Morgunblaðið - 22.06.1968, Page 10

Morgunblaðið - 22.06.1968, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1968 Nr 10: Hörpusláttur (1958-59) Það er jafnan mikill listvið- burður er Kjarvalssýning er sett upp í höfuðborginn, hvort heldur hún komi frá honum sjálf um eða sé sett upp brautryðj- andanum til heiðurs — jafnvel borgarbúum öllum til heiðurs líkt og nú á sér stað í Listamannaskálanum. Þetta er eitt af mörgum framlögum til að ýta undir byggingu hins nýja Listamannaskála við Miklatún, sem er vissulega aðkallandi fyr- ir menningarlíf borgarinnar. Öll um, háum sem lágum, er sem sagt boðið að koma í Listamannaskál- ann við Kirkjustræti þessa dag- ana, meðan á sýningunni stend- ur og kynna sér handbragð meistarans á ýmsum tímum sér að kostnaðarlausu. Jafnframt er Kjarval að kveðja nefndan Lista mannaskála, sem svo oft hefur hýst sýningar frá hans hendi, og þar sem hann hefur unnið mikla sigra og eftirminnilega, sem skráðir eru og geymdir. Kjarval er óefað sá málari, sem á einna almennustu aðdáun að fagna í hópi allra núlifandi kynslóð íslenzkra málara hann er af flesturm starfsbræðr um sínum viðurkenndur fyrir ein hvern þátt listar sinnar, enda spannar list hans yfir vítt svið og hefur margar ólíkar hliðar. Ber þetta fjölhæfni hans vitni, en honum voru frá fyrstu tíð ljósir ótakmarkaðir tjáningar- möguleikar myndlistarinnar og jafnan mun það svo, að einhver hlið hans á sér formælendur og aðdáendur, þótt hinar njóti þá gjarnan ekki sömu aðdáunar. Kjarval er hlutur, sem íslend- ingar virðast skilja án tafar líkt og sumir tónlistarmenn kunna Mosart við fyrsta augna- kast, en verða að erviða til að tileinka sér önnur tónskáld. Kjar val er hlutur, sem íslendingar geta ekki komist hjá með að skilja, því hann hefur verið al- veg rökræn ósjálfráð tjáning og lýsing á tíma þeirra. Langt er síðan Kjarval varð að þjóðsögu, nokkurs konar galdaramanni í meðferð lita og forma í augum flestra, og þó ekki mjög langt sé, aldur hans tekinn sem viðmiðun - maðurinn sjálfur var orðinn að þjóðsögu löngu á undan málaranum, enda er hann allur merkilegur og sér stæður engu síður en verk hans. Sem dæmi um það, í hvaða' álit hann er kominn meðal hérlendra þá eru þeir ekki svo fáir, sem sjá Kjarval einan og þekkja ekki aðra málara honum fremri í heiminum. Það er jafnan svo, að mönnum veitist erfitt að halda sér á jörðinni, þegar lista- menn, sem þeir dá, verða aðþjóð sögu. Það er mikið æfintýri, hvern- ig þessi skútusjómaður frá fyrstu árum aldarinnar varð að mesta artista íslenzkra málara, og um artistann Kjarval vil ég helst fjalla um í þessu skrifi mínu. Artisti, er sú hlið málara er höfðar til tilfinninga og ó- sjálfráðs, frjálslegs meðhöndlun ar efnviðsins frekar en t.d. yfir Ivegaðrar byggingar — hann fer hamförum en smáþokast ekki að markinu, þótt ekkert sé til fyrir stöðu að artisti geti verið lengi með mynd. Þeir hafa jafnframt oft ríka tilfinningu fyrir litnum, eru „Koloristar". Væri hægt að telja Jón Stefánsson og Þorvald Skúlason á einn veg mestu and- stæður Kjarvals í rslenzkri mynd list. Menn hrífast gjarnan af art istanum, hve allt er lifandi og létt í verkum hans, hann höfðar sjaldan til hyldýpis hugsunar- innar og þjáningarinnar, þó að verk góðs artista séu sjaldan yf irborðskennd, heldur til hins skarpasta ljóss og það er mikið atriði á tímum siðferðislegrar upplausnar og lífsleiða að skapa hrifningu og gera fólk móttæki- legt fyrir því að geta yfirleitt hrifist af nokkru. Menn viðhafa gjarnan ýmis nöfn, er þeir lýsa ýmsum þáttum í list Kjarvals t.d. myndskáld yfir myndir, er þeir sjá í skáldlegt innsæi — mér líkar í rauninni ekki þetta orð yfir myndlistarmann, en þó er það svo, að það er einmitt í mörgum slíkum myndum að art istinn kemur gleggst fram hjá listamanninum, og það er einmitt það, sem gefur þeim gildi að mínum dómi, en ekki þær skáld- legu sýnir, sem þar koma fram. Það er oft sem þessar undarlegu fígúrur sem prýða slíkar mynd- ir, verði til að styrkja byggingu myndarinnar, —línurnar í þeim samtvinnast öðrum þáttum mál- verksins en svo kemur einnig fyrir, að þær verða eitthvað framandi í myndheildinni og þar kemur fram hættan, sem jafnan fylgir artistanum, sem sniðgengur Kjarval ekki frekar en aðra mikla artista. Öll þau öfl sem eru ríkjandi í lífi nútímamannsins — rafmagn atóm, útvarpsbylgjur, víbrasjón ir, sér hann ekki, en hann veit um þau og finnur til þeirra Þetta er sem sagt ekki sýnilegt, áþreif anlegt form, en þó hlutir, sem veita sér í gegnum mannsins æð- ar. Málarinn vill, að menn skynji þetta í verkum sínum en ekki aðeins húð hlutarins, sem mál- verkið er af. Þegar feldur katt- arins er strokinn fer hann að mala — það er svipað samband við það sem inni fyrir býr, hið innra gangverk, sem málarinn höfðar til, aðeins mun altækara. spilað á fleiri strengi skapgerð- arinnar. — Ljósið kemur innan frá, hver ávöxtur er lampi, hver fiskur sem dreginn er upp úr vatninu er sjálflýsandi. . . Fáein strik í artistísku mál- verki Kjarvals, geta verið töfr- um slungin, hvort sem í hlut á teikning í túski með lifandi og næmum blæbrigðum milli hins hvíta og svarta, eða í litum á lérefti — tilfinning málarans er framlenging handarinnar og er jafnmikið háð henni og auga og þannig má segja að Kjarval hafi býsna teygjan'legta hönd. Á köflum þrautvinnur Kjar- val myndir sínar, smáflötur er settur við hlið smáflatar, í óend anlegri mergð, þar til myndheild inni er náð, líkt og í myndum nr 16 „Haustlitir" nr. 8 „Fjalla- mjólk og nr. 4 „Hellisheiði" Við stöndum fyrir framan einn merkilegasta eiginleika lista- mannsins, er við virðum fyrir okkur þessar myndir og upp- götvum, hve töfrandi ferskar þær eru, þrátt fyrir alla þessa mikju þrautvinnu og bróderí, því svo er sem hann hafi hrist þær fram úr erminni en með þeim fyrir vara, að þetta er gert með „l‘art“ listrænni skynjun — og er einungis á meðfæri mikils mál- ara, sem er sér þess að fullu meðvitandi, að gróandinn í nátt- úrunni verður að endurspeglast í málverkinu — þessi undarlega margslungna kvika í kyrrð auðn arinnar, í lofti og gróandi mold- arinnar, þrengja sér inn í innstu afkima skoðandans. Þegar Kjar- val vinnur, er honum fátt óvið- komandi — til að finna og þjást með landinu stendur hann hvern ig sem viðrar úti í náttúrunni og vinnur samkennd sína með landslaginu og lífi öllu í olíu- borinn dúk sinn — skorðar trön- ur sínar ámóta fast í jarðveginn og hann skorðar landið á léreft- ið, og landið og Kjarval sam- einast — úr eigindum himins og jarðar vefur hann margslungna þræði, þar finnur hann Kolfinnu sína og gefur okkur öllum hlut- deild í þeirri miklu ást. Eins og regnboginn vefur sín himinklæði rauð, blá og græn, vefur Kjar- val af palletti sínu fína þræði — frásögn af einmanaleik sín- um og óstýrilátri lífsgleði yfir á striga sinn. Það hlutu margir að reyna að tileinka sér eitthvað af þessum lífskrafti, enda má segja, að í kjölfar lífsskútu Kjarvals, hafi fylgt margir mávar, er glefsuðu í mótív þau, er hann hafði þegar gert fræg, en milli þeirra og Kjarvals skilur það, sem Frakk- ar hafa nefnt „l‘art“, sem er hlutur, sem ekki næst nema með mikilli tilfinningu fyrir öllu því sem listamaðurinn hefur á milli handanna og þá verða flest mót- ív góð, sem hann velur sér — málarinn finnur mótívið og ger- ir það frægt, en ekki öfugt, mót- ívið magnar málarann, en skap- ar hann ekki, þetta eru sann- indi sem mörgum hefur yfirsést — Þroski er háður stöðugri end urnýjun, líkt og við sjáum í sköp unarverkinu. Kjarval hefur ekki staðnað, frekar má segja um hann líkt og um marga aðra góða mál ara, sem náð hafa háum aldri: að þeim jókst sýn er aldurinn færðist yfir. Kjarval er þekktur langt út fyrir landsteinana, en þó ekki sem skyldi, en það bíður síns tíma — mynd eftir hann hangir þó á „Museum of modern art“ í New York á milli ítalska mál- arans Giorgio Morandi og enska málarans Walter Ricard Sickert, sem er með málverk af sir Thom as Becham og á næsta leiti er Modigliani, Derain, Rouault, Ko kosoa m.m. beint á móti frægri mynd eftir Max Weber frá 1911. Ekki slæmur félagsskapur það og þó sá ég ekki betur en að meist- ari Kjarval héldi reisn sinni. (þetta 1965). Ég hef lagt áherzlu á artistann Kjarval í þessu skrifi mínu, vegna þess að ég álít, að sú hlið listar hans komi mjög vel fram í mörgum verkanna á þess- ari sýningu, og að sýningarnefnd hafi unnið gott verk með því að kynna sérstaklega þessa hlið Kjarvals, þó þeir hafi máski ekki sérstaklega stefnt að því. Mjög vel er búið að sýningunni, skálinn hefur verið klæddur grá- gum ullarstriga og er við það orð inn veglegri en ég man eftir í annan tíma. Er eiginlega merki- legt, að ekki skuli hafa verið hugsað um þetta fyrr, því að slík klæðning er algeng í sýn- ingarhúsum um heim allan. Verð ur mér í rauninni meiri eftir- sjá að skálanum fyrir vikið og mætti skálinnn standa enn um hríð, eða þar til nýji skálinn er kominn eitthvað áleiðis, og sízt er ég einn um þá hugsun, enda er í fá hús að venda með hinar yfirgripsmeiri sýningar. Einu smá atriði hefur sýningarnefndin þó gleymt, og er það þó mikilvægt smáatriði, því að hér er um að ræða ártöl myndanna í sýningar skrá en slíkt er orðið alltof algengt á sýningum hérlendis, SÖFNUN þeirri, sem fór fram víða á landinu til styrktar vanda mönnum þeirra, er fórust með vb. Heiðrúnu II. frá Bolungarvík og vb. Trausta frá Súðavík, er nú lo'kið. Alls söfnuðust krónur 1.352.916.35 og hefur upphæðinni verið úthlutað til ekkna og Noinobrengl MISTÖK urðu í frétt af söng- móti Karlakórasamlbandsins Heklu á Akureyri er nafn for- manns sambandsins misritaðist, en nafn hans er Áskell Jónsson. þegar verk ná yfir þróunartíma- bil. — Þetta gerir sýningargest- um óþarflega erfitt fyrir að fylgj ast með þróun málarans og er mjög bagalegt fyrir gagnrýnend ur. Þessi yfirsjón er algjört sér- kenni íslendinga. Það er búið að fjalla um marg- ar myndir á sýningunni og er óþarfi að bæta þar nokkru við hér, sýningin er heldur ekki þess eðlis, að hún kalli á ítar- legan dóm um Kjarval í heild. En ég vil þó benda á nokkrar myndir til stunings skrifi mínu um Kjarval sem artista, og þá einna helst myndir eins og nr. 2 „Úr Borgarfirði og nr. 21. „Vorlitir“. Báðar eru mjög gott dæmi um artistíska hæfileika Kjarvals. í hinni síðarnefndu koma fram kúbistisk áhrif í stórri heild Ijósra litbrigða. Þessi mynd er svo heil og fáguð í heild sinni, að það þarf vissu- lega enga fígúru til að metta þá heild. Hér er Kjarval hreinn og beinn artisti og skapar frábær- lega lifandi myndheild á ein- faldan sannfærandi hátt og þó er þessi mynd máluð svo seint sem árið 1965, eftir því sem ég hefi fengið upplýst. Þess ar tvær myndir eru skyldar í út- færslu, þótt þær séu ólíkar og þó eru 12 ár á milli þeirra að ég held. Ég minntist á kúbistísk áhrif. Eins og allir góðir málar ar var Kjarval móttækilegur fyr ir áhrifum í list sinni, greinilega koma fram ensk, frönsk og ítölsk áhrif, sem bera dvöl hans í þessum löndum vitni, en þetta hefur hann hamið undir sinn eigin persónuleika. Aðrar áber- andi artistískar myndir á sýn- ingunni sem falla undir skrif mín, eru myndir eins og nr. 10 Hörpusláttur, 11 Lómagnúpur 13 „Bókmerki“ 15 „Klettavegg- ir“, 16 „Haustlitir, 24 „Úr Grafn ingi og 25 „Morgunroði. Fleiri myndir mætti vel telja upp, en ég læt þetta nægja. Ég hvet svo að lokum borgar- búa til að notfæra sér þetta ein stæða tækifæri til að kynnast list Kjarvals í þessum húsakynn um, því að tækifærið gefst ekki aftur, ef svo fer sem horfir fyr- ir þeim gamla skála. barna hinna látnu af nefnd þeirri, sem til þess var kjörin. Hefur úthlutunarféð verið greitt til þeirra. Nefndin færir öllum þeim, sem unnu að söfnuninni og lögðu fé af mörkum innilegar þakkir fyrir hönd ekknanna og barnanna. Úthlutunarnefndina skipuðu þessir menn: Séra Þorbergur Kristjánsson, Bolungarvík, séra Sigurður Krist jánsson, ísafiði, Börkur Ákason, forstjóri, Súðavík, Hafsteinn Haf steinsson, lögreglustjóri, Bolung- arvík, og Jóh, Gunnar Ólafsson, sýslumaður ísafjarðarsýslu. Nr 2: Úr Borgarfirði (1953). Nr. 21: Vorlitir (.1965) Bragi Asgeirsson Tæplegn 1,4 millj. söfnuðust í Vestfjurðusöfnuninni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.