Morgunblaðið - 03.07.1968, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1968
Keflvíkingar
kaupa flugvél
KEFLAVÍK — Síðan í desem
ber 1967 hefur flugskólinn Þór
Istarfað á Keflavíkurfulgvelli.
Hafði skólinn þá eina flugvél,
Cessna 140, sem er tveggja sæta
flugvél. Nú hefur Þór fengið
aðra flugvél, fjögurra sæta, af
gerðinni Aero Commander, sem
ætluð er bæði til kennslu og
leiguflugs og er það fyrsta flug
vél þeirrar tegundar, sem til
landsins kemur og er talintraust
og góð.
Þessu unga flugfélagi hefur
gengið mjög vel og annastmikla
kennslu. Aðal-kennari til þessa
hefur verið Reidar Kolsö. Félag
ið hefur aðsetur á Keflavíkur-
flugvelli, og með geymslu véla
og eftirlit þeirra nýtur það að-
stoðar Loftleiða á staðnum. Eig-
endur og hluthafar í félaginu
eru níu flugmenn og er formað-
ur þeirra, Jóhann Líndal Jó-
hannsson, rafveitustjóri í Njarð
vík og Sveinbjörn Jónsson í
Keflavík er gjaldkeri.
Félagið hyggst taka að sér
leiguflug hvert á land sem er.
Og í framtíðinni hyggst það
auka flugvélakost til smáferða.
—h.s.j.
Mynd af líkani sýningahússins á Miklatúni, sem sýnir þá hlið hússins, sem snýr að Miklu-
braut. Húsið er teiknað af Hannesi Davíðssyni arkitekt.
„Allir Islendingar boðnir"
Hin einstœða Kjarvalssýning í Lista-
mannaskálanum tramlengd í 10 daga
— Það kostaði töluvert átak
að fara inn á heimili manna og
fara þaðan út með dýrmætasta
hlutinn, en það var vel ómaks-
ius vert. Á sýninguna hafa nú
komiö um 40 þúsund manns, sem
keypt hafa sýningarskrár fyrir
um 600 þúsund krónur.
Svo fórust Ragnari Jónssyni
orð við fréttamenn í gær, en
þá skýrði hann frá því, að ákveð
ið hefði verið að framlengja
Kjarvalssýninguna í Listamanna
skálanum í 10 daga, eða til 12.
júlí n.k.
Aðsóknin að sýningunni er
einsdæmi. Hún hefur alltaf ver-
ið mikil, en langmest tvo daga,
17. júní og svo kosningadagiwn
30. júní s.l. Segja má líka að
sýningin sé einstæð. Á henni má
sjá mörg af fallegustu og þekkt
ustu málverkum meistarans, mál
verk sem öll eru í einkaeign, og
því ekki tækifæri til að sjá í
annan tíma. Aðsóknin sannar,
að þetta tækifæri hefur verið
fólki kærkomið, og ekki er að
efa að á næstu 10 dögum muni
enn mikill fjöldi koma til að
sjá sýninguna, — ekki ótrúlegt
að gestimir fylli töluna 50 þús-
und áður en lýkur. Að sög>n
hefur það einnig vakið eftirtekt
VINNUSLYS í GUFUNESI
— Piltur féll úr hengipalli
SÍðDEGIS í gær féll 17 ára
piltur niður af hengipalli, þar
sem hann stóð við að mála ásamt
öðrum pilti. Hékk pallurinn í
talíu og mun annar talíukrók-
uxinn hafa losnað og féll pilt-
urinn 13 % metra niður. Kom
hann niður á höfuðið, öxlina og
hliðina. Var hann fluttur í
Landakotsspítala af Slysavarð-
stofu.
Hinn pilturinn, sem með honum
var, festi fótinn í járninu i
hengipallinum, náði svo í krók-
inn með hendinni og gat hangið
á honum, unz honum var
hjálpað niður.
hversu margir útlendingar hafa
komið til að sjá sýninguna.
Markmið sýningarinnar er tví
þætt. f fyrsta lagi, að gefa fólki
kost á að sjá list Kjarvals og
í öðru lagi að afla fjár til bygg-
ingar nýs listamannaskála, sem
rísa mun á Miklatúni. Aðgangur
að sýningunni er ókeypis, en
sýningarskrá er seld á 100 kr.
Gildir hún jafnframt sem happa
drættismiði og er vinningurinn
Þimgvaliamynd eftir Kjarval frá
árinu 1935.
Vinna við Listamannaskálann
á Miklatúni er hafin nýlega.
Verður um hið veglegasta hús
að ræða og er ætlunin að það
rísi á næstu 18 mánuðum. Á
þessum tíma á einmig að fullgera
húsið að utan, en innréttimgar
munu síðan gerðar eftir því sem
efni leyfa. Með því að kaupa
sýningarskrá gefst almenningi
kostur á velþegimni liðveizlu við
listamenm. — Bygging skálans
ætti að vera metnaðarmál allra,
sagði Ragnar Jónsson í gær, —
þar sem það er í raun og veru
meiri háðung en orð fái lýst, að
í höfuðborgimni skuli ekki vera
til neitt slíkt hús annað en þessi
gamli hrörlegi skáli, sem lista-
menin komu sjálfir upp, meðan
stórhallir rísa fyrir sýningar á
venjulegum vörum.
Biskup vísiterar
á Noröausturlandi
BISKUP fslands, herra Sigur-
björn Einarsson, vísiterar Norð-
ur-Múlaprófastsdæmi dagana
4.—12. júlí. Verður vísitazíunni
hagað sem hér segir:
Fimmtudag 4. júlí kl. 2:
Möðrudalur.
Föstudag 5. júlí kl. 2:
Skeggjastaðir.
Föstudag 5. júlí kl. 9:
Vopnafjörður.
Laugardag 6. júlí kl. 2:
Hof.
Sunnudag 7. júlí kl. 2:
Hofteigur.
Sunnudag 7. júlí kl. 5:
Eiríksstaðir.
Mánudag 8 .júlí kl. 1:
Sleðbrjótur.
Mánudag 8. júlí kl. 5:
Kirkjutoær.
Þriðjudag 9. júlí kl. 1:
Valþjófsstaður.
Þriðjudag 9. júlí kl. 5:
Ás.
Miðvikudag 10. júlí kl. 2:
Seyðisfjörður.
Miðvikudag 10. júlí kl. 9:
Eiðar.
Fimmtudag 11. júlí kl. 1:
Hjaltastaður.
Fimmtudag 11. júlí kl. 9:
Bakkagerði.
Þjóðhátíð undirbúin í Eyjum
Ólafur Gaukur, Svanhildur, Svavar
Gests og fleiri munu skemmta þar
Piltamir voru að vinna í hengipalli á móts við efstu gluggana
og notuðu stigann til að komastniður á hann. Myndina tók Karl
Eggertsson eftir slysið.
HIN fornfræga þjóðhátíð Vest-
mannaeyja verður haldin dag-
ana 2., 3. og 4. ágúst nk. íþrótta-
féiagíð Þór í Vestmannaeyjum
sér um þjóðhátíðina að þessu
sinni og verður sérstaklega til
hennar vandað nú, meðal ann-
ars vegna 55 ára afmælís Þórs
sem er á þessu ári.
Meðal nýjunga sem upp verða
tekin eru þær, að nú verður í
fyrsia sinn sérstök unglinga-
hljómsveit „pophljómsveit“ sem
leikur á „táningaballi". Einnig
verður önnur hljómsveit sem
ieikur meira fyrir alla en það
verður sextett Ólafs Gauks og
Svanhildur sem einnig munu sjá
um fjölbreytta skemmtidagskrá
ásamt Svavari Gests.
Á þjóðhátíð Vestmannaeyja
eru ávallt geysimiklar skreyting
ar i Herjólfsdal, sem eru mikið
upplýstar er kvölda tekur og má
líkja Herjólfsdal við æfintýra-
heim, vegna mikils skrauts og
rómantízkrar lýsingar. íþróttir
verða fjölbreyttar, keppt verður
í knattspyrnu ,handknattleik og
frjálsum iþróttum ,sýnt verður
bjargsig sem Vestmannaeyingar
eru frægir fyrir, brenna er fast
ur liður með Brennukóng sem
tendrar hana, flugeldasýning,
Lúðrasveit Vestmannaeyja leik-
ur og Samkór Vestmannaeyja
syngur, og sitthvað fleira verð-
ur til skemmtunar. Kynnir þjóð-
hátíðar verður Stefán Árnason,
fyrrv. yfirlögregluþjónn. Seldar
verða ýmsar nauðsynlegar veit-
ingar og smurt brauð ásamt
fleira góðgæti.
Að undirbúningi þjóðhátiðar-
innar starfa allir í sjáifboíja-
vinnu ,yngri sem eldri félagar
Þórs, en kosnar eru ýmsar nefnd
ir sem sjá um ákveðin verkefni;
þessar nefndir eru alls 11. Aðai-
nefnd þjóðhátíðar er skipuð 5
mönnum og formaður hennar er
Valtýr Snæbjörnsson og með
honum í nefndinni eru Stefán
Runólfsson, Jóhann Guðmunds-
son, Kristmann Karlsson og Jón
Kr. Óskarsson. Þess má geta að
ákveðið hefur verið að leita eft-
ir tilboði í hljómsveit til að leika
fyrir unglingana og ber að skila
tilboðum fyrir 10. júlí. Eins hef-
ur verið ákveðið að leita eftir
tilboðum í sölu á: ís, pylsum,
sælgæti, öli og veitingum í veit-
ingatjaldi og ber þeim tilboðum
að vera skilað fyrir 15. júlí nk.
í pósthólf 228, Vestmannaeyjum.
Föstudag 12. júlí kl. 11 árd.:
Njarðvík.
Föstudag 12. júlí kl. 4:
Húsavík.
Föstudag 12. júlí kl. 8.30:
Klyppstaður.
Guðsþjónusta verður í öllum
kirkjum, svo og kirkjuskoðun
og viðræður við söfnuð og prest.
Sóknarnefndir, safnaðarfulltrú-
ar og aðrir sóknarmenn eru boð-
aðir til viðtals. Einnig eru börn,
einkum fermingarbörn ársins,
sérstaklega beðin að koma til
fundar við biskup.
(Frá skrifstofu biskups)
- TENESSEE
Framhald af bls. 1.
bróður síns segist leikritahöf
undurinn vera önnum kafinn
við að viinna, „sem sé mesta
yndi hans“ en honum líði
ekki v>el, þar sem hann sé
umkringdur af mönnum sem
ofsæki hann.
Um síðustu helgi hringdi
hann í Dakin bróður sinn og
Tennessee Williams
sagði: — Ég er á lífi, en
þeir eru enn á eftir mér,
Tennesse Williams er
heimsfrægur fyrir kyngimögn
uð leikrit sín, sem gerast
flest í Suðurríkjum Banda-
ríkjanna. Ýms þeirra eins og
„A Streetcar Named Desire,“
„Baby Doll“ og „Cat on a
Hot Tin Roof“ hafa ennfrem-
ur verið kvikmynduð við
góðar undirtektir um allan
heim.