Morgunblaðið - 25.04.1968, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1968
21
Málverk eftir
Braque selt á
16 milljónir
London, 24. apríl NTB-Reuter
BANDARÍSKI listaverkasalinn
Sidney Janis, festi í gær kaup
á mlveárki Georges Braque
„Hommage a J. S. Bach“ á mál-
verkauppboði hjá Sotheby í
London og greiddi fyrir það 115
þúsund sterlingspund, og er það
næsthæsta verð sem greitt hef-
ur verið fyrir nútíma málverk,
höggmyndir o gteikningar á
Sotheby-uppboðL
(O)heppilegt
orðaval
Aþenu, 19. apríl (NTB)
BREZKI þingmaðurinn John
Frazer lagði í morgun blóm-
sveig að styttu stórskáldsins
Byrons, en stytta þessi stend-
ur í miðborg Aþenu. Borði
fylgdi blómsveignum, og á
hann var letruð svohljóðandi
tilvitnun í eitt verka skálds-
ins: „Mig dreymdi að enn
gæti Grikkland orðið frjálst“.
Frazer, sem er einn af full-
trúum Verkamannaflokksins í
Neðri málstofu brezka þings-
ins, var þegar handtekinn er
hann hafði lagt frá sér blóm-
sveiginn, og fluttur til aðal-
stöðva öryggislögreglunnar.
Þar sat Frazer í eina klukku-
stund, en var látinn laus strax
og lögreglan komst áð raun
um að hann væri þingmaður.
Frazer tók sér far heim til
Englands með fyrstu flugvél.
Kosygin
kominn
heim...
Moskvu, Nýju Delhi, 22. apríl
— NTB—AP —
ALEXEI Kosygin, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, er nú kom-
inn heim úr ferðalagi sínu. Hann
fór í opinbera heimsókn til Pak-
istan og kom óvænt við í heim-
leiðinni í Nýju Delhi og ræddi
við Indiru Gandhi, forsætisráð-
herra þar, m.a. um Vietnamdeil-
una og samninginn um bann við
dreifingu kjarnorkuvopna, sem
Indverjar hafa ekki viljað ger-
ast aðilar að.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum, að þau hafi rætt um
þref stjórnanna í Hanoi og Wash
ington um fundarstað til að ræða
um Vietnam, Bandaríkjastjórn
hefur stungið upp á Nýju Delhi
sem fundarstað og haft er fyrir
satt að Hanoi-stjórnin sé að at-
huga þann möguleika, enda þótt
hún kjósi fremur, að viðræð-
urnar fari fram í Varsjá eða
Pnom Penh. Fréttastofan „Press
Trust of Indian“, sagði í gær-
kveldi, að þau Kosygin og Ind-
ira Gandhi hefðu orðið ásátt um
að Varsjá hlyti að vera ákjós-
anlegur fundarstaður.
Kosygin sagði við fréttamenn
í Nýju Delhi, að hann vildi
vinna að því, að draga úr spenn
unni milli Indverja og Pakist-
an en þó mundi Sovétstjórnin
ekki hafa frumkvæði um frek-
ari viðræður milli stjórna ríkj-
anna.
í opinberri tilkynningu sem
gefin var út í Pakistan, að lokn
um viðræðum við Ayub Khan,
forseta, kom fram, að Sovét-
stjórnin hefur heitið tækni- og
efnahagsaðstoð við að reisa stál
iðju í Vestur-Pakistan og orku-
veitu i Austur-Pakistan. Enn-
fremur munu stjórnirnar halda
áfram samvinnu við leit að jarð
gasi og olíu.
Bandsög
Vil kaupa notaða bandsög strax .
Upplýsingar í síma 52042, á föstudag
og mánudag.
Húseign til sölu
Hluti húseignarinnar Lækjarteigur 2 (horni Lækj-
arteigs og Borgartúns) er til sölu ef viðunandi til-
boð fæst. Þeir sem hefðu áhuga fyrir kaupum eða
óska upplýsinga góðfúslega sendi nafn og heimilis-
fang til Björgvins Frederiksen, Lindargötu 50.
Ríkistryggð skuldabréf
Önnumst útvegun og sölu á ríkistryggðum skulda-
bréfum og venjulegum fasteignatryggðum skulda-
bréfum.
Málflutnings og fasteignastofa,
Agnar Gústafsson, hrl.,
Björn Pétursson, fasteignaviðskipti,
Austurstræti 14. Sími 22870 og 21750.
Nýlenduvöruverzlun
Höfum til sölu litla nýlenduvöruverzlun með
gamalgróin og góð viðskiptasambönd í fullbyggðu
borgarhverfi.
Lítill vörulager, og ódýrar innréttingar.
Til greina kemur sérsala á vörulager, og innrétt-
ingum og leiga á húsnæðinu.
Þarf kaupandi þá aðeins að geta greitt i peningum
200—300 þús. kr og sett tryggingu fyrir álíka upp-
hæð til greiðslu innan eins árs.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Málflutnings og fasteignastofa,
Agnar Gústafsson, hrl.,
Björn Pétursson, fasteignaviðskipti,
Austurstræti 14.
Fasteignasalan Garðastræti 17
símar 24647 — 15221.
Til sölu
við Grettisgötu, 5 herb. endaíbúð á 1. hæð (130
ferm.) í vönduðu steinhúsi, 2 samliggjandi stofur,
2 svefnherbergi, rúmgott forstofuherbergi, með sér-
snyrtiherbergi. Tvöfalt gler, teppi á stofum og gangi,
sérhitaveita. íbúðin verður til sýnis föstudag og
laugardag n.k. (kl. 2 til 5 e.h)
Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Árni Guðjónsson hrl., Þorsteinn Gíslason hrl.,
Helgi Ólafsson sölust., kvöldsími 41230.
MEÐ
M'S CULLFOSSI
20 daga vorferð
frá Reykjavík 18. maí til LONDON,
AMSTERDAM, HAMBORGAR, KAUP-
MANNAHAFNAR og LEITH.
VERÐ AÐEINS KR. 10.7S0.oo
Fæði, þjónustugjöld og söluskattur
innifalið.
H. F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS