Morgunblaðið - 03.10.1968, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 19&8
Benfica vann Val 8:1 í gærkvöld
Benfica skoraði 5 mörk
á fyrstu 32 mínútunum
Hermann Gunnarsson skoraði
eina mark Vals í leiknum
Frá Baldvin Jónssyni í Lissabon.
Benfica vann Val í síðari leik liðanna í gær með 8 mörkum gegrv
1, eftir að staðan í hálfleik var 5-0. Þrátt fyrir þennan stóra sigur
vöktu Valsmenn mikla athygli í leiknum, ekki sízt fyrir það, að
ailan tímann iétu þeir ekki bilbug á sér finna, lögðust ekki í vörn,
en reyndu sókn tii síðustu stundar. Hún heppnaðist einu sinni er
Hermann lék á þrjá varnarmenn og skoraði eina mark Valsmanna
um miðjan síðari hálfleik.
Danmerkurmeistararnir í handk nattleik, HG.
Loksins tóku dönsku meist-
ararnir boði um ísjandsför
Koma á vegum KR og leika 4 Beiki
Þá vakti þá<S mikla athygli
Portugala að Valsmenn tóku tap
inu vel, klöppuðu liðsmönnum
Benfica lof í lófa og mynduðu
heiðursröð er sigurvegararnir
hurfu af velli.
Strax á fyrstu mínútunum
tóku Benficamenn leikinn mjög
alvarlega. Á 4. mín skoraði Simo
es 1. markið £if 8-10 m færi og
skoraði viðstöðulaust með þrumu
föstu skoti, alveg óverjandi.
Á 8. mín. jók Graza forystuna
f 2-0. Skot hans var einnig mjög
fast alveg út við stöng frá hlið.
Lék hann á þrjá varnarmenn
áður.
3-0 kom á 11. mín. og var Torr
es að verki af mjög stuttu færi
eftir snögga fyrirsendingu frá
Eusebio.
Mínútu sfðar var Torres aftur
í samskonar færi en hitti þá
ekki markið.
Coluna átti litlu síðar tvö lang
skot utan vítateigs bæði mjög
föst, en hitti landa sinn í annað
skiptið en Halldór Einarsson í
hitt skiptið.
Á 16. mín skoraði Eusebio 4-0
með mjög föstu skoti og hnit-
miðuðu í bláhornið uppi.
Inn á milli varði Sigurður
Dagsson mjög góð skot, en vörn
Vals tókst ekki að loka teig sín-
um sem í fyrra skiptið enda léku
nú Benficamenn mun fastar og
ákveðnara.
Á 32. mín skoraði Coluna 5-0
úr langskoti um 5 m. fyrir utan
vítateig og réði Sigurður engan
veginn við það.
A 38. mín. var svo Þorsteinn
Friðþjáfsson vanda sínum trúr
og varði á marklínu — bjargaði
þar marki.
Þegar á 2. mín. síðari hálf-
leiks skoraði Torres 6. mark Ben-
fica. Þarna brást Valsmönnum
mjög illa, opnaðist alveg og stóð
Torres einn á vítateig og gat
gert það sem hann vildi.
Hermann, Reynir og Ingv-
ar voru „agressivastir" í sókn
artilraunum og náðu oft á
• laglegan hátt upp að vítateig
Benfica, en þar reyndist fyr-
ir yfirleitt pottþéttur og fast-
ur varnarveggur.
Á 20. mín. kom eina mark
Vals. Hermann brunaði upp
völlinn og komst framhjá
þremur vamarmönnum og
skoraði með hörkuskoti. Þetta
var mikið traustamark og
fyllilega verðskuldað.
Mínútu síðar skorar Augusto
7-1. Skaut hann af stuttu færi
og skotið fór í varnarmann,
breytti stefnu og Sigurður kast-
aði sér í rangt horn.
5 mín. fyrir leikslok kom svo
lokamarkið og skoraði Torres
það. Línuvörðurinn veifaði rang-
stöðu, en dómarinn sinnti því
ekki og dæmdi markið gilt.
Þannig lauk þessari viðureign.
Þetta var ekki að sama skapi
ójöfn viðureign og markatalan
gefur til kynna. Valsmenn áttu
góðar tilraunir, en nú sáum við
hin frægu skot Benfica sem hafa
lyft þeim í eitt af æðstu sætum
getulega séð í Evrópu — og jafn
vel víðar.
Keflavík
íþróttafélag Keflavíkur er að
hefja vetrarstarfið og eins og sl.
vetur verða æfingatímax í badm
inton og frjálsum íþróttum.
Fundur verður hjá badming-
tonfólki á föstudagskvöld (4.
okt.) í Æskulý'ðsheimilinu kl. 8.30
og verður þar rætt um fyrirkomu
lag og tekið á móti nýjum félög-
‘DÖNSKU meistararnir í hand-
'knattleik, HG, hafa nú loksins
getað þegið boð um íslandsferð
'og koma hingað 14. október og
leika hér fjóra leiki. Þetta hefur
'verið langsterkasta lið Dana um
'skeið og því mikill fengur að
komu þess. Liðið skipa m. a. 5
'úr silfurliði Dana í síðustu
'heimsmeistarakeppni og margir
liðsmanna eru víðfrægir fyrir
'getu sína í handknattleik. Það
iná því segja að með komu liðs-
íns rætist gamall draumur.
' Handknattleiksdeild KR sem á
haustheimsóknina að þessu sinni,
hefur nú tekizt að fá hingað til
'lands þetta lið og kemur það
með alla sína sterkustu menn
(o.g vonandi veitir ekki af) .HG
ihefur margoft verið boðið að
koma til íslands en aldrei getað
þegið boð fyrr en nú.
Liðið kemur hingað hinn 14.
'okt. og fer þann 21. okt. Það
leikur fjóra leiki við okkar sterk-
'ustu lið svo og úrvalslið H.S.f.
Óþarfi ætti að vera að kynna
þetta fræga lið fyrir íslenzku
handknattleiksfólkí og unnend-
'um íþrótta yfirleitt svo mikið
hefur verið rætt og ritað um það.
Þó er vert að geta þess að með
liðinu leika fjórir liðsmenn úr
ÍSLENZKT dómaratríó var í
leik norska liðsins Lyn og tyrkn
eska liðsins Altay Izmar í síðari
ieik liðanna í Evrópukeppni bik
armeistara, sem fram fór í Osló
í gærkvöldi. Norska liðið náði
mjög góðri byrjun og vann leik
inn, 4-1. Mikil harka varð í síð-
ari hálfleik og að sögn réði
Steinn Guðmundsson ekki við
neitt.
NTB-fréttastofan segir að í síð
ari hálfleik hafi leikurinn skipt
um svip, upphófust hraðupp-
hiaup á báðar hliðar, lítið um
góðan leik en mikið um leik-
hinu fræga silfurliði Dana frá
síðustu HM keppni í Svíþjóð, og
þrír af þeim sem leika með HG
hér, voru með danska landslið-
'inu sem tapaði fyrir því íslenzka
'10—15 síðastliðið haust en það
'var raunar einn eftirminnileg-
asti landsleikur íslendinga í
'handknattleik.
Með HG leika t. d. Bent Mort-
'ensen. markvörðurinn heims-
ÝMSIR Evrópuleikir voru leikn-
ir í gær og viturn við um þessi
úrslit:
KEPPNI MEISTARALIÐA
Rapid Vín — Rosenborg 3-3.
2-2 í hálfleik. Rapid heldur áfram
með samanlagða markatölu 6-4.
. Spartak Trnava Tékkóslóvak-
íu — Steua Bukarest 3-0. Spart-
ak heldur áfram með 5-3 saman-
lagt.
Fenerbahce Tyrklandi — Manc
hester City 2-1. Fenerbache hef-
ur þá slegið út ensku meistarana
með 2-1 samanlagt.
brot og síðan segir:
„íslenzki dómarinn, sem í fyrri
hálfleik skipti sér ekkert af leikn
um, smitaðist af taugaspennunni
og flautaði í tíma og ótíma og i
flestum tilfellum að ástæðu-
lausu. En hann var isvo diplo-
matiskur að skipta aukaspyrn-
unum nokkurn veginn jafnt
milli liða, þó það nægði .engan
veginn til að draga úr því slæma
áliti, sem maður fékk á honum“.
Sigur Lyn var nógur til að
þeir unnu upp tapið í fyrri leikn
um, 3-1 og komast í 2. umferð
með samanlagt 5-4.
frægi, Vemer Gaard, Gert
Andersen, Gunnar Jurgens og
'Carsten Lund, en hann var í
sumar eini Norðurlandabúinn
sem valinn var til að leika í
heimsliðinu á móti heimsmeist-
urunum Tékkóslóvakíu. Saman-
lagður landsleikjafjöldi þessara
manna er 200 leikir.
Með HG eru einnig nokkrir
‘ungir upprennandi handknatt-
leiksmenn sem leikið hafa fjölda
'unglingalandsliðsleikja.
Celtic Skotlandi — St. Eti-
enne Frakklandsmeistarar 4—0.
Celtic heldur áfram með 4—2
samanlagt. Leikurinn var harður
og mikill slagsmálaleikur.
—Manch. Utd. -— Waterford fr
landi 7—1. Manchester Utd. held
ur áfram með 10—2 samanlagt.
Jeauness d’esch Lux. — A50K
Athen, Grikklandi 3-2. AEK
heldur áfram með 5—3 saman-
lagt.
Ajax Amsterdam — FC Nurn-
berg 4—0. Ajax heldur áfram
með 5—1 samanlagt.
AB Kaupmannahöfn — FC
Zurich 1—2. AB áfram með 4—3
samanlagt.
Glentorian N-írland — And-
srlecht Belgía 2—2. Anderlect
áfram með 5—2 samanlagt.
'Bikarmeistarar
Apoel, Kýpur — Dunfermline
0—2. Dunfermlina heldur áfram
■með 12—1 samanlagt.
Bor, Júgóslavíu —■ Slovan
Bratislava Tékkóslóvakíu (mót-
herjarnir sem KR fengu upphaf-
lega) 2—0. Slovan heldur áfram
með 3—2 samanlagt.
West Bromwich Albion —
Brugges Belgíu 2—0. West Brom.
'kemst áfram á jafruri stigatölu
'3—3, því þeir skoruðu mark á
útivelli (1:3).
FC Köln — Giroindins Frakk-
landi 3—0. Köln áfram með 4—2
samtals.
Shamrock írlandi — Freja
Randers, Danmörku 1—2. Freja
áfram með 3—1 samanlagt.
Nörrköping — Belfast, N.-ír-
land 4—1. Nörrköping áfram
6—3 samtals.
Sagt eftir leikinn
Fréttamaður Mbl. í Lissa-
bon átti tal við Simoes, Col-
una og Otto Gloria þjálfara
eftir leikinn.
Gloria hrósaði Sigurði mark
verði, kvað hann mjög efni-
legan og hafa skemmtilega til
finningu fyrir knattleiknum.
Á sama hátt hrósaði hann
Reyni Jónssyni og Eusebio
bætti í þann hóp einnig Her-
manni og Ingvari, sem hann
kvað hafa sýnt skemmtilegan
leik.
Eusebio minntist á atburð-
inn í Laugardal er krakkarn-
ir hlupu á eftir honum inn á
völlinn í hálfleik. Kvað hann
það bara hafa verið skemmti-
legt og bað fyrir kveðjur til
allra er hann hefði hitt hér.
íslandsheimsóknin hefði ver-
ið mjög ánægjuleg.
Allir iýstu þeir undrun á að
Valsmenn skyldu sýna svo
mikið keppnisskap þrátt fyr-
ir markasúpuna á herðum
þeirra.
Óli B. þjálfari sagði, að lið-
ið hefði brotnað í byrjun við
hraða Benfica. Hann hefði
ætlað að hafa tvo framherja,
en það hefði gefizt illa. Hann
var ánægður með leik Vals-
liðsins í siðari hálfleik, en þá
náðu þeir sínum bezta kafla,
eins og einnig sést á marka-
tölunni.
ísL dómarinn
þótti afleitur
Evrópuleikir í gær