Morgunblaðið - 25.04.1968, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.04.1968, Blaðsíða 1
32 SiÐUR 83. thl. 55. áre. FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1968 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Sumardagurinn fyrsti hefur u n langt skeið verið helgaður æsku landsins sérstaklega. Þessa mynd af tápmiklum og lífs- glöðum bömum tók Ólafur K. Magnússon í porti Miðbæjarskól ans nú í vetrarlokin. Suður-Afríku neitaö um þátt- töku í Olympíuleikunum Lausanne, Sviss, 24. apríl AP-NTB SUÐUR-AFRÍKU verður ekki leyft að taka þátt í Ol- ympíuleikunum í Mexíkó í sumar, að því er Olympíu- nefndin ákvað á fundi síminiv í gær. Þar var samþykkt með 41 atkvæði gegn 13 að úti- ! loka Suður-Afríku frá þátt- ' töku. Atkvæðagreiðslan var látin fara fram að nýju, þar eð 50 ríki af 71 höfðu lýist yfir ein- dreginni andstöðu við fyrri stefnu undirbúningsnefndarinn- ar, að S-Afríka fengi að senda lið til keppninnar. Nægilegt hefði verið, að sex ríki hefðu greitt atkvæði gegn þátttöku S-Afríku. Hvirfilbylur banar12 — 200 slösuðust Cincinnati, Ohio, 24. apríl NTB-Reuter TÓLP manns biðu bana og yfir tvö hundruð slösuðust í miklum hvirfil'byl, sem gekk yfir Ken- tucky, Ohio og Tennessee í fyrradag. Eignatjón er metið á yfir tuttugu milljónir dollara. Mestir skaðar urðu í smábæn- um Falmouth í Kentucky, þar sem þriðji hluti bæjarins var í rústum eftir óveðrið og 700 íbú- ar af 2600 eru heimilislausir. Forseti Alþjóða Óiympíunefnd arinnar, Avery Brundage, segir í orðsendingu ,sem hann las upp að fundinum loknum, að nefnd- in hefði ekki beygt sig fyrir hót unum af neinu tagi af hendi þeirra, sem ekki skilja hinn sanna Olympíuanda, en Brun- dage lagði áherzlu á, að undir- búningsnefndin hefði staðið and spænis djúpstæðum ágreiningi meðal almenningsálitsins í heim inum, sem hefði getað stofnað starfsemi Olympíunefndarinnar í voða og eyðilagt leikana í Mexíkóborg í sumar. Suður-Afríku var einnig mein uð þátttaka í leikunum í Tókíó 1064. í ár hafði S-Afríika. ákveð- ið að senda bæði hvíta íþrótta- menn og þeldökka saman til leik anna, þegar nefndin lýsti því yfir í febrúar, að landinu væri heimilt að senda lið til keppn- innar. Þegar hafa mörg ríki lýst ánægju sinni með þessa niður- stöðu nefndarinnar og er ákvörð un hennar víða fagnað. Sovézk skdld toko mótmæli uftur Moskvu, 24. arpíl — NTB ALLMARGIR sovézkir rithöf- undar ,sem skrifuðu undir mót- mælaskjal gegn Ginsburg-réttar höldunum, hafa fengið aðvörun frá sovézku rithöfundasamtökun um um, að þeim verði ef til vill meinað að starfa i þeim fram- Frarnh. á bls. 31 París val- ' in fundar- staöur ? U Thant skorar á deiluaðila New York, Washington, 24. apríl. AP—NTB. U THANT, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, skoraði í ♦ dag á stjórnir Bandríkjanna og Norður-Vietnam að komast að samkomulagi um fundarstað, þar sem undirbúningsviðræður um frið í Vietnam gætu farið fram. Hann skoraði á deiluaðila að draga úr styrjaldaraðgerðum og bæta þannig andrúmsloftið. Hann sagði, að loftárásir Bandrfkja- manna á Norður-Vietnam hefðu harðnað að undanförnu þótt þær takmörkuðust við minna svæði en áður og margt benti til þess að átökin í Suður-Vietnam mundu harðna á næstunni, en ! s'líkt ástand væri óheillavænlegt i við upphaf friðarviðræðna. U Thant kvaðst telja, að Varsjá | eða París gætu orðið góðir fund i arstaðir. f Was!hington sagði talsmaður utanrikisráðuneytisins í dag, að Bandaríkjastjórn hefði aftur sett sig í beint samiband við Norður- Vietnamstjórn síðustu daga til þess að reyna að ná samkomu- lagi um fundarstað og ný orð- sending hefði verið send til Hanoi síðan Dean Rusk utan- rí'kisráðherra stakk upp á 15 fundarstöðum í síðustu viku. Johnson forseti hefur létið svo um mælt í viðtölum við diipló- mata, að hann viti ekki hvort Hanoistjórnin hafi raunverulega áhuga á samkomulagi um fund- arstað eða hvort eitttovað annað vaki fyrir henni, hermir AP. Gefið hefur verið í skyn í Was- hington, að það eina sem vaki Framh. á bls. 2 Ætlaöi að myrða Kurt Kiesinger Missti kjarkinn á síðustu stundu Freiburg, V-Þýzkalandi, 24. apríll. — NTB | LÖGREGLAN í Freiburg í I Vestur-Þýzkalandi handtók á 1 þriðjudagskvöldið 29 ára 13 Pólver jum til viðbótar vikið frá A.m.k. 80 menn, aðallega Cyðingar, hafa fallið í ónáð Varsjá, 24. apríl. — NTB 13 HATTSETTIR pólskir em- bættismenn hafa verið sviptir störfum, og þar með hafa 80 menn fallið í ónáð síðan hreins- anirnar í Póllandi hófust eftir stúdentaóeirðirnar í vetur. AFP hermir, að talið sé í Varsjá að flestir þeirra, sem sviptir hafa verið störfum séu Gyðingar. í hópi þeirra, sem hafa verið sviptiir störfum og reknir úr kommúnistaflokknum, er Wil- heim Strasser, fyrrveirandi skrif- stofustjóri í ritskoðunarráðinu. Framh. á bls. 2 Kurt Kiesinger gamlan niann, Arthur Wil- helm Buhlinger, eftir að hann hafði látið af hendi hlaðna skammbyssu og lýst því yfir, að hann hefði haft í hyggju að skjóta Kurt Kiesinger. kanzlara. Kiesinger var i heimsókn í Freiburg og hafði farið inn á veitingahús, ásamt föruneyti, til að fá sér hressingu. Buhlinger sagði lögreglunni, að hann hefði verið staðráðinn í að skjóta kanzlarann. 1 þvi augnamiði leigði hann sér bifreið, stal skammbyssu og veitti Kiesinger eftirför. Buhlinger elti kanzlar- an síðan inn á veitingahúsið og stóð aðeins fáeina metra frá honum, þegar hann hætti við fyrirætlan sina og gaf sig fram við nærstadda lögreglumenn. Hann kvaðst hafa misst kjark- inn, er hann horfðist í augu við kanzlarann. Lögreglan segir, að um per- sónulega hefnd Buhlingers gegn þjóðfélaginu hafi verið að ræða. Buhlinger vsir hinn reiðasti yfir því, að fyrr í þessum mánuði var hann dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir svik, en sá dóm- ur hefur þó enn ekki verið stað- festur. Lögreglan segir jafn- framt, að ekki leiki neinn gxrun- Framh. á bls. 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.