Morgunblaðið - 10.07.1968, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 106«
13
Hvernig er þetta unga fólk og hvaðan kem ur það ?
Næturdvöl í einum kennslusal a Svartaskóla.
4. GREIN
ÞÆR staöhæfingar sem fram
hafa komið, að róttæku stúd-
entarnir í Vesturheimi séu
mestan part misheppnaðir ung-
lingar, sem ekki nenni að sinna
námi, atvinnuleysingjar eða
heimskir letingjar, eiga sér yf-
irleitt enga stoð. Flestir þess-
ara manna eru vel gefnir og
hafa góða menntun. Að visu
geta mislitir sauðir slæðzt inn-
an um, en í flestum löndum er
kjarni þeirra gæddur gáfum
vel umfram meðallag. Þetta
eru ungir menn og konur, sem
gætu, ef þau hefðu áhuga á því,
notað hæfileika sína til þess að
komast til áhrifa innan hins
hefðbundna þjóðfélags og
stjórnskipunarkerfis, sem þau
nú berjast gegn. Margir eru
ekki aðeins ,,stúdentar“ held-
ur „akademikerar", einskonar
atvinnustúdentar, einkum í
löndum þar sem ekki eru sett
tímatakmörk fyrir háskólavist.
Þeir nema gjarna fleiri greinar
en eina og vinna fyrir sér á
milli, ef þeir þurfa þess með,
án þess að slíta böndin við há-
skólann. Aðrir hafa á einn eða
annan hátt dregizt inn í virk-
ar inótmælahreyfingar eða bar-
áttu, i Englandi gegn kjarn-
orkuvopnum, i Bandarikjunum
fyrir auknum réttindum
blökkumanna og síðan orðið
kyrrir þótt vandamálin og bar-
áttumálin hafi orðið önnur.
Þessar hreyfingar eru sem
áður sagði samsettar af marg-
víslegum öflum og að þeim
liggja margbreytilegar hug-
myndir. Ýmislegt er þó ein-
kennandi fyrir þær, m.a. koma
stúdentarnir oft úr ákveðnum
þjóðfélagsstéttum eða hafa al-
izt upp við svipaðan hugmynda
heim. í Afríku, Brazilíu, Chile
og Panama, svo nokkur lönd
séu nefnd, koma byltingarsinn-
ar oftast utan af landinu eða
frá smábæjum og eru af fjöl-
skyldum ,er hafa haft litlar eða
takmarkaðar tekjur og tekju-
möguleika. Stúdentar, sem
koma úr yfirstéttum vanþró-
uðu ríkjanna hneigjast fremur
til að styðja ríkjandi valdhafa
og halda ekki uppi hörðum
mótmælum. í Evrópu og Banda
ríkjunum koma byltingarsinn-
ar aðallega frá miðstéttum. í
löndum mótmælenda og áhrifa
svæðum engilsaxa eru lækna-
stúdentar tíðum heldur íhalds-
samir. í Suður-Ameríku og
ýmsum öðrum kaþólskum
landsvæðum eru þeir venju-
lega til vinstri ,sennilega vegna
þess, að kirkjan heldur gjarna
uppi andstöðu við vísindin og
almennar tryggingar og heil-
brigðiseftirlit er ekki eins öfl-
ugt og í löndum mótmælenda.
Stúdentar, sem lesa lög í
Bandaríkjunum, eru yfirleitt
ekki háværir. f>eir líta svo á,
að þeir séu að búa sig undir
virðingarverð hlutverk í þjóð-
félaginu og vilja gjarna við-
halda þeim forréttindum, og
frama-möguleikum, sem stétt
þeirra hefur haft. í löndum,
þar sem lögfræðin er í meira
mæli talin hluti þjóðfélagsvís-
inda og rekin á heimspekilegri
grundvelli, eru lögfræðistúdent
ar oftar vinstri menn og jafn-
vel mjög róttækir.
í Evrópu og Bandaríkjunum
er flesta vinstri menn að finna
meðal þeirra, sem lesa tungu-
mál, þjóðfélagsfræði, sálfræði,
bókmenntir, nema listgreinar
ýmiss konar og. þess háttar.
Það má rekja til ýmissa or-
saka, en sennilega er þar þungt
á metunum að þessar háskóla-
deildir eru oftast allt of þétt-
setnar og mikill skortur hæfra
kennara, — ennfremur, að
stúdentar í þessum greinum
eiga sér ekki eins vísa atvinnu-
möguleika að námi loknu og
þeir, sem stunda vísindanám.
H'utverk þeirra í þjóðfélaginu
er ekki eins augljóst og afmark
að og hlutverk tækni- og vís-
indamanna. Enn kemur það til
að þessar greinar þjálfa menn
í að gagnrýna, skilgreina og
endurbæta þjóðfélagið og er þá
eðlilegt, að þeir dragist að öðr-
um, sem áhuga hafa í þær átt-
ir.
í þessar deildir háskóla-
anna safnast einnig fólk, sem
leitar lausna á eigin vandamál-
um engu síður en vandamálum
þjóðfélagsins, fólk, sem e.t.v.
er viðkvæmara, hrifnæmara,
flóknara í hugsun og eðli og
lítur ekki vandamálin eins ein-
földum augum óg nemendur í
vísindum .Finnist þessu fólki
fræðslan í háskólanum örvandi
og áhugavekjandi, verður hún
þeim sterk freisting að hefjast
handa um úrbætur sem fyrst.
Finnist þeim á hinn bóginn
kennslan einihliða, sem er
miklu algengara, verða iþeir
eirðarlausir og uppreisnargjarn
ir, þeim finnst þeir sviknir. í
báðum tilfellum líta þeir með
gagnrýni til þeirra sem fást
við vísindi og tækni, til manna
þessarar nýju stéttar, sem þeir
segja framleidda á færibandi
til þess að þrengja enn klafana,
sem tækniþjóðfélagið og nú-
tímavísindin leggi á mannssál-
ina. í valdabaráttunni innan
þjóðfélagsins finnst þeim, er
nema húmanísk fræði og þjóð-
félagsfræði, að þeir standi ein-
ir og óstuddir og þeir verða
órólegir og öryggislausir.
„Börnin sem
alltaf voru
tekin upp4t ?
Menntamenn í Bandaríkjun-
um hafa undanfarið reynt að
kanna og gera sér grein fyrir
uppruna hinna róttæku vinstri
manna þar. Þeir hafa komizt
að þeirri niðurstöðu, að þeir
séu yfirleitt góðum gáfum
gæddir og komi úr efri mið-
stéttum; foreldrar þeirra eru
gjarnan frjálslyndir og jafn-
vel hneigðir til vinstri og hafa
oft verið börnum sínum eftir-
látssamir uppalendur. Oft eru
þeir mótmælendatrúar eða Gyð
ingar. David nokkur Riesman
segir, þegar hann talar um hið
frjálsa uppeldi þeirra, að bylt-
ingarmennirnir séu „börnin
sem alltaf voru tekin upp“ og
á þá við, að þeir séu börnin,
sem allt var látið eftir, böm-
in, sem tekin voru upp úr
vöggu sinni, þegar er í þeim
heyrðist, börnin sem eru því
vön, allt frá barnæsku, að
fljótt sé orðið við kröfum
þeirra.
Þeir, sem hafa fylgzt með
starfsemi stúdenta í Bandaríkj-
unum segja, að margt bendi til
þess, að hinir róttæku geri ekki
uppreisn gegn foreldrum sín-
um, þeir þurfi þess ekki, því
að foreldrarnir leggi engin
bönd á þá. Hinsvegar virðist
þeir oft leita þess sem þeir
telja, að foreldrana hafi skort.
Sálfræðingur einn skrifar: Ef
segja má, að finna megi ein-
hvern sálfræðilegan þráð, er
gengur gegnum starfsemi stúd-
entanna, þá er það einmitt, að
þeir líta á heim foreldranna
sem sinn eigin, Þegar þeir
gagnrýna foreldrana gagnrýna
þeir ekki það, sem foreldrarn-
ir trúa á, heldur að þeir skuli
ekki sjálfir lifa í samræmi við
þær skoðanir og þau verðmæti,
sem þeir innræti börnum sín-
um.
Hér má finna hliðstæðu við
kommúnistaríkin þar sem stúd
entarnir krefjast þess, að
flokkskerfið sýni í verki, að
það starfi samkvæmt þeim hug
sjónum, sem það segist bera
fyrir brjósti og að sýnt sé í
verki það frelsi og þær trygg-
ingar um réttindi, sem kveðið
er á um í stjórnarskránni.
*
Oskipulegar
augnabliks-
aðgerðir
Róttæku stúdentarnir 1
Frakklandi, V-Þýzkalandi,
Bretlandi og Japan og öðrum
þróuðum iðnaðarríkjum eru
mjög svipaðir þeim róttæku í
Bandaríkjunum. Þeir eru yfir-
leitt greindir vel, úr efri mið-
stéttum og nema þjóðfélagsvís-
indi eða húmanísk fræði. Þeir
hafa e.t.v. ekki jafn eindregið
samþykki foreldranna og í
Bandaríkjunum, en feti þó oft
í þeirra fótspor á einn eða ann-
an hátt. Lítum á Peter Brandt,
sem berst gegn stjórnskipulag-
inu í Vestur-Berlín enda þótt
faðir hans sé einn af hornstein-
um þess. Hann er þar í raun
og veru að feta í fótspor föður
síns, hornsteinsins sjálfs, sem
Framhald á blg. 14
Stúlkur hafa ekki latio siu eftir liggja í barattu stúdenta.