Morgunblaðið - 03.10.1968, Qupperneq 1
28 SÍÐUR -
216. tbl. 55. árg.
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1968
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
N-Vietnam hafnar
tilboöi Humphreys
París, 2. október. AP.
Norður- Vietnam hafnaði opin
berlega í dag tilboði Hubert
Humphreys, varaforseta og for-
setaefnis demókrata, þess efnis,
að loftárásum á Norður-Vietnam
verði hætt, ef Hanoi-stjórnin
geri ráðstafanir til þess að gera
hlutlausa beltið á mörkum Norð
ur- og Suður-Vietnam í raun og
veru hlutlaust.
Á 24. fundi Vietnam-vi'ðræðn-
anna í París í dag sagði aðal-
samningamaður Norður-Vietnam,
Xuan Thuy, að stjóm sín gæti
ekki fallizt á kröfu Bandaríkja-
manna um, að dregið verði gagn-
kvæmt úr stríðsaðgerðum. Hann
sagði, að bæði Humphrey og
Johnson bæru fram slíkar kröfur
og hélt því fram, að Humphrey
hótaði nýjum loftárásum.
Xuan Thuy sakáði Bandaríkin
um að undirbúa nýja árás á
Norður-Vietnam í þeim tilgangi
að leggja allt landið undir sig.
Aðalsamningamaður Bandaríkj-
anna, Averell Harriman, vísaði
þegar í stað á bug þessari ásök-
un, sem kom honum greinilega
á óvart.
Harriman sakaði Norður-Viet
Framh. á bls. 27
Taft-Hortley-
lögum beitt
New York, 2 .október. AP.
ALRÍKISDÓMARI hefur gefið
út skipun um, að 75.000 banda-
rískir hafnarverkamenn, sem
eru í verkfalli, taki aftur upp
vinnu meðan reynt sé að miðla
málum í deilunni. Þar með er
verkfallinu, sem hófst á mið-
nætti á þriðjudag, lokið í bili að
minnsta kosti. Samkvæmt Taft-
Hartley-lögunum er heimilt að
skipa verkfallsmönnum að snúa
aftur til vinnu meðan sáttatil-
raunir standa yfir, en hafi samn-
ingar ekki tekizt eftir 80 daga,
geta verkamenn aftur lagt niður
Fimm af sexburunum, sem fæddust í gær. Sá sjötti dó 1 klst. eftir fæðinguna.
Sexburar fæðast í Bretlandi
— Eitt barnanna þegar látið
Birmingham, 2. ökt. - NTB, AP.
BREZK kona, sem í tíu ár hefur
óskað þess að geta eignazt barn,
fæddi sexbura í dag, en þá var
afmælisdagur hennar og hún
'varð 30 ára. Af sexburunum
Voru fjögur meybörn og tvö
Fundur leiötoga Tékkóslðvakíu og
Sovétríkjanna væntanlega í dag
— Krefjast Sovétríkin breytinga
á stjórn Tékkóslóvakíu?
Prag, 2. október — NTB —
SAMNINGAVIÐRÆÐUR þær,
sem lengi hefur verið beðið eft-
ir, að hefjist á milli Sovétríkj-
anna og Tékkóslóvakíu, munu
sennilega hefjast í Moskvu á
morgun, fimmtudag, en þá er
gert ráð fyrir, að sendinefnd
frá Tékkóslóvakíu undir forystu
Alexanders Dubceks komi þang-
að. Var skýrt frá því í kvöld,
að auk Dubceks verði ennfrem-
ur í nefndinni þeir Oldrich
Cernik, forsætisráðherra Tékkó-
slóvakíu og Gustav Husak, vara-
forsætisráðherra og leiðtogi
kommúnistaflokksins í Slóvakíu.
Samkvæmt frétt frá CTK hélt
forsætisnefnd kommúnistaflokks
landsins fund í dag, þar sem
tekin var til meðferðar tillaga
um að kalla saman alla mið-
stjórnarfulltrúa flokksins til
fundar. Talið er þó, að á þess-
um fundi hafi fyrst og fremst
verið rætt um viðræður þær,
sem fyrir dyrum standa í
Moskvu. Er bent á, að Vasilij
Kusnetsov, varautanríkisráð-
herra Sovétrikjanna og sérstak-
ur sendifulltrúi þeirra í Prag,
sé ennþá í Moskvu, og mun hann
taka þátt í viðræðunum við
tékkóslóvakísku leiðtogana.
Samkvæmt fréttum frá Prag
hafa frestanir á fyrirhuguðum
Moskvufundi hvað eftir annað
aukið á óvissuna þar í borg en
einnig orðið til þess að efla enn
frekar stuðning almennings við
Dubcek flokksleiðtoga og sam-
starfsmenn hans.
Alexander Dubcek og fleiri
forystumenn Tékkóslóvaka voru
fluttir til Moskvu eftir innrásina
21. ágúst sl. Þar undirrituðu þeir
samninginn um að taka upp aft-
ur stefnu rétttrúnaðarkenndari
Framhald á bls. 27
sveinbörn og fæddust þau öll lif-
'andi, en meybarnið, sem síðast
fæddist, dó, áður en klukkutimi
var liðinn. Móðirin hafði fengið
hormónameðferð í tvö ár, eftir
að hún hafði kvartað yfir von-
brigðum sínum yfir að geta ekki
'eignazt barn. Nafn hennar er
'Sheila Ann Thorn.
Bömin, sem vógu milli 0,91—
'1,36 kg fæddust tveimur mánuð-
um fyrir tímann og var beitt
keisaraskurði. Sjálf fæðingin
stóð aðeins yfir í þrjár mínútur.
Það var fæðingarlæknirinn
Margaret Shotton, sem stjórnaði
sérfræðingahópnum, sem tók á
móti bötrnunum. Sagði hún, eftir
að fæðingin var um garð gengin,
áð of snemmt væri að segja um,
hvort börnin fimm, sem eiffl
lifðu, myndu ná að lifa og vaxa
upp. Kvaðst hún fyrst vilja segja
Framh. á bls. 27
Dtlendingar falla í Biafra
Lagos, 2. október. NTB-AP.
Nígeríuher fyrirskipaði í dag
rannsókn á dauða tveggja full-
trúa Alþjóða Rauðakrossins og
tveggja brezkra trúboða, sem
féllu í bardögum um bæinn Oki-
gwi sem sambandshersveitír náðu
á sitt vald á mánudaginn. Sá
bær er aðeins 42 km frá Umuahia
síðasta stóra bænum, sem er
enn á valdi Biaframanna.
Rauða kross-mönnunum, Franz
Georg Carlsson frá Svíþjóð, og
Dragan Hercog, lækni frá Júgó-
slavíu, hafði verið skipað að yf-
irgefa ekki stöðvar sínar þrátJt
fyrir bardagana. Annar Svíi,
Percy Nilson, hlaut skotsár,. en
líðan hans er ekki alvarleg. Trú
boðarnir, sem féllu eru hjóniin
A’lbert og Majorie Savory, og
störfuðu þau á vegum Alkirkju
ráðsins.
Ljósmyndari Time-Life blaða-
samsteypunnar, Priya Ravravha
Kenyamaður af asísku bergi brot
inn, féll í dag fyrir kúlum Bi-
aframanna, sem réðust á hann
og annan ljósmyndara úr laun-
Framh. á bls. 27
Skipun Fortas
dregin til baka
Dean Rusk utanríkisráðherra Bandaríkja nna:
Árás Sovétríkjanna á Tékkó-
slóvakíu er friðinum hættuleg
— Hefur eyðilagt vonir um bætta sambúð
og hefur sáð efa og vonleysi
Sameinuðu þjóðunum, 2. október
— AP —
DEAN RUSK, utanrikisráðherra
Bandaríkjanna, fordæmdi í dag
á Allsherjarþingi Sameinuðu
Washington, 2. október.
AP.
Johnson forseti féllst í dag
á beiðni Abe Fortas hæsta-
réttardómara þess efnis, að
forsetinn dragi til baka til-
nefningu hans í embætti for-
seta hæstaréttar. Johnson
kvaðst harma það að þurfa
að verða við þessari bón, þar
sem hann teldi Fortas hæf-
asta manninn í embættið.
Hann sagði, að málþóf það,
sem haldið hefur verið uppi
í öldungadeildinni, gegn til-
nefningu Fortasar, væri sorg-
legt, sögulega séð og stjórn-
arfarslega.
f lausnarbeiðni sinni sagði
Fortas, að jafnvel þótt öld-
ungadeildin staðfesti skipun
hans í embættið yrði afleið-
ingin sú, að árásum á hæsta-
rétt yrði haldið áfram. Þess
vegna fór hann þess á leit
að skipun hans í embættið
yrði dregin til baka.
Framh. á hls. 27
Gullverð lækkur
LONDON, 2. október. — NTB.
Verð á gulli lækkaði í dag og
hefur aldrei verið lægra á gull-
markaönum í London um þriggja
mánaða skeið. Verðið var lækk-
að um 115 sent únsan í 38,30
dollara únsan.
Hér er um að ræða fyrstu
verðsetninguna í London síðan
fjármálaráðherra Bandairíkjanna,
'Henry Fowler, staðfesti á þriðju-
dag, að hann væri ákveðinn í að
beita sér gegn hvers konar á-
Framb. á bls. 27
þjóðanna innrás Sovétríkjanna í
Tékkóslóvakíu og lýsti því yfir,
að hún væri friðnum hættuleg.
Vegna innrásarinnar hefði „alda
reiði og ótta farið um allan
heim.“ Aðgerðir Sovétrikjanna
hefðu eyðilagt vonir um betri
sambúð milli austurs og vesturs
og sáð efa og vonleysi. Skoraði
hann á Sovétríkin að flytja burt
þegar í stað hersveitir sínar frá
Tékkóslóvakíu.
Rusk sagði ennfremur, að
hvorki sáttmáli Sameinuðu þjóð
anna né þjóðaréttur veitti Sov-
étríkjunum neina heimild til
þess að beita valdi gegn Vestur-
Þýzkalandi og Vestur-Berlín.
Hvers konar aðgerðir í þá átt
af hálfu Sovétríkjanna myndu
þegar í stað leiða til aðgerða í
sjálfsvarnarskyni af hálfu At-
lantshafsbandalagsins.
Þá sagði Rusk, að Bandarík-
in vildu frið í Víetnam og væru
reiðubúin til þess að stöðvg
sprengjuárásir á Norður-Viet-
nam, hvenær sem þau gætu ver
ið þess fullviss, að slíkt myndi
verða til þess að miða í frið-
arátt. Unnt væri að komast að
heiðarlegu samkomulagi, og
tími væri kominn til þess, að
Hanoistjórn sneri sér að því al-
varlega verkefni að semja um
frið í viðræðunum í París.
Rusk sagði, að vegna árásar-
innar á Tékkóslóvakíu, væru
Rússar nú að reyna að finna
upp réttlætingu á því, sem hann
nefndi „stórfellt brot“ á sáttmála
Sameinuðu þjóðanna. Varpaði
hann fram þeirri spurningu,
hvort röksemdir þær, sem fram
hefðu komið í Pravda málgagni
sovézka kommúnistaflokksins, að
undanförnu, þýddu það, að Sov-
étstjórnin misvirti þann sátt-
Framhald á hls. 27