Morgunblaðið - 10.07.1968, Side 8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 106«
8
SÖNGMÓT UM SÓLSTÖOUR
MÝVATNSBRÉF
FRÁ KRISTJÁNI ÞÓRÓLFSSYNI, BJÖRK
Björk, Mývatnssveit, 28. júní
SÖNGMÓT Heklu, sambands
norðlenzkra karlakóra, hið 10.,
var haldið um síðustu helgi, á
Húsavík, í Mývatnssveit, og
Skagafirði. Alls tóku 9 karlakór-
arar þátt í mótinu að þessu sinni,
Karlakór Akureyrar ,söngstjóri
Guðmundur Jóhannsson, Karla-
kór Bólstaðarhlíðarhrepps, söng-
stjórar Jón Tryggvason og Gest-
ur Guðmundsson, Karlakór Dal-
víkur, söngstjóri Gestur Hjör-
leifsson, Karlakórinn „Feykir",
söngstjóri Árni Ingimundarson,
Karlakórinn „Geysir", söngstjóri
Jan Kisa, Karlakórinn „Heimir",
söngstjóri Jón Björnsson, Karla-
kór Mývatnssveitar, söngstjóri
Örn Friðriksson, Karlakór Reyk-
dæla, söngstjóri Þóroddur Jón-
asson og Karlakórinn „Þrymur",
söngstjóri Sigurður Sigurjónsson.
Hekla, Samband norðlenzkra
karlakóra, er stofnað árið 1934.
Stjórn sambandsins skipa nú: Ás-
kell Jónsson, formaður, Þráinn
Þórisson, ritari og Árni Jóhann-
esson, gjaldkeri.
Söngmót sambandsins hafa
áður verið haldin sem hér segir:
Á Akureyri 1935, Laugum og
Húsavík 1936, Akureyri 1938,
1940 og 1944, Akureyri, Húsavík
og Laugum 1948, Akureyri og
Skagafirði 1953, Akureyri og
Mývatnssveit 1957 og Akureyri
og í Húnavatnssýslu 1963.
Varla er hægt að segja að veðr
ið hafi verið hlýlegt hér móts-
dagana. Á laugardagsmorgun,
þegar kórarnir voru að leggja af
stað til Húsavíkur, var jörð al-
hvít, norðan átt og éljagangur.
Ekki var sérlega sumarlegt um
að litast á Húsavík, hafísinn
dreifður um allan Skjálfandaflóa
og Húsavíkurfjall grátt niður að
rótum. Betur rættist þó úr veðr-
inu en áhorfðist um morguninn,
sólin fór að skína, og snjóinn tók
upp, er á daginn leið. Þótt svalt
væri úti, var vissulega gott að
koma í nýja félagsheimilið á
Húsavík. Ekki er enn nema hluti
af þessu húsi fullgerður, m.a. er
aðalsamkomusalur hússins ófrá-
genginn. Á Sjómannadaginn sl.
héldu sjómenn á Húsavík sam-
komu í þessum sal. Áður var bú-
ið að laga þar til, og koma fyrir
ýmsum táknrænum hlutum við-
komandi útgerð. Var þetta að
mörgu leyti frumlegt og fór vel
við umhverfið. í þessum stóra
sal setti Áskell Jónsson, formað-
ur sambandsins, 10. söngmót
Heklu með nokkrum orðum.
Fyrst sungu allir kórarnir sam-
an „Hefjum glaðir Heklusöng,
hjartaslögin undir taka“, eftir
Jónas Tryggvason, lag eftir Ás-
kel Snorrason. Laginu stjórnaði
Páll H. Jónsson. Síðan söng hver
kór sín sérlög, 3-4. Að því loknu
söng samkór Þingeyinga þrjú
lög, þ.e. Þrymur á Húsavík,
Karlakór Reykdæla og Karlakór
Mývatnssveitar. Síðast sungu all-
ir kórarnir saman þjóðsönginn,
stjórnandi var Jónas Helgason á
Grænavatni. Jónas var heiðurs-
söngstjóri á þessu móti ásamt
Friðrik A. Friðrikssyni, en hann
gat því miður ekki verið við-
staddur vegna anna. Jónas á
Grænavatni stjórnaði Karlakór
Mývatnssveitar og Friðrik A.
Friðriksson karlakórnum „Þrym“
fjölmörg ár. Mættu þeir þá með
kóra sína á Heklusöngmótum.
Að loknum samsöng á Húsa-
vík, sem tók um tvær og hálfa
klukkustund buðu kórfélagar á
Húsavík, í Reykjadal og Mývatns
sveit öllum söngbræðrum úr kór-
unum vestan Vaðlaheiðar ti!
kvöldverðar á heimilum sínum.
Kl. 9 um kvöldið var annar sam-
söngur mótsins í Skjólbrekku í
Mývatnssveit. Aðsókn var frá-
bær, eða eins og húsrými frekast
leyfði og undirtektir áheyrenda
voru mjög góðar. Þar með lauk
söngmótinu þennan dag, og kór-
arnir héldu af stað heimleiðis.
Sunnudaginn 23. júní var vetr-
arlegt hér á Norðurlandi. Þegar
þeir kórar lögðu af stað kl. tíu
um morguninn, er lengstu leið
áttu fyrir höndum, gekk á með
dimmum éljum, og frostið var
tvö stig í byggð. Svipað veður
hélzt allan daginn. Um kvöldið
var komið snjóföl á jörð. Þótt
ekki bæri bjart yfir Skagafirði
þennan dag var hinsvegar mjög
ánægjulegt að koma inn í hið
stórglæsilega félagsheimili þeirra
Miðgarð. Mega þeir sannarlega
vera stoltir af að eiga slíka fé-
lags- og menningarmiðstöð. All-
ur er frágangur' þarna, bæði úti
og inni, með þeim ágætum og
til fyrirmyndar að á betra verð-
ur ekki kosið. í þessu myndarlega
heimili tóku karlakórarnir í
Skagafirði á móti aðkomukórun-
um með veglegu kaffisamsæti,
er hófst kl. 16. Mikill fjöldi sat
þessa veizlu, margar ræður voru
fluttar og mikið sungið undir
stjórn Áskels Jónssonar. Veit-
ingar voru allar með miklum
myndarbrag, og báru vitni um
skagfirzka rausn og höfðingsskap.
Ekki er að efa, að skagfirzkar
húsmæður og heimasætur hafa
mikið lagt á sig við undirbúning
þessarar glæsilegu veizlu.
Kl. 9 um kvöldið hófst þriðji
og síðasti samsöngur mótsins í
Miðgarði. Þetta stóra hús var
þéttskipað og undirtektir áheyr-
enda mjög góðar. Síðast sungur
allir kórarnir saman Heklusöng-
inn undir stjórn Páls H. Jóns-
sonar og þjóðsönginn, sem Jón
Björnsson stjórnaði. Allur söng-
urinn var hljóðritaður. Að lok-
um ávarpaði Áskell Jónsson, for-
maður Heklu, alla viðstadda,
þakkaði þeim komuna, og óskaði
öllum góðrar 'heimferðar, og sleit
síðan 10. söngmóti Heklu.
Það verður vissulega að telj-
ast mikið afrek að koma á svo
f dag á hann áttatíu og fimm
ára afmæli, gamli heiðursmaður-
inn og sævíkingurinn, Páll Páls
som, skipstjóri og útvegsmaður
í Heimabæ í Hnífsdal. f rúm 70
ár hefur hann ýtt bát úr vör,
fyrst litlum árabátum, síðan opn
um vélbátum og loks stærri þil-
farsbátum. Alltaf hefur Páll
Pálsson verið á sjónum. Nú síð-
ustu árin rær hann lítilli trillu
fram í Djúpið, stundum með kola
net eða grásleppunet, stundum
með færi eða línu. Hann er í
áratugi skipstjóri á þilfarsbát-
um frá Hnífsdal, er heppinn og
aflasæll skipstjóri, traustur og
djarfur, sækir sjóinn fast og er
brautryðjandi í byggðarlagi
sínu, ásamt bræðrum sínum og
frændum. Síðar tekur hann þátt
í útgerð stærri skipa. En þá eru
synir hans teknir við skipstjórn.
Það er margsögð saga og
kunn, að fáir staðir á íslandi
hafa lagt fram jafn marga af-
burða aflamenn og sjósóknara
og Hnífsdalur. f þessu þrjú
hundruð íbúa kauptúni er svo
að segja hver einasta starfhæf
hönd starfandi að útflutnings-
framleiðslu. Framlag þess til
sköpunar gjaldeyris og þjóðar-
auðs er þessv.egna stórt.
Páll Pálsson í Heimabæ er
dæmigerður fulltrúi þeirrar kyn
slóðar, sem með frábærri atorku
og dugnaði brauzt frá fátækt til
bjargálna og lagði grundvöll að
nútíma þjóðfélagi á íslandi.
Þessi kynslóð unni sér aldrei
hvíldar. Hún stritaði nótt sem
nýtan dag. Þeim, sem nú lifa
finnst mörgum þetta hafa verið
sálarlaust og tilgangslaust strit.
En sannleikurinn er þó sá, að
þessi harka var óhjákvæmileg.
Atvinnutækin voru frumstæð og
allt varð að byggja upp. Ekkert
var til, ekki bryggja, ekki brú,
ekki vegur.
Aldamótakynslóðin tók við
landinu lítt numdu. Saga hins
nýja landnáms verður ekki rak-
in hér. En menn með skapgerð
Páls Pálssonar voru framherjar
þess. Óbilandi kjarkur, harka og
þrautseigja voru höfuðþættir
hennar. En þetta var það, sem
ruddi braut nýjum og betri tíma.
Merkur Hnífsdælingur, Valde-
mar Bjöm Valdemarsson fræði-
maður, sem skrifaði Arnardals-
ætt, mesta ættfræðirit á íslandi
segist hafa skrifað hana í þakk-
lætisskyni fyrir afrek forfeðra
fjölmennu söngmóti sem þessu,
slíkt krefst að sjálfsögðu mikils
undirbúnings. Flestir kórfélagar
hafa ýmsum erfiðum störfum að
gegna, margar og strangar æfing-
ar verða þeir að sækja, og sum-
ir um langan veg. Þrátt fyrir allt
fullyrði ég að þetta söngmót
Heklu tókst ágætlega, og var öll-
um til sóma er að stóðu, og þátt-
takendum til mikillar ánægju.
— Kristján.
sinna, í þakklætisskyni fyrir það
að þeim tókst að sigrast á erfið-
leikunum og opna dyr nýs og
betri tíma.
Þetta er vel mælt og drengi-
lega og vel þess vert að eftir
því sé munað, þótt einhverjir
kalli það vafalaust karlagrobb.
En þetta átti aðeins að vera
örstutt heillaósk til gamals vin-
ar, sem sakir skapfestu, dugnað-
ar og drengskapar verðskuldar
þakkir og virðingu allra. Heima-
byggð og hérað Páls Pálssonar
þakkar honum mikilsvert braut-
ryðjanda starf. Vinir hans, ætt-
ingjar og venzlafólk þakka hon-
um tryggð og umhyggju um leið
og þeir biðja honum blessunar á
efri árum.
Páll Pálsson notar áttugasta
og fimmta afmælisdag sinn til
þess að taka sér nokkurra daga
orlof. Hann er að skoða land-
ið sitt, og að því er ég veit bezt
ætlaði hann sjóleiðina umhverf-
is hólmann. Svo kemur hann
heim í Hnífsdal og fer á sjóinn
aftur. Fiskurinn er vonandi
genginn í Djúpið, þó hann gangi
nú ekki eins langt inn og í
gamla daga.
— Lifðu heill og sæll, gamli
vinur og félagi.
S.Bj.
I -----------------
IMjósnari dæmd-
ur í Danmörku
Kaupmannahöfn, 9. júlí. NTB
AUSTUR-ÞÝZKI verkfræðingur
inn Gustav Haase var í dag
dæmdur til tveggja og háifs árs
fangelsisvistar fyrir njósnir. Dóm
urinn var kveðinn upp í héraðs-
réttinum í Lyngby og lagði dóm-
arinn áherzlu á það, að tekið
færi tillit til þess að verknaður
Haases hefði ekki haft í för með
sér mikla hættu fyrir hagsmuni
Danmerkur.
Haase viðurkenndi fyrir rétt-
inum að hafa staðið í sambandi
við austur-þýzkt njósnakerfi, sem
verið var að koma á fót í Dan-
mörku og Svíþjóð og hefði hann
meðal annars haft umsjón með
radíótækjum, sem grafin voru í
jörðu víðsvegar í báðum lönd-
unum.
Þetta njósnamál komst upp í
byrjun þessa árs, þegar leyni-
þjónustur Danmerkur og Sví-
þjóðar létu til skarar skríða eftir
að hafa fylgzt með Haase í mörg
ár.
Véltæknifræðingur
óskar eftir atvinnu strax.
Tilboð merkt: „8427“ sendist blaðinu.
Tilboð
óskast í frágang fjölbýlishúsalóðar nr. 49 — 51 —
101 — 103 og 105 — 107 við Háaleitisbraut skv.
fyrirliggjandi teikningu og verklýsingu. Tilboð berist
fyrir 18. júlí til Óla Runólfssonar, Háaleitisbraut 49,
sem gefur allar nánari upplýsingar. Sími: 33277.
Rýmingarsala
Aðeins í 3 daga. — Mikil verðlækkun.
GLUGGINN Laugavegi 49.
K.S.Í. Í.S.Í.
LAUGARDALSVÖLLUR
Norðurlandamót unglinga í knattspyrnu heldur
áfram í kvöld miðvikudaginn 10. júlí og hefst kl. 7
e.h. þá leika:
Danmörk — Pólland
Dómari: Rafn Hjaltalín.
Strax að leik loknum hefst leikur milli
íslendinga og IMorðmanna
L>ómari: Guðjón Finnhogason.
Verð aðgöngumiða: Barnamiðar kr. 25.00, stúku-
sæti kr. 100.00 og gilda miðarnir á báða leikina.
KN ATTSP YRN USAMB ANDIÐ.
TILBOÐ
óskast í Willys Tuxedo ’66 í því ástandi sem bifreiðin
er eftir veltu.
Upplýsingar í síma 14382. Réttur áskilinn til að
taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Til sölu
Mercedes Benz 190 og ’62. Má greiðast að mestu eða
öllu leyti með skuldabréfum. Er í góðu standi.
Opel Record árg. ’66 ekinn 8—9 þús. km. Fæst á
góðu verði. Upplýsingar í síma 17730 frá kl. 12:30
til 2:30 í dag, til sýnis í Mávahlíð 16.
Upplýsingar næstu kvöld í síma 52157.
85 oro f dag:
Páll Pálsson útvegs-
maður, Hnífsdal