Morgunblaðið - 22.06.1968, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.06.1968, Blaðsíða 19
MOROUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1968 19 Samvinnan efnir til áskrifendahappdrættis 480 hestafla bátavéi af Wichman ngerð tr til sýnis á sýningunni íslendingar og hafið. ÍSLENDINGAR OC HAFIÐ: 480 ha. bátavél til sýnis EINN sýningaraðila á sýning- unni íslendingar og hafið er Einar Farestveit hf. Fyrirtækið hefur umboð fyrir norska við- tækjafyrirtækið Radionetta, KPS heimilisvélar og Wichmann véla- verksmiðjurnar. A sýningunni hefur fyrirtækið deild, þar sem umboðin þrjú og framleiðsla þeirra er kynnt. M.a. sýnir fyrir- tækið bátavél í sérstöku húsi fyrir utan sýningarhöllina. Einn af forstjórum Wichmann verksmiðjanna Káre Nilsen, kom hingað til lands í sambandi við sýninguna og við ræddum stutt lega við hann um norsku verk- smiðjuna og fer samtalið hér á eftir: — Hvenær var byrjað að smíða Wiehmann vélarnar? — 1903 var fyrsta Wiehmann vélin smíðuð og verksmiðjan er me'ð þeim elztu í Noregi. Til ís- lands kom fyrsta vélin 1920 til Neskaupstaðar. Eftir stríð hafa um 40 bátar fengið vélar af þessari gerð. Mörg mestu afla- skipin í íslenzka flotanum eru þar með og má nefna Víðir II., Guðm. Þórðarson, Jón Kjartans- son, Gísla Árna og Þórð Jónas- son. — Er þetta nýjasta gerð af Wichmann, sem er hér til sýnis? — Já, og hún er 450—480 ha og kostar hingað komin um 2 milljónir. Flestir varahlutir í þessar vélar liggja í tollvöru- geymslunni, svo að það er fljót- legt að grípa til þeirra af í nauð- ir rekur. Vélarnar, sem við byggj um nú eru allt upp í 2250 ha. Nýjustu og stærstu vélina er búfð að keyra í eitt ár í tilrauna- stöð og svo hefur hún verið reynd í skipi í 9 mánuði og hefur reynst mjög vel og nú er hafin fjöldaframleiðsla á vélinni. — Hvert eru vélarnar helzt seldar? — Við höfum selt tif Asíu, Afríku, Kanada, Svíþjóðar, Fær- eyja, Danmerkur og íslands. — Hvernig viðskiptavinir eru íslendingar? — Við erum mjög ánægðir með viðskiptin og sambandið við Is- land og við þekkjum t.d. nær alla sem hafa vélar frá okkur. Samvinnan hefur verið góð og þetta hefur gengi'ð vel. — Hvernig finnst þér sýning- in? — Mér finnst sýningin mjög góð og vel upp sett, t.d. miðað við sýninguna í Esbjerg. ÚT er komið þriðja hefti Sam- vinnunnar á þessu ári og þar með einn árgangur af henni í hinum nýja búningi. Eru það samtals 408 síður. Hefur hvert hefti verið helgað ákveðnum Stöðugar eld- flauguórúsir d Saigon Saigon, 20. júní — AP VIET CONG-menn gerðu í dag að nýju eldflaugaárásir á íbúð- arhverfi í Saigon og sömuleiðis á Tan Son Nhut flugvöllinn. Ein flauganna kom niður skammt frá bandarísku hersjúkrahúsi. í sl. viku hótuðu Viet Cong menn að skjóta eitt hundrað eld- flaugum á dag á borgina, frá og með mánudegi. Yfirvöld í Saigon segja, að hingað til hafi 114 óbreyttir borgara beðið bana við eldflaugahríðirnar og yfir 500 særzt. KARLA- og kvennakór Kefla- víkur héldu söngskemmtun í Bíó höllinni á sunnudag. Höfðu kór- arnir í sömu ferð skemmt Borg- nesingum við góða aðsókn. — Stjórnandi kóranna var Þórir Baldursson. Skemmtunin var þríþætt. — Fyrst söng Karlakór Keflaví'kur, síðan Kvennakór Keflavíkur og málaflokki og fjallað um málin frá ýmsum hliðum og hefur því yfirleitt verið vel tekið hjá les- endum. Áskrifendum hefur fjölg að og hefur nú verið ákveðið að efna til áskrifendahappdrættis, þar sem 17 daga ferð til Mall- orca og Lundúna fyrir tvo á vegum ferðaskrifstofunnar Sunnu er í boði. Sigurður A. Magnússon, rit- stjóri Samvinnunnar, boðaði fréttamenn á sirun fund í þessu tilefni. Sagði hann, að þeir, sem greitt hefðu þennan árgang fyrir 7. júlí nk., yrðu sjálfkrafa þátt- takendur í happdrættinu og ætti það eins við gamla og inýja á- skrifendur. Ferðin verður farin einhverntíma á tímabilinu 16. júlí til 23. októher í haust. Þá ræddi Sigurður A. um Sam vinnuna og sagði að áskrifendum færi sífellt fjölgandi og væru þeir orðnir um 5 þúsund, en upp lag blaðsins er 7 þúsund eintök. Hið nýja befti Samvinnunnar er að þessu sinni helgað sam- vinnuhreyfingunni og m.a. rita um hana Erlendur Einarsson, Jónas H. Haralz og Hannibal Valdimarsson. lok sungu kórarnir saman. Ein- söngvari var Snæbjörg Snæbjarn ardóttir. Söngur kóranna vakti mikinn fögnuð, en því mdður mættu of fáir Akurnesingar á skemmtun- ina og má kenna því um, að hún var ekki nægilega vel auglýst. — HJÞ. Keflvískir kórar ó Akranesi 4 LESBÓK BARNANNA Litli maurinn þarf að komast yfir þennan mikla steinvegg til þess að komast heim í holu sína, en hann má aldrei fara yfir svart strik. Viljið þið ekki reyna að hjálpa honum? SMÆLKI — Hvaða hávaði er þetta uppi á loftinu hjá ykkur, Anna? — Ég veit það nú ekki með vissu. Annað hvort' er það hvolpurinn og kötturinn að fljúgast á eða frúin að leika á pía- nóið. ★ Ungur maður: „Hvað j segir þú við því, Viggó j litli, ef ég nú giftist einni af systrum þín- um?“ Viggó litli: „Ef þú vilt gefa mér tuttugu og fimm krónur, skal ég! segja þér hver þeirra er bezt“. ★ Hinrik litli: „Ég á að kaupa hálft pund af seigu nautakjöti". Kjötsalinn: „Hvers vegna á það að vera seigt?" Hinrik litli: „Vegna j þess að pabbi borðar það allt saman ef það er meirt“. ★ Afi (heldur Sveini litla á lofti fyrir framan stór- an spegil): „Sérðu ap- ann þann arna?“ Sveinn (ákafur): „Já. og hann er með gleraugu og heldur á litlum dreng á handleggnum". ★ Lögregluþjónn (kemur hlaupandi á eftir manni): „Heyrið þér. Þér megið ekki fara með hund þarna inn“ . Maðurinn: „Nú, ég á ekkert í þessum hundi“. Lögregluþjónn: „Hann fylgir yður þó eftir“. Maðurinn: „Já, það ger ið þér nú líka, og ekki veit ég til að ég eigi neitt í yður“. Listmálarinn (við bónda konu): „Viljið þér leyfa mér að mála litla, lag- lega húsið yðar?“. Konan: „Já, gerið þér svo vel, en þá verðið þér að mála rimlagirðinguria einu sinni yfir líka, því annars sýnist hún svo ljót, í samanburði við ný- málaða húsið“. Röð myndanna (úr síðasta blaði) Myndunum í seinasta blaði var ruglað. Rétt röð þeirra er svona: 1:B, 2:A, 3:F, 4:E, 5:C, 6:D. 13 Imrnmma 12. árg. Ritstjóri: Kristján J. Gunnarsson 22. júní 1968. GRANT úðaði síðustu vatnsgusunni yfir bakið á sér. Svo óð hann í land og hristi sig rækilega. „Það er gott að eiga frídag, finnst þér það ekki?“ kallaði Fíla- mamma. „Dásamlegt", svaraði Grani. Hann blakaði eyr unum, veifaði rananum og lallaði niður að ár- bakkanum, raulandi fyr- ir munni sér: „í dag get ég lifað og leikið, og látið eins og ég vil. Ekkert að gera, aðeins að vera, aðeins að vera til“. Grani hafði verið önnum kafinn alla vik- una. Hann hafði lært að fá sér bað. Hann gat nú ausið yfir sig vatni frá toppi til táar svo hann yrði allur tandurhreinn, meira að segja á bak við eyrun. Hann lærði að tína banana án þess að missa þá niður eða kremja þá. Hann lærði að velta stórum steinum án þess að merja á sér tærnar eða rispa ranann. Svo lærði hann líka það sem var erfiðast af öllu, Grani á góöan dag Eftir Laura Arlon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.