Morgunblaðið - 18.07.1968, Qupperneq 19
MORiGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 1968
19
SiyrkuT úr Minn-
ingorsjóði dr.
Rögnvnlds
Pétnrssonor
HINN 14. ágúst n.k. verður út-
hlutað styrk úr Minningarsjóði
dr. Rögnvalds Péturssonar til efl
ingar íslenzkum fræðum. Það er
tilgangur sjóðsins að styrkja
kandídata í íslenzkum fræðum
frá Háskóla Islands, sem reyndir
eru að áhuga, dugnaði og góðum
hæfiieikum, til framhaldsnáms
og undirbúnings frekari vísinda-
starfs. Að 'þessu sinni nemur
styrkurinn 35.000 krónum. Um-
sóknum um styrk úr sjóðnum
skal skilað á skrifstofu Háskól-
ans eigi síðar en 5. ágúst n.k.
- BÓK
Framhald af bls. 15
mörku, en íslenzk gerðabók
hefir ekki fundizt og hefir lík-
lega aldrei verið ti'l. — Þá er
geysimerkileg grein eftir Einar
Arnórsson í Skírni 1930, og þar
hefi ég fengið bezta lýsinguna
á því, sem gerðist á fundunum.
— Einnig Saga danska Ríkis-
þingsins, þar sem ýmislegt er
skýrt frá dönsku sjónarmiði,
.sem ekki kemur fram í gjörða-
.bókinni né heldur hjá Einari
Arnórssyni. Enn má nefna Al-
þingi og frelsisbaráttan eftir
dr. Björn Þórðarson, greinar
eftir og viðtöl við Þorstein M.
Jónsson í blöðum og svo nátt-
úrulega blöð, tímarit og Al-
þingistíðindi, en þangað er
meginefnið sótt.
— Hvar hefirðu einkum unn
um unnið að bókinni?
— Ég hefi unnið verkið aðal-
lega hér á Amtsbókasafninu á
Akureyri, en leitað lítillega
heimilda á söfnum í Reykjavík
■Einnig hefi ég rætt við Þor-
stein Þorsteinsson, fyrrverandi
hagstofustjóra, sem var annar
af riturum íslenzku samninga-
nefndarinnar. Ég ætlaði einnig
að ræða við Þorstein M. Jóns-
son, þegar ég var staddur í
Reykjavík, en þá var hann
sjúkur. Hins vegar hefi ég fast-
lega í huga að hitta hann að
máli nú í sumar.
— Ég vil í lokin koma á fram
færi þakklæti mínu til Amts-
þókasafnsins á Akureyri, Árna
Jónssonar, amtsbókavarðar og
starfsmanna hans fyrir alla þá
góðu fyrirgreiðslu, sem ég hefi
fengið að njóta þar.
— Sv. P.
K.S.I.
Andrés G. Þormar kjörinn
heiðursfélagi F.Í.S.
Aðalfundur Félags ísl. síma-
manna var haldinn 22. febr. s.l.
í skýrslu stjórnar kom m.a. fram,
að aðal viðfangsefnin á síðasta
ári hafa verið launa- og kjara-
mál. Aðaláherzla hefur verið
lögð á, að fá leiðréttingu á kjör-
um lægst launuðu starfshópanna
og þá sér í lagi á flokkaskipan
talsímakvenna.
Á árinu 1965 keypti félagið
25 ha. land undir sumarbúðir
við Apavatn í Laugardal og var
haldið áfram framkvæmdum á
landinu á s.l. ári, svo sem vega-
gerð, gróðursetningu og fl.
Um síðustu áramót urðu rit-
stjóraskipti við Símablaðið. And
rés G. Þormar sem verið hefur
ritstjóri þess í yfir 40 ár lét af
störfum, en við tók Vilhjálmur
B. Vilhjálmsson, deildarstjóri.
Andrés Þormar var kjörinn
heiðursfélagi F.Í.S. 30. jan s.l.
fyrir áratuga störf í þágu félags
ins og Símablaðsins.
Að aðalfundi lokum fóru
fram kosningar til Félagsráðs,
en það kýs framkvæmdastjórn
félagsins, sem hefur nú verið
kosin og er þannig skipuð: For-
maður Ágúst Geirsson, varafor-
maður Jón Tómasson, ritari Há-
kon Bjarnason, gjaldkeri Bjarni
Ólafsson, meðstjórnandi Sæmund
ur Símonarson. varamenn í
stjórn eru Guðmundur Andrés-
son og Sigurbjörg Lárusdóttir.
BEZT að auglýsa
í Morgunblaðinu
Viljum kaupa
2—3 búðarkassa. Æskilegast að einn kassinn sé Sveda
rafmagnskassi, með samlagningu og strimli. .
Upplýsingar í síma 11670 frá kl. 6—7 daglega.
Frá Skátamóti.
Skátamót að Saltvík
á Kjalarnesi um næstu helgi
Heildsalar - verzlanir
Ókurant skór, kurant skór. Erum kaupendur að flest-
um tegundum. Mikið magn, lítið magn.
Hafið samband við okkur strax.
Sími 11670 frá kl. 6—7 eftir hádegi daglega.
Um næstu helgi gengst Land-
nemadeild Skátafélags Reykja-
víkur fyrir árlegu skátamóti
sínu. Landnemamótin hafa verið
haldin á hverju ári síðan 1959,
og að þessu sinni verður mótið
haldið á útivistarsvæði reyk-
vískrar æsku að Saltvík á Kjal-
arnesi.
Mótið verður sett kl. 5 síðdeg
is föstudaginn 19. júlí, og stend
ur það yfir fram á sunn.udag.
Dagskrá þess verður fjölbreytt,
og í meginatriðum byggist hún
á flokkastarfi. Varðeldar verða
bæði kvöldin, gönguferð á Esju
á laugardag og næturleikur um
kvöldið. Til mótsins hefur verið
boðið öllum Reykjavíkurskátum,
og auk þess skátaflokkum úr öll
um Reykjavikunskátum, og auk
þess skátaflokkum úr öllum skáta
félögum á Suðvesturlandi. í SaLt
vík er mjög ákjósanleg aðstaða
fyrir skákmót, þar ermikið slétt
lendi, sem er hentugt til að iðka
skátafþróttir, sjórinn skammtfrá
og ekki langt til Esjumnar fyr-
ir þá sem vilja fjallgöngur. Móts
stjóri verður Bergur Jónsson
verkfræðingur.
Þá verða og sérstakar fjöl-
skyldubúðir á mótinu fyrir eldri
skiáta og fjölskyldur þeirra, og
eru þær einnig opnar foreldrum
og fjölskyldum þeirra skáta, sem
sækja mótið. Fjölskyldubúðir
hafa oft áður verið á skátamót-
um hérlendis, og jafnan verið
vel sóttar, en það er nýbreytni,
að foreldrum skátanna sé jafn-
framt boðið að sækja þær. Von-
ast forráðamenn mótsins til þess,
að sú tilhögun verði vel þegin,
og foreldrar jafnt sem gamlir
skátar fjölmenni í fjölskyldubúð
innar.
(Fná Landnemadeild S.F.R.)
Óskast strax til leigu
2ja herb. íbúð með húsgögnum sem næst Miðbænum.
Upplýsingar í síma 16115 á skrifstofutíma.
Sælgætisgerð
Lítil sælgætisgerð ásarnt tækjum til leigu.
Lysthafendur sendi tilboð til Mbl. merkt: „8333“
eigi síðar en 23. júlí.
Knattspymuleikurinn
I.S.I.
ISLAND
NOREGUR
fer fram á Laugardalsvellinum í kvöld fimmtudaginn 18. júlí og hefst kl. 20.30.
Lúðrasveitin Svanur leikur frá kl. 19.45.
Démari Owen Hi.C. Carthy frá írlandi
Línuverðir: Baldur Þórðarson og Steinn Guðmundsson.
Aðgöngumiðar seldir i dag úr sölutjaldi við IJtvegsbankann
Þórólfur Beck
fyrirliði ísl. liðsins.
Verð aðgöngumiða:
Sæti kr. 150.00
Stæði kr. 100.00
Barnamiðar kr. 25.00
FORÐIZT ÞRENGSLI OG KAUPIÐ
AÐGÖNGUMÍÐA TÍMANLEGA.
KNATTSPYRNUSAMBAND ÍSLANDS.