Morgunblaðið - 10.04.1968, Síða 32

Morgunblaðið - 10.04.1968, Síða 32
FERflA-OG FARANGURS ALMENNAR TRYGGINGAR g PÓSTHÚSSTRÆTI 9 SÍMI 17700 MIÐVIKUDAGUR 10. APRlL 1968. INNIHURÐIR i landsins i mesta urvali SIGUPŒíUR ELÍASSON HF. AUÐBREKKA 52—54, KÓPAVOGI. Tíu ára drengur beið bana í gær — Lenti undir strætisvagni TÍU ára drengur beið bana í um íerðarslysi í Reykjavík í gær, er hann varð íyrir strætisvagni. Slysið varð um kl. 10,30 á gatna- mótum Miklubrautar og Suður- landsbrautar. Strætisvagninn hafði stanzað á gatnamótunum, áður en hann ók vestur Suður- landsbraut, samkvæmt framburði sjónarvotta. Drengurinn hjólaði fram með vagninum, en bílstjór inn hafði áður séð hann og far- Hettusótt í bænum MIKIÐ er um hettusótt í Reykja vík og fara sjúkdómstilfelli vax andi. Bragi Ólafsson, aðstoðar- borgarlæknir, tjáði blaðinu, að í síðustu viku hefði verið tilkynnt um 105 hettusóttarsjúklinga, en 79 vikuna á undan. Ekki koma þó öll kurl til grafar í þeim töl- um, því ekki er tilkynnt um marga sjúklinga. Hettusóttin er yfirleitt væg. Þó kvað Bragi fúlla ástæðu til að brýna fyrir þeim, sem fá hana, að fara vel með sig. Engin lyf eru til við veikinni sjálfri, aðalatriðið er að fara gætilega. Inflúensan, sem talsvert hefur verið um, er nú að verða búin. En dálítið er um kvef og háls- bólgu, þó ekki meira en venju- lega á þessum árstíma. Einnig er lítilsháttar um hlaupabólu, en þeim sjúkdómstilfellum fer ekki fjölgandi. ið fram úr honum. Mun drengur inn hafa verið á móts við vinstra framhjól, er strætisvagninn ók af stað, þegar umferðin leyfði. Drengurinn hefur fallið og lent á milli hjólanna. Vagnstjór inn, sem leit í hliðarspeglana, sá ekkert. Hann heyrði svo högg og stanzaði. Lá drengurinn þá aðeins aftar en við miðja hlið vagnsins. Hann var fluttur á Slysavarðstofuna og þaðan á Landakot, en var látinn er þang að var komið. Vegna þess að ekki hafði í gærkvöldi tekizt að ná í alla að- standendur drengsins, verður nafn hans ekki birt í dag. DÓMUR HÆSTARETTAR: Hjónabandið var lögmætt — þó presturinn vœri ekki þjónandi í GÆR var kveðinn upp í Hæsta rétti dómur í máli, sem vakið hefur mikla athygli, en þar kom til álita, hvort löglega hefði í upphafi verið stofnað til hjúskap ar, þar sem vígsla var ekki fram kvæmd af þjónandi presti þjóð- kirkjunnar. Niðurstaða málsins í Hæstarétti varð sú, að um lög- mætt hjónaband hefði verið að ræða. Málavextir voru þeir, að þ. 15. september 1962 voru aðilar máls- ins, þau Kristinn Jónsson og Ingibjörg Jóhanna Hermanns- dóttir, gefin saman í háskóla- kapellunni og framkvæmdi at- höfnina Björn Magnússon pró- fessor við guðfræðideild Háskóla íslands. Aðilar slitu samvistir síðla árs 1963 og hinn 26. marz 1964 veitti dómsmálaráðherra þeim leyfi til skilnaðar að borði að sæng. Hinn 30. ágúst 1965 fór lögmaður konunnar þess á leit við skiptaráðandann í Suður- Múlasýslu, að hann tæki bú að- ila til opinberra skipta. Maður- inn mótmælti þeirri kröfu á þeh forsendum, að óbær vígslumað- Framhald á bls. 23. Hrefna í ís Hrefna stingur höfðinu upp ( úr einni vökinni milli hafís- 1 jakanna fyrir norðan land.1 Steingrímur Kristinsson, há- seti, á Haferninum, festi hana i umsvifalaust á mynd. Mikið var af hrefnum, höfrungum1 og selum á ísnum, er Haförn-1 I inn var að brjótast þar í gegn, en enga isbirni sáu skipverj- ’ ar. Alvarlegur vöruskort- ur á Seyðisfirði — Sumar vörur skammtaðar Seyðisfirði, 9. apríl. EFTIR áramótin hafa strand- ferðir verið fremur strjálar. Ým issa orsaka vegna voru vöru- birgðir í verzlunum frekar litlar þegar verkfall skall á. Þann 7. marz var Kaupfélagi Austfjarða lokað, en kaupfélagið var stærsta matvöruverzlunin á Seyð isfirði. Aðrar verzlanir hefðu sennilega getað fullnægt verzl- unarþörfinni nokkurn veginn, ef samgöngur hefðu verið í sæmi- legu lagi. Síðan verkfallið leystist hefur aðeins fallið ein vöruflutninga- ferð frá Reykjavík, en það var Blikur 28. marz. Esja kom frá Akureyri 27. marz. Þá var vöru- skorturinn orðinn svo mikill að biðraðir mynduðust í aðalmat- vörubúðinni. Þá fengust kartöfl ur, sem ekki höfðu sézt í marg- ar vikur. Sumar vörur voru skammtað- ar, t.d. 10 kg. af kartöflum, 1 kg. af gulrófum og 1 kg. af lauk. Ekki veit ég hvort allar algeng- ustu matvörur komu með þesa- um tveimur vöruflutningaferð- um, sem fallið hafa síðasta mán- uð, en mér er sagt að nú sé færra það sem fæst en það sem Framhald á bls. 31. Ráðherrafrú Ragnheiður Hafstein skírði varðskipið nýja í Aalborg i gær. Kýja varðskipiö hlaut naf nið Ægir NÝJA varðskipinu, sem er í smíðum hjá Aalborg Værft var i gær kl. 14.30 gefið nafnið Æg- Ir. Skipið skírði frú Ragnheiður Hafstein, kona dómsmálaráð- herra. Viðstaddir athöfnina voru Jó- hann Hafstein, dómsmálaráð- herra, Gunnar Thoroddsen, am- bassador í Kaupmannahöfn, Pét ur Sigurðsson, forstjóri Land- helgisgæztunnar og fjöldi ann- arra gesta, íslenzkra og danskra. Áætlað er að smiði skipsins verði lokið síðari hluta maímán aðar. Gamli Ægír er nú til sölu og Framhald á bls. 31. Skortur á nauðsynja- vörum á Raufarhöfn Raufarhöfn: VANDRÆÐA ástand ríkir hér vegna skorts á nauðsynjavörum. Algjör vöntun er hér á kaffi, sykri, hveiti, grjónum og fleiru. Vegna brunans í frystihúsinu 1 vetur er heldur ekkert kjöt að fá hér flesta daga, þótt öðru hvoru berist kjötsendingar frá Kópaskeri. Þá hafa íbúar hér ekki séð ávexti frá því um jól, en nýlega barst okkur mjólk frá Húsavík og þótti okkur gott að fá hana, enda þótt hún væri orðin hálfs mánaðar gömul. Lítið hef- ur verið um skipakomur. Aðeins eitt skip hefur komið eftir verkfall, Blikur, én þeim fyrir sunnan lá svo á að senda skipið burt úr Reykjavík, að það var algjörlega tómt af varningi, þegar hingað kom. Síðasta skip- ið, sem kom með vaming, var Esjam og var það einhvern tíma í febrúar. Olíulítið er að verða hér, en þó mun hún duga okk- ur til mánaðamóta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.