlíus Jónsson. Jónsson, verkstjóri. Þessi síld var öll söltuð hérna í Siglufirði og er meiningin að vinna úr henni allri á þessu ári. — Hver eru afköstin, Björg- vin? — Hérna vinna 75 manns, þar af tuttugu stúlkur hálfan dag- inn og vinnum við að jafnaði úr 45 tunnum á dag, sem gerir 23 000 dósir. >— Þið framleiðið megnið fyr- ir erlendan markað. — Já, innlendi markaðurinn er ekki nema brot af framleiðsl- unni, en hann hefur aukizt nokk uð undanfarið. — Hvað eruð þið að fram- leiða núna? — Við vorum að ljúka við Ameríkumarkað og erum nú að vinna fyrir Rússann, sem er okkar stærsti viðskiptavin- ur. Við eigum að afgreiða til V ornauaa* Laugarásbíó: ONIBABA. Danskur texti. í auglýsingu frá Laugarás- toíó stendur að myndin sé um- deild japönsk verðlaunamynd um ástarþörf tveggja ein- •manna kvenna og baráttu þeirra um hylli sama manns. Hornaugað telur að hér sé rétt sagt frá, en þó er nauð- synilegt að bæta því við, að efnisþráðurinn sem slíkur er í sjálfu sér aukaatriði oð að- eins notaður sem átylla hins raunverulega marikmiðs. En það er, að sýna okkur á raun- sæjan hiáitt, hörmungar til- gagnlausra styrjaldia, sýna okkur, hrvernig hatur og mannvonska rnunu ávallt, að lokium, tortíma ölium viðkom- andi, að hið mannlega eðli verður aldrei umflúið og síð- ast en ekki sýzt, þá er megin- mahkmið myndarinnar það, að sýna okkur frábæran ár- augur af hendi leikstjórans, Kanedlo Shindo og hve langt Japanir hafa náð í listrœnni og tæknilegri uppbyggingu kvikmynda. — Leikarar eru mjög góðir og þó fyrst og fremst Nobuko Otowa. Þeir, sem koma til með að sjá þessa mynd og þeir verða vonandi margir, ættu að tafca til samanburðar bandaríska glansmyndagerð og þessa kvikmynd Japana. Sömuleiðis er atíhyglisvert að bera sam- an Látabrögð og andiitsgerfi annarsvegar t. d. Jack Lemm- on og Paul Newman, en hins vegar Kei Sato, — KVik- myndin Onibaba er tvimæla- laust frábær. Það er ekkert það atriði í uppbyggingu myndarinnar, sem hægt er að hallmæia og hún er tvímæla- laust mikið framlag til al- þjóðlegrar kvikmyndalistar. — Sagan segir frá tveimur konum, sem búa við algert karlmannsleysi og hafa ofan í sig og á, með því að drepa liðhlaupa, afklæða þá og selja síðan herklæðin. Þá ber svo við að karlmaður nokkur kemur fram á sjónarsviðið og árangurinn verður brártt sá, að á sýningartjaldinu hefst hinn innilegasti ástarleikur. Það er óhætt að segja að myndin sé raunsæ og í fyrsta skipti í þau fjöldamörgu ár, sem Horneyglar hafa sótt kvilkmyndaíhiús, voru allir .seztir áður en sýning hófst hans rúmlega 500.000 dósir fyr- ir miðjan maí. — Er öll framleiðslan seld fyrirfram? — Já, við framleiðum ekki öðru vísi. — Hvað er nýjast í markaðs- málunum? — Það nýjasta er Þýzkalands markaður, sem við framleiddum dálítið magn á til reynslu. — Hvernig gengur þetta allt fyrir sig? — Áður en hægt er að vimna úr síldinni, þarf hún að geymaat Framhald á bls. 23 eftir hiié. En söguþráðurinn toeldur áfram og það slakar hvergi á spennunnni. Með tH- liti til Laiugarásbíós, verður þó ekki f j-allað nánar um hann en full ástæða er að hvetja til góðrar aðsóknar. Stjömubíó. ÉG ER FORVITIN. íslenzkur texti. Þessi kvikmynd Vilgot Sjö- man er tvímælalaust argasta klám, sem sýnt hefur veriff af íslenzku kvikmyndahúsi, fram til þessa. Efnisþráffurinn er hrein og bein þvæla og þaff er engu líkara en alger fáviti 1 hafi samiff hiff talaffa mál. Myndin virffist eingöngu í giegna því hlutverki, aff aug- I lýsa kynfæri þeirra Lenu Ny- man og Björge Ahlstedts. Forráffamönnum Stjömu- bíós er lítill heiffur af sýningu þessa óþvera. sem fyrst og fremst er fulltrúi úrkynjun- ar í sænskri kvikmyndagerff. Hornaugaff mælir meff lé- legri affsókn. Það er nú meiri andsk ..., þegar nýliðar og þrautþjáLf- aðir meðlimir í hópi íslenzkra fáráðlinga, taka upp á þeim óvanda að sækja kviðmynda- hús, í þeim tilgangi einum, að láta, meðan á sýningu stend- ur, sem mest af fíflyrðum og uppili’tuðu pöddugjálfri, út úr þessum svokölluðu skoltum, sem talfæri nefnast á venju- legu fólki. Hér er aðeins um eina hugsanlega úrbót að ræða. Sýning skal stöðvuð þegar í stað. Síðan skulu mestu finnanlegir kraifta- menn, úr hópi siðaðra álhorf- enda, taka þessa síkjaftandi imiba, berja þá og varpa þeim síðan á dyr, heiðarlegu fólki til óhlandinnar ánægju. Síðan skal slökkt og sýningu haldið áfram. Horneyglar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.