Morgunblaðið - 25.04.1968, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 198*
-K Verða París eða Delhi fyrir valinu?
-x Beðið eftir nýrri stórsókn Viet Cong
-x Rohert Kennedy á í erfiðri baráttu
-X Harka boðuð gegn v-þýzkum stúdentum
Bandaríkja-
stjórn klofin
Viðdvöl sú, sem U Thant, að-
alframkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, hafði í París um helg-
ina á leið sinni til Teheran, hef-
ur styrkt þá tilgátu, að undir-
búningsviðræður Bandaríkjanna
og Norður-Vietnam um frið í
Víetnam verði haldnar þar í
borg. Að vísu er París
ekki meðal þeirra borga sem
Bandaríkjamenn hafa stungið
upp á sem fundarstað, en ástæð-
an getur verið sú, að fyrirfram
hafi verið vitað að Hanoistjórn-
in mundi hafna öllum tillögum
þeirra. Þá verður einhver þriðji
aðili, til dæmis U Thant, að
koma til skjalanna og stinga
upp á einhverjum nýjum fund
arstað, til dæmis París. Hins veg
ar er þetta engan veginn víst, og
dráttur sá, sem orðið hefur á
samkomulagi um fundarstað,
getur vel táknað að París komi
ekki til greina.
Onnur borg, sem til greina
kemur er Nýja Delhi, en þang-
að kom Alexei Kosygin, for-
sætisráðherra Rússa, í óvænta
heimsókn fyrir helgina eftir
heimsókn sína til Pakistan. Allt
bendir til þess, að Rússar vilji
mjög gjarnan að Indverjar eigi
veigamikinn þátt í væntanlegum
samningum um frið í Vietnam,
og enginn vafi leikur á afstöðu
frú Gandhi forsætisráðherra,
sem sagði nýlega í ræðu, að
Norður-Vietnamar og Viet Cong
berðust í sjálfsvörn til þess að
hrinda árás. Indland er ágætt
dæmi um þá viðleitni Rússa að
draga úr áhrifum Kínverja og
Bandaríkjamanna i Asíu m,a.
til að sýna að stefna þeirra sé
vænlegri til árangurs, en stefna
Kínverja og Indverjar eru mjög
velviljaðir Rússum um þessar
mundir, meðal annars vegna
vopnasendinga þeirra. Rúss-
ar njóta mikils álits á Indlandi
þar sem þeir eru taldir fylgja
friðsamlegri stefnu í utanríkis-
málum og standa mitt á milli
Kínverja og Bandaríkjamanna,
en Indverar hafa löngum valið
sér það hlutskipti að standa
miðja vegu milli deiluaðila í
heimsmálum.
Dráttur sá, sem orðið hefur á
samkomulegi um fundarstað, hef
ur orðið til þess, að sá ótti hef-
ur gert vart við sig í Washing-
ton, að Bandarikjamenn glati
allri þeirri velvild sem þeir
fengu með takmörkun loftárás-
anna á Norður-Vietnam fyrir
þremur vikum og tilboðinu um
samningaviðræður. Bandaríska
stjórnin er greinilega klofin í
málinu, og er vitað að Dean
Rusk utanríkisráðherra var því
andvígur að stungið var upp á
10 nýjum fundarstöðum til við
bótar þeim fimm, sem áður hafði
verið stungið upp á, þar sem
hér hafi verið um tilskökun að
ræða, en hann varð að lúta vilja
forsetans.
Norður-Vietnamar hafa að-
eins stungið upp á tveimur fund
arstöðum: Phnom Penh í Kam-
bódíu og Varsjá í Póllandi. Báð-
um þessum borgum hefur banda
ríska stjórnin vísað á bug:
Phnom Penh vegna þess að hún
hefur ekki stjórnmálasambpnd
við stjórnina í Kambódíu og
Varsjá vegna þess að hún telur
að ekki megi treysta því að ör-
yggi bandarísku sendinefndar-
innar verði tryggt og að blaða-
menn njóti fullkomins athafna-
frelsis. Hins vegar er bent á, áð
Norður-Vietnamar hafa ekki
diplómatíska fulltrúa í níu af
þeim tíu borgum, sem Banda-
ríkjastjórn stakk upp á í síð-
ustu viku. Margir starfsmenn
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins töldu líka að fállast hefði
átt á Varsjá, þrátt fyrir þá ann
marka sem eru á þeirri borg sem
fundarstað, meðal annars með til
liti til valdabaráttunnar, sem
nú á sér stað í pólska kommún-
istaflokknum.
Deilan um fundarstaðinn er
nú komin á það stig, að hvor-
ugur aðilinn vill láta undan af
ótta við að bíða álitshnekki.
Bandaríkjamenn eru minnugir
undirbúningsviðræðnanna í Kó-
reustríðinu, þegar andstæðingar
þeirra reyndu að láta líta út
fyrir að þeir væru að semja um
uppgjöf. En Hanoistjórnin stend
ur vel að vígi í þessari deilu
vegna þess að í raun og veru
hefur Johnsom forseti gengið á
bak orða sinna, þar sem hann
hefur lýst því yfir að hann sé
reiðubúinn að hitta fulltrúa
Norður-Vietnam hvar sem er og
hvenær sem er. Þar sem hann
Kosygin og frú Indira Gandhi í Nýju Delhi.
HVAÐ ER TIL ÚRBÚTA í SKÚLAMÁLUM ?
RABSTEFNA \ ÍSAFIRÐI A VEGLIH S.IJ.S. OG FYLKIS F.IJ.S.
Ráðstefnan verður haldin laugardaginn 27. apríl
í Sjálfstæðishúsinu á ísafirði og hefst kl. 14.
Ræðumenn verða:
'k .Tónas B. Jónsson, fræðslustjóri.
ir Jóhann Ármann Kjartansson, kaupm.
kr Jón E. Ragnarsson, varaform. S.U.S.
Á eftir verða frjálsar umræður.
Jóhann Árm. Kjartansson
Jón E. Ragnarsson
gefur ekki kost á sér til endur-
kjörs virðist hann hafa litla á-
stæðu til að sýna jafnmikla
hörku í deilunni um fundar-
stað og raun ber vitni, en áhrif
„haukanna“ í innsta valda-
hring Johnsons virðast hafa
aukizt, og bent er á, að
einn sá fremsti í hópi
þeirra, Walt Rostow, ráðunaut-
ur í þjóðaröryggismálum, hefur
hvatt hann til að herða á skil-
yrðunum fjórum, sem hann hef-
ur sett fyrir því að undirbún-
ingsviðræður verði hafnar.
Stórfelldar
sóknaraðgerðir
BANDARÍSKIR herforingjar
í Suður-Vietnam eru sannfærðir
um, að þess verði ekki langt
að bíða að hersveitir Norður-
Vietnama og Viet Cong hefji
nýja stórsókn, sennilega í lok
maí eða í byrjun júní. Margt
bendir líka til þess að skærulið-
ar endurskipuleggi nú lið sitt og
byrgi sig upp af vistum eftir
síðustu stórsóknina í febrúar og
birgi sig upp af vistum eftir
búi sig undir nýja sóknarlotu.
Þeir eru margir sem draga í efa
að friðarumleitanir þær, sem nú
fara fram, leiði til þess að fljót
lega verði bundinn endi á styrj
öldina, og á það er bent í þessu
sambandi, að í Kóreustríðinu
áttu hörðustu átökin sér stað
eftir að friðarviðræður hófust.
Á undanförnum vikum hafa
hersveitir Bandaríkjamanna og
bandamanna þeirra staðið fyrir
stórfelldum sóknaraðgerðum til
þess að koma í veg fyrir að
andstæðingum þeirra gefist ráð
rúm til að undirbúa víðtæka
sóknarlotu. Þannig hafa verið
gerðar árásir á skæruliða í ná-
grenni Saigon, umhverfis her-
kongósasvæðinu og á svæðinu
stöðina við Khe Sanh, á Me-
milli Hue og hlutlausa svæðis-
ins. Bandarískir herforingjar
segja, að skæruliðar hörfi á
öllum þessum svæðum í samræmi
við þá baráttuaðferð sína að berj
ast aðeins á vígvöllum sem
þeim hentar en Bandaríkjamönn
um ekki.
Bandaríkjamenn og banda
menn þeirra hafa einnig hert á
loftárásunum á flutningaleiðir
Norður-Vietnama og liðsflutn-
inga þeirra á svæðinu frá hlut
lausa beltinu norður að 20.
breiddarbaug, en samkvæmt á-
kvörðun Johnsons forseta um að
taíkmarka loftárásirnar hefur
loftárásunum fyrir norðan þetta
svæði verið hætt. Þannig er
ljóst, að þótt loftárásirnar hafa
I verið takmarkaðar, hefur ekki
dregið úr þunga loftárásanna,
og hefur þeim í aðalatriðum ver
ið beint frá íbúðasvæðum til
svæðisins milli hlutlausa belt-
isins og 20. breiddarbaugs eða
öllu heldur 19. breiddarbaugs
því að yfirleitt hafa lo,ftárás-
irnar beinzt að svæðum alllangt
fyrir sunnan 20. breiddarbaug. Á
fimmtudag í síðustu viku voru
gerðar hörðustu loftárásir, sem
gerðar hafa verið á einum degi
síðan Víetnamstríðið hófst. Af
öllu þessu má sjá, að Banda-
ríkjamenn og bandamenn þeirra
hafa ekki dregið úr stríðsrekstr
inum þrátt fyrir friðarumleitan
ir þær, sem nú eiga sér stað, og
horfur eru á því að Norður-
Vietnamar og Viet Cong herði
einnig á stríðsrekstri sínum.
Humphrey
bjartsýnn
SÍÐAN Johnson forseti til-
kynnti fyrir þremur vikum, að
hann gæfi ekki kost á sér til
endurkjörs, hefur alltaf komið
betur og betur í ljós, að Ro-
bert Kennedy verður að heyja
erfiða baráttu til þess að hljóta
tilnefningu Demókrataflokks-
ins til þess að verða forseta-
frambjóðandi flokksins í kosn-
ingunum í haust. Afleiðingin er
sú, að hófleg bjartsýni ríkir nú
í herbúðum keppinauta Kenne-
dys. Eugene McCarthys öldunga
deildarmanns og Hubert Humpr
heys varaforseta, einkum þó með
al stuðningsmanna hins síðar-
nefnda.
Framihald á bls. 19.