Morgunblaðið - 25.04.1968, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1968
„Enginn veit hvað átt hefur
tyrr en misst hefur"
Hafið ávallt
'i/reno
slökkvi-
tæki við hendina. Margar tegundir fyr-
irliggjandi.
slökkvitæki veita yður
öryggi og afslátt á tryggingariðgjöld-
um á sama tíma.
*
Olafur Gislason
& Co. hf.
Ingólfsstræti la, — Sími 18370.
Ágreiningur í stjórn
Trudeaus um þingkosn.
Ottawa, 22. apríl NTB — AP.
• PIERRE Elliott Trudeau, hinn
nýi forsætisráðherra Kanada,
sem tók við embætti sl. laugar-
dag, mun væntanlega tilkynna
á þingfundi á morgun, hvort
hann efnir til almennra þing-
kosninga á næstunni. Samstarfs
menn hans í nýju stjórninni eru
taldir mjög á öndverðum meiði
um það, hvort kosningar skuli
fara fram, en sjálfur sagði
Trudeau á sunnudag, að framtíð
stjórnarinnar væri undir úrslit-
um nýrra þingkosninga komin.
• Margir telja líklegt, að Frjáls-
lyndi flokkurinn mundi undir
stjórn Trudeaus ná meirihluta á
þingi, verði gengið til kosninga
í júní nk. Nú hefur flokkurinn
að baki aðeins 130 þingmenn af
265, sem sæti eiga í öldunga-
deildinni Aðrir telja of snemmt
að ganga til kosninga nú þegar.
Ráðherrarnir í stjórn Trudeaus
eru margir hinir sömu og voru
í stjórn Leasters Pearsons. Þó
hafa verið gerðar nokkrar breyt
ingar, meðal annars hefur Michel
Sharp verið skipaður utanríkis-
ráðherra í stað Paúls Martins.
Það þykir í frásögur færandi
hversu glæsilega Trudeau var
| búinn við embættistökuna. Menn
i eru því vanastír að sjá hann í
sandölum, peysu og leðurjakka,
EKKERT HAPPDRÆTTI
NEMA HAPPDRÆTTI D.A.S.
BÝÐUR VINNING Á KR.
MILLJÓNIR
á einn miða
STORVINNINGAR
ÍBÚÐIR BIFREIÐAR HÚSBÚNAOUR
ÍBÚO og minnst 5 BÍIAR í hverjum flokki
Heiltfarverðmætí vinnmga
kr. 35.095.000.00
Mánaðarverð miðans kr. 75.00
Arsmiðinn kr. 900.00
Tala útgefinna miða óbreytt
Endurnýjun ársmiða o{ flnkksmiða
he.st 10. apríl
en við þetta tækifæri var hann
formlega klæddur og samtovæmt
siðvenjum — í röndóttum bux-
um, vesti og lafafrakka.
Leaster Pearson, sem nú læt-
ur af stjórn flokks og stjórnar
landsins, sagði í viðtali við frétta
menn á laugardag, að hann
hygði gott til „frelsisins“ og fyrst
um sinn mundi hann njóta þess
með því að sitja í makindum á
sunnudögum með fæturna uppi
á borði og horfa á íþróttirnar í
sjónvarpinu, eða lesa það sem
hannn lysti. Hann kvaðst senni-
lega hefjast handa mjög bráð-
lega um að skrifa endurminning-
ar sínar. Hann heldur áfram setu
á kanadíska þinginu.
Pearson sagði aðspurður. að
væntanlega mundu Kanadamenn
fúsir að senda herlið til Vietnam
á vegum Sameinuðu þjóðanna
til þess að taka þar þátt í friðar-
gæzlu. Hann kvaðst þeirrar skoð
unar, að friðarsamningar um
Vietnam yrðu að byggjast á
siálfsákvörðunarrétti þjóðanna
í N- og S-Vietnam en taldi þó
vafasamt að unnt yrði að koma
á kosningum þar. Pearson kvaðst
telja óhjákvæmilegt, að Viet
Cong fengi aðild að stjórn Suður-
Vietnam; hann sagðist þó vissu-
lega sjá, að það byði heim þeirri
hættu, að kommúnistar tækju
völdin í Suður-Vietnam að fullu,
en sagðist ekki sjá leið til þess
að komast hjá þvi að taka þá
áhættu.
Um NATO sagði Pearson, að
bandalagið væri ekki eins „heil-
brigt“ og hann hefði kosið og
kvaðst vona að sá dagur kæmi,
ag Frakkar breyttu afstöðu sinni
til þess. Hann taldi ekki óhugs-
andi, að Kanadamenn endur-
skoðuðu framlag sitt til NATO,
sagði að e. t. v. væri heppilegra
að hafa heima fyrir auðflytjan-
legt herlið, sem NATO gæti
fengið til ráðstöfunar hvenær
sem væri, fremur en halda áfram
að halda liði erlendis með öll-
um þeim tilkostnaði, er fylgdi
Því.
TRÉTÆKNI s.i.
Skúlagötu 55 sími 1-23-84
Höfum til sölu þessar smekk-
legu vegghillur, fyrir ýmiss-
konar smáskraut.
Mjög ódýrar.
Höfum fen gið mikið úrval af gluggatjaldaefnum
( C^feÉifecýt óumctr
Áklæði og gluggatjöld
SKIPHOLTI 17 — SÍMI 17563.