Morgunblaðið - 02.10.1968, Síða 10

Morgunblaðið - 02.10.1968, Síða 10
\r lr 10 MOKGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 196« Olympíuskákmdt Olympíuskákmót. EINS og fram hefur komið í fréttum, munu íslendingar senda skáksveit á Olympíuskákmótið í Lugano í Sviss, sem fram á að fara 17. október -8. nóvember næstkomandi. Þetta verður 18 Olympíuskákmótið, sem Alþjóða skáksambandið stofnar til, en fyrsta mót þessarar tegundar var haldið í London 1927. Síðan hafa aldrei li'ðið meira en tvö ár á milli Olympíuskákmóta, ef frá er talið árabilið 1939-1950 (að hvorugu árinu meðtöldu), en heimsstyrjöldin síðari og ým is vandkvæði, sem fylgdu í kjöl far hennar, komu þá í veg fyrir að slík mót væru haldin. Fyrsta Olympíuskálmótið eft- ir styrjöldina var haldin í borg inni Dubrovnik í Júgóslavíu ár- ið 1950. Síðan þá hafa Olympíu skákmót verið haldin reglúlega annað hvert ár, síðast í Havana á Kúbu 1966, eins og mörgum mun í fersku minni. Árið 1936 á velmektardögum nasizta, efndu Þjóðverjar til mikillar alþjóðlegrar sveita- keppni í skák í borginni Mún- chen, samhliða Olympíuleikun- um í íþróttum, sem þá voru haldnir þar í landi. Þetta mikla skákmót, sem m.a. íslendingar tóku þátt í, hlaut þó aldrei form lega viðurkenningu sem olym- píuskákmót, þótt sízt væri það minna í sniðum, né lakar skipu lagt en venjuleg Olympíuskákmót Má til dæmis geta þess, að hver þjóð sendi eigi færri en 10 menn til keppni — 8 aðalmenn og 2 varamenn — enda var teflt á 8 borðum. — Á öðrum Ol- ympíuskákmótum hefur jafnan verið látið nægja að þjóðirnar tefldu innbyrðis á fjórum borð- um, og hver þjóð hefur því sent 5-6 menn, 4 aðalmenn og 1-2 varamenn. Fyrir allnokkru er sú regla fastmótuð orðin, að hver þjóð sendi tvo varamenn, og mun oftast ekki veita af þeim liðsafla á svo erfið mót. íslendingar hafa alls tekið þátt í 12 viðurkenndum Olympíuskák mótum, og eru það eftirtalin mot: f Hamborg 1930 í Folkestone (Englandi) 1933 f Stokkhólmi 1937 í Buenos Aires 1939 1 Helsingfors 1952 f Amsterdam 1954 f Moskvu 1956 f Miinchen 1958 f Leipzig 1960 f Varna (Búlgaríu) 1962 f Tel Avív 1964 I Havana 1966 Alls hafa verið haldin 17 við- urkennd Olympíuskákmót, svo nokkuð skortir á, að við höfum tekið þátt í öllum slíkum mótum, sem haldin hafa verið, en þó kannski ekki færri en efni standa til, miðað við aðstæður állar. Á þeim átta Olympíumótum, sem haldin voru fyrir stríð, urðu Bandaríkin sigursælust á fjór- um, Ungverjaland varð efst á tveimur, en Polland og Þýzka- land unnu sitt mótið hvort. Júg- óslavar unnu fyrsta mótið eftir stríð, í Dubrovnik. — Sovétrík- in tóku §kki þátt í neinu þess- ara móta. Það vaT fyrst í Hels- ingfors 1952, að þau tóku þátt í Olympiuskákmóti, en síðan hafa þau jafnan sent lið til Ol ympíumóta og ávallt farið með sigur af hólmi. Hefur það eigi komið á óvart, þar sem þauhafa verið langöflugasta þjóð — eða þjóðarsamsteypa — í heimi, eftir Stríð. Frammistaða íslendinga á Ol- jrmpíuskákmótum hefur verið nokkuð misjöfn. Að sjálfsögðu hafa þeir aldrei lent í efstu sætunum á slíkum mótum. enda ekki gert sér vonir um slíkt. Þótt við höfum jafnan átt tals- vert öfluga skákmenn, þá hafa þeir auðvitað nær ávallt orðið að lúta í lægra haldi í hóp- keppni við fjölmennar menning arþjóðir, þar sem skákáhugi er almennur og blómlegt skáklíf. Á fyrstu mótunum, sem við tókum þátt í, var frammistaða okkar afar slök, enda höfðu skákmenn okkar þá litla sem enga reynzlu af alþjóðlegum skákmótum. Það er fyrst í Ol- ympíumótinu í Buenos Aires 1939 að við vekjum teljandi athygli fjrrir heildarárangur í sveita- keppni, þótt sumir skákmenn okkar væru áður orðnir nokk- uð þekktir erlendis fyrir ágæta hæfileika — ekki þá sízt Eggert Gilfer. Á mótinu í Buenos Aires urðum við efstir í úrslitaflokki B, en í honum tefldu 11 þjóðir. Hlaut sveit okkar þar veglegan verðlaunabikar, sem forseti Arg entinu hafði gefið til keppninn- ar, „forsetabikarinn“ svonefnda. Mun það vera einhver glæsileg- asti verðlaunagripur sem ís- PÁ-J Guðmundur Sigurjónsson lendingar hafa unnið á erlend- um vettvangi. f íslenzku sveit- inni, sem fór til Argentínu, tefldu þessir menn: Baldur Möll er, Ásmundur Ásgeirsson, Jón Guðmundsson, og Einar Þorvalds son, en Guðmundur Arnlaugs- son var varamaður. Hlutu þeir alls 41 vinning af 64 möguleg- um, eða um 64prs. vinninga. Á Olympíumótinu í Helsing- fors 1952 telfdi Friðrik Ólafs- son í fyrsta sinn á Olympíu- móti. Hann var þá aðeins 17 ára að aldri, og var þetta þyngsta prófraun hans við skák borið fram að þeim tíma. Frið- rik tefldi þarna á öðru borði og hlaut rúmlega 46% mögulegra vinninga, sem mátti auðvitað telj ast ágæt frammistaða hjá svo ungum skákmanni. Heildar frammistaða íslenzku sveitarinn ar var hins vegar býsna slök. Hún lenti í næstneðsta sæti í hópi 25 þjóða. Hins vegar náð íálendingar eft ir atvikum ágætum árangri á Olympíuskákmótunum í Amster dam 1954 og í Moskvu 1956. Á fyrra mótinu lentu þeir í fyrsta skipti í A riðli (sterkasta riðli) í úrslitum, að vísu í tólfta og neðsta sæti. Þátttökuþjóðir voru alls tuttugu og fjórar, og var þetta því bezta frammistaða okkar á Olympiumóti fram að þeim tíma, að verða tólftu í röð* inni af tuttugu og fjórum. —í Moskvu höfnuðum við í öðru sæti í B-riðli úrslita, urðum fjórtándu í röðinni af þrjátiu og fjórum þjóðum, og má víst um það deila, hvor frammistaðan er betri. Á næstu fjórum Olympíumót- um: í Múnchen 1958, í Leipzig 1960, í Varna 1962 og í Tel Avív 1964 var frammistaða okkar hins vegar heldur slök, enda tókst misjafnlega með val manna á þau. Auk þess tefldi Friðrik Ólafsson ekki á neinu þessara móta, nema í Varna og Ingi að- eins í Leipzig. Var þess því varla að vænta að við næðum toppárangri á þessum mótum. Það kom líka í ljós á mótinu í Havana 1966, að er við beittum okkar vöskustu mönnum, þá lét góður árangur ekki á sér standa Að því sinni sendum við sem aðalmenn þá Friðrik, Inga, Guð- mund Pálmason og Freystein, en Gunnar Gunnarsson og Guð- mundur Sigurjónsson voru vara menn. Lentum við þar í A-riðli og urðum elleftu í röðinni í hópi fimmtíu og tveggja þjóða. Var ekki annað hægt að segja en sá árangur væri mjög glæsi legur og sá ’langbezti, sem við höfum nokkru sinni náð á Ol- ympíuskákmóti. Sveit sú, sem teflir fyrir okk ar hönd á væntanlegu Olympíu- skákmóti í Sviss verður, að öllu forfallalausu þannig skipuð: 1. borð Ingi R. Jóhannsson 2. borð Guðmundur Sigurjóns son 3. borð Bragi Kristjánsson 4. borð Jón Kristinsson Varamenn: Björn Þorsteinsson Ingvar Asmundsson Ekki reyndist unnt að fá Frið rik Ólafsson til að keppa að þessu sinni. Mun annríki valda. Björn Þorsteinsson Þetta mun gera það að verkum, að sveitin hefur varla von um að ná toppárangri, til dæmis miðað við þann, sem hún ná’ði í Havana í hittiðfyrra. Nú vantar auk þess Guðmund Pálmason og Frey stein Þorbergsson í sveitina. En hins ber þó jafnframt að gæta, að hinir ungu meistarar okkar, einkum Guðmundur Sigurjóns- son og Bragi Kristjánsson, eru í stríðri framför, og er vart að efa, að Guðmundur nái betri ár angri nú en á mótinu í Havana. Jón, Björn og Ingvar( svo ekki sé minnzt á Inga) eru auk þess allt knáir skákmenn, þótt fram för þeirra sé nú af eðlilegum ástæðum ekki eins hröð og hinna yngri meistara. Þessir sex Olympíufarar hafa þjálfað sig sameiginlega í sum- ar, ásamt nokkrum öðrum meist urum undir leiðsögn Friðriks Ólafssonar stórmeistara. Ætti þá því ekki að bresta þjálfun til- finnanlega, né kunnáttu í nýj- ustu afþrigðum taflbyrjana, en á þær mun hafa verið lögð sér- stök áherzíla. Það er ávallt nokkuð vanda samt verk að velja menn til Ol- ympíufara. Tvær leiðir hafa þar einkum verið farnar af íslenzkum skákforráðamönn- um, og hafa þær stundum bland azt saman í ýmiskonar hlutföll- um. önnur leiðin er sú, að láta Bragi Kristjánsson Jón Kristinsson annað hvort síðasta íslandsmót ráða váli manna eða efna til sér staks úrtökumóts, þar sem sér- staklega sé teflt um réttindin til að keppa á Olympíumóti. Hin leiðin er sú að veljamenn eftir „styrkleika“, þ.e. eftir mati forráðamanna á því, hverj- ir séu hæfustu fulltrúar okkar hverju sinni. Að visu er þar komið út á nokkuð hála braut, ef lið er eingöngu valið eftir þeirri aðferð, því fáir eru óskeikulir í mati á öðrum mönn um. Fyrri leiðin væri bersýni- lega eðlilegri og tryggari ef — og hér er komið að kjarna sjálfs vandamálsins — nógu margir af skákmönnum okkar úr sterkasta flokki tefldu ávallt á íslands- þingum eða sérstökum úrtöku- keppnum fyrir Olympíumót. En því er sjaldan að fagna. Það er að verða æ sjaldgæfara að þeir skákmenn okkar hinir „eldri“, sem mestri frægð stafar af, tefli á Skákþingum fslands. Af því hefur oftast stafað og stafar enn hin erfiða völ og kvöl skákforráðamanna okkar. Eftir að Friðrik Ólafsson Ingvar Ásmundsson vann sér stórmeistaratitil og Ingi R. Jóhannsson alþjóðlegan meist aratitil, þá hefur að vísu aldrei sprottið ágreiningur um það, að þeir væru sjálfkjörnir í Olymp- íusveitir okkar. Vandinn hefur þá fremur verið sá, að fá þá í sveitirnar, og hefur stundum misheppnazt, eins og drepið var á áðan, að fá þá til að tefla í Olympíusveitunum, ýmist annan hvom eða báða. Forföll Frið- riks nú eru ekkert einsdæmi í þessum sökum, en við slíku er fátt að gera, enda vel skiljan- legt, að forföll geti teppt skák- meistara, eins og aðra menn — Og því ber þó alla vega að fagna, að Friðrik hefur staðið fyrir þjálfun Olympíusveitar okkar nú. Um val sveitarinnar að þessu sinni er annars það að segja, að sjálfsagt má um það deila, hversu vel það hefur tekizt, hvort einstakir menn, sem heima sitja, séu sterkari eða hafi átt meiri rétt til herkvaðningar en hinir, sem valdir voru. Vil ég ekki reyna að kveða upp dóma um það í einstökum tilvikum. —• En í heild tel ég, að þetta sé allsigurstrangleg sveit, sé litið til þess, að Friðrik Ólafsson gat, nú ekki mætt til leiks. Væntanlegt Olympíuskákmót íi Sviss verður fjölmennt ogsterkt.' mót, og er áætlað að eigi færri en 54 þjóðir muni tefla í því, og verður það þá fjölmennasta Olympíumót, sem haldið hefur verið. Mun fyrst verða teflt í 7 undanrásarriðlum, en síðan fjórum riðlum til úrslita. — Fyr irhugað mun að taka upp þá nýjung, að úrslit í undanrásum í keppni einstakra þjóða, verði látin gilda sem endanlegt upp- gjör þeirra í milli á mótinu, þannig, að sömu þjóðir tefli ekki tvisvar saman, þótt þær lendi aftur saman í riðli í úrslitum. Mun þetta gert, til að reyna að koma í veg fyri hrossakaup í undankeppninni, og einnig spar ast með þessu ein umferð. — Trúlega verður þéssi nýjung eitt hvað umdeild, enda hefur hún vissa ókosti. Ekki er annað vitað en allar sterkustu skákþjóðir heims tefli á þessu móti. Til dæmis munu nú Vestur-Þjóðverjar mæta með öflugt lið, en þeir tóku ekki þátt í síðasta móti. Fischer og Reshevsky munu báðir mæta frá Bandaríkjunum, en eigi að síður verður líklega erfitt að koma í veg fyrir sigur Sovét- Ingi R. Jóhannsson manna. Þeir tefla fram Petrosjan, Spassky, Korsctnoy og Tal, sem aðalmönnum, en Geller og Polugajevsky sem varamönnum. Þótt skákstyrkleiki hinna ólík- ustu þjóða sé nú mjög tekinn að jafnast, þá er langlíklegast, að Sovétríkin hreppi efsta sæt- ið einu sinni enn. Baráttan get- ur hins vegar orðið tvísýn um næstu sæti. Óska svo fslenzku sveitinni heilla og sigursældar á þessu mikla móti. Sveinn Kristinsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.