Morgunblaðið - 02.10.1968, Side 12

Morgunblaðið - 02.10.1968, Side 12
12 MORGUINBLAÐH), MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 196« Þorsteinn Arnalds, framkvœmdastjóri: Villandi ummæli Tryggva Ófeigs- __ * sonar um rekstur B.U.R. um án þess að leggja til þeirr- FÖSTUDAGINTST 27. september s.l. birtist í Morgunblaðinu yf- irlit, sem fengið var hjá Félagi íslenzkra botnvörpuskipaeig- enda um landanir íslenzkra tog- ara í heimahöfnum og erlendum höfnum á þessu sumri. Tilefnið til þess, að Morgunblaðið afl- aði sér þessa yfirlits, mun vera það, að ríkisstjórn og borgaryf- irvöld höfðu farið þess á leit við togaraeigendur, að þeir lönd uðu afla togara sinna, eftir því sem við yrði komið, hér á landi, þar sem uggvænlega horfði í at- vinnumálum landsmanna. Náði yfirlit þetta til allra fé- lagsmanna F.Í.B. annars vegar og hins vegar til skipa Júpiters og Marz h.f., sem er eign Tryggva Ófeigssonar. Á það skal sérstaklega bent, að togara Bæjarútgerðar Reykjavíkur var ekki á nokkurn hátt sérstaklega getið og því enginn samanburð- ur gerður á aflamagni togara B.Ú.R. og togara Tryggva Ófeigs sonar né þeirri vinnu, sem þeir hvorir um sig sköpuðu. Hins veg ar kom í ljós, að hlutur togara Tryggva Ófeigssonar í löndun- um hér heima yfir sumarmánuð- ina var næsta lítill. Á þessum fjórum mánuðum, maí-ágúst, 1968 var heildarafli togara FÍB., sem landað var hér’hheima, 26. 072 lestir, en afli togara Tryggva Ófeigssonar 1.835 lestir. BLEKKINGAR UM FLAKA- FAMLEIÐSLU Sumum mönnum er svo farið, að þegar á móti blæs, þá Igta þeir gremju sína bitna á um- hverfi sínu. Við, sem störfum hjá Bæjar- útgerð Reykjavíkur, höfum fyr ir löngu tekið eftir því, að þeg- ar eitthvað bjátar á í útgerð Tryggva Ófeigssonar eða eitt- hvað verður honum andstætt, þá er þess ekki langt að bíða, að hann ráðist á Bæjarútgerð Reykjavíkur. Enda fór það einn ig svo að þessu sinni, því að strax næsta dag birtist í Morg- unblaðinu grein eftir Tryggva Ófeigsson, þar sem ráðizt er á Bæjarútgerð Reykjavíkur, en á engan hátt svarað eða gerðar at hugasemdir við yfirlit F.f.B. f stað þess eru birtar tölur um framleiðslu frystihúss Júpi- ters og Marz árið 1967 og born ar saman við framleiðslu frysti- húss B.Ú.R. það ár. En þar sem framleiðsla frystihúss Júpíters og Marz var nokkru meiri en fram- leiðsla B.Ú.R. á árinu 1967, var látið líta svo út sem um enga aðra framleiðslu væri að ræða. Til þess að reyna að gera hlut sinn eitthvað meiri gengur Tryggvi algjörlega fram hjásalt fisk- og skreiðarframleiðslu Bæj arútgerðarinnar á síðastliðnu ári, sem var 334.764 tonn miðað við fullstaðinn saltfisk og 557.325 tonn miðað við verkaða skreið, en saltfisk- og skreiðar- framleiðsla Júpíter og Marz h.f. mun hafa verið mjög lítil á því ári. Þess má svo geta, að fisk- framleiðsla Bæjarútgeðrarinnar var 1.613 tonn 1967, en Júpíters og Marz 1.557 tonn. Það sem gerir muninn á heildarmagni hús anna er heilfryst síld. Enn reynir Tryggvi að beita brögðum með upplýsingum sín- um um framleiðslu frystihúsa þessara á árinu 1968. Upplýsir Tryggvi, að á ákveðnu tímabili ársins 1968 hafi frystihús Júpí- ters og Marz framleitt 879.7 tonn, en frystihús B.Ú.R. 743.2 tonn. Því skyldi nú Tryggvi taka til dæmis framleiðslu þess ara frystihúsa fjóra mánuði úr árinu? Því ekki að upplýsa, hvert framleiðslumagnið hafi verið fyrstu 8 mánuði ársins, úr því að þær upplýsingar lágu fyrir? Það var einfaldlega vegna þess, að sá samanburður yrði frystihúsi Júpíters og Marz óhag stæður, en hinn 1. september 1868 hafði frystihús B.Ú.R. fram leitt 2.047 tonn af frystum flök- um og 188 tonn af frystri síld. Auk þess hafði fiskverkunar- stöð B.Ú.R. framleitt 1.083 tonn af saltfiski miðað við fullstað- inn fisk og 137 tonn af full- verkaðri skreið. Frystihús Júpí- ters og Marz hefur á sama tíma framleitt 1.253.1 tonn af frystum flökum og 487.2 tonn af frystri síld. Skreiðar- og saltfiskfram- leiðslan mun vera óveruleg. ÓMAKLEGA VEITZT AÐ STARFSMÖNNUM TOGARA- AFGREIÐSLUNNAR í grein Tryggva er ómaklega sveigt að verkamönnum og stjórn Togaraafgreiðslunnar, sem hann er reyndar sjálfur meðilmur í. Er látið í það skína, að afköst verkamanna hér séu mun lélegri en erlendis ogreynd ar öll stjórn á uppskipuninni Tekur hann til dæmis, að land- að hafi verið úr einum togara sinna 1 Hull í marzmánuði s.l. á 6 kulkkustundum. Að vísu hafi skipið þurft að bíða 1 3 daga eftir að vinna hæfist. Hins vegar getur Tryggvi þess ekki, að meira en helmingi fleiri menn starfa að löndun í Eng- landi en hér. Má því af orðum Tryggva ráða, að vinnubrögð hér í Reykjavík við losun tog- aranna séu mjög léleg. Sannleik urinn er sá, að þeir, sem starfa að losun, eru allir hörku dugn- aðarmenn, sem margir hverjir hafa haldið tryggð við Togara- afgreiðsluna í mörg ár og er öll stjórn framkvæmdastjórans, Hallgríms Guðmundssonar, með hinum mesta myndarbrag. Fróðlegt er að rifja það upp, í sambahdi við hallmæli Trygg- va Ófeigssonar í garð íslenzkra verkamanna, að hinir erlendu verkamenn eru ekki alltaf á nægðir með samskiptin við hann. Mundi það skipta okkur litlu máli, ef það skaðaði engan nema hann sjálfan. En svo er mál með vexti, að er b.v. Júpíter átti að landa í Hull 3. janúar 1967, komu lönd- unarmenn um borð, hófu löndun án þess að ljúka henni og gengu í land til að knýja fram greiðslu á slysabótum, sem löndunarmað ur átti rétt á vegna slyss, sem hann hafði orðið fyrir við lönd un úr skipinu í júlímánuði 1965. Til þess að fá löndun lokið úr skipinu daginn eftir, varð um- boðsmaður að kaupa sérstaka tryggingu vegna löndunarmann anna með lágmarksiðgjalda greiðslu, 75 sterlingspundum eða tæplega 11 þúsund krónur, og skyldi þessi sérstaka trygging keypt fyrir íslenzk skip, sem lönduðu hjá þessum umboðs- manni framvegis. Þarna fá íslenzkir togarar á sig nýjan óvæntan skatt þar sem ekki voru gerð skil á bótum vegna slyss, sem sýnilega varð að greiða. Tryggvi minnist einnig á í grein sinni, að b.v. Egill Skalla- grímsson hafi einhvern tíma orð ið að víkja fyrir „bæjarútgerð- artogaranum" Ingólfi Arnarsyni við löndun í Reykjavík. Auð- vitað er aldrei hægt að fyrir- byggja í sérstökum tilvikum, að tvö skip óski eftir löndun sam- tímis án þess að hægt sé að greiða úr því, en ég er ekki að nefna þau fjölmörgu skipti, sem togarar B.Ú.R. hafa orðið að taka tillit til landana annarra togara, og tel ég ekki nema sjálf sagt, að viðhöfð sé ákveðin skip an á þeim málum. SKATTFRÍÐINDI GRUND- VÖLLUR NÝSKÖPUNAR f fyrirsögn greinar Tryggva Ófeigssonar og í greininni sjálfri er því haldið fram, að borgarsjóður hafi greitt kr. 3.00 með hverju kílógrammi af fiski, sem togarar B.Ú.R. lönduðu hér heima árið 1967, sem hann telur vera 10.600 tonn. (Rétt er 10.148 tonn). Er hér um ein- hverja mestu blekkingu að ræða sem ég hefi lengi rekizt á í sam- bandi við starfsemi Bæjarútgerð ar Reykjavíkur. Tel ég á þessu stigi málsins, að rétt sé að rekja í stuttu máli aðdragandann að stofnun Bæjarútgerðarinnar og viðskipti hennar og borgarsjóðs og jafnframt að skýra örlítið að stöðu útgerðar Tryggva Ófeigs- sonar á þeim tíma, sem Bæjar- útgerðin hóf störf sín. Þegar nýbygging togaraflot- ans hófst eftir stríðslok, átti íslenzk togaraútgerð að baki sér einstakt velgengnistímabil. Öll stríðsárin seldist ísfiskur mjög góðu verði í Bretlandi. Einnig sátu íslendingar svo að segja einir að fiskimiðunum kringum landið. Þegar því endurnýjunartíma- bilið á togaraflotanum hófst, stóðu íslenzkar togaraútgerðir mjög vel að vígi til endurnýj- unar, sérstaklega fyrir þá sök, að íslenzka ríkisstjórnin hafði sýnt þann skilning að heimila togaraútgerðunum ýmis skatt fríðindi, einkum með tilliti til endurnýjunar á togurunum, sam anber lög nr. 93 frá 1938, sem fjölluðu um skattagreiðslur út- gerðarfyrirtækja íslenzkra botn vörpuskipa. Lögum þessum samkvæmt mátti draga frá tekjum allt tap, sem orðið hafði frá 1931, og enn fremur 90 prs af nettó tekjum í varasjóð. Ekki mátti heldur leggja á hærra útsvar en lagt var á árið 1938. Lög þessi voru afnumin með lögum nr. 9-1941 og í stað þess heimilað að draga frá helming af nettó tejkum í varasjóð, þar af | hluta í nýbyggingarsjóð. Einstaklingar og sameigna- félög máttu leggja 40 prs af nettó tekjum í nýbyggingarsjóð. Með lögum nr. 20 frá 1942 er varasjóðsfrádráttur útgerðar- hlutafélaga lækkaður niður í 4 af nettó tekjum og hjá öðr- um útgerðaraðilum í 20 prs. Er ljóst, að mjög mikill að- stöðumunur var fyrir Bæjarút- gerð Reykjavíkur að kaupa þessi nýju skip og til dæmis Tryggva Ófeigsson, sem átti þessi góðæri að baki sér. Átti hhann verulegar fjárupphæðir í nýbyggingar- og varasjóðum til kaupanna, sem lagðar höfðu verið til hliðar skattfrjólst. Er vissulega ástæða til að taka fullt tillit til þessa að- stöðumunar, einnig þá er borin er saman rekstursafkoma Bæj- arútgerðar Reykjavíkur og út- gerðar Tryggva Ófeigssonar. STOFNUN BÆJARÚTGERÐ- ARINNAR OG TILGANGUR. Við stofnun Bæjarútgerðarinn ar átti útgerðin því ekkert eig- ið fé til að leggja í reksturinn en varð frá upphafi að sækja til Framkvæmdasjóðs um fé til fjárfestingar og lánastofnana um rekstursfé. Tilgangurinn með stofnun B. Ú.R. var auðvitað fyrst og fremst sá að tryggja atvinnu í borginni og að stuðla að auk- inni starfsemi fyrirtækja þeirra, sem veita togurunum ýmiss kon- ar þjónustu, vera þannig hvati í athafnalífi borgarinnar. Auðvit- að er öllum Ijóst, að ekki er unnt að stofna til mikils at- vinnureksturs með dýrum tækj- ar starfsemi mikið fé. Þetta fé gátu eldri útgerðarfyrirtæki tek ið af þeim sjóðum, sem þau áttu frá stríðsárunum og áður er get ið. Hins vegar var Bæjarútgerð- in þá nýtt fyrirtæki og því eng um slíkum sjóðum til að dreifa. Þetta framlag varð því að koma frá borgarsjóði. STOFNFRAMLÖG OG REKSTRARFRAMLÖG BORG- ARSJÓðS. Til kaupa á 8 togurum Bæj- arútgerðarinnar, til kaupa á frystihúsi, saltfiskverkunarstöð, skreiðarverkunarstöð og síldar- verkun og margvíslegum tækj- um og til greiðslu á skuldbind- ingum, sem Bæjarútgerðin tók á sig með kaupum á þessum marg- víslegu framleiðslutækjum, hef- ur borgarsjóður (Framkvæmda- sjóður) lagt fram kr. 139.947.418.46. Hitt er e.t.v. ekki öllum Ijóst, að af framlagi borg arsjóðs hafa frá upphafi verið reiknaðir vextir og vaxtavextir, og nemur sú upphæð nú sam- tals kr. 30.660.672.13, sem eru innifaldir í áðurnefndum 139.9 millj. Geri ég ráð fyrir, að mik- ill halli yrði á útgerð Tryggva Ófeigssonar, ef með sama hætti væru reiknaðir vextir og vaxta- vextir af hinu skattfrjálsa fé, sem hann lagði til sinnar eigin útgerðar og því fé, sem hann hefur síðan varið til hennar. Rétt er að benda á, að Bæj- arútgerð Reykjavíkur hefur á- vallt verið gert að greiða út- svar og aðstöðugjöld eins og öðr um útgerðarfyrirtækjum, og nem ur upphæð þessara gjalda kr. 8.607.660.00. Er upphæð þessi einnig innifalin í ofannefndum kr. 139.9 millj. Hefur Tryggvi Ófeigsson hvað eftir annað haldið fram þeim ósannindum, að Bæjarútgerð Reykjavíkur sé ekki gert að greiða aðstöðu- gjald eða útsvar. Hefur hann haldið þessu fram í mörg ár, enda þótt honum hafi allan tím- ann verið ljóst, að hér fór hann með hrein ósannindi, sem ekki byggðust á misskilningi. Nú vaknar sú spurning, hvað hefur borgarsjóður þá lagt fram til reksturs Bæjarútgerðar Reykjavíkur? Eftir allar þær um rSeður, sem farið hafa fram um þessi mál, skyldu menn ætla, að hér væri um háa fjárhæð að ræða. Tryggvi Ófeigsson held- ur því t.d. fram, að úr borgar- sjóði hafi á árinu 1967 verið greiddar kr. 3.00 með hvejrju kílógrammi, sem togarar B.Ú.R. haaf landað hér. Er því rétt að taka til athugunar rekstursaf- komu B.Ú.R. frá stofnun henn- ar og fram til þess tíma, er reikningar liggja fyrir, en það er 31.12 1967. Samkvæmt reikningunum er tap B.Ú.R. frá upphafi kr. 164.848.786.95, þar af afskriftir kr. 139.502.414.96. Mismunur- inn á töpum Bæjarútgerðarinn- ar og afskriftum er því kr. 25.346.371.99. Það mun augljóst hverjum manni, að beint fjár- framlag borgarsjóðs til rekst- urs Bæjarútgerðarinnar á þeim 22 árum, sem hún hefur starf- að, getur ekki orðið hærri upp- hæð en heildartapið að frá- dregnum afskriftum, eða eins og að framan getur kr. 25.346.371.99 Nú er einnig þess að gæta, að þegar þessi niðurstaða er feng- in, hefur borgarsjóður reiknað sér vexti kr. 30.660.672.13, af eigin fé og einnig að sjálfsögðu útsvar og aðstöðugjald kr. 8.607.660.00. Af þessu er því ljóst, að úr borgarsjóði hefur ekkert verið greitt til Bæjarúit- gerðarinnar annað en hluti af vöxtum af eigin fé borgarsjóðs, sem svarar til taps fram yfir afskriftir á þeim 22 árum, sem Bæjarútgerðin hefur starfað. Framlag borgarsjóðs (Fram- kvæmdasjóðs) hefur þannig að langmestu leyti farið til greiðslu á stofnkostnaði, þ.e. til uppbygg ingar útgerðarinnar. REIKNINGSKÚNSTIR TRYGGVA ÓFEIGSSONAR. En hvernig er þá með 3 krón urnar hans Tryggva, munu nú margir spyrja. Ég geri ráð fyrir, að flestum sé Ijóst, hversu fár- ánleg sú aðferð er, sem Tryggvi Ófeigsson beitir til þess að kom ast að þessari niðurstöðu. Tryggvi tekur tap Bæjarútgerð arinnar árið 1967 og bætir við þá tölu kostnaði af þeim skip- um, sem B.Ú.R. hefur hætt út- gerð á og 'hefur selt. Kemst hann að þeirri niðurstöðu, að þessi upphæð, ásamt fyrningar- afskriftum, nemi kr. 31. millj., sem greitt hafi verið úr borgar- sjóði, sem er þó algerlega rangt. Síðan tekur hann einn þátt fram leiðslu Bæjarútgerðarinnar, þ.e. það magn af fiski, sem togarar B.Ú.R. lönduðu í Reykjavík á árinu, og deilir með kílóafjöld- anum, sem h'ann telur vera 10.600 tonn, og fær út úr því kr. 3.00 pr kg., sem Bæjarút- gerðin tapi á hverju kílói og borgarsjóður greiði. Á sama hátt mættí einnig taka það aflamagn sem togarar B.Ú.R. lönduðu er- lendis á árinu 1967, en það voru 3.525 tonn, og deila þeirri tölu inn í 31 milljón krónur (en auðvitað er sú tala algerlega röng viðmiðunartala, eins og kemur fram hér að framan). Mundi þá útkoman vera tap kr. 8.79 pr. kg. f þriðja lagi mætti taka enn eina framleiðslugrein B.Ú.R. t.d. keyptan fisk af bát- um og togurum annarra togara- félaga, beita sömu aðferð og fá enn eina niðurstöðu. Yrði þá heildartapið strax orðið þrefalt, miðað við þá tölu, sem Tryggvi valdi sjálfur til viðmiðunar. Hversu gífurlegt gæti tapið ekki orðið með þessari reiknings- aðferð hjá verzlun, sem verzl- aði með 1000 vörutegundir, eins og Sigurður Magnússon upp- lýsti í sjónvarpsþætti s.l. sunnu dagskvöld, að venjuleg matvöru verzlun gerði. Ef slík verzlun tapaði kr. 100.000.00 á tilteknu ári, yrði tapið með aðferð Tryggva 1000x100.000.00 krón ur eða 100 milljón krónur! RAUNHÆFARI ÚTREIKNING AR. En þótt beitt sé öðrum raun- hæfari reikningsaðferðum en þessari, þá er ekki fyrir það að synja, að rekstur Bæjarútgerð- ar Reykjavíkur hefur ekki geng ið eins vel og æskilegt værL Öllum landslýð eru kunnugir hinir miklu rekstrarörðugleikar sjávarútvegsins og þá ekki sízt togaraútgerðarinnar, sem hefur fengið á bak sitt hverja byrð- ina á fætur annarri, t.d. með út- færslu fiskveiðilögsögunnar, og þegar togaraútgerðin fékk greiddan fisk sinn á lægra verði en bátaútvegurinní en sýnt hef- ir verið fram á, að þetta mun aði hvern togara 5.6 millj. króna á árunum 1951-1958 og þá Bæj- arútgerðina um 45 millj. króna. Að þessu leyti er aðstaða Bæj- arútgerðarinnar auðvitað hin sama og aðstaða útgerðar Trygg va Ófeigssonar og annarra einka-útgerðarfyrirtækja. Af þessum sökum hafa mörg einka- útgerðarfyrirtæki orðið gjald- þrota eða orðið að draga veru- lega ú rrek stis níursvosme.m Kveldúlfur hf., eða hætta rekstri, svo sem Alliance h.f. Örðugleikar B.Ú.R. eru því ekk ert einangrað fyrirbrigði, held- ur sameiginlegir fyrir alla út- gerðarmenn. Það gefur auga leið að reksturinn hvílir ekki á heil- brigðum grundvelli, ef útgerðar Framhald & bls. 17

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.