Morgunblaðið - 02.10.1968, Side 4
MORGUNBLAÐH), MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1968
BÍLALEIGAN
AKBRAIJT
SENDUM
SIMI 82347
BILALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaufavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
Sími 22-0-22
Rauðarárstig 31
Hverfisrötu 103.
Simi eftir iokun 31160.
BILA
IEI6A
MAGNUSAR
SKiPHOtn 21 mmar21190
eftirlokun «>. ' 40381 'i
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaffastræti 11—13.
Harstætt leigurjald.
Sími 14970
Eftir lokun 14970 effa 81748.
Sirurður Jónsson.
Fleiri og fleiri nota Johns-
Manville glerullareinangrun-
ina meS álpappírnum
Enda eitt bezta einangrunar-
efnið og jafnframt það
laugódýrasta.
Þér greiðið álíka fyrir 4”
plasteinangrun og fáið auk
þess álpappír með!
J-M glerull og 2%” frauð-
Jafnvel flugfragt borgar sig.
Sendum um land allt —
Jón Loftsson hí.
Hringbraut 121. - Sími 10600.
0 Ofdrykkjumál
Steinar Guðmundsson skrifar:
„Velvakandi góður.
Að mínum dómi varst þú hlut-
verki þínu trúr, er þú hliðraðir
til fyrir bréfi „drykkjumanns“,
þótt undirskriftina vantaði. Þetta
látlausa neyðaróp á sannarlega
erindi til okkar allra. Það var
eins og húðin kipraðist um kropp
inn á mér, þegar ég setti mig 1
spor þessa unga manns sem hróp-
aði til þín: — Ég er að missa
heimilið mitt, hvað get ég gert?
Ég er bara drykkjumaður — en
nafninu minu verð ég víst að
halda leyndu, ég skammast mín
svo mikið.
Mér finnst afstaða unga manns
ins lýsa ástandinu I ofdrykkju-
málum okkar svo vel, að óþarfi
er að fara um það fleiri orðum.
Að hann skuli standa við lokuð
sund og hrópa til blaðamannsins
um hjálp, segir sína sögu. Þarna
er á ferðinni sjúkur maður, sem
ráðvilltur fálmar eftir handfestu
og örþreytt eiginkona sem vill
halda heimilinu saman, en rís
ekki undir því að heimiliskross-
inum viðbættum. Ætli það hafi
ekki fleiri fengið „gæsahúð" en
ég, þegar þeir lásu Velvakanda í
morgun (26. sept)? Þvl vissulega
er íslenzka heilbrigðisþjónustan
búin að viðurkenna alkoholisma
sem sjúkdóm, a.m.k. í orði.
Tilgangur mirm með þessu til-
skrifi er aðeins sá, að þakka þér
fyrir undirtektimar, og reyna um
leið að betmmbæta svolítið leið-
beiningar þínar til unga manns-
ins — því að þær gætu valdið
Balastore
gluggatjöldin j
Balastore gluggatjöldin
eru í senn þægileg og
smekkleg. Uppsetning er
afar auðveld, og létt verk
að halda þeim hreinum.
Fóanleg í breiddum fró
40-260 sm (hleypur á 10
sm). Margra óra ending.
Vindutjöld
Framleiðum vindutjöld í
öllum stærðum eftir móli.
Lítið inn, þegar'þér eigið
leið um Laugaveginn!
Húsgagnaverzlun
KRISTJÁNS
SIGGEIRSSON AR HF.
Laugovegi 13, sími 13879
misskilningi, og þá orðið til þess
að einu hráskinninu enn yrði bætt
í það farg sem hjónin ungu og
heimilið þeirra rís nú orðið varla
undir.
0 AA-samtökin
örþreyttur drykkjumaður, sem
kominn er á það heilla-stig, að
hann 1 alvöru kallar á hjálp, á
undantekningalaust í sjóði sínum
svo mikið af sviknum loforðum
og hrundum heitstrengingum, að
hann ósjálfrátt lokar sig inni í
sinnuleysisskel sinni, ef enn á ný
er minnzt á það við hann, að
lausnin kynni e.t.v. að felast í
enn einni heitstrengingu. Þess
vegna hvetur A.A.-hreyfingin eng
an til að „bjarga sjálfum sér og
lífshamingju sinni“. Það eru all-
ir búnir að reyna það árangurs-
laust æ ofan í æ, þegar á þetta
stig er komið. A.Á.-hreyfingin seg
ir aðeins: „— líttu á þennan fulli-
kall hérna, hann er búinn að vera
ófullur síðan hann vaknaði I
morgun, og ætlar að reyna að
sofna ófullur í kvöld". Þetta er
mergurinn málsins. — Utan um
þetta er svo auðvitað svolítið syst
em, og má þar merkast telja
„leiðarana" eða „sponsorana",
eins og þeir eru kallaðir í út-
landinu. Þeir hafa það hlutverk
að „leiða“ nýliðana fyrstu spor-
in í samtökunum, og eins eiga
þeir að vera nokkurs konar
„þrumu-leiðarar", sem jarðtengja
skrumskældan hugsunarhátt
drykkjumannsins gagnvart eigin
tilveru, því að hjá drykkjumann-
inum öðrum fremur er svo
skammt öfganna I milli, og 1
slakkanum milli þessarra póla er
honum svo gjarnt að missa fót-
anna.
Að öðru leyti voru leiðbeining
ar jjínar laukréttar.
Eg fer ekki lengra út I þessa
sálma, Velvakandi góður, en
þakka þér fyrir litlaputtann, sem
þú réttir unga manninum —e.t.v.
nægir það honum og heimilinu
hans til að halda ballansinum.
Með beztu kveðju,
Steinar Guðmundsson.
Bólst.hlíð 32.“
0 Góð útvarpssaga
Jón B .Jónasson skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Ég vil taka undir þau ummæli,
sem nýlega birtust í dálkum þín-
um, að vel hafi tekizt til með
val á útvarpssögu, þar sem er
Húsið í hvamminum eftir Óskar
Aðalstein. Hvarvetna, þar sem ég
þekki til, er hlustað með athygli
og eftirvæntingu á lestur sögunn
ar. Þessi saga grípur hugann föst-
um tökum. Hún gerist í kaupstað
úti á landi I síðari heimsstyrjöld
inni. Hún speglar glögglega þá
miklu uppbyggingu og blóma-
skeið í atvinnulegu tilliti, sem
þjóðin bjó þá við í æ ríkari mæli.
En fyrst og fremst er þetta saga
um fólk, fólk sem verður manni
hugstætt, svo hugstætt, að í viss-
um skilningi finnst manni að
maður sé einn í hópnum. — Auð-
ur Álfhildur er óvenju glæsilegur
fulltrúi ungra íslenzkra kvenna.
Barátta hennar og manns hennar
Jóns Daníelssonar, til þess að
hasla sér völl í lífinu, eignast eig-
ið hús og athvarf, húsið í hvamm
inum, þar sem þau geta unað
glöð við sitt, setur aðalsvip sinn
á fyrri hluta sögunnar. Þessi bar
átta er ógleymanleg eins og hún
er sögð í bókinni. Og þetta er sú
barátta sem obbinn af ungu fólki
Húsnæði — húshjúlp
Tvö herbergi og eldhús í einbýlishúsi í Miðbænum fást
gegn umsaminni húshjálp.
Umsækjendur sendi upplýsingar um núverandi störf
og fleira sem máli skiptir til Morgunblaðsins merkt:
„Reglusemi — trúmennska — 2195“.
hefur háð síðustu áratuglna, og
margt af því við svipaðar aðstæð
ur og ungu hjónin í Hvammi.
0 Siglingar á
stríðsárunum
Síðari hluti sögunnar fjallarum
siglingar sjómannanna okkar á
stríðsárunum, þá miklu hættu sem
þeir lögðu sig I til þess að koma
útflutningsafurðum okkar á mark
að erlendis og flytja heim erlend
an varning. Þetta kostaði miklar
fórnir. Og þessu er lýst á þann
veg í sögunni, að það snertir
mann djúpt. Við bíðum með ugg
og eftirvæntingu eftlr því að
Ströndin komi aftur í heimahöfn,
í hvert sinn sem hún leggur upp
í nýja ferð yfir hafið. Þama voru
lífsgæðin keypt dýru verði. Þess
er okkur hollt að minnats nú og
ævinlega. Þegar talað er um Hús-
ið í hvamminum, er rétt að geta
þess, að Óskar Aðalsteinn hefur
skrifað fleiri skáldsögur, sem að
listgildi og persónusköpun eru
ekki síður góður skáldskapur en
Húsið í hvamminum. Má þar til
nefna Grjót og gróður, fyrstu
skáldsögu sem ísl. riíhöfundur
skrifar um verkamanninn á möl-
inni. Þá eru það skáldsögurnar
Kosningatöfrar, Vonglaðir veiði-
menn, Lífsorrustan og Breyzkar
ástir, ólíkar bækur að efni og frá
sagnarmáta, sem sýna vel getu
höf. til nýsköpunar í skáldskapn-
um. Og það er trúa mín að Lifs-
orrustan mundi ekki vekja minni
athygli sem útvarpssaga, en Hús-
ið í hvamminum gerir nú. Ættu
ráðamenn útvarpsins að taka þetta
til athugunar. Eg er viss um þeir
komast að sömu niðurstöðu og
ég. Svo ættu þeir að hæfilegum
tima liðnum að ráða hinn ágæia
lesara, Hjört Pálsson til að lesa
Lffsorrustuna i útvarp. Slík ráð-
stöfun yrði vel þegin af öllum
þeim sem yndi hafa af góðum
sögulestri.
Um árabil hefur Húsið í hvamm
inum með öllu verið ófáanlegt f
bókabúðum, og sama er að segja
um aðrar eldri sögur höf. Þessar
sögur þarf að gefa út að nýju.
Mætti byrja á Húsinu í Hvamm-
inum. Það væri glámskyggn út-
gefandi, sem ekki sæi í hendi sér,
að þarna yrði um gróðavænlega
útgáfustarfsemi að ræða. —
Jón B. Jónasson.
VERÐLÆKKUN!
PHIUPS
ÚTVARPSTÆKI
FERÐAÚTV ARPSTÆKI
frá kr. 1.390.—
HEIMILISÚTV ARPSTÆKI
frá kr. 1.975.—
MABCAR GERÐIB
HEIMILISTÆKI S.F.
HAFNARSTRÆTI 3 — SÍMI 20455.
>