Morgunblaðið - 25.04.1968, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1968
3
Landsprófsnemendur glíma við dönskuprófið.
STAKSTEINAR
Þegar Einar
var við völd
Það er vafalaust verk margra
manna að halda Sósíalistaflokkn-
um og Alþýðub.l. saman, þrátt
fyrir mjög ólík viðhorf margra
þeirra, sem innan þessara flokka
hafa starfað, en líklega þó
einn maður öðrum frepiur heið-
urinn eða skömmina af því að
hafa gert það og sá maður er
Einar Olgeirsson. Því verður
ekki móti mælt, að allan þann
tima, sem Einar Olgeirsson var
í forustu fyrir Sósíalistaflokkn-
um tókst að halda þeim flokki
saman og meðan hann var einn
helzti forustumaður Alþýðu-
bandalagsins klofnaði það ekki
með öllu. Sumir segja raunar, að
Einar hafi alltaf „grátið“ þessi
flokkssamtök saman í bók-
staflegri merkingu og er það
raunar ekki ólíklegt.
Reyndust ekki
vandanum vaxnir
En með sama hætti og það
er staðreynd, að meðan Einar
<.
1221 nemandi þr eyti landspróf í ár
LANDSPRÓFIÐ 1968 hófst kl.
9 í gærmorgun með prófi í
dönsku. 1221 nemandi þreytir
landspróf að þessu sinni og er
það langmesti fjöldi til þessa, að
því er Andri ísaksson, formað-
ur landsprófsnefndar, tjáði Mbl.
í gær. í fyrra þreyttu 1029 nem-
endur landspróf. Tvær breyting-
ar hafa orðið á skipan lands- ,
prófsnefndar: Höröur Bergmann .
samdi nú dönskuprófið í stað j
Ágústs Sigurðssonar áður og'
Heimir Áskelsson samdi ensku-
prófið, sem Jón heitinn Magn-
ússon sá áður um.
Landsprófið er nú með mjög
breyttu sniði. í stað þriggja
vikna upplestrarfrís í byrjun og
stutts tíma milli prófa er próf-
unum nú dreift á lengri tíma,
þannig, að nemendur fá þrjá og
upp í fimm, sex daga til lesturs
miili prófanna.
Hér fara á eftir málfræði-
spurningarnar og stíllinn, sem
landsprófsnemendur glímdu við
í gærmorgun:
Málfræði:
1. Setjið lýsingarorðin ung
eða gammel inn í eyðurnar
i réttri mynd:
To . . mænd tog imod os.
Den . af dem var cirka
femten ár gammel, men den
.... var nok lidt over tyve.
De spurgte, hvor .... vi
var.
2. Setjið forsetningar í eyð-
urnar:
Jeg er bange . . ., at han
ikke har interesse .... det
mere.
3. Setjið fallorðin í eftirfar-
andi setningum i fleirtölu:
Hun kom með sin sön hjem
til dig i gár, men der var
ingen hjemme. Var det
hende, der kom?
4. Breytið í þátíð:
Vi ved alle, at selv om han
ikke siger noget og trækk-
er pá skuldrene, sá for-
tryder han det hele. Han
tör sikkert ikke bede om
forladelse.
5. Skrifið á dönsku: fertug-
asti, fimm og tveir þriðju
þriðju (hlutar), hálfsextug-
ur.
6. Sýnið tvenns konar nútíð
þolmyndar af sögninni at
finde og skýrið af dæmun-
um, hvernig þolmynd
myndast í döns'ku.
Still:
Þegar sólin skín á sumrin, er
gott að vera uppi í sveit. Marg-
ir eiga þar ættingja og vini, sem
þeir geta heimsótt. Þvi miður
eru vegirnir oft slæmir og því
ekki hægt að aka hratt.
íbúar höfuðborgarinnar fá
dagblöðin sín snemma á morgn-
ana. Aðrir fá þau kannski ekki
fyrr en um hádegi eða seinni
hluta dags. Áður fyrr lásu ís-
lendingar meira en nú, en blöð-
in eru þó mikið lesin enn. Það
er ekki erfitt að fylgjast með
því, sem er að gerast í heimin-
um nú á dögum. Auk blaðanna
og sjónvarpsins flytur útvarpið
fréttir öðru hvoru frá morgni til
kvölds. Sennilega hlustar meiri
hluti þjóðarinnar á fréttir á
hverjum degi. Margir kaupa
iika erlend blöð, sem koma
hingað, einkum dönsk og ensk.
Þau kosta auðvitað miklu
minna en islenzku blöðin vegna
hinna stóru og dýru auglýsinga,
sem þau geta selt.
Enda þótt flest fólk hafi nú
margt að horfa á heima, fara
margir í leikhús og kvikmynda-
hús. Öruggt má þó telja, að
kvikmyndahúsum fjölgar ekki í
náinni framtíð.
Olgeirsson var og hét varð ekki
algjör klofningur í stjórnmála-
samtökum vinstri manna er það
og einnig orðin söguleg stað-
reynd, að hann hafði ekki fyrr
tilkynnt að hann léti af þing-
mennsku en fyrst keyrði um
þverbak í Alþýðubandalaginu.
Þegar unnið var að því að koma
saman lista í Reykjavík og al-
mennt samkomulag var um, að
erfðaprins Einars tæki fyrsta
sætið á listanum hlaut það auð-
vitað að leggjast á hans herðar
að tryggja það samkomulag og
þá einingu, sem Alþýðubanda-
laginu hefði vafalaust verið hag
kvæmust í kosningunum sl. vor.
En eftirmaður Einars reyndist
ékki vandanum vaxin. í stað
þess að ganga til samvinnu við
samstarfsaðilann eins og Einar
hafði gert gekk Magnús raun-
verulega til stríðs við þá, sem
myndað höfðu Alþýðubandalag
ið með Sósialistaflokknum. Þetta
framferði Magnúsar lýsti auðvit
að pólitískum vanþroska og um
leið þeirri áráttu hans að vilja
heldur standa í persónulegu
pexi og rexi en málefnalegri
haráttu. Þess vegna var I-list- *
ánn borinn fram, Þegar til
þings kom var ljóst að Lúðvík
og Magnús mundu verða helztu
forustumenn Sósíalistaflokks-
mannanna í þingflokki Alþýðu-
bandalagsins en það kom einnig
fljótt í Ijós, að þetta tvístirni
revndist vandanum ekki vaxið.
Þeir misstu fljótlega þrjá þing
menn úr þingflokki sínum.
Hvað hugsar Einar?
Fróðlegt væri að vita hvað
Einajri Olgeirssyni finnst um
þessa þróun mála. Vafalaust er
hann ekkert sérstaklega ánægð . *
ur með þá frammistöðu eftir-
manna sinna að missa þannig
tökin á flokknum svo gjörsam-
lega um Ieið og hann sleppti
; liendinni af uppalningum sínum.
j Kannski skýtur sú hugsun upp
kollinttm hjá hinum gamal-
reynda kommúnistaforingja að
þrátt fyrir allt hafi hann ekki
verið orðinn of gamall til þess
að gegna sínum fyrri störfum
hver veit?
Rrétt eða rangt? Nemendur bera saman bækur sínar eftir prófið. (Ljósm. Mbl.: Ol. K. M.)