Morgunblaðið - 25.04.1968, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1968
13
ÓLAFUR SIGURÐSSON SKRIFAR UM
K1 riKi IKYNDIR
■ ■ \ i
STJÖRNUBÍÓ
LORD JIM
Mynd þessi er gerð eftir sögu
James Conrad og á að gerast
um aldamót. Segir hún sögu
ungs sjómanns, sem gerist stýri
maður, þykir efnilegur vel og
dreymir mikla drauma. Hann
dreymir um að standa í brúnni
á úrslitastundu og bjarga skipi
og áhöfn, og að hljóta fyrir
mikla dýrð. Sennilega ekki óal-
gengir draumar hjá ungum mönn
um.
Úrslitastundin kemur. Hann er
á ryðkláf lélegum, sem nefnist
Patna, að flytja pílagríma um
Indlandshaf til Mekka. Þeir
lenda í óveðri, leki kemur að
skipinu, og ásamt skipverjum og
skipstjóra fer hann í bátana og
skilur pílagrímana eftir til að
deyja án hjálpar.
En skipið sökk ekki og náði
höfn. Aðrir skipsmenn flúðu en
Jim gaf sig fram og skýrði frá
framkomu sinni, til þess að
hegna sjálfum sér fyrir. Svipt-
ur öllum leyfum og réttindum
gerðist hann flsekingur við margs
konar störf.
Eitt sinn var hann að vinna
við uppskipun púðurs, er kveikt
var í bátnum sem hann stýrði,
aðrir stungu sér fyrir borð, en
hann sýndi frábært hugrekki og
slökkti eldinn. Upp úr því tób
hann að sér að flytja púður og
skotfæri inn í land, þar sem þess
var þörf til að verja innbyggj-
ana ágengni óaldarmanna. Og
enn hætti Jim lífinu, hvað eftir
annað, og lagði á sig ótrúlega
áreynslu, til hjálpar þessu fólki.
Hlaut hann fyrir ást þess og að-
dáun, en þó fór svo að hann
brást aftur á úrslitastundu.
Gekk síðan vitandi mót dauða
sínum, þó að honum hafi verið
boðið líf.
Mynd þessi er mikil að vöxt-
um og ber þess öll merki að
hafa verið dýr í framleiðslu.
Ætlunin er að taka til afgreiðslu
erfið hugtök eins og hugrekki
og ragmennsku. Helst er að sjá
sem ætlunin hafi verið að út-
koman yrði í samræmingu v ið
setningu í myndinni, sem seg-
ir, að enginn munur sé á hug-
rökkum og rögum mönnum, held-
ur ráði augnabliks ákvarðanir
úrslitum. Ekkert er þó að finna
í myndinni, sem styður þessa
skoðun á sannfærandi hátt.
Enda mun það flestra skoðun,
sem hugsað hafa málið, að hug-
re'kki, ekki sízt þegar það er
tengt siðferðilegum skyldum, sé
alla vega uppalið, og jafnvel að
einhverju leyti meðfætt. Sem
studia í siðferði og hugrekki
nær myndin ekki markinu.
Það breytir ekki því að mynd-
in er á köflum spennandi, þó
að hún sé í lengsta lagi. Leik-
arar eru nær undantekninga-
laust góðir. Peter 0‘Toole leik-
ur Lord Jim, og gerir það á
sinn venjulega viðkvæmnis og
einhverju leyti meðfaett. Sem
dýpi tilfinninga og sársauka get-
ur skinið úr þessum bláu aug-
um.
James Mason leikur leigu-
morðingja og illmenni af mikilli
fágun að vanda. Jack Hawkins
leikur skipstjóra, á sama hátt og
hann alltaf leikur skipstjóra,
sem er sérlega vel.
Eli Wallach og Hugh Griff-
ith gera sínum hlutverkum ágæt
skil. En ásamt leik O'Toole, ber
hæst leik Kurt Jurgens, sem
leikur gerspilltan kaupmann,
þorrinn öllum siðferðisstyrk, en
ágjarn og svikull. Skapar Jurg-
ens þarna ógleymanlega persónu,
með hófsamlegum og sönnum
leik.
f heild má segja að mynd
þessi sé sæmileg skemmtun, en
vafasöm að öðru leyti. Höfund-
ur og leikstjóri er Richard BrookB
sem hefur skrifað handrit að
mörgum góðum kvikmyndum.
Virðist þessi mynd benda til að
hann eigi heldur að hafa hús
bændur en að vinna sjálfstætt
HÁSKÓLABÍÓ:
BOLSHOI BALLETTINN
Það má telja öruggt að hætt
verði að sýna þessa mynd, þeg
ar þessi grein birtist, en samt
finnst mér hæfa að geta hennar
að nokkru.
Þegar mynd er sýnd um ball-
et, er nokkuð tryggt að hún
fær takmarkaða aðsókn, vegna
þess að hópur áhugamanna um
ballet er takmarkaður. Ekki er
ég þó viss um að það sé eina
ástæðan, heldur vantar kannski
eitthvað á, hvernig ballett er
sýndur á tjaldi.
Ein ballettmynd hefur hlotið
frábæra aðsókn um alla nheim,
sem er „Rauðu skórnir“ með
Normu Shearer. Má draga af því
nokkurn lærdóm, því að hún er
ólík öllum öðrum ballettmyndum.
Flestar eru þessar myndir þann-
ig að teknar eru kvikmyndir af
dönsurum á sviði og sýnt hvað
þeir eru að gera. Oft eru sviðin
mun stærri og íburðarmeiri en
rúm er fyrir á leikhússsviði, en
samt er í eðli sínu um sviðsverk
að ræða. „Rauðu Skórnir“ var
ekki kvikmyndun á sviðsverki,
heldur „orginalt" kvikmynda-
verk, sem ekki hefði getað skeð
á sama hátt á sviði.
Myndin sem hér um ræðir,
hefur þó nokkra sérstöðu, því
Framhald á bls. 20.
1 ' ROAMER
111:: er nú sem fyrr
bezta fermingar-
wr - gjöfin.
1 & Kaupið úrin hjá
jíL úrsmið.
MAGNÚS
ÁSMUNDSSON
B Þingholtsstræti 3.
Kaffisala í K.F.U.M.
Sumardaginn fyrsta gangast Skógarmenn K.FU.M.
fyrir kaffisölu í húsi K.FU.M og K. við Amt-
mannsstíg til ágóða fyrir Sumarbúðirnar í Vatna-
skógi.
Reykvíkingar, drekkið síðdegiskaffið hjá Skógar-
mönnum í K.F.UM.
Samkoma
Um kvöldið kl. 8,30 verður samkoma í húsi félag-
anna, þar sem Skógarmenn tala, syngja og lesa upp.
Allir velkomnir.
Stjórn Skógarmanna K.FU.M.
ÍSLENDINGAR /Q\
OG HAFIÐ
Fyrirtæki eða aðrir aðilar, sem hafa hug
á að fá veggrými til auglýsinga á sýn-
ingunni, verða að gefa sig fram við
skrifstofuna hið fyrsta, þar sem slíkt
rúm er takmarkað og senn á þrotum.
Skrifstofa sýningarinnar í Hrafnistu —
símar 83310 og 83311 — gefur allar
nánari upplýsingar.
Frd tækniiræðingaiél. ísl.
Áður boðaður félagsfundur um byggingarmál verð-
ur haldinn í Hótel Loftleiðum mánudaginn 29. apríl
n.k kl. 20,30.
Fyrirlesari: Björn Emilsson, byggingartæknifr.
STJÓRNIN.
B Ú S L w O Ð
SKATTHOL
með spegli og skrifborðsplötu.
Sent heim meðan á fermingu
stendur.
ÚC
l
Höggdeyfarnir
SEM HAFA SANNAÐ MEÐ REYNSLU UNDAN-
FARIN ÁR AÐ BEZT REYNAST HÉRLENDIS.
Ath. Framleiddir með einkaleyfi á ýmsum patent-
um þar á meðal á ventlum og þéttingum.
Velja má um mismunandi gerðir:
MONRO-MATIC, SUPER DUTY, SUPER 500 og
LOAD LEVELER, með gormum sem gera bifreiðina
enn stöðugri.
Ávallt fyrirliggjandi í flestar tegundir bifreiða.
Höfðatúni 2 — Sími 20185.
B Ú S L w O Ð
HÚSGAGNAVERZLUN
VIÐ NÓATÚN — SlMI 18520