Morgunblaðið - 03.07.1968, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1968
3
Norsk stúlka mest-
um hæfileikum búin
— f prófraun er SAS hélt fyrir
vœntanlega þotuflugmenn sína
SAS stendur nú frammi fyr-
ir nýju vandamáli, sem ekk-
ert af stærri flugfélögunum í
heiminum hefur áður þurft
að glíma við. Sá dagur er í
nánd, að farþegar SAS heyri
kvenmannsrödd segja í liátal-
ara flugvélarinnar: Góðan
dag, góðir farþegar. Þetta er
flugstjóri ykkar, Turi Wider-
öe, sem bíður ykkur velkom-
in um borð.
Turi Wideröe er þrítug að
aldri, og befur að undanförnu
verið flugstjóri á flugbátum,
sem halda uppi samgöngum í
Norður-Noregi. Er SA’S aug-
lýsti fyrir nokkru eftir hópi
flugmanna á DC-8 þotur sín-
ar, var hún í hópi þeirra, sem
sótti um stöðu hjá flugféiag-
inu .Umsækjendur þurftu að
gangast undir stranga próf-
raun, þar sem þeir áttu að
leysa erfiðar stærðfræðiþraut
ir og sýna kunnáttu sína í
ensku, auk þess sem sálrænn
styrkur og andlegt jafnvægi
þeirra var reynt til h.lítar.
Úrslitin urðu þau, að eina
konan í hópnum sló öllum
karlumsækjendunum við á
öllum þessum sviðum.
Odd Medböe, blaðafulltrúi
9AS og góðkunningi margra
íslenzkra blaðamanna, var
hér á ferð fyrir skömmu, og
tjáði hann þá blaðamanni
Morgunblaðsins frá helztu
vandamálum, sem upp hafa
risið vegna þessarar óvæntu
frammistöðu Turi Wideröe.
Hún hefur þegar fengið boð
um að sækja þjálfunarskóla
á DC-8 þotur, en einn var-
nagli er þó sleginn varðandi
umsókn hennar. Flugmálayf-
irvöld verða 'að falla frá því
skilyrði, að þriðji flugmaður
DC-8 (sem verður fyrsta
staða Wideröe hjá SAS) verði
að hafa hlotið þjálfun sem
flugmaður á herþotu.
Medböe segir, að innan
skamms verði gengið fast á
flugmálayfirvöld SAS-land-
anna, að þau falli frá þessu
skilyrði, þar sem það verði
að skoðast úrelt. Gagnasöfn-
un er þegar hafin, m.a. frá’
Bandaríkjunum, og er vonast
til aS þau flýti fyrir endur-
skoðun á þessum ákvæðum.
— Turi Wideröe hefur sýnt
það og sannað, að hún stend-
ur herflugmönum ekkert að
baki hvað hæfileika snertir,
og það er eingöngu lagt til
grundvallar, er umsókn berst,
en ekki af hvoru kyninu um-
sækjandinn er, segir Medböe.
En þegar ungfruin hefur
Turi Wideröe — verður hún fyrsti farþegaþotuflugstjórinn af
veikara kyninu?
hlotið stöðu hjá SAS rís upp
annað vandamál. Á hún að
klæðast pilsi eða buxum?
Medböe getur enn sem kom-
ið er ekki svarað því með
neinni vissu, en telur þó iík-
legra að hún klæðist buxum.
Kappreiðar And-
vara og Gusts
Hestamannafélögin Andvari í
Garðahreppi fyrsti formaður
Helgi Hjálmsson, núverandi for-
maður Jón Guðmundsson og
Hestamannafélagið Gustur í
Kópavogi fyrsti formaður Jón
Eldon nú látinn, núverandi for-
maður Ragnar Bjarnason héldu
kappreiðar á Kjóavöllum sl.
laugardag.
Mótið hófst kl, 15.00 og var
lokið um kl 19.00. Mótið setti
Bjami Bjarnason frá Laugar-
vatni, tók þá þulur við stjóm
og framkvæmd dagskrárinnar,
Pétur Hjálmsson ráðunautur. Þá
hófst hópreið, Andvaramenn riðu
fyrir. Félagar voru klæddir sín-
um félagsbúningi, báðir í hvít-
um skyrtum, Andvaramenn í
rauðum ermalausum peysum.
Gustsfélagar með rauðan borða
yfir öxl.
Tala hópreiðarmanna var um
50 og svipuð hjá báðum félögun-
um. Fylkingin staðnæmdist út
frá dómpalli. Einar G. E. Sæ-
mundsen skógarvörður formað-
ur Landsambands Hestamannafé
laga flutti ávarp og opnaði hinn
nýja skeiðvöll fyrrnefndra fé-
laga.
Góðhestar höfðu verið dæmdir
að morgni dags, voru þar að
verki þrír kunnir Ámesingar
þeir Jón Bjarnason Selfossi, Sig-
urður Sigmundsson Langholti og
Þorgeir Sveinsson Hrafnkelsstöð
um.
Góðhestar voru leiddir fram
og Jón Bjarnason lýsti dómum.
Fyrst komu alhliða gæðingar. Af
hestum Andvara var fyrstur
Logi rauðstjörnóttur 9 vetra
Borgfirðingur eigandi Sigurður
Thoroddsen, annar var Óðinn 12
vetra úr Dalasýslu, eign Ernu
Konráðsdóttur. Þriðji Lýsingur
leirljós 8 vetra Borgfirðingur,
eigandi Jón Guðmundsson. Alls
voru þessir hestar átta.
Verðlaun voru gull, silfur og
brons, auk farandsbikars. Þá
komu fimm klárhestar með tölti
fyrstur var Þytur jarpur, 12
vetra Borgfirðingur eigandi And
reas Bergmann, annar Blesi sót-
rauður eigandi Birgit Guðjóns-
dóttir, Blesi er 8 vetra úr Gull-
bringusýslu.
Þriðji var Bíldur grár 8 vetra
úr Borgarfirði. Verðlaun voru
samskonar og fyrr var getið.
Verðlaun hjá Gusti voru ein-
göngu skrautrituð heiðusskjöl.
Af alhliða gæðingum var met-
inn hæst Vinur brúnn 8 vetra
Húnvetningur eign Benedikts
Garðarssonar, annar var Kol-
skeggur bleikólóttur 10 vetra
Rangæingur eign Hreins Árna-
sonar, þriðji Léttir hvítur 14
vetra úr Rang. Eigandi Óskar
Grímsson. í þessum hópi voru
átta hestar.
Klárhestar með tölti.
Fyrstur Blesi 8 vetra Hún-
vetningur eigandi Óskar Gríms-
son, arnnar var Nökkvi 7 vetra
úr Hún. í eigu Jóhönnu Jóns-
dóttur þriðji var Blesi, rauðbles-
óttur 8 vetra í eigu Jakobs Svein
björnssonar. 1 þessum hópi voru
10 hestar alls.
Skeið 200 metrar:
1. Léttir 22.3 sek, hvítur hest-
ur 14 vetra úr Rang. eigandi
Óskar Grímsson, Gusti.
2. Harpa 24.1 sek. bleik 10
vetra eigandi Fanney Bjarna-
dóttir Gusti.
3. Móskjóni 25,5 sek úr Borg-
arfirði eigandi Ragnar Bjarna-
son Gusti.
Alls voru skeiðhestar 10.
250 metra stökk G vetra folar
og yngri:
1. Örri 20.0 sek rauður, 6
vetra úr Dalasýslu eigandi Svein
björn Garðarsson.
2. Háfeti jarpur 5 vetra Krist-
jáns Guðmundssonar 20.7 sek og
3. Glæsir á sama tíma, rauðbles-
óttur 5 vetra eigandi Höskuldur
Þráinsson. Alls voru folarnir 10.
300 metra stökk:
1. Snær 24.0 sek hvítur 13
vetra úr Hún. Eigamdi Guðmund
ur Ásmundsson Gusti.
2. Blesi 24.4 sek, aauðblesótt-
ur 8 vetra úr Hún. Eigandi Jakob
Sveinbjarnarson Gusti.
3. Gígja 24,4 sek rauð 11 vetra
úr Skagafirði eigandi Guðmund-
ur Ásmundsson Gusti.
Unghross í tamningu voru
sýnd 6 talsins. Loks var nagla-
boðhlaup milli félaganna og
vann Andvari.
Kjóavellir er fagurt dalverpi
milli nokkuð uppblásinna hæða
norð austur af Vífilsstöðum. Vell
irnir eru í landi spítalans og
Vantsenda. Vallarg.erðin var að
mestu unnin í sjálfboðavinnu fé-
laganna, sem mótið héldu. Sú
nýjung hér sunnanlands var að
allar hlaupabrautirnar fimm að
tölu fjögra metra breiðar hver,
voru afmarkaðar með hvítum
snúrum á hvítum 70 cm. háum
stólpum. Hestamannafélag-
ið Þjálfi í S-Þimgeyjarsýslu hef-
ur gert þetta þamnig úr garði í
mokkur ár og gefist vel og hvatt
aðra til að taka þetta upp. Að
þessu sinmi gafst þetta afburða
vel, hestarnir hlupu hver sína
beinu braut, skeikaði aldrei. Mót
ið var aðeins innan þessara
tveggja félaga, sem áður ségir.
Utanfélagsmenn sem lögðu félög
unum lið þenman dag voru eiras
og fyrr er nefnt formaður L.H.
Árnesingarnir, Hallsteinn Hinr-
iksson íþróttakennari í Hafnar-
firði. Hann kom msð lið með sér
og sá að öllu leyti um tíma-
vörslu. Björn Helgason lögfræð-
ingur var yfirdómari. Þá er þul-
urinn sem stjórnaði mótinu með
miklum ágætum og loks kom okk
ar alþekkti Jón Alexandersson
með sitt hátalarakerfi.
Við félagar í Andvara og
Gusti færum öllum þessum
mönnum ágætustu þakkir fyrir
hjálpina. Knapar voru afburða
árvakir svo og allir sem unnu.
Veitingar voru hinar beztu og er
að enginn „peli“ hafi sézt á Kjóa
völlum kappreiðardaginn. Við fé
lagar gátum ekki kosið okkur
þennan dag ánægjulegri. Fram-
kvæmdastjóri undirbúningsins
var Hreinn Árnason, við þökk-
um allir einnig honum ágæta
vinnu og formennsku.
(Fréttatilkynning)
Sumsæri í
Sierro Leone
Freetown, Sierra
Leone 2. júlí AP.
FORSÆTISRÁÐHERRA Afr-
íkurikisins Sierra Leone, Siaka
Stevens sagði í útvarpsræðu í
dag, að komizt hefði upp um
samsæri óaldarmianna og hvitra
málaliða ti-1 að steypa stjórn-
inni. Hann kvaðst hafa fengið
óyggjandi sannanir fjrrir því, að
ráðagerð væri innrás fjandsam-
legra hópa inn í landið og hvatti
alla borgara til að vera á verði
næstu daga.
Tókíó 2. júlí AP.
HIN OPINBERA fréttastofa
Alþýðulýðveldisins Kína til-
kynnti í dag, að tveir brezkir
sjómenn, sem voru handteknir
fyrir njósnir, verði fluttir frá
Kína í hermannafylgd.
Birt voru nöfn sjómannanna
tveggja, R. V. Pope, skipstjóri á
brezka skipinu „Fortune Wind“
og D. V. Jónes, fyrsti stýrimað-
ur á öðru brezku skipi.
Nánari fréttir um mál þetta
voru ekki birtar, né heldur skil-
greint nákvæmlega í hverju
njósnir mahnanna tveggja hefðu
verið fólgnar.
Tókíó, 1. júlí. AP.
SNARPUR jarðskjálfti varð í
Japan kl. 7:45 í morgun, að jap-
önskum tíma. Upptök hans voru
aðeins 80 km frá Tókíó og var
þetta harðasti jarðskjálfti, sem
þar hefur komið á síðari árum.
Rúður verzlana brotnuðu, en
ekki var vitað um neinar meiri-
háttar skemmdir á byggingum
eða slys á fólki. Engar skemmdir
urðu á 36 hæða húsi, sem er
hæsta bygging í Tókíó, enda er
ætlazt til þess að það standist
jafnvel jarðskjálfta sem þann,
er Iagði Tókíó í rústir árið 1923.
— Járnbrautarferðir hafa veið
stöðvaðar í nágrenni borgarinnar
meðan sporin eru athuguð.
ST\KSTEI\AIÍ
„Sigur þjóðarviljans'* ]
í forystugrein Tímans í gær
er fjallað um úrslit forsetakosn-
inganna og sagt:
„Úrslit forsetakosninganna
eru kunn. Þær urðu þjóðkjör í
fullum skilningi þess orðs, og
leiddu þjóðarviljann í ljós, skýr
an og skýlausan. Nær tveir
þriðju hlutar kjósenda hafa skip
að sér um annað forsetaefnið,
dr. Kristján Eldjárn. Sú þjóð-
arhreyfing, sem reis þegar um
framboð dr. Kristjáns Eldjárns,
hefur orðið sterkari en flesta
mun hafa grunað, jafrtvel síð-
ustu dagana, þegar línur tóku
þó mjög að skýrast
Það er tvennt, sem augljóst
má vera eftir tvennar forseta-
kosningar í landinu. Annað er
það, að þjóðin vill ekki, að
stjórnmálaflokkar hafi afskipti
af framboði eða kosningabar-
áttu. Hitt er, að hún vill með
engu móti, að unnið sé fyrir-
fram að því að ákveðnir menn
komizt í embættið, áður en hún
kallar til kjörs. Hún vill hreint
borð og enga milligöngu í þess-
um málum, og hið beina trúnaðar
samband milli hennar og forset-
ans myndist í raunverulegu og al
frjálsu þjóðkjöri, þar sem málin
hafa verið lögð í dóm þjóðar-
innar á þann veg, að þjóðar-
viljinn geti komið skýrt fram.
Þegar framboð dr. Kristjáns
Eldjárns kom til sögu, var þess-
um forsendum fullnægt, og
þjóðkjörið tryggt, og það mat
þjóðin meira en flest annað, og
ef til vill er þetta þyngsta lóð-
ið á vogarskál þessara kosninga-
úrslita.
Þessar kosningar eru því
miklu meira en val milli tveggja
vel hæfra manna í forsetastöðu,
manna, sem þó eru ólíkir um
margt. Þær eru engu síður til-
sögn þjóðarinnar um það, hvern
ig hún vill hafa aðdraganda
framboðs, og hverjar hún telur
forsendur þess, að þjóðarvilj-
inn geti komið skýrt fram í for-
set akosn ingum.“
Þessar kosningar eru því
fyrst og fremst sigur þjóðarvilj-
ans, og sá sigur er harla mikil-
vægur til þess að móta hefð
!réttrar umgengni við forseta-
framboð og forsetakosningar í
framtíðinni og sveigja menn til
hlýðni við skýr en óskráð lög
um það, hvemig efnt skuli til
kjörs á þessum æðsta og ná-
komnasta trúnaðarmanni þjóðar-
innar allrar . .
Þakkir alþjóðar
„Þótt annar frambjóðandinn
hafi beðið ósigur, svo sem hlaut
að verða í réttu þjóðkjöri, ber
okkur að minnast þess, að það
er engum minnkun að falla í ís-
lenzkum forsetakosningum, sem
réttilega er til stofnað. Sá mað-
ur á að loknum leik skilið þakk-
ir alþjóðar fyrir framlag sitt til
þess að láta þjóðarviljann koma
í ljós, og hann á að meta vel
fyrir þá þjónustu. Þess ber þjóð
inni að minnast um leið og hún
fagnar nýjum og rétt kjörnum
forseta, ágætum manni og mikil-
hæfri konu hans, sannkölluð-
um þjóðarforseta eftir úrslitum
kjörsins.
Tíminn býður hin nýju for-
setahjón velkomin til starfa, ósk-
ar íslendingum til hamingju með
þessa æðstu trúnaðarmenn sína
og skýlausan sigur þjóðarvilj-
ans. Þegar á allt er litið var
kosningabaráttan drengileg oft-
ast nær, þótt töluvert hitnaði í
kolum við og við, og því geta
menn nú við leikslok, beiskju-
laust, tekizt í hendur og mynd-
að það trúnaðarsamband við for-
seta sinn, sem þjóðinni er nauð-
synlegt.
Gæfa og gengi fylgi íslenzku
þjóðinni og hinum nýkjörnu for-
setahjónum.“