Morgunblaðið - 28.07.1968, Síða 3
-------------------------------------------------------------------------------o
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1988 3
t
Sr. Jón Auðuns, dómprófostur:
Engillinn í nætursortanum
SKOÐUM gamla mynd, nítján
alda gamla:
í brothættri skel velkjast í
vetrarstorminum hundruð dauða
dæmdra manna. Öll lífsvon er
úti og menn hafa gripið til ör-
þrifaráða, sem koma þó að
engu haldi. Það syngur í reiða
og ró. Mairriðí skipinu bland-
ast angistarveini mannanna.
Myrkur, stórsjór og stormur
eiga allan leik á borði við ve-
sæla menn.
En einn er þarna innanborðs
öðruvísi maður en allir hinir.
Hann æðrast ekki. Hann krýpur
á kné þar sem brimlöðrið geng-
ur yfir skipið. Og innan stund-
ar heyrir hann ekki lengur
storminn öskra og mennina
veina í dauðaangistinni. Hann
talar við Drottin, þann Drott-
in, sem áður hafði frelsað hann
úr lífsháska og leitt hann á
margbreyttum, stundum ótrú-
lega erfiðum vegi.
Og Drottinn svarar honum.
í sortanum sér hann engil, í
storminum heyrir hann engils-
raust:
Vertu óhræddur, Páll, fyrir
keisarann vestur í Rómaborg
átt þú að koma. Guð ætlar að
gefa líf öllum, sem í skipinu eru
með þér, en skipið mun farast.
Gesturinn hverfur, rödd hans
hljóðnar, en öruggur gengur
gamli Páll fram. Hann hrópar
gegn um storminn og nær eyr-
um skipsstjórnarmanna og ann-
arra innanborðs. Hann segir
þeim vitrun sína, tekur í sínar
hendur stjórn á skipinu.
í morgunsárið standa þeir all-
ir lífs á ströndinni, en skipið
liðast sundur í brimgarðinum.
Allt fór eins og engillinn í næt-
ursortanum hafði sagt fyrir.
Frá þessari frægu sjóferð seg-
ir sjónarvottur í Postulasögunni.
Svo ákjósanlega heimild höfum
við að þessari sögu.
Það er ljóst, að sannfæringar-
þunginn í orðum Páls, trúar-
kraftur þessa andlega risa,
bjargfast traust hans á sanngildi
þess, sem hann heyrði og sá en
öðrum var hulið, allt hefir þetta
haft þau áhrif á dauðaskelfdan
mannfjöldann í skiþinu, að þeir
hiýða og bjargast.
Það er sennilegt, að fæstir
þessara manna hefðu gefið nokk
urn gaum orðum Páls ef þeir
hefðu ekki staðið andspænis
augljósum lífsháska. Það reyn-
ist ennþá svo, að „meðan við
höldum heilum bát“ er hugsað
lítt um engilinn og lítið hirt um
trú og traust. En máttarvöld
himnanna sjá um það, að við
siglum ekki ævinlega lognsæ-
inn.
Þegar „fjör og heilsa hnígur“,
ástvinamissir eða annar harmur
ber hjá okkur að dyrum svo að
„hugrekkinu tapar sorgum bar-
in sál“, eins og Bólu-iHjálmar
lýsir lífsraun sinni, þá förum
við að sjá lífið í öðnu ljósi en
fyrr. Og þá mæna menn eftir
englinum i nætursortanum, þótt
þeir hirtu litt um hann áður.
Trúir þú því, að þegar líf þitt
verðiur eins og hrannað haf þá
stendur hjá þér engill Drottins?
Ef slíkir sendiboðar eru ekki
enn á ferð meðal manna, eru
sögur Ritningarinnar af slikum
gestum ósannar og aumasta
blekking. Af því að slíkur vin-
ur var með Páli voðanóttina á
Miðjarðarhafi, er hann einnig
með þér í háska þínum, hver
sem hann er.
Fyrir því eru ekki aðeins
gamlar sögusagnir, heldur marg
föld ný reynslurök, að slíkur
verndarvinur sé með þér 1
mannraun þinni. Hvern boðskap
mun hann bera?
Hann ber þann boðskap, að
yfir öllum mönnum sé vakað
af kærleika og hárri speki og
aldrei fremur en þegar spor
þeirra verði erfið og baráttan
tvisýn.
Hann ber þann boðskap, að á
bak við stormana bíði hinn blái,
lygni sær.
Hann ber þann boðskap, að
jafnvel þótt fleyið sem ber oss
farist, þá munum vér sjálf
halda lífi og standa á nýrri
strönd í morgunsárið.
Þennan boðskap bar engillinn
Páli postula stormanóttina á
Miðjarðarhafi.
Þegar um þig standa stormar
á þessi vökuli vinur sama
erindi við þig.
Heimsókn á Eskifjörð:
Félagsstarfsemi er
að lifna við aftur
Rabbað við Þorleif Jónsson, sveitarstjóra
ÞORLEIFUR Jónsson, sveit-
arstjóri á Eskifirði ,er Norð-
firðingur fæddur, bjó í Hafn
arfirði yfir þrjátíu ára skeið,
og var þar lögreglumaður,
blaðaútgefandi, bæjarfull-
trúi og útgerðarmaður. Að
því búnu tók við dvöl i Stykk
ishólmi og fyrir fimm árum
kom hann til Eskifjarðar og
hefur gegnt embætti sveitar-
stjóra síðan.
Á Austfjarðareisu minni á
dögunum ,leit ég inn í skrif-
stofu til Þorleifs og hann
sagði mér frá helztu málum
staðarins.
— Hérna er ágætis fólk,
sem hefur áhuga á vexti og
viðgangi staðarins ,segir Þor-
leifur — það hefur sýnt sig,
að unga fólkið vill ekki flytja
burt.
— Hvernig er með áhuga
manna á félags- og menning-
arstarfsemi?
— Félagsstarfsemi lá að
mestu niðri á uppgangstím-
unum, nú er hún að lifna við
aftur. Lionsklúbbur starfar
af fjöri, íþróttastarfsemi er
vaknandi og stór og glæsileg
íþróttahöll í byggingu. Ef
ekki hallar á öfuga hlið get-
um við tekið hluta hennar í
notkun á næsta ári. Sundlaug
var fullgerð árið 1962 og er
mikið sótt. Íþróttavöllurinn
er orðinn allgóður. Á sumrin
er leiðbeint í handknattleik
og knattspyrnu, á vetrum í
skíðaíþrótt.
— Og framkvæmdir á veg-
um hreppsins?
— Það er náttúrlega
íþróttahúsið, sem ég nefndi.
Við stefnum að því að auika
við barna- og unglingaskól-
ann, ný viðbygging við félags
heimilið er að komast í gagn
ið, og verður þar aðstaða til
tómstundaiðknana ýmis kon-
ar, svo sem skák og bridge.
Vatnsveitan hefur verið
stóraukin og endurbætur
gerðar á frárennsliskerfinu,
reynt verður að halda áfram
að leggja aðalgötuna varan-
Þorleifur Jónsson, sveitarstjóri.
legu efni. Prýðileg aðstaða
er til heilsugæzlu og fleira
mætti nefna.
— En eins og málum er
háttað þessa mánuðina, verð-
ur ekki sagt, að allt leiki í
lyndi hér frekar en annars
staðar. Vegna hárra tekna
undanfarin ár hafa margir há
opinber gjöld, sem þeim reyn
ist erfitt að standa skil á.
Tekjur til álagningar fyrir
sveitarfélagið eru brestandi
og tekjustofnar þess hafa
rýrnað stórlega. Þegar svo
greiðslugeta manna minnkar
verulega, verður að gera ráð
fyrir að framkvæmdir
minnki og samdráttur verði
á ýmsum sviðum.
— Hér hefur verið lítið
um atvinnu í sumar, heldur
Þorleifur áfram — og skóla-
fólkið hefur hreint ekkert
haft að gera. Hreppurinn
gekkst fyrir unglingavinnu
um mánaðartíma. ur.glingarn
ir unnu við lagfæringu gatna,
hreinsun- í görðum o.fl. Svo
höfðum við ekki fé til að
halda þessu áfram. Verka-
menn hafa enga eftirvinnu
fengið um langan tíma. Þó
megum við ekki barma okk-
ur um of. Síldveiðar og vinna
við sildina stóðu fram . yfir
áramótin, síðan tók við þorsk
vertíð, sem var nokkuð góð
og vinna við saltfiskverkun,
svo að atvinna hefur alltaf
verið nokkur, en ekki þau
uppgrip, sem menn eiga að
venjast eftir síðustu ár. Litl-
ir dekkbátar hafa róið í vor
og sumar og veitt oft vel, eft-
ir að ísinn hvarf loksins. Þetss
ir bátar geta ekki sótt langt
vegna strauma, en reytings-
vinna hefur einnig verið við
verkun þessa afla.
— En svo kemur nú síldin
í haust?
— Já, og hún bjargar okk-
ur eins og fleirum. Allt er til-
búið til að taka á móti henni,
flestir gengu þannig frá hnút
um í fyrra, að lítils undir-
búnings er þörf í ár. Hér eru
tvær verksmiðjur, sem hrepp
urinn rekur og sex söltunar-
stöðvar voru starfræktar í
fyrra. Við töpuðum talsvert
á bræðslunni, en aftur á móti
var söltun ágæt. Óhætt er að
fullyrða, að á Eskifirði er af-
bragðs aðstaða til að taka á
móti síld, hér er ný höfn, góð-
ar verksmiðjur, veiðarfæra-
verkstæði með meiru.
— Það er enginn vafi á
því, að við höfum öll skil-
yrði til að lifa góðu lífi á
Eskifirði, svo framarlega sem
sjávarútvegurinn bregst ekki,
sagði Þorleifur að lokum.
—h.k.
Ítalíuferðir
tfalska blómaströndin - London
brottf. 26. júlí (fullt) og 9. ágúst (2 sæti).
Róm - Sorrento - London
brottf. 16. óg. (4 sæti), og 30. óg. (2 sæti).
Crikkland - London
brottf. 13. sept. (nokkur sæti).
Ferðin, sem fólk treystir
Ferðin, sem fólk nýtur
Ferðin, sem tryggir yður
mest fyrir peningana er
Spcínarferðir
Verð frá kr. 10.900,- með söluskatti
Lloret de Mar — skemmtilegasti
baðstaður Spánar ■:■ 4 dagar London
brottf. 26. júlí (fullt), 9. ógúst (fuTlt).
16. óg. (2 sæti). 23. óg. (4 sæti), 30. ág. (fó sæti),
6. sept., 13. sept. (fullt).
TORREMOLINOS, brottf. 23. ágúst (fá sæti),
20. sept. (4 sæti).
Benidorm,
brottf. 20. sept. (fá sæti).
Mið-Evrópuferðin vinsœla 3. ágúst
Síðustu sœtin í sumarferðirnar FERÐASKRIFSTOFAN
-_________.______________ ÚTSÝH
UTSYNARFERÐ
Austurstræti 17
Sími 2010023510.
Hestaþing
á Hornafirði
Höfn, Hornafirði, 26. júlL
HIÐ árlega hestaþing Hesta-
mannafélagsins Hornfirðingur
var haldið á Stapasandi síðast-
liðinn laugardag.
Keppt var í 300 og 250 metra
stökki og einnig var góðhesta-
'keppni í 300 metra stökki. Fyirst-
ur varð Börkur Ragnars Þrúð-
marssonar, Miðfelli, á 24,5 sek.,
annar Léttir Sigurðar Sigfinns-
sonar á sama tíma. í 250 metr-
um var fyrstur Bangsi Sigrúnar
Eiriksdóttur, Höfn, 2,8 sekúnd-
um. Góðhestur dagsins var Reyn
ir, eigandi Helgi Sæmundsson,
Bóli, annar Sörli Guðbrands
Sigfússonar, Skálafelli.
— Gunnar.
REZT að auglýsa
í Morgunblaðinu