Morgunblaðið - 25.04.1968, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 25.04.1968, Blaðsíða 7
IfOKGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1968 7 „öpp í skóg a Kaffisala Skógar- manna í dag Eins og undanfarin ár efna Skógarmenn KFUM til kaffi- sölu á sumardaginn fyrsta, og hefst hún í húsi KFUM og K við Amtmannsstíg kl. 2 síð- degis Kaffisalait er haldin til áaóða fyrir hina nýju skála- byggingu í Vatnaskógi. Um kvöldið kl. 8.30 verður svo haldin samkoma á sama stað, þar sem Skógarmenn skemmta með söng, upplestri, hljóðfæraleik og fleiru. Starf Skógarmanna er löngu þjóðiþekkt, og margir eru þeir drengir og unglingar, sem í Vatnaskógi hafa dval- izt, sér tl líkamlegrar og and- legrar hreysti. að var árið 1923, sem Séra Friðrik, gekk með tveim piltum upp í Skóg til að velja stað fyrir sumar- starfið. Piltarnir voru þeir bræðurnir Hrólbjartur Árna- son og Ingvar Árnason. Stað- inn, sem valinn var, nefndu þeir Lindarrjóður, og þar reis svo síðar myndarlegur skáli, sem fyrir löngu or orðinn of lítill, og því er nú nýr í bygg Á bakka Lindarinnar í Vatnaskógi stendur þessi fallega kapella. ingu, og til ágóða fyrir þá byggingu er kaffisalan hald- n í dag. Á bökkum Lindar- innar, þar sem eitt sinn var reist gamla bænatjaldið er nú fyrir alllöngu risin falleg kap ella. Varla þarf að efa það, að margur leggur leið sína á fund Skógarmanna í dag. Þeir eiga marga vini hér í borg. Minningu séra Friðriks er jafnframt með þvi sýndur virðingarvottur, því að sumar búðastarfið í Vatnaskógi var honum hjartfólgið mál. Svo sem kunnugt er, hefði séra Friðrik orðið 100 ára næst- komandi 25. maí, ef honum hefði enzt líf og heilsa. — Fr. S. Gamli skálinn í Vatnaskógi er fyrir löngu orðinn of lítill. Til ágóða fyrir hina nýju skálabyggingu, efna Skógarmenn til kaffisölu í dag. sá NÆST bezti Guðmundur í Múla á landi var að hæla bónda einum þar í sveit- inni við Jón í Holtsmúla, en hann var fóðurskoðunarmaður Bóndi þessi þótti fóðra skepnur illa. Jón hlustar rólega á hól Guðmundar um bónda, þangað til hann segir: „Þú ættir að vera vetrungur hjá honum“. Vísukorn Tíminn líður, lengir daginn. Lífið töfra geisla fær. Sporðar stækka, spdra fræin, spáir Máriuerla og hlær. Kristján Helgason. Okkur vantar fyrripart al vísu, sem Jón Jónatansson, skáld fyrir vestan, orti, meðan á Skúlamálum stóð. Hafði Jón hitt Grím Jónsson kennara á förnum vegi, og beðið hann urn vísu um Skúla, fremur niðrandi. Kastaði Jón þá fram vísu, og af henni vantar fyrri partinn, en seinni parturinn er svona: „Ég treysfi ei að taka að mér, tign svo háa, Grímur.“ Góðfúslega, þeir sem kunna, sendi Dagbókinni svörin. Áheit og gjafir Gjafir til Slysavarnafélags fslands frá 1. jan. 1968 tll 19. aprfl 1968. Gjöf frá frú Helgu Sigurðardóttur 1 minningu um mann sinn Egil Vil- hjálmsson 25000. Gjöf frá svd. kvenna Dalvík 9.553.75. Gjöí frá íibúum Egils- staðahrepps o*g nágrennis til minning ar um Jónatan Clausen, I>orgeir Berg- mann og Víðir Ágústsson er fórust 1 bifreiðaslysi 6. des. 1967 10000. Gjöcf frá slysavarnadeildinni Mannbjörg I>orlálkshöfn í tileifni af 40 ára acftmæli félagsins 20000. Gjöf frá slysavarna- deild kvenna Dalvílk í tilefni 40 ára afmæli félagsins 25000. Gjöf frá slysa- varnadeild karla Dalvík í tilefni af 40 ára afmæli félagsins 25000. Gjöf frá slysavarnadeild kvenna Neskaupstað i tilefni af 40 ára afmæli félagsins 25000. Gjöf frá slysavarnadeild kvenna Raufaiihöfn í tilefni af 40 ára afmæli félagSijis, til kaupa á labb-rabb tal- stöðvum 9554. Áheit frá H.B. 200. Gjöf frá slysavarnadeildinni Björg Eyrarbakka í tilefni 40 ára afmælis félagsins 207.966.64. Gjöf frá N.N. 1000. Gjöf frá slysavarnadeild kvenna Akra nesi í tilefni 40 ára aifmaeli félagsins 25000. Gjöf til minningar um Svein- björn Einarsson útgerðarmann frá Endagerði 1500. Gjöf frá slysavarna- deildinni Framtíðinni Hornafirði 7500. Áehit frá K.M. 200. Gjöf frá slysa- varnadeildinni Framtíðin Höfn Horna firi í tilefni af 4i0 ára afmæli félagsins 15000. Gjöf frá Dansk kvindeklubb 2525. Gðjöf frá vinnufélögum Kefla- víkurflugvelli til niinningar um Jakob M. Bjarnason 3360. Gjöf samkvæmt erfaskrá hjónanna Maríu Halldórs- dóttur og Filippusar Björnssonar Klöpp Stokkseyri 180.044. Gjöf frá slysavarnadeild kvenna ísafirði í til- efni 40 ára afmæli félagsins 81.736.44. Samtals kr. 670.139.83. Akranesferðir Þ. Þ. 1». Frá Akranesi mánudaga, þriðju- daga, fimmtudaga og laugardaga kl. 8, miðvikudaga og föstudaga kl. 12, sunnudaga kl. 4.15. Frá Reykjavík kl. 6 alla daga nema laugardaga kl. 2 og sunnu- daga kl. 9. H.f. Jöklar Hofsjökull fór í gær frá Dublin til íslands og lestar á Faxaflóahöfnum. Vatnajökull fer væntanlega í dag frá Bergen til Hamborgar, Lundúna og Rotterdam. Skipadeild S.Í.S. Arnarfell losar á Norðurlandshöfn- um. Jökulfell lestar á Austfjörðum. Dísafell losar á Norðurlandshöfnum. Litlafell fer frá Reykjavík 1 dag til Þorlákshafnar. Helgafel'l losar á Norð urland&höfnum. Stapafell fer frá Reykjavík í dag til Norðurlandshafna. Mælifell losar á Noröurlandshöfnum. Skipaútgerð Ríkisins Esj<a er á Vestfjörðum. Herjólfur fer frá Vestmannaeyjum í dag til Hornafjarðar. Blikur er á Norður land9höfnum á austurleið. Herðubreið er á Norðurlandshöfnum á vesturleið. H.f. Eimskipafélag íslands Bakkafoss fór frá Hvammstanga í gær 24. 4. til Sauðárkróks, Odda, Kristiansand og Gautaborgar. Brúar- foss fór frá Reykjavíik í gærkvöld 24. 4. til Grundarfjarðar, Bíldudals Akur eyrar, Súgandafjarðar og ísafjarðar. Dettifoss fór væntanlega frá Ventspils í gær 24. 4. til Kotka og Reykjavíkur. Fjallfoss fór frá New York 17. 4. til Reykjavíkur. Goðafoss fór frá Ham- borg 23. 4. til Reykjavíkur. Gullfoss er í Kaupmannahöfn. Laganfoss fór frá Mo í Ranefjord 23. 4. til Kristian- sand, Hamborgar og Reykjavikur. Mánafoss fór frá Reykjavík í fyrradag 23. 4. til Seyðisfjarðar, Bremen, Lond- on og Hull. Reykjafoss fór frá Hull 23. 4. til Antwerpen, Rotterdam og Hamborgar. Selfoss fór frá New York í gær 24. 4. til Reykjavíkur. Skógafoss fór frá Reykjavík kl. 11.30 í gær 24. 4. til Keflavíkur, Akranes, Moss, Gautaborgar, Kaupmannahafnar og Hamborgar. Tungufoss fór frá Akur eyri í gær 24. 4. til Gdynia, Ventspils og Kotka. Askja fór frá Antwerpen í dag 24. 4. til London, Leitih og Reykjavíkur. Kronprins Frederik er væntanlegur til Reykjavíkur í dag 25. 4. frá Færeyjum og Kaupmannahöfn. Havlyn fer frá Kaupmannahöfn í dag 25. 4. til Reykjavíkur. Flugfélag íslands hf, Millilandaflug: Gullfaxi fer til Glasgow og Kaup- mannahafnar kl. 08:30 í dag. Væntan legur aftur til Keflavíkur kl. 18:10 í kvöld. Vélin fer til Lundúna kl. 08:00 í fyrramálið. Væntanleg aftur til Keflavíkur kl. 14:16 á morgun. Leigu flugvél Flugfélagsins fer til Vagar, Bergen og Kaupmannahafnar kl. 14:00 á morgun. Væntanleg aftur til Reykja víkur á sunnudag. Innanlandsflug: í dag er áætlað að fljúga til: Akur- eyrar (2 ferðir), Vestmannaeyja (2 ferðir), Patreksfjarðar, ísafjarðar, Egilsstaða og Sauðárkróks. Á morgun er áætlað að fljúga til: Akureyrar (2 ferðir), Vestmannaeyja (2ferðir), Hornafjarðafr, ísafjarðar, Egilsstaða og Húsavíkur. Einnig verð*- ur flogið frá Akureyri til: Raufar- hafnar, I>órshafnar og Egilsstaða. Loftleiðir hf. Leifur Eiríksson er væntanlegur frá New York kl. 0930. Heldur áfram til Luxemborgar kl. 1030. Er væntanleg ur til baka frá Luxemborg kl. 0200. Heldur áfram til New York kl. 0300. Snorri borfinnsson fer ti'l Óslóar, Kaupmannahafnar og Holsingfors kl. 1030. Eiríkur rauði er væntanlegur frá Kaupmannahöfn, Gautaborg og Ósló kl. 0130. Útsaiunur Kenni útsaum. Uppl. í síma 10002 kl. 6—8. Dómhildur Sigurðard. kennari. Köttur Svart- og hvítflgkkótt læða týndist frá Hagamel 23, sl. laugard. Fundarlaun. — Sími 20608. Tvíburavagn Nýlegur vel með farinn tvíburavagn til sölii. Uppl. í síma 1506, Vestmanna- eyjum. Eldhúsinnrétting Til sölu er gömul eldhús- iinnrétting, hentug í sumar bústað. Uppl. í síma 81786 eftir kl. 7. 2ja—3ja herb. íbúð óskast sem fyrst. Uppl. í síma 20409 kl. 1 e.h. Sníð og máta kjóla Jónína Þorvaldsdóttir Rauðarárstíg 22. Loðhúfur pífublússur, kjólabrjóst, uppslög, unglingakjólar, útsmiðin pils. Kleppsveg 66, III. h. v. Sími 30138. Reglusöm fjölskylda vill tafca 2ja—3ja herb. íbúð til leigu gegn skil- vísri mániaðagreiðslu. Uppl. í shna 84245. íbúð óskast Kennarj óskar eftir 2ja herb. íbúð fyrir 1. júní nk. Tvennt fullorðið í heimili. Uppl. í síma 40167. Keflavík — Suðurnes Ný sending, dragtaefni, sumarkjólaefni, blússuefni og buxnaefni. Hrannarbúðin. Klæðum og gerum við bólstruð hús gögn. Gerum tilboð. Úrval áklasða. — BÓLSTRUNIN, Strandgötu 50, Hafnarfirði. Sími 50020. Trésmíðavél Hjólsög með búrsleða ósk- ast. Upplýsingar hjá J. P. innréttingar, símar 31113 og 38832. Til sölu er Skoda Felexía árg. ’61 í góðu ásigkomulagi. Lítil útb. Eftirst. með fasiteigna tr. skuld'abr. Tilb. sendist Mbl. merkt: „5092“. Bílskúr í einhverju ásigkomulagi ósfeast. Má vera utanbæjar, en þarf að veira með vatni og rafmagni. Uppl. í síma 19264 eftir kl. 18. Keflavík — nágrenni 2ja—3ja herb. íbúð óskast til leigu um næstu mánaða. mót, fyrir bandarísfea fjöl skyldu. Uppl. í síma 1910 og 1194, Keflavík. 3ja herb. íbúð ásamt góðum geymslum og meiru til leigu frá 1. júní n.k. Ib. er í blokk vi!ð Eski hlíð. Einhv. fyrirframgr. nauðsynl. Uppl. í s. 17810. Hafnarfjörður Umþoðsskrifstofa vor er að Vesturgötu 10, sími 52680. Hagtryggingar h.f. Skrifstofustarf óskast Vanur maðuir óskar eftir skrifstofustarfi. Tilb. m.: „Reglusamur 8513“ sendist afgr. Mbl., sem fyrst. Atvinna óskast 21 árs gömul stúlka óskar eftir atvinnu. Hefur ensku feunnáttu og er vön verzl- unarstörfum. Uppl. í síma 32941 í dag og næstu daga. Óskum að kaupa bát 2ja—3ja tonna. Skipti á bíl möguleg. Til'boð merkt: „1116 — 891“ sendist Mbl. fyrir 30. þ. m. Reglusöm f jölskylda óskar eftir 3ja—4ra herb. íbúð til leigu. Fyrirfram- greiðsla ef óskað er. — Uppl. í síma 24650. Garða- og Bessastaðahr. Umboðsskrifstofa vor er að Vesturgötu 10, Hafnarfirði. Sími 52680. Hagtrygging h.f. íbúð til leiiiii Endaíbúð á 4. hæð, 3 svefnherbergi og stofur er til leigu næstu 1:—2 ár. íbúðin er teppalögð og gluggatjöld fylgja. Til greina getur komið að leigja íbúðina með húsgögnum, öllum húsbúnaði og síma. Hitaveita. Tilboð merkt: „Fellsmúli — 8511“ leggist inn á afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir hádegi laugardag- inn 27. apríl Úr, klukkur, gjafavörur stórkostlegur uislóttur Til mánaðamóta seljum við allar vörur verzlun- arinnar á stórlega niðursettu verði. Mikið úrval. — Gerið góð kaup. Úrsmiður — Laugavegi 25 Ingvar B. Benjamínsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.