Morgunblaðið - 10.07.1968, Blaðsíða 14
14
MORGUNB'LAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLl 196«
- STUDENTAR
Framhald af bls. 13
barðist gegn nazismanum, hin-
um ríkjandi valdaaðila, er
hann var ungur maður. Daniel
Cohn Bendit, sem kom svo
mjög við sögu í óeirðunum 1
Frakklandi á dögunum, hefur
numið þjóðfélagsfræði í París.
Foreldrar hans flúðu frá Þýzka
landi undan stjórn nazista:
J>eir eru nú látnir; hann stend-
ur einn uppi 23 ára að aldri,
en nýtur styrks frá þýzka rík-
inu og hyggst verða lögfræðing
ur, er tímar líði. Co-hn Bendit
er sérkennilegt dæmi um
mann, sem er í senn umbóta-
sinni og byltingarsinni. Hann
talar alltaf um þörf þess að
steypa borgaralegum stjórnum
af stóli og beita valdi, ef nauð-
t
Guðmundur
Guðmundsson
frá Höfn, Dýrafirði,
andaðist að Hrafnistu aðfara-
nótt þriðjudagsins 9. júlí.
Börn og tengdabörn.
t
Hjartkær móðir mín, tengda-
móðir og amma,
Jónína Baldvinsdóttir
lézt á Landspítalanum 9. júlí.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Vignir B. Árnason,
Sigrún Langelyth
og böm.
t
Elskuleg eiginkona mín,
Guðrún Ragnheiður
Jónsdóttir
frá Reykjahlíð,
lézt að heimili sínu, 7. júlí sl.
Fyrir hönd aðstandenda.
Gestur Guðmundsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og systir,
Þuríður Pálsdóttir
frá Skógum
andaðist á Borgarsjúkrahús-
inu 9. júlí. Jarðarförin aug-
lýst síðar.
K jartan Ólason
Páll Ólason
Kristín Matthíasdóttir
Súsana Stefánsdóttir
Sigurveig Pálsdóttir.
t
Elsku litli drengurinn okkar
Þorlákur
sem lézt af slysförum 4. júlí
sl. verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn
11. júlí kl. 10,30 f.h.
Svala Veturliðadóttir
Richard Þorláksson.
syn krefur, gegn arðránsmið-
stöðvunum; — en hann er
einnig fús að samþykkja end-
urbætur og eftirgjafir sem um-
bótatákn, jafnvel þótt þær séu
ekkert takmark í sjálfu sér.
Eins og Dutchkie og aðrir slíkir
trúir hann ekki á neitt sérstakt
þjóðfélagsform, hann trúir á
þjóðfélag, sem sé í stöðugri
breytingu og þar sem byltingar
verði í sífellu. Eins og David
Adelstein, einn af forystumönn
um brezkra stúdenta dreymir
hann um, að sá tími komi þeg-
ar ekkert bil er lengur midli
stúdenta og verkamanna,
vegna þess að þá hafi allir
tíma til þess að gera hvort-
tveggja, að starfa og stunda
nám í senn.
Bendit hefur orðið fyrir
sterkum áhirfum af Marx og
Lenin ,en hann hafnar bylt-
ingunni sem múghreyfingu, er
fámennur hópur stjórnar. Bylt-
ingarminnihlutinn verður að
hans áliti sífellt að vera bylt-
ingarmenn ekki skipuleggjend-
ur. Hann segir, að hreyfing
hinna róttæku eigi styrk sinn
að þakka því, að hún byggi á
óskipulögðum augnabliksað-
gerðum, er hún veiti í allan
sinn kraft, án þess að reyna
að stjórna eða notfæra sér frek
ar þau öfl, sem hún hafi leyst
úr læðingi.
Eins og Debray lítur hann
svo á, að aðgerðir komi fyrst
t
Faðir okkar,
Júlíus Jakobsson
frá Sæbóli, Grundarfirði,
ver’ður jairffeettur fimmtudag-
inn 11. þ.m. kl. 3 e.h. frá
Fossvogskirkju. — Blóm af-
beðin, en þeim sem vildu
minnast hins látna, er bent á
Slysavamafélag íslands.
Böm hins látna.
t
Móðir mín,
Ólöf B. Jónsdóttir
Silfurgötu 9, ísafirði
verður jarðsungin frá ísa-
fjarðarkirkju föstudaginn 12.
þ.m. kl. 2 e.h.
Fyrir hönd systkina minna
og annarra vandamanna.
Þórir Þórisson.
t
Móðir okkar
Guðrún Þorsteinsdóttir
frá Bergstöðum
verður jarðsett að Hmna 12.
júlí kl. 2. Kveðjuathöfn verð-
ur í Dómkirkjunni sama dag
kl. 9.30. Bílferð verður að
lokinni kveðjuathöfn.
Börn hinnar látnu.
t
Eiginkona mín, móðir, tengda
móðir og amma
Hansína Ingibjörg
Kristjánsdóttir
Laugarásvegi 54,
verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 11.
júlí kl. 1.30.
Guðmundur Helgason
Guðríður Guðmundsdóttir
Einar G. Ásgeirssoon
Ámar Guðmundsson
Sigríður Guðmundsdóttir
Louis Guðmundsson
og barnabörn.
síðan hugsjónimar, enda skapi
aðgerðirnar hugsjónir. Megin-
tilgangur hans í augnablikinu
er að steypa stjórnum af stóli.
Síðan reiknar hann með því
að vinstri menn taki völdin.
En verði sú vinstri stjórn á
borð við stjórn Harolds Wil-
sons, sem ekki hafi gert annað
en smábreytingar í Bretlandi,
muni vinstri öflin halda áfram
baráttunni og ekki hætta fyrr
en þau hafi fengið á komið
verulegum breytingpm, —
hverjar þær breytingar eiga að
vera greinir hann ekki nánar.
Á hinn bóginn hefur Bendit
eins og margir aðrir róttækir
stúdentar litla trú á kommún-
istum og ber litla virðingu fyr-
ir þeim. Þó fylgir hann þeirri
stefnu að krefjast algers að-
igerðarfrelsis fyrir vinstri
menn en sýna hvorki umburð-
arlyndi né samúð þeim, er hafi
sjónarmið hlynnt Bandaríkja-
mönnum eða „fasistum11 eins
og hann kemst að orði. Þetta
kemur fram á einfaldan hátt
í ræðum hans — Bendit er
snjall ræðumaður og á gott
með að kveða sér hljóðs, hljóð-
nemalaust. — Þar segir • hann
einfaldlega: „Kapitalíska þjóð-
félagskerfið verður að hverfa
og stúdentar að neita að taka
þátt í því, neita að taka að sér
þau hlutverk, sem það hefur
ætlað þeim að inna af hendi“.
Að brjóta upp
þjóðfélagið
í sífellu
Það er á hinn bóginn ekki
auðhlaupið að því að halda
starfandi samtökum, þar sem
helzt má ekki vera skipulag,
helzt engin forysta ,helzt eng-
ar fastar kennisetningar og þó
alveg ákveðin afstaða og sífelld
hugsjónaleg barátta. Samtök
stúdentanna eru tíðum skipu-
lagslítil og formlítil. Þar er
t
Hjartans þakkir til allra sem
glöddu okkur með heimsókn-
um, gjöfum og skeytum á
gullbrúðskaupsdegi okkar
29. júní sl.
Guð blessi ykkur öll.
Guðlaug Þorsteinsdóttir
Sigurður Bjarnason
Reykholti
Fáskrúðsfirði.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför systur okkar
Sigurveigar Jóhannsdóttur
að Koti á Rangárvöllum.
Systkin hinnar látnu.
t
Þökkum hjartanlega öllum
þeim, er auðsýndu samúð og
vinarhug við fráfall og jarð-
arför
Guðmundar
Guðmundssonar,
prentara.
Ingibjörg Einarsdóttir
Guðríður Guðmundsdóttir
Sveinn Helgasoon
Þóra Sigurðardóttir
Jóhannes Guðmundsson
Erla Þórðardóttir
Richard Jónsson
Þórdís Guðmundsdóttir
og barnaböm.
leitazt við að halda samvinnu
ólíkra afla, draga ákveðin
hugsjónaleg mörk, án þess
að festast í kennisetning-
um. Stúdentar þessir
verða að finna leiðina, sem
liggur milli einangrunar og
þess að glata hreinleika hreyf-
ingarinnar vegna samstarfsins
við aðra. Áður en þeir vita af,
eru þeir e.t.v. búnir að mynda
skipuleg samtök ,vitandi, að
þannig er auðveldara að starfa
og þarinig verður starfið áhrifa
meira — en þá reyna þeir, sem
halda fast við þessar hugmynd-
ir, að leysa skipulagið upp og
koma því til leiðar að hreyfing
in verði á ný fljótandi og laus
í reipum. Þannig telja þeir að
hægt sé að brjóta þjóðfélagið
upp jafnóðum, þannig að allt-
af verði ríkjandi lýðræði með
sívirkri þátttöku þjóðfélags-
þegnanna.
Meðal almennings á Vestur-
löndum hefur þessi starfsemi
og þessar hugmyndir stúdent-
anna ákaflega misjafnlega
mikið fylgi. Framan af gerðu
flestar vestrænar stjórnir þá
skissu að beita lögreglu gegn
þeim af miklu meiri hörku en
ástæða var til, en víðast hvar
hafa þær séð að þrátt fyrir tára
gas, skeinur og sár voru stúd-
entarnir harla ánægðir með
þessi viðbrögð. Hefur því að
undanförnu verið haldið veru-
lega aftur af lögregluvaldinu
í slíkum viðureignum. Er
skemmst að minnast þeirrar
skissu, er franska lögreglan
gerði er hún réðst inn á skóla-
svæði Sorbonne með misþyrm-
ingum og táragasi, enda var í
síðari átökum lögð rík áherzla
á, að ekki væri beitt meiri
harðleikni en nauðsyn krefði.
í Bretlandi hefur lögreglan
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð og vinsemd við and-
lát og jar’ðarför konu minnar,
móður, tengdamóður og
ömmu
Rósu Jóhannsdóttur
Þverveg 76.
Árni Jónsson
Jóhanna Arnadóttir
Aðalsteinn Björnsson
Kristín Aðalsteinsdóttir
Árný Aðalsteinsdóttir
Björn Aðalsteinsson.
verið hvað happasælust í með-
ferð sinni á stúdentum og yfir-
völd leitazt við að kanna kröf-
ur stúdenta með það fyrir aug-
um að koma til móts við þær.
Enda hefur það þegar dregið
skarpasta bitið úr þeim harð-
skeyttustu meðal stúdenta. í
Bandaríkjunum hefur lögregl-
' an leitazt við að sýna meiri
gætni og hófsemi en áður og
víða hafa verið hafnar viðræð-
ur um breytingar á reglugerð-
um og meiri ítök stúdenta í
málum háskólanna. í Vestur-
Framhald á hls. 15
Konur
Megrunaræfingar
fyrir konur á öllum aldri.
Þriggja vikna kúr, sex tím
ar á viku. Aðeins tíu konur
í hverjum flokki.
Dagtímar — kvöldtímar.
Góð húsakynni.
Böð á staðnum.
Konum einnig gefinn kost-
ur á matarkúr eftir læknis.
ráði.
Prentaðar leiðbeiningar
fyrir heimaæfingar.
Nú er rétti tíminn til að
grenna og fegra líkamann
fyrir sumarleyfin.
Tímapantanir alla daga kl.
9—5 í síma 83730.
Kynnið yður frábæran ár-
angur.
t
Innilegar þakkir flytjum við
þeim er sýnt hafa okkur
samúð og vinarhug við and-
lát og jarðarför
Árna Ágústssonar.
Sérstaklega þökkum við
Ásgeiri Péturssyni og bræðr-
um hans alla hjálp og vin-
semd er þeir hafa sýnt okk-
ur.
Ástríður Ólafsdóttir
Sigurður Kristmundssoon.