Morgunblaðið - 03.07.1968, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐEÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1968
23
BORAÐ EFTIR HEITU VATNI
í Námaskarði og á Reykjanesi
Unnið er í sumar að borunum (ina vegna fyrirhugaðrar gufu-
eftir heitu vatni á tveimur stöð- rafstöðvar. En á Reykj anesi
um utan Reykjavíkur, á Reykja- hefur verið borað í 10 —12 ára
nesi og við Námafjall. Við Náma gamla holu, en hætt við það, þar
fjall er verið að undirbúa borun ' eð svo mikil gufa kom í hana
Humarveiðin ákaf-
lega treg —
HUMARVEIÐI hefur verið ákaf
lega treg hjá bátunum sem róa
Hanoiútvorp
hvassyrt
Hong Kong 2. júlí AP
HANOI-útvarpið sendi frásér
orðsendingu í dag og hvatti Viet
Cong menn til að herða enn and
stöðuna og baráttuna gegn
bandarískum árásaröflum og
leppstjóm þeirra. Þar er tilmæl
um Bandaríkjanna hafnað al-
gerlega, en þeir höfðu beint
þeirri áskorun til N-Vietnama,
að þeir hættu vöru- og vopna-
sendingum til S-Vietnam, ef
Bandaríkjamenn hættu loftárás
um.
Segir ennfremur í orðsending-
unni, að þessi krafa sé heimsku
leg og sýni dæmalausa þver-
móðsku BandaTÍkjamatnna. Þeir
hafi frá byrjun verið árásarað-
ili og verði að stöðva allarhern
aðar aðgerðir í Vietnam, áður
en N-Vietnamar og Viet Cong
inuni slaka til.
úr höfnum á Suðurlandi, frá
Þorlákshöfn, Eyrarbakka og
Stokkseyri.
Fjórir bátar róa frá Eyrar-
bakka. Voru giæftir fremur
stirðar framan af, að sögn frétta
ritara blaðsins á staðnum. Og
þegar hægt hefur verið að
stunda veiðarnar, hefur afli ver-
ið sérlega rýr. Hafa Eyrarbakka
bátar reynt fyrir sér á öllu svæð
inu frá Selvogi og austur undir
Hornafjörð, en alls staðar verið
sama sagan, rýr afli. Einnig fæst
mjög lítill fiskur með þeim hum
ar, sem veíðist.
Humarveiðin var afar treg í
fyrstu, en hefur glæðzt síðustu
tvær sjóferðirnar, sagði frétta-
ritari Mbl. á Stokkseyri. Hafa
bátarnir nú fengið 80—120 körf-
ur á bát. Með því fá þeir 6—7
tonn af bolfiski, aðallega löngu.
Fimm bátar eru við humar-
veiðar frá Þorlákshöfn. Hefur
þeim gengið illa, bæði verið
stopular gæftir og afli verið lé-
legur þegar gaf.
- KAL
Framhald af bls. 24.
tún til víðar, t.d. við Hrútafjörð
og á Norðausturlandi.
Klaki er enn í jörðu um meg-
inhluta landsins. Mjög lítið er
farið að þiðna á Norðaustur-
landi, þar sem þykkt lag er af
klaka og ekki nema 10 sm nið-
ur á hann.
Slæmu vorin eru orðin 3—4
í röð á Norðausturlandi. Tún
eru v85a orðin stórskemmd og
gefa ekkert af sér og versna
alltaf. Árið 1965 var verst hvað
þetta snertir á Austuriandi og
1967 á Norðurlandi.
Sláttur ekki fyrr en í ágúst
í framhaldi af ummælum
búnaðarmálastjóra um að ástand
ið væri hvað verst við Hrúta-
fjörð og Húnaflóa, áttum við
tal um þetta við fréttaritara
Mbl. á Hólmavík á Ströndum
og á Staðarbakka í Miðfirði.
Sr. Andrés á Hólmavík sagði,
a!ð mjög mikið kal væri allt frá
Hrúafirði og norður um Stranda
sýslu. Þó virtist kal minna á
dalajörðunum, þar sem snjór
hefur meira legið yfir og varið.
Hafa bændur tjáð honum, að
mest hafi kalið í vor, því eftir
að snjóa fór að taka upp, þá
gerði skörp frost. Andrés kvaðst
hafa talað við bændur í gær-
morgun og spurt þá hvenær
þeir héldu a’ð sláttur mundi
geta hafizt. Þeir töldu fráleitt
að það gæti orðið fyrr en í
ágúst og sennilega ekki fyrr en
undir miðjan þann mánuð. Þetta
táknar það að ekki verður sleg-
ið nema einu sinni það sem
venjulega er slegið tvisvar. Og
þegar svo kalblettimir bætast
við, þá verður mjög lítiS um
hey.
Ekki er ísinn enn farinn af
þessum slóðum. Og fara allstór
ísrek fram og aftur eftir vind-
áttum um sjöinn. I gær var
Steingrímsfjörður lokaður af ís.
Þó komust færábátar út. Isinn
hrellir þá, en útlit er fyrir sæmi
legan afla á færi. Svo seint tek-
ur snjó upp, að aðalleiðin til
Barðastrandasýslu, um Trölla-
tunguheiði, var ekki rudd fyrr
en fyrir fáum dögum.
Sum tún eyðilögð í ár
Benedikt á Staðarbakka sagði
aS í Miðfirði og í nágrenninu
væri mikið kal á mörgum bæj-
um, þó það væri dálítið mis-
jafnt. Eru sum tún að sjá eyði-
lögð í þetta sinn, sérstaklega
nýlega ræktað land. En gömlu
túnin virðast standa sig betur.
Hefur það aldrei komið fyrir á
þeim slóðum, að svona mikið
kali. Fyrir utan kalið, sag'ði
Benedikt að menn gerðu sér
vonir um að annars staðar
sprytti, ef nú gæti hlýnað.
Hvergi er byrjaður sláttur og
byrjar varla fyrr en eftir hálf-
an mánuð. Enn er ísinn inni á
öllum fjörðum og æði kulda-
legt, sagði Benedikt.
Plægja upp kalblettina
og sá aftur
Þá átti Mbl. tal við Siggeir í
Holti á Síðu. Hann sagtii að á
Síðunni væri spretta slæm, og
yrði ekki almennt farið að slá
fyrr en upp úr miðjum mán-
uði, þó einstaka maður væri að
byrja. En ástandið væri þar
ekki svo tiltakanlega slæmt, mið
að við annars sta’ðar. Aftur á
móti væru mikil brögð að kali í
Skaftártungunni. Hefðu sumir
tekið _það ráð að plægja upp og
sá aftur. Á Flögu væri t.d. búið
að taka þannig fyrir stórt stykki
af túni.
Mikill kuldi, en menn vongóðir
Kristján í Vogum í Mývatns-
sveit sagði að sjálfsagt væri
ástand verra en í Mývatnssveit-
inni. Viða væri að vísu kal, bæði
nýtt og gamalt, en sums staðar
væri farið að spretta, og liti ekk
ert illa út með sum túnin. Þó
er enn kalt, snjóaði í fjöll í
fyrrinótt og var ekki nema
tveggja stiga hiti bæði í gær-
morgun og fyrrakvöld. Taldi
Kristján að ef þornaði, þá mundi
standa til bóta með sprettuna.
strax á 15 m dýpi, og verður því
byrjað á annarri holu skammt
frá.
Þessi mikla gufa í gömlu hol-
unni á Reykjonesi bendir til
þess, að hún hafi eitthvað breytt
sér síðan hún var grafiin. Virð-
ist hafa komið sprunga í gegn-
um holuna í jarðskjálftunum í
vetur. En sjaldan er nokkur
kraftur í hita svona rétt undir
yfirborðinu, að því er ísleifur
Jónsson verkfræðingur sagði
okkur. Þessi hola var 10 —12
ára gömul, um 160 m djúp og
hefur verið opki og blásið síðan
hún var boruð. Hún er austur
af Reykjanesvita, við veginn til
Grindavíkur. Var búið að
steypa í efsta hluta holunnar,
þegar þessi mikla gufa kom.
Er nú verið að byrja á annarri
holu í um 200 m fjarlægð frá
henni.
í Námaskarði er ætlunin að
bora 700 — 1000 metra niður,
að því er ísleifur tjáði Mbl.
Norðurlandsborinn hefur verið
við Námafjall síðan í fyrra. Búa
bormenn sig undir að bora
þarna 2 — 3 holur, en það fer
þó eftir árangri hve margar þær
verða. Næg not eru fyrir jarð-
hitann, því auk þess sem fyrir-
hugað er að byrja á fyrstu gufu-
rafstöðinni á Islandi þarna í
haust, þá kemur Kísiliðjan til
með að þurfa meiri orku seinna.
Hallg rí mskirkju
gefið listaverk
í DAG, 3. júlí, eru liðin hundrað
ár síðan Ásgeir Eyþórsson, fyrr-
um kaupmaður á Kóranesi og
Kosningaúrslitin
í YFIRLITINU um úrslit forseta
kosninganna í blaðinu í gær var
atkvæðatala Gunnars Thorodd-
sens sögð hin sama í Suðurlands
kjördæmi og í Reykjaneskjör-
dæmi, en Gunnar hlaut 3161 at-
kvæði í Suðurlandskjördæmi.
hent Hallgrímskirkju í Reykjavík
dýrmæta og fagra gjöf, til minn-
ingar um þau. Er það helgimynd
úr steindu gleri, gerð í Englandi,
af sömu meisturum og gerðu
gluggana, er nú prýða Bessa-
staðakirkju. Er hún hinn vand-
aðasti gripur. Myndin er síðasta
stórverk Guðmundar Einarssonar
frá Miðdal, og kom hún fullunn-
in til landsins eftir lát lista-
mannsins.
Það er enn ekki ákveðið, hvar
myndinni verður fyrir komið í
kirkjunni til frambúðar, en sú
ákvörðun verður gerð í samráði
við gefendurna. En allir, sem að
Hallgrímskirkju og hennar mál-
um standa, eru þakklátir gefend-
unum fyrir rausn þeirra og góð-
vild til kirkjunnar, sem kemur
fram í því, að þeir vilja minnast
látinna foreldra eða forfeðra
sinna á einum merkisdegi ættar-
innar með því að gefa slíka minn
ingargjöf til Haillgrímskirkju.
(Frétt frá Hallgrímskirkju í
Reykjavík).
Straumsfirði, fæddist. Hann var
faðir Ásgeirs, forseta íslands, og
þeirra systkina. í tilefni af þessu
aldarafmæli hafa afkomendur
Ásgeirs Eyþórssonar og konu
hans, Jensínu Matthíasdóttur, af-
Nýir eigendur
að Ferstiklu -
NÝIR eigendur hafa tekið við
rekstri Ferstiklu og hafa þeir
tekið upp nokkrar nýjungar í
rekstri staðarins. Sú helzta er,
að sett hafa verið mjög góð
Dalamenn unnu
sveitnkeppni
í skúk
LOKIÐ er nú forkeppni í sveita
keppni UMFÍ í skák. Um síðustu
helgi kepptu þrjú héraðssam-
bönd á Blönduósi, þ.e. Ung-
mennasamband Austur-Húnvetn
inga, Ungmennasamband Dala-
manna og Ungmennasamband
Skagafjarðar.
Leikar fóru þannig að UMSD
og USAH gerðu jafntefli 2:2,
UMSS og USAH gerðu einnig
j afntefli 2:2, en UMSD vann
UMSS með 3:1. Dalamenn fengu
þannig samtals 5 vinninga, Aust-
ur-Húnvetningar 4 og Skagfirð-
ingar 3 vinninga. í sigursveit
UHSD voru Gisli Gunnlaugsson,
Guðmundur Sigursteinsson, Jó-
hann Þorsteinsson og Ólafur Jó-
hannsson. Margir kunnir skák-
menn hafa tekið þátt í keppn-
inni, t.d. var Jónas Halldórsson
í liði Húnvetninga og Freysteinn
Þorbergsson í sveit Skagfirðinga
Áður höfðu Ungmennasam-
band Eyjafjarðar og Ungmenna-
samband Kjalarnesþings unnið
sér rétt til þátttöku í úrslita-
keppninni og keppa þau því
ásamt Ungmennasambandi Dala
manna á Landsmótinu á Eiðum
13,—14. júli.
hljómburðartæki í gamla veit-
ingaskálann og munu verða þar
um helgar í sumar dansleikir og
leikið undir af plötum. Verður
fyrsti dansleikurinn n.k. föstu-
dagskvöld.
Eins og áður verður veitinga-
sala í skálanum niður við veg-
inn og er þar opið allan sólar-
hringinn. Gefst þar vegfanend
um kostur á alls konar heitum
mat. Þá verður einnig hægt að
fá nestispakka til lengri og
skemmri ferðalaga.
f gamla veitingaskálanum verð
ur og starfrækt veitingasala. Er
þar góð aðstaða til þess að taka
á móti ferðahópum, en þar verð
ur að panta matinn fyrirfram.
Sagði framkvæmdastjórinn Hall
dór Júlíusson við fréttamenn, er
þeim var boðið að njóta gest-
risni staðarins, að gamli veit-
ingaskálinn yrði ekki starfrækt
ur sem veitingasala nema fyrir
slíka hópa. Hann sagði einnig, að
vínveitingar væru ekki, en þó
myndu ferðahópar geta fengið
vínveitingaleyfi.
Að Ferstiklu verður einnig
hægt að fá veiðileyfi í Þóris-
staðavátni, sem er þar skammt
frá.
— ......litrík og litglöð
Framhald af bls. 24.
myndin síung, litrík og lit-
glöð og hefur þann eigin-
leika að njóta sín ágætlega
bæði í dagsbirtu og við ljós.
Á vetrarkvöldum fyllir hún
stofuna líka af birtu og
blómaskrúði.
— Hvað finnst þér um
þessa Kjarvalssýningu?
— Það er reglulega gaman
að sjá þessa fjölbreyttu og
þó persónulegu Kjarvals-
sýningu, fyrirmannlega og
hófsamlega. Svona á Kjarval
eftir að lifa í beztu og per-
sónulegustu verkum sínum.
— Nú mun ekki vera til
nein heildarskrá yfir verk
Kjarvals.
— Um það var einu sinni
rætt í menntamálaráði, að
láta gera fræSilega mynda-
skrá um verk Kjarvals og
er enn framundan, ef nógu
kunnugir menn fást til sam-
vinnu um slíkt heimilda-
verk og líklegt þykir, að það
sé framkvæmanlegt til fulls.
Fyrir löngu töluðum við
Kjarval saman um slík efni
í útvarp og einu sinni — það
var heima hjá honum —
sagði hann mér langt mál
um listir og listamenn, skyn-
samlegt og skemmtilegt. En
það verður ekki rakið í svip
fyrir framan þessa mynd.
Það er líka meira en nóg að
hafa ánægjuna af því að
skoða þessa fallegu sýningu.
- BRETAR
Framhald af bls. 1.
Ekkert hefur enn verið látið
uppi um hvort Ray muni áfrýja
málinu, en talið er víst að hann
muni gera það. Getur hann
fyrst áfrýjað málinu til hæsta-
réttar. Staðfesti hæstiréttur
dóm undirréttar getur Ray á-
frýjað til lávarðadeildarinnar.
Framsalsheimildin var veitt á
tveimur forsendum, að Ray
væri glæpamaður á flótta frá
morðákæru og dómi fyrir rán.
Veðurspáin kl. 22 í gærkv.:
Um 600 km. S-SA af Hvarfi
er alldjúp lægð, en hæða-
hryggur á Grænlandshafi. —
Færist hvort tveggja hægt í
austur eða NA.
Veðurhorfur: Súðvesturland
og miðin: Hæg breytileg átt,
léttskýjað. Faxaflói til Vest-
fjarða og miðin: V-gola,
þurrt en víðast skýjað. Norð-
urland og miðin: V-gola, létt-
skýjað. NA-Iand og miðin:
NV-gola, þokuslæðingur á
miðunum, en víðast léttskýj-
að. Austfirðir, Súðausturland
og miðin: Hægviðri og þurrt
en víðast skýjað. Norðaustur-
djúp og Austurdjúp: Vestan
2—4 vindstig, skýjað og sums
staðar dálítil súld.
Veðurhorfur á fimmtudag:
Hæg, breytileg átt, þurrt veð-
ur, víða skýjað við sjóinn, en
yfirieitt bjart veður í inn-
sveitum.