Morgunblaðið - 03.10.1968, Síða 28
AUGLYSINGiR
SÍMI SS*4*8Q
FIMMTUDAGUR 3. OKTÚBER 1968
Bílar í erfiðleikum
á Holtavörðuheiði
Þaðan fært til Akureyrar
MIKIL hríð var í fyrrinótt á
Holtavörðuheiði og náði snjó-
koman norður undir HólmaVík.
Festust fjölmargir bílar á heið-
inni og seinni hluta nætur var
Vegagerðin að hjálpa fólkinu,
enda voru margir illa búnir til
fjallaferðar. Um hádegi í gær
fóru vegagerðarmenn aftur á
heiðina og ætluðu að hjálpa stór
um bílum norður yfir. Og um
kl. 6 var orðið fært.
Einn af fréttamönnum Mbl.
átti leið suður um Holtavörðu-
heiði í fyrrinótt. Heiðin hafði
verið mokuð, en um 7 leytið um
kvöldið, var farið að skafa. Norð
urhluti hjeiðarinnar var greið-
fær, en snjórinn settist í suður-
brekkuna. Tveim tímum eftir að
hefði náð norður undir Hólma-
vík og suður undir Borgarnes og
Framh. á bls. 27
Togarar seldu
í Þýzkalandi
TOGARINN Röðull seldi afla
sinn í Cuxhaven sl. þriðjudags-
morgun, alls 123 tonn, fyrir
134.880 mörk.
Togarinn Úranus seldi í gær-
morgun í Bremenhaven 118 tonn
fyrir 105.100 mörk.
BROTIZT var inn í málningar-
verksmiðjuna Hörpu í fyrrinótt
og stolið 150 krónum og stimpli
fyrirtækisins ásamt stimpilpúða.
mokað hafði verið, var suður-
brekkan orðin illfær bílum. Þar
var mikill skafrenningur og
hríð.
Bílalest var á leið að norðan.
Að sunnan komu mest stórir bíl-
ar, sem stönzuðu í Fornahvammi
og á Hreðavatni. Margir af norð-
anbílunum voru illa útbúnir og
um 10 leytið var brekkan sunn-
an í heiðinni orðin ófær litlum
bílum. Þarna var mikill mann-
skapur í bílunum og þegar bíll
sat fastur í skafli, gengu menn í
að moka og ryðja. En skafrenn-
ingurinn var svo mikill að jafn-
óðum skóf í förin.
Sendi Vegagerðin fyrst eitt
moksturstæki á móti bílunum, en
síðar annað. Og var að minnsta
kosti allt fólk komið niður í
Fornahvamm um kl. 6 um morg-
uninn.
FÆRÐ ANNARS STAÐAR
Mbl. fékk þær upplýsingar hjá
Arnkeli Einarssyni á Vegamála-
skrifstofunni, að snjókoman
Fiskveiðar í fiskveiðilandhelgi?
Stjórnskipuð nefnd geri tillögur
MBL. hefur borizt eftirfarandi
fréttatilkynning frá Sjávarútvegs
málaráðuney tinu:
Ráðuneytið hefur í dag skipað
fimm manna nefnd samkvæmt til
nefningu stjórnmálaflokkanna til
þess að gera tillögur til ríkis-
stjórnarinnar um fiskveiðar í
fiskveiðilandhelginni. Tillögurnar
eiga að miðast við sem bezta hag-
nýtingu fiskveiðilandhelginnar
fyrir sjávarútveginn í heild og
einstök útgerðarsvæði og skulu
þær ná til allra skipastærða og
veiðiaðferðar.
Við tillögugerð sína skal nefnd
in gæta sérstaklega, að nauðsyn-
legt er að forðast ofveiði nytja-
Drengur bíður bana
í dráttarvélaslysi
Akureyri, 2. okt. — Það slys
varð á bænum Litlu Brekku í
Amameshreppi í gærmorgun, að
7 ára sonur bóndans þar, Daníel
Geirfinnsson, varð undir dráttar
vél og befð bana.
Verið var að flytja mjólkina
út á veg á dráttarvélinni. Mun
Daníel hafa setið á vélinni ásamt
ökumanni, fallið af henni og lent
undir öðm afturhjólinu. Hringt
var strax eftir sjúkrabíl frá Akur
eyri, sem kom að lítilli stundu
liðinni og flutti drenginn í sjúkra
hús. En litli drengurinn lézt imi
það bil, sem komið var með
hann þangað.
Hann var sonur hjónanna
Kristjönu Ólafsdóttur og Geir-
finns Hermannssonar bónda.
— Sv. P.
Metsala í Grimsby
— 27,50 fyrir kg. af flatfiski
VÉLBÁTURINN Glófaxj seldi
afla sinn í Grimsby í gær-
morgun. Var báturinn með
14,5 tqnn af flatfiski, sem
seldust fyrir rúmlega kr. 27,50
kg. Er það eitthvert hæsta
verð, sem fengizt hefur fyrir
kilóið af fiski á brezkum
markaði.
Glófaxi er frá Neskaupstað.
Skipstjóri er Birgir Sigurðs-
son. Hefur báturinn stundað
humarveiðar í haust og er
þetta fyrsta söluferðin hans.
Var hann með gríðarlega
stóran kola, það sem sjómenn
kalla .Jieila hlemma“, að sögn
fréttaritara blaðsins í Nes-
kaupstað. Ýmsir bátar hafa
verið að veiðum að undan-
förnu fyrir Austurlandi og
haft góðan afla, en það farið
eftir sölum Norðursjávarbáta
hve gott verð þeir hafa fengið
erlendis.
Þrír bátar munu eiga að
selja á mánudag, þriðjudag og
miðvikudag, og er Björg frá
Neskaupstað einn af þeim. Er
hún með 40 tonn, en aðeins
um helmingur koli. Verður
fiska.
í nefndinni eiga sæti:
Jón Árm. Héðinsson, alþm., til-
nefndur af Alþýðuflokknum, sem
jafnframt er skipaður formaður
nefndarinnar.
Jón Skaftason, alþm., tilnefnd-
ur af Framsóknarflokknum.
Guðlaugur Gíslason, alþm. og
Sverrir Júlíusson, alþm., tilnefnd
ur af Sjálfstæðisflokknum og
Lúðvík Jósefsson, alþm. tilnefnd
ur af Alþýðubandalaginu.
Öfærö tefur slátur-
fiárflutninga
Hríðarveðrið, sem skall á um
sl. helgi, kom óvænt og olli ýms-
um erfiðleikum. Ekki telja
menn að mikil brögð hafi orðið
að því að fé hafi fennt, þló verði
það Ækki séð fyrr en síðar. Víða
hafi ein og ein kind þó farizt.
Þessi skyndilega ófærð á veg-
um veldur bændum erfiðleikum,
því víða gengur seinlega að
koma 'sláturfé á réttum tíma í
sláturhús. Þar fá bændur fyrir-
fram úthlutað vissum dögum, og
nái þeir ekki með fé sitt þann
dag, færast þeir aftur fyrir röð-
ina. En sláturdagar eru miðaðir
við smölunardaga.
Þannig áttu bændur á Skaga í
erfiðleikum með að koma fé
sínu til Sauðárkróks. Voru fengn
ir vegagerðarbílar til aðstoðar á
þriðjudag til að fara út að
Hrauni og hjálpa til við að koma
fénu áleiðis. Komu sumir bílarn-
ir á Sauðárkrók um nóttina, en
aðrir ekki fvrr en upp úr há-
Fundur fram
nótt
fróðlegt að sjá hve
verð fæst fyrir hann.
mikið
ÞINGFUNDUR BSRB stóð enn
er blaðið fór í prentun í gær-
kvöldi. Var verið að samþykkja
tillögur um nokkrar lagabreyt-
ingar. Starfsmannafélag Reykja-
víkur bar fram tillögu um að
setja milliliðaþingnefnd um
skipulagsmál. Þá voru einnig í
Framhald k bls. 27
degi í gær. Gekk ferðin mjög
seint.
Einnig þurfti að flytja slátur-
fé og þessvegna mokaðir vegir
Framh. á bls. 27
Það var kuldalegt á Blönduí
1 ósi eftir fyrstu hríð vetrarins J
- en líka fagurt um að litast"
| við Blöndu. Þessa mynd tók I
, Bjöm Bergmann við árós |
' Blöndu á þriðjudag.
Ekkert veiðiveð-
ur á síldar
miðureum
VEÐUR hefur hamlað síldveið-
um undangengna sólarhringa.
Fréttaritari blaðsins á Raufar-
höfn símaði: Saltaðar voru hér
á Raufarhöfn 1628 tunnur í nótt
og í dag. Björg hf saltaði úr
Örfirisey RE 1057 tunnum og
Borgir hf einnig úr Örfirisey
'256 tunnum. Einnig úr Verði frá
Grenivík 310 tunnum.
Hér liggja inni 4 síldveiðiskip
vegna veðurs og er ekkert veiði-
véður á miðunum.
Flutningaskipið Borgsund frá
Haugasundi er hér og lestaT hér
2100 tunnur af sjósaltaðri síld til
'Svíþjóðar.
Stúdentar mótmæla
niðurfellingu
á kennslu í hljóðfrœði og málvísindum
1 Háskóla Islands hefur verið
hengd upp tilkynning um að
menntamálaráðuneytið hafi fellt
niður reglugerðarákvæði um
kennslu í almennum málvísind-
um og hljóðfræði til forprófs.
Mun hafa orðið óánægja meðal
heimspekideildarstúdenta vegna
þess að kennslu er hætt í þess-
um námsgreinum. Hefur stúd-
entaráð ákveðið áð standa á bak
við heimspekideildarstúdenta um
að skora á menntamálaráðuneyt
ið að láta halda áfram kennslu í
þessum fögum. Telja stúdentarn
ir sig ekki geta verið án kennslu
í þeim.
Mbl. sneri sér til deildarfor-
seta heimspekideildar, dr. Bjama
Guðnasonar, prófessors. Hann
sagði að kennsla í almennum
málvísindum og hljóðfræði til
forprófs hefði verið tekin upp
áríð 1965. Þá var dósentsembætti
stofnað. Nú hefur komið í ljós,
að kennslan fór einkanlega fram
á haustmisserinu, en lítið á vor-
misseri, þannig að kennslustunda
fjöldi nægði ekki til dósents-
launa. Er gert ráð fyrir 6 stunda
kennslu á viku allan kennslu-
tímann. Ráðuneytið breytti þessu
þá þannig, að greiða skyldi hálf
dósentslaun. En heimspekideild
tókst ekki að fá kennara fyrir þá
greiðslu, svo segja mætti að
kennaraskortur sé aðalorsökin.
Áður kenndi dr. Hreinn Bene-
diktsson þetta me<ð öðrum fög-
um.
Aðspurður hvort' kennarar
heimspekideildar hefðu verið þvl
samþykkir að kennsla í þessum
greinum félli niður, sagði Bjami
að svo væri ekki. I»eir hefðu
lagzt gegn því og teldu að stúdent
ar þyrftu á henni að halda.